Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994 21 Mikill fjöldi keppenda á fslandsmótinu í þolfimi á Hótel íslandi í kvöld Mestu skiptir að vera liðugur í ÞOLFIMI skiptir miklu máli að vera liðugur og enn frekar Ivjá keppendum á Islandsmótinu í þolfimi á Hótel Islandi i kvöld. Ir- ína Oskarsdóttir er meðal keppenda í kvennaflokki og er með margar óvenjulegar æfingar í tveggja mínútna keppnisatriði sínu. Fjöldi kvenna tekur þátt, en keppnin er haldin í þriðja skipti og er undankeppni fyrir Evrópu- og heimsmeistaramótið í þolfimi. „Keppendur luma allir á ein- hvetjum hreyfingum, fettum og brettum, sem andstæðingarnir vita ekki um. Sumt hefur maður æft í skjóii myrkurs, þannig að enginn viti af. Aðalmálið er að geta látið mjög erfiðar hreyfingar líta út sem þær séu auðveldar við- fangs, hreyfa sig í takt við músík- ina og hafa jafnvægi og öryggi að leiðarljósi,“ sagði hin tvítuga írina, sem keppti á íslandsmótinu í fyrra. „Það verður mjög jöfn keppni í kvennaflokknum. Eg er búin að æfa mjög mikið, af krafti síðan í apríl, bæði lyftingar til að fá styrk í kroppinn og skylduæf- ingarnar sem ráða úrslitum. Ég breytti keppnisatriði mínu veru- lega, hef bæði búið til hreyfingar sjálf og skoðað hvað keppendur á heimsmeistaramótinu í fyrra framkvæmdu. Það hjálpar óneit- anlega að hafa stundað ballett í tíu ár, gefur mér meiri lipurð. Ég hef líka verið á sjóskíðum og segl- brettum yfír sumartímann, sem gefur styrk og jafnvægi." Fjölmenn íþrótt „Fjöldi þeirra sem stunda þol- fimina fer sífellt vaxandi, en í svona mótum eru keppnisatriðin mun flóknari en það sem fólk ger- ir í æfingatímum. Þolfimin er mjög góð ahliða æfing fyrir líkamann. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Kattliðug ÍRINA Óskarsdóttir er kattliðug, hefur æft mikið fyrir Islandsmót- ið í þolfimi og hefur tíu ára reynslu úr ballett. Hún sýnir hér æfingu úr keppnisatriði sínu fyrir utan Perluna í Reykjavík. Það er mjög spennandi að keppa í svo fjölmennri íþrótt og ég býst við harðri keppni,“ sagði Irina. Keppnin hefst klukkan 20.30 'og keppt verður í flokki einstakl- inga og para, en yfirdómari ér Jan Field Byrne frá Englandi. Meðal keppenda er íslandsmeistarinn Magnús Scheving. Á keppninni verður frumsaminn dans og tísku- sýning meðal skemmtiatriða og var hún sett upp af Helenu Jóns- dóttur danshöfundi. Borgey á Höfn Góðar lík- ur taldar á nauða- samningum HALLDÓR Árnason, fram- kvæmdastjóri Borgeyjar hf. á Höfn, segist telja góðar líkur á að nauðasamningar fyrirtækis- ins muni takast og að kröfuhaf- ar muni samþykkja samninginn á fundi sem verður haldinn 14. janúar. Kröfulýsingarfrestur rann út 31. desember og af 56 lánardrottum sem áttu rétt á að lýsa kröfum lýstu 49 aðilar kröfum sínum. Halldór sagði að ef nauðasamning- ur yrði samþykktur ætti héraðs- dómari Austurlands eftir að fara yfir samninginn og mætti gera ráð fyrir að það tæki nokkrar vikur. Þú svalar lestrarþörf dagsins ' síöum Moggans! Þjóðminjasafnið bein- tengt við slökkvistöðina GENGIÐ var frá beintengingu eldvarnakerfis Þjóðminjasafnsins við slökkvistöðina í gær. Kerfið verður þó áfram tengt stjórnstöð Secu- ritas, en að sögn Guðmundar Magnússonar þjóðminjavarðar var það mat Brunamálastofnunar að sú tenging væri fullnægjandi og svar- aði hámarkskröfum. Hins vegar hefði varaslökkviliðsstjóri ekki ver- ið þeirrar skoðunar og talið eðlilegt að safnið væri einnig beinlínu- tengt við slökkvistöðina. „Eg tel að það verði ekki vikist viljum auðvitað hafa hér hámarks- undan því að taka mark á honum öryggi. Þess vegna tókum við þessa (þ.e. varaslökkviliðsstjóra), og við ákvörðun, og sú tenging er komin --------------------------;--------- í gagnið," sagði Guðmundur. Yfirlýsing frá Hreini Loftssyni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: • „Vegna yfirlýsingar Haraldar Haraldssonar, sem lesin var af Her- manni Sveinbjörnssyni, fréttamanni og fyrrv. ritstjóra Dags á Akureyri, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær, föstudaginn 7. janúar 1994, vill Hreinn Loftsson hrl. taka fram að hann hefur ekki tekið að sér nein lögfræðistörf fyrir Sjóvá-Almennar tryggingar. Hið rétta er, að einn meðeigenda hans að Lögmönnum, Höfðabakka, Ólafur Axelsson hrl., hefur tekið slík verkefni að sér. Hreinn greindi Jóhapni Haukssyni, fréttamanni hjá RÚV, frá þessu fimmtudaginn 6. janúar, en þess var ekki getið þegar yfirlýsing Haraldar var lesin af Hermanni. Fullyrðing Haraldar Haraldssonar er því röng og sýnist vera í samræmi við mál- flutning hans í kjölfar sölunnar á SR-mjöli hf.“ Hann sagði að ýmsar ástæður væru fyrir því að Þjóðminjasafnið hefði ekki verið beintengt _ við slökkvistöðina fram að þessu. Áður fyrr hefði fólk verið búsett í húsinu og annast eftirlit með því, en árið 1985 hefði verið gengið til samn- inga við öryggismiðstöð Securitas og þeir samningar síðan endurnýj- aðir öðru hvoru með breytingum. Guðmundur sagði ýmsar spurning- ar hafa vaknað í framhaldi brunans í Þjóðminjasafninu sl. miðvikudag. VEGNA umræðu undanfarna daga um glóðarbruna í Þjóð- minjasafni Islands óskar Securit- as að eftirfarandi komi fram: 1. Það er meginstefna Securitas að ræða ekki öryggismál einstakra viðskiptavina fyrirtækisins, enda eru öryggismál trúnaðarmál við- komandi viðskiptavinar og Securit- as. 2. Eftir rannsókn Brunamála- stofnunar íslands á því sem gerðist í Þjóðminjasafninu, hefur stofnunin „Okkur var til dæmis ekki kunn- ugt um að hér þyrftu að vera tvenns konar skynjarar, en ég er þó ekki að saka Securitas um að hafa gert einhver mistök þar. Það er kannski eitthvað óljóst um boðleiðir og upp- lýsingamiðlun, og við þurfum bara að hafa það á hreinu hvernig eðli- legast er að haga því. Til þess að hafa það á hreinu báðum við óháð- an aðila, Verkfræðistofu Snorra Ingimarssonar, sem hefur sérhæft sig á því sviði að veita óháða ráð- gjöf í öryggismálum, að hefja hér rannsókn á atburðinum og jafn- framt að fara yfir það kerfi sem er í gangi. Við höfum ekki breytt neinu í okkar samskiptum við Securitas og tengingin við slökkviliðið er því til viðbótar því sem áður er. Það er verið að fara yfir samskiptin við Securitas og hvort gera þurfi ein- hverjar breytingar á þeim, en það eru engin áform uppi um það í dag,“ sagði Guðmundur. staðfest að brunáviðvörunarkerfi frá Securitas virkaði að öllu leyti eins og til er ætlast. 3. Fullkomlega er jafngilt að flytja boð um eld eftir aðferð Secur- itas og slökkviliðsins. Það er því rangt hjá varaslökkviliðsstjóranum í Reykjavík að beintenging til slökkviliðs hefði einhveiju breytt í þessu tilviki. Securitas lýsir furðu sinni á óviðeigandi og ábyrgðar- lausum ummælum varaslökkviliðs- stjórans á brunastað áður en nokk- ur rannsókn var hafin. Yfírlýsing frá Secimtas vegna Þjóðminjasafns GÍTARNÁMSKEID - Hljóðmúrsins, Ármúla 19. Fyrir byrjendur og lengra komna Hóplímar verð 15.100,- stgr. 10 tímar, einu sinni í viku, í tvo og hálfan mánuð. Einkatimar verð kr. 21.000,- stgr. 10 tímar, einu sinni í viku, í tvo og hálfan mánuð. Okkar fjórða starfsár. Hafðu samband í síma 811188/620925/654088 Leiðbeinendur: Jóhannes Davíðsson (Baunagrasið), Björn Jóhannsson. L „Við konur þurfum kalsíum.“ Kalciumkarbonat ACO fullnægir auðveldlega daglegri kalsíumþörf! Nú hafa vísindalegar rannsóknir víðs vegar um heiminn sýnt fram á nauðsyn þess að konur bæti sér upp það magn kalsíums sem þær fá ekki með fæðunni. Með því minnka líkurnar á bein- þynningu þegar líða tekur á ævina. í Bandaríkjunum halda vísindamenn því fram að konur þurfi 1500 mg af kalsíum á dag frá og með 45 ára aldri til þess að beinagrindin haldi sínu rétta kalkinnihaldi og styrk- leika. Á meðgöngu og þegar barn er haft á brjósti þurfa konur einnig á meira kalki að halda en venjulega. Kalciumkarbonat ACO eru bragðgóðar tuggutöflur með frísk- legu sítrónubragði. Stundum getur fram- sýni verið hyggileg. Kalciumkarbonat ACO Fæst í apótekinu. Kalciumkarbonat 250 mgCa2' AC0 Fyrinak Sími 91-32070

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.