Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
17
Kort það yfir þjóðgarðinn á Þingvöllum og áhrifasvæði hans sem
gert var í tengslum við skipulag Þingvalla árið 1988.
um 75-80 milljarða króna upphæð
á verðlagi ársins,“ er í greinargerð-
inni haft eftir Pétri M. Jónassyni
prófessor en hann er einn höfunda
þessa kafla greinargerðarinnar.
Óskipulögð
sumarbústaðabyggð
Á hinu afmarkaða vatnasviði
Þingvallavatns eru nú um 590 sum-
arbústaðir og hefur fjöldi þeirra tvö-
faldast á stuttum tíma auk þess sem
um 200 lóðir hafa verið skipulagðar
undir sumarbústaði. í samtali Morg-
unblaðsins við Auði Sveinsdóttur
kom fram að þrátt fyrir að allt land-
ið hefði verið gert skipulagsskylt
með lögum árið 1979 hafi uppbygg-
ing sumarbústaðabyggðar á Þing-
vallasvæðinu eins og víða annars
staðar verið án tillits til fyrirmæla
laganna. Þannig finnist engar sam-
þykktir hjá Skipulagsstjórn ríkisins
fyrir byggingu sumarbústaða í Þing-
vallahreppi allt frá gildistöku lag-
anna og sama eigi við um fjölmörg
önnur sveitarfélög víða um landið.
Fornar reiðleiðir spillist ekki
í greinargerð samvinnunefndar
um gerð svæðisskipulagsins í Þing-
vallahreppi, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppum segir að sumarbú-
staðabyggð skapi mengunarhættu
og því megi bústöðum ekki fjölga.
Sterkar vísbendingar séu um að
búseta í Þingvallasveit hafi þegar
haft áhrif á vatnið, sethraði í vatn-
inu hafi tvöfaldast frá 1500-1721
og til 1918-1983. Við skipulag
vatnasviðsins sé nauðsynlegt að
beita ströngustu friðunaraðgerðum
til að tryggja að lífríki vatnsins fái
í framtíðinni að þróast í samræmi
við náttúru og jarðfræði svæðisins
en raskist ekki vegna ágangs
manna.
Loks skal þess getið að í greinar-
gerðinni segir að ráðlegast sé að
forðast mengun af ferðamanna-
straumi með því að hafa ailan hótel-
rekstur utan vatnasviðsins. í hug-
myndum er vísað til þess að hótel-
rekstur sé þegar fyrir hendi í
Haukadal, á Laugarvatni, á Sel-
fossi, í Hveragerði og í Reykjavík.
Einnig kemur m.a. fram að setja
þurfi reglur um umferð hestamanna
sem m.a. taki mið af að fornar reið-
leiðir um svæðið spillist ekki.
Ulfarsfell
Grafarholt ^
fíeynisvatn
Reynisvatnsheiði
Rauðavatn
Hafravatn
Langavatn
0-
Q«thál3
3 101 -I
Dorgveiði í Reynisvatni
VEIÐILEYFI til dorgveiði á ís í
Reynisvatni í Reykjavík verða seld
frá og með deginum í dag, laugar-
deginum 8. janúar. Veiðileyfi
verða seld á staðnum á 2.000 krón-
ur með 5 fiska veiðikvóta.
Veiðitími er frá sólarupprás til
sólseturs og verður opið alla daga
þegar veður leyfir nema mánudaga,
sem eru hvíldardagar. Nái veiðimenn
ekki að fylla kvótann fá þeir inneign-
arnótu sem gildir næst þegar veitt er.
Skilafrestur
launaskýrslna o.fl. gagna
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. laga
nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt
hefur skilafrestur eftirtalinna gagna sem
skila ber á árinu 1994 vegna greiðslna
o.fl. á árinu 1993 verið ákveðinn sem
hér segir:
1. Tíl og meá 21. janúar 1994:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt
samtalningsblaði.
4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Tll og með 20. febrúar 1994:
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt
samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt
samtalningsblaði.
3. Tll og með síðasta skiladegi
skattframtala 1994:
1. Greiðslumiðaryfir hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot af
lausafé, fasteignum og
fasteignaréttindurrí, sbr. 1. og 2. tölul.
C-liðar 7. gr. sömu laga.
2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar
sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki,
sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert
og í gildi voru á árinu 1993 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á
fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer
bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði
sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS
RANNSÓKNASJÓÐUR
AUGLYSING UM STYRKI ARIÐ 1994
Rannsóknaráð ríkisins veitir styrki úr Rannsóknasjóði til rannsókna- og þróunar-
starfsemi. Þrenns konar styrkir verða veittir árið 1994:
★ Rannsókna- og þróunarverkefni.
★ „Tæknimenn í fyrirtæki".
★ Forverkefni.
Umsókrtareyðublöð fyrir allar tegundir styrkja fást hjá skrifstofu Rannsóknaráðs
ríkisins, Laugavegi 13, sími 621320.
Raitnsókna- og þróunaverkefni
Rannsóknaráð ríkisins veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1994. Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða
einstaklingar. Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni, vöru eða
aðferðum.
Að uppfylltum kröfum um gæði verkefnanna og hæfni umsækjenda skulu að jafnaði
njóta forgangs verkefni, sem svo háttar um að;
★ niðurstöður gætu leitt til umtalsverðs efnahagslegs ávinnings;
★ vísinda- og tæknileg þekkingaröflun gæti stuðlað að nýsköpun og aukinni
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs;
★ fyrirtæki hafa frumkvæði um og leggja fram umtalsvert framlag til verkefn-
is;
★ samvinna innlendra og/eða erlendra fyrirtækja og/eða stofnana er mikil-
vægur þáttur í að leysa verkefnið og hagnýta niðurstöður.
Jæknimenn í fyrirtæki
•ii
Um er að ræða nýjan flokk styrkja, sem Rannsóknaráð hefur samþykkt að taka
upp. Um styrk geta einungis sótt fyrirtæki. Veittir verða 5 styrkir á árinu.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1994. Styrktarupphæð nemur hálfum launum sér-
fræðings með meistaragráðu. Miðað er við launaflokk BHMR 150 og 40 tíma fasta
yfirvinnu á mánuði ásamt launagjöldum. Tæknimaðurinn skal ráðinn í fullt starf hjá
viðkomandi fyrirtæki, sem greiði helming launanna.
Forgangs skulu njóta umsóknir sem svo háttar um að;
★ umsækjandi er fyrirtæki sem er að hefja nýsköpun og ekki hefur vísinda-
eða tæknimenntað starfsfólk í þjónustu sinni;
★ stefnt sé að umtalsverðri breytingu á tæknistigi fyrirtækis og bættri sam-
keppnisstöðu þess en ekki lausn almennra stjórnunarverkefna;
★ verksviðið falli að áherslum í stefnu Rannsóknaráðs um almenna styrki
úr Rannsóknasjóði.
Forverkefni
Rannsóknaráð ríkisins veitir styrki til forverkefna. Hlutverk forverkefna er að kanna
nýjar hugmyndir og skilgreina tæknileg og þróunarleg vandamál og markaðsþörf,
svo og forsendur samstarfs, áður en lagt er í umfangsmikil r og þ verkefni, sem
hugsanlega verða styrkt úr Rannsóknasjóði. Styrkir þessir eru einnig ætlaðir til minni
rannsókna- og þróunarverkefna. Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir og einstakl-
ingar.
Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við forverkefni geti numið allt að 1.000.000
krónum. Umsóknarfrestur er opinn.