Morgunblaðið - 08.01.1994, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
Vá fyrir dyrum?
eftir Björn
Magnússon
„Þá er þeim kapítula lokið,“ sagði
landlæknir Bandaríkjanna 1969 og
átti við, að læknavísindin hefðu nú
undirtökin í glímunni við smitsjúk-
dómana. Ekki rættist spáin sú, því
miður, og sannast þar enn hið forn-
kveðna, „að vandséð er veður að
morgni“. Staðreyndin er nefnilega
sú, að núna deyja mun fleiri jarð-
arbúar af völdum smitsjúkdóma en
af öðrum ástæðum. Flestir vöknuðu
fyrst óþyrmilega af sínum væra
blundi og andvaraleysi er nýr smit-
sjúkdómur tók að breiðast út sem
eldur í sinu í kringum 1980. Hver
man ekki risafyrirsagnir dagblaða
frá þessum tíma, t.d. „Gáta áunn-
innar ónæmisbæklunar (-AIDS) er
enn óráðin og sjúklingar deyja unn-
vörpum: Um alvarlegt fár er að
ræða“ (Tíminn, 14. maí 1983).
Allir þekkja svo framhaldið, sjúk-
dómurinn nýi reyndist framan af
hið besta fóður æsifrétta og for-
dóma eða þar til skynsemi fólks
náði yfirhöndinni og menn fræddust
betur um eðli þessa faraldurs, smit-
leið og orsök, þ.e. HlV-veiruna.
Hinu hafa menn svo gleymt í öllu
fjölmiðlafárinu, að aðrir gamal-
kunnir sjúkdómar hafa sótt í sig
veðrið, ekki síst í kjölfar stríðs, fá-
tæktar, hungurs og annarra hörm-
unga, sem mannkynið hrella.
Lyfjaónæmi fer og vaxandi þannig
að áður auðlæknanlegir smitsjúk-
dómar gætu með tíð og tíma orðið
illviðráðanlegir.
Nú er svo komið, að aftur er
farið að raska ró manna með risa-
fyrirsögnum dagblaða og lækna-
tímarita varðandi gamalþekktan
fylgifisk mannkyns, berklana, sem
fyrr á öldum var helsta dánarorsök
ungs fólks á Islandi. Þannig mátti
lesa í Los Angeles Times 1992
„Banvænn sjúkdómur snýr aftur“
(„A Deadly Disease Makes a
Comeback") og í læknatímaritum
„Vá fyrir dyrum“ („A Catastrophe
is Brewing", Chest, febrúar 1993),
og „Hvíti dauðinn snýr atur“ („The
White Plague Returns", Monaldi
Avch. for Chest Dis. 1993).
Hvað er að gerast? Eru berklar
ekki gamalþekktur sjúkdómur? Jú,
berklar hafa fylgt mannkyninu um
árþúsundir og finnast m.a. í múm-
íum frá tíma faraóanna. Er ekki til
lækning? Jú, oftast nær er auðvelt
að lækna berklasýkingu. Höfum við
kannski sofnað á verðinum? Því
miður er svarið við þessari spurn-
ingu einnig játandi. Staðreyndin er
nefnilega sú, að u.þ.b. þriðjungur
jarðarbúa er smitaður af berklum,
8 milljónir nýrra berklasjúklinga
greinast árlega og tæplega 3 millj-
ónir deyja vegna sjúkdómsins.
Berklar valda nú 6,7% allra dauðs-
falla í þróunarlöndum og síðustu
árin hefur berklaveikum fjölgað
víða í vestrænum löndum. Þannig
varð um 18% fjölgun berklaveikra
í Bandaríkjunum frá 1985 til 1991.
I glímunni við berklana á liðnum
öldum og áratugum höfum við lært
margt um smitleiðir berklaveikinn-
ar. Við vitum að smit berst manna
á milli með örsmáum úðadropum
sem við öndum eða hóstum frá
okkur, Þessir dropar geta svifið í
loftinu langtímum saman, þannig
að þar sem loftræsting er ófullkom-
in getur safnast fyrir mikill fj'öldi
dropa sem bera berklabakteríuna
og geta sýkt þann sem andar þeim
að sér. Yfirleitt veikjast menn ekki
af berklum strax eftir sýkingu, þar
sem ónæmiskerfi líkamans stöðvar
eða tefur- útbreiðslu sjúkdómsins í
byrjun. Onæmissvörunin veldur því
nins vegar að húðpróf verða jákvæð
gagnvart berklum. Berklaveiki
kemur svo fram hjá 10 af hundraði
þeirra sem sýkjast í byrjun, annað-
hvort fljótlega eða síðar á ævinni.
Berklabakteríur hafa nefnilega
þann einstæða hæfileika að geta
legið í dvala í líkamanum langtím-
um saman. Þegar svo ytri skilyrði
breytast geta berklamir blossað
upp aftur. Líkurnar á því að þetta
gerist eru stórauknar meðal HIV-
smitaðra og eiturlyfjaneytenda og
meðal sjúklinga með ýmsa lang-
vinna sjúkdóma, s.s. sykursýki,
nýrnasjúkdóma og blóðsjúkdóma.
Þá er þeim sem hafa megrast óeðli-
lega og þeim sem eru á ónæm-
isbæklandi lyijameðferð hættara
við berklum en öðrum.
Greining
Greining berkla byggist aðallega
á ræktun berklabaktería frá hráka
eða veijasýnum sem getur tekið
allt að sex vikur. Smásjárskoðun
getur vissulega stutt sjúkdóms-
greininguna svo og húðpróf, sér-
staklega þegar vitað er að svörun
er nýlega orðin jákvæð. Mælt er
með því nú til dags að húðprófa
þá sem hafa einkenni berkia og þá
sem hafa verið í nálægð berkla-
veikra. Auk þess er æskilegt að
húðprófa HlV-jákvæða einstakl-
inga og þá áhættuhópa aðra sem
fyrr voru nefndir. Þá er einnig
mælt með því að húðprófa innflytj-
endur frá þróunarlöndum, s.s. frá
Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.
Einkenni
Sjúkdómseinkenni berkla í lung-
um eru helst almenn þreyta, næt-
ursviti, hitavella og hósti ásamt
uppgangi, stundum með blóðrákum.
Stöku sinnum getur blóðspýtingur
orðið verulegur. Margs kor.ar önnur
einkennni fylgja svo berklum i öðr-
um líffærum en lungum, s.s. bak-
verkir, berist berklarnir í hi-yggs-
úlu, eitlastækkanir, einkenni frá
miðtaugakefi o.fl. Almennt valda
berkiarnir bólgu og veijaskemmd-
um sem leiða til örkumla eða draga
sjúklinginn til dauða sé ekkert að
gert.
Meðferð
í meðferð eru notuð lyf sem
drepa berklabakteríur eða hindra
vöxt þeirra. Sé aðeins meðhöndlað
með einu berklalyfi eru líkur á
myndum lyljaónæmis verulegar en
undir venjulegum kingumstæðum
litlar séu notuð tvö lyf eða fleiri.
Þegar grunur er um ónæmi gagn-
vart einu lyfí skal ætíð meðhöndla
með a.m.k. tveim lyfjum sem sjúk-
lingurinn hefur ekki áður fengið.
Venjulegast er nú til dags að gefa
lyf í sex mánuði, þó lengur þegar
um er að ræða lyljaónæmi eða
HlV-smitaðan einstakling. Venju-
lega gengur meðferð vel og meira
en 95% sjúklinganna sem fá lyf í
fyrsta sinn læknast. Þetta á þó
ekki við þegar um ijölónæmar bakt-
eríur er að ræða því þá deyja
40-60% sjúklinganna þrátt fyrir
eftir Tómas
Þorvaldsson
Á lokaspretti fjárlagagerðar fyrir
árið 1994 voru gerð afdrifarík mistök
varðandi framlög til Kvikmynda-
sjóðs. Lögbundið framlag var skert
um um það bil 12 milljónir og að
auki er sjóðnum nú gert að standa
undir Kvikmyndasafni sem áður fékk
sérstakt framlag til starfsemi sinnar.
Alls er hér um niðurskurð að ræða
sem nemur um það bil 19 milljónum,
þ.e.a.s. ca 17% af mörkuðum tekju-
stofni Kvikmyndasjóðs.
Er þetta ekki allt í lagi, spyr ein-
hver, er þetta ekki í takt við almenn-
an niðurskurð? Svarið er nei. Vegna
þess að í fyrsta lagi er niðurskurður
þessi margfalt meiri en flestar aði-ar
listgreinar hafa mátt þola og í öðru
lagi hefur-aldrei talist vit í því að
skera góða mjólkurkú.
Slys
Þessi niðurskurður er slys. Tökum
langtímameðferð með öllum tiltæk-
um berklalyfjum.
Berklavarnir
Finnist sjúklingur með smitandi
berkla þarf að leita strax að smituð-
um og sjúkum. Líkur á að sjúkling-
ur sé smitandi eru verulega auknar
ef berklabakteríur sjást í hráka,
þegar sjúklingur hóstar mikið og
þegar berklahola er til staðar á
röntgenmynd af lungum. Finnist
ekki smit í nánasta umgengnishóp
sjúklings er óhætt að hætta leit.
Finnist hins vegar smit er leit út-
víkkuð.
Sá sem hefur verið í nálægð
smitandi berklasjúklings er húð-
prófaður gagnvart berklum. Ef húð-
próf reynist jákvætt er einnig tekin
röntgenmynd af lungum og sýni
hún ekkert athugavert fær viðkom-
andi fyrirbyggjandi meðferð með
einu lyfi í eitt ár. Ef hins vegar
röntgenmyndin vekur grunsemdir
um berkla er beitt fullri lyfjameð-
ferð, a.m.k. þar til niðurstöður rækt-
ana eru kunnar.
Smitandi berklasjúklingar eiga
að þekja vitin við hósta og þeir sem
þá umgangast þurfa að bera þétta
maska. Þá þarf loftræsting að vera
í góðu lagi. Á sjúkrahúsum þyrftu
að vera til staðar einangrunarher-
bergi með lækkuðum loftþrýstingi
svo að smit berist ekki inn á aðrar
sjúkrastofur. Smitandi berklasjúk-
lingi sem dvelst á sjúkrastofnun er
gjarnan haldið í einangrun þar til
berklabakteríur eru horfnar úr
hráka og batamerki koma fram.
Ef loftræsting á sjúkrastofnun er
léleg og einangrunarherbergi ekki
til staðar getur verið góður kostur
að meðhöndla sjúkling heima hjá
honum.
Eru berklar pólitískur
sjúkdómur?
Sennilega má segja um flesta
sjúkdóma að þeir séu að einhveiju
leyti háðir pólitík, a.m.k. taka
stjórnvöld stefnumarkandi ákvarð-
anir í heilbrigðismálum og geta
þannig ráðið hvaða verkefni hafa
forgang hvetju sinni. Stjórnvöld
hafa einnig áhrif á efnahag fólks
auk þess sem þau ráða nokkru um
hvort ríkir stríð eða friður sem
hvoru tveggja ræður miklu um
heilsufar almennings.
„Eru berklarnir nú á dögum póli-
tískur sjúkdómur?" Þessu verðum
við að svara játandi. Berklar hafa
nefnilega frá fyrstu tíð verið fylgi-
fískur fátæktar, lélegs húsnæðis og
þrengsla auk þess sem meðferð er
dýr og því háð vilja stjórnvalda.
Ofangreindar ástæður ásamt með
HlV-faraldrinum valda einmitt
mestu um hraða útbreiðslu berkla
á allra síðustu árum.
fyrst beinharða fjárhagshliðina. Hún
er mönnum oft skiljanlegust. Á síð-
ustu árum hafa íslenskar kvikmynd-
ir verið fjármagnaðar að stórum
hluta með erlendu fjármagni. Þannig
hefur komið fram síaukin viðurkenn-
ing á íslenskri kvikmyndagerð; við
höfum loksins verið að ná fótfestu
á íslandi sem erlendis, það er tekið
mark á okkur. Gjarnan hefur u.þ.b.
20 milljóna framlag Kvikmyndasjóðs
til myndar skapað gjaldeyrístekjur á
bilinu 60 til 80 milljónir sem hafa
runnið að stærstum hluta beint inn
í íslenskt efnahagslíf til greiðslu
launa, þjónustu og aðfanga. Kvik-
myndagerð er miklu • víðtækari og
umfangsmeiri og þar með dýrari
starfsemi en menn virðast gera sér
grein fyrir.
En ekkert fæst með engu. Frum-
skilyrði og forsenda þeses að fjár-
magn fáist erlendis_ frá er framlag
úr Kvikmyndasjóði Islands. Svo ein-
falt er það.
Þess má geta að flestar evrópskar
Björn Magnússon
„„Eru berklarnir nú á
dög’um pólitískur sjúk-
dómur?“ Þessu verðum
við að svara játandi.
Berklar hafa nefnilega
frá fyrstu tíð verið
fylgifiskur fátæktar,
lélegs húsnæðis og
þrengsla auk þess sem
meðferð er dýr og því
háð vilja sljórnvalda.
Ofangreindar ástæður
ásamt með HlV-far-
aldrinum valda einmitt
mestu um hraða út-
breiðslu berkla á allra
síðustu árum.“
Skýrt dæmi um þetta er ástandið
í New York borg. Árið 1968 var
þar í borg varið 40 milljónum doll-
ara árlega í berklaeftirlit og með-
ferð. Þá var þar 21 göngudeild til
greiningar og meðferðar á berklum
auk þess sem meira en 1.000 legu-
rúm voru ætluð berklasjúklingum
eingöngu. Tíu árum síðar var aðeins
23-25 milljónum dollara varið í
berklaeftirlit og meðferð, göngu-
deildirnar voru orðnar níu og sér-
merktu _ sjúkrarýmin voru nánast
horfin. Á sama tíma og berklavöm-
um og meðferð hnignaði stórlega
voru geðsjúklingar útskrifaðir í
stórum stíl á guð og gaddinn og
eiturlyfjaneytendum fór fjölgandi.
Fljótlega varð ekki þverfótað fyrir
heimilislausum á strætum stórborg-
anna, meira og minna veikum and-
lega og Iíkamleg;a. Töfralausnin var
svo sú að byggja risaskýli þangað
sem troðið var alkóhólistum, eitur-
lyíjaneytendum og geðsjúkum,
veikum og vannærðum. Aðstæður
„Gjarnan hefur u.þ.b.
20 milljóna framlag
Kvikmyndasjóðs til
myndar skapað gjald-
eyristekjur á bilinu 60
til 80 milljónir sem hafa
runnið að stærstum
hluta beint inn í íslenskt
efnahagslíf til greiðslu
launa, þjónustu og að-
fanga.“
myndir njóta hlutfallslega miklu
hasrri framlaga frá sjóðum og stofn-
unum en gerist með íslenskar mynd-
ir.
Menningarstefna
Þó að kvikmyndalistin sé ekki
sem þessar eru einmitt söguleg
gróðrastía berklaveiki. Þegar svo
HlV-faraldurinn bætist við þarf
engan að undra að berklaveikum
fari fjölgandi.
Sem dæmi um vandann má geta
þess að í einni rannsókn í New
York borg reyndust 42,8% af 1.853
skýlisbúum sem leituðu læknis vera
smitaðir af berklum. Hinir dæmi-
gerðu skýlisbúar eru svo nánast
fullkomlega ósamvinnuþýðir hvað
varðar lyfjagjöf og eftirlit. Vegna
vanrækslu við lyfjatöku myndast
því oftlega ónæmi gagnvart helstu
berklalyljum sem annars er auðvelt
að koma í veg fyrir. Séu lyfin þann-
ig tekin í of stuttan tíma eða með
höppum og glöppum myndast fljót-
lega illvígir fjölónæmir bakteríu-
stofnar.
Hvað er til úrbóta?
Auðvitað gilda ekki sömu lögmál
á íslandi og í stórborgum Banda-
ríkjanna en hafa ber þó í huga'að
stutt er á milli Manhattan og Miklu-
brautar.
í fyrsta lagi er nauðsynlegt að
dusta rykið af gömlum ráðum til
varnar berklaveiki, s.s. því að beina
berklaveikum einstaklingum til
meðferðar hjá sérfróðum aðilum.
Þegar um ósamvinnuþýða sjúklinga
er að ræða þarf með öflugu eftir-
liti, annaðhvort á göngudeildum eða
í heimahúsum, að sjá til þess að
þeir taki lyf sín á réttan hátt. Með-
ferð þarf að vera ökeypis auk þess
sem fræðsla tryggir meðferðar-
heldni. Þá þarf nauðsynlega að
skerpa á námi og uppfræðslu heil-
brigðisstétta hvað berkla varðar.
Loks er mikilvægt að fylgjast vel
með áhættuhópum, s.s. innflytjend-
um frá svæðum þar sem berklar
eru landlægir. Nauðsynlegt er að
berklaprófa þessa einstaklinga og
röntgenmynda þegar þeir koma
hingað til lands til dvalar eða í at-
vinnuskyni. Þá er ekki síst nauðsyn-
legt að viðhalda góðum lífskjörum
því fátækt, vannæring og lélegt
heilsufar býr í haginn fyrir berkl-
ana. í okkar landi ofgnóttanna ætti
þetta að vera auðvelt því eins og
skáldið sagði: „í kringum Reykjavík
flögra milljónir stórra fugla af ýms-
um tegundum sem alltaf eru að éta
eitthvað úr sjónum. Þessir fuglar
hafa aungvar tekjur af bókum sín-
um en þeir lifa flott.“
Helstu heimildir:
1. Bloom BR, Murray CJL. Tuberculosis:
Commentary on a Reemergent Killer. Sci-
ence 1992; 257: 1055-1064.
2. Control of Tuberculosis in the United
States. American Thoracic Society State-
ment. American Review of Respiratory
Disease 1992; 146: 1623-1633.
3. Brudney K. Dobkin J: Resurgent Tu-
berculosis in New York City. American
Review of Respiratory Disease 1991; 144:
745-749.
4. Barnes PF et al: Tuberculosis in Pati-
ents with Human Immunodeficiency Virus
Infection. New England Journal of Medicine
1991; 324: 1644-1650.
5. Halldór Laxness: ísiendingaspjall.
Helgafell. Reykjavík 1967.
Höfundur erlæknir, sérfræðingur
í iungnasjúkdómum.
nema aldar gömul hefir hún fyrir
löngu hlotið viðurkenningu í menn-
ingarríkjum. Aðrar listgreinar njóta
góðs af styrk kvikmyndanna enda
saineina þær allar listgreinar.
Kvikmyndir og sjónvarpsmyndir
eru ótvírætt áhrifaríkasti menning-
armiðill veraldar og því best fallnar
til eflingar og varðveislu íslenskrar
menningar og kynningar á landi og
Þjóð-
Hér á landi er ekki nema rúmur
áratugur síðan samfelld framleiðsla
leikinná bíómynda hófst og verður
að telja kvikmyndalistina einn mik-
ilvægasta vaxtarbrodd íslensks
menningarlífs og athafnalífs. Þetta
hefur í raun ekki verið viðurkennt.
Framsýnir þingmenn hefðu ekki
skert lögbundið framlag til Kvik-
myndasjóðs. Þeir hefðu aukið það.
Það er hagkvæmt, beint og óbeint.
Það er ábatasamt hvort sem litið er
á listrænar, menningarlegar, fjár-
hagslegar eða landkynningarfor-
sendur. Með auknu framlagi mætti
Reynt að kæfa vaxtarbrodd