Morgunblaðið - 08.01.1994, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
fclk f
fréttum
AÐDÁENDAKLÚBBUR
átta ráðherrum
Yoko Ono
valdi mynd Einars Fals
Félagar í aðdáendaklúbbi Johns
Lennons og Yoko Ono fá
reglulega send póstkort frá klúbbn-
um ásamt fréttabréfum o.fl. Að
þessu sinni varð mynd Einars Fals
Ingólfssonar ljósmyndara Morgun-
blaðsins fyrir valinu. Hefur- hún
verið prentuð í þúsundum eintaka
og fer um þessar mundir til fólks
víða um heim.
Einar Falur er við nám í New
York og tókst honum á sínum tíma
að heija út viðtal við Yoko. Þegar
hún kom svo til íslands árið 1991
í tilefni sýningar sinnar á Kjarvals-
stöðum var Einar Falur með henni
allan tímann sem ljósmyndari
Morgunblaðsins En einnig hafði
Yoko beðið hann að útbúa mynda-
pakka frá Reykjavík fyrir sig, með-
al annars frá sýningunni, opnuninni
o.fl.
Myndin sem Yoko valdi er í miklu
uppáhaldi hjá henni, en hún sýnir
hvar Yoko sáir fræjum í uppákomu
sem hún nefndi „Painting for the
Wind“ eða Málverk handa vindin-
um. Með henni eru íslensk leik-
skólaböm sem voru viðstödd uppá-
komuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra færir Ragnheiði Amadóttur
deildarstjóra ítalskan listmun sem þakklætisvott fyrir störf hennar.
Ragnheiður varð sjötug fyrr á árinu og lét því af störfum um áramót-
in eftir að hafa gegnt starfi deildarstjóra í 20 ár.
ATVINNA
Hefur unnið með
við blaðið. Ef laus stund myndaðist
var farið í umbrot eða aðstoðað við
auglýsingar. Þetta var skemmtileg-
ur og viðburðaríkur tími, en ég
hætti haustið 1943 þegar ég eign-
aðist fyrsta bamið mitt. Margrét
Indriðadóttir tók við af mér,“ sagði
Ragnheiður í stuttu spjalli við
Morgunblaðið.
Þýddi um 20 bækur
Hún segir ennfremur að í þá
daga hafi ekki verið til siðs að koma
börnum fyrir meðan mæður væm
útivinnandi. Hún tók í staðinn að
sér þýðingar og eftir hana liggja
a.m.k. 20 bækur, auk annars. Einn-
ig greip hún í ýmis störf við fyrir-
tæki sem maðurinn hennar veitti
forstöðu. „Mér fannst alltaf gott
að hafa eitthvað að grípa í. Mig
langar líka til að nefna að það var
Morgunblaðinu að þakka að ég fór
að þýða bækur strax eftir stúdents-
próf, sem var upphafið að því að
_ég tók að mér þýðingar heima.
Þegar ég kom inn á Morgunblað
nýskriðin út úr stúdentsprófi var
mér afhent ritvél og þar með átti
ég að byrja að vinna. Ég hafði aldrei
komið nálægt slíkum grip í mennta-
skóla og byrjaði á því að nota tvo
fíngur. Ég verð að viðurkenna að
fram á þennan dag hefur það dug-
að,“ sagði Ragnheiður og virtist
ekki koma á óvart þegar henni var
sagt að nýir blaðamenn fá sömu
meðferð ennþá nema nú er notast
við tölvur.
Eftir að hafa komið upp fjórum
börnum leitaði Ragnheiður aftur
út á vinnumarkaðinn og lá þá bein-
ast við snúa aftur í ráðuneytið, en
þar hafði hún einnig unnið nokkur
sumur áður.
Vann í upphafi fyrir Ingólf
Um líkt leyti og Ragnheiður hóf
störf í ráðuneytinu stóðu miklar
breytingar yfir í stjórnarráðinu.
Meðal annars var atvinnumálaráðu-
neytinu skipt upp í sjávarútvegs-
ráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti.
Fyrsti ráðherrann sem Ragnheiður
vann fyrir var Ingólfur Jónsson en
alls hefur hún unnið fyrir átta ráð-
herra, þá Halldór E. Sigurðsson,
Steingrím Hermannsson, Jón
Helgason, Braga Siguijónsson,
Pálma Jónsson, Steingrím J. Sig-
fússon og Halldór Blöndal auk Ing-
ólfs. Ekki vildi hún gefa upp hver
var besti húsbóndinn, en sagðist
hafa verið heppin. „Ég hef alltaf
verið í sátt við alla og hætti þann-
ig. Þetta hefur verið mjög góður
tími og ég vona að framundan sé
einnig góður tími. Ég hef jafnvel
verið að velta fyrir mér að taka að
mér þýðingar," sagði Ragnheiður
og ljóst er að hún hefur alls ekki
látið staðar numið hér.
Kortið sem félagar í aðdáendaklúbbi Johns Lennons og Yoko Ono fá sent.
Ragnheiður Ámadóttir kvaddi
landbúnaðarráðuneytið nú um
áramótin eftir að hafa starfað þar
sem deildarstjóri í tuttugu ár. Hún
hóf störf sem ritari í atvinnumála-
ráðuneyti — sem landbúnaðarráðu-
neytið féll m.a. undir — fyrir 23
árum. Segja má að Ragnheiður sé
nokkurs konar brautryðjandi
kvenna í karlastörfum því hún og
Ingibjörg Magnúsdóttir vom fyrstu
kvendeildarstjórar sem ráðnir vom
í stjórnarráðinu. Eftir stúdentspróf
árið 1942 réðst hún til Morgun-
blaðsins sem blaðamaður. Þá var
hún eini starfandi kvenblaðamaður-
inn á Morgunblaðinu; tók við af
Ester Björnsson. „í þá daga var
hlutverk kvenblaðamanna á Morg-
unblaðinu að sjá um að þýða fram-
haldssöguna og hafa umsjón með
kvennasíðu. Ef haldin var tískusýn-
ing þá var ég send niður á Hótel
Borg til þess að lýsa því. Ég man
aldrei eftir að hafa verið send í
nein viðtöl nema sem viðkom tísku
og snyrtingu.
Þetta var á þeim tíma sem aðeins
nokkrir blaðamenn voru starfandi
Tennissijarnan Boris Becker segir að Barbara Feltus hafi hvatt
hann manna mest til að halda áfram að stunda tennis.
HAMINGJA
Tennisstjaman
Boris Becker kvænist
Tennisstjarnan Boris Becker, sem
er 26 ára, kvæntist hinni 27
ára leikkonu og sýningarstúlku Bar-
böru Feltus um miðjan desember sl.
Fór brúðkaupið fram í heimabæ Bec-
kers, Leimen í Þýskalandi. Eiga þau
von á fyrsta bami sínu nú í janúar.
í erlendum blaðagreinum má lesa
um að Boris telur það mestu gæfu
sína að hafa kynnst Barböru. Hann
hefur ekki verið kvæntur áður né
hringtrúlofaður, þó svo að hann hafí
verið orðaður við skautadrottninguna
Katarinu Witt og fleiri konur á árum
áður. í einu bandarísku tímaritanna
lýsti hann því jafnvel yfir að eftir
að hann kynntist Barböru skipti ást-
in hann miklu meira máli heldur en
allar tenniskeppnir í heimi. Hann
segir þó að Barbara hafi hvatt hann
manna mest til að halda áfram og
því sé hann tilbúinn að leggja sig
allan fram um að ná sem bestum
árangri.
KÓNGAFÓLK
Arið liðið
og ekkert bam
Anna Bretaprinsessa
og Tim Laurence
hafa nú verið gift í eitt
ár. Af því tilefni var
ljósmyndarinn Nicholas
Read fenginn til að
mynda parið á tröppum
Gatcombe Park, sem
Elísabet gafi» Önnu og
Mark Philips í brúð-
kaupsgjöf á sínum
tíma. Nú nota Anna og
Tim húsið aðeins í sum-
arfríum og um helgar,
því þau búa í stórri íbúð
í miðri London. Erlenda
pressan hefur hins veg-
ar ekki minnst lengi á
að Anna eigi von á
barni eins og fyrst eftir
giftinguna. Þá mátti
ekki gúlpa ögn um
magann á prinsessunni
fyrr en ýmsir þóttust
sjá merki um óléttu.
Nú virðist hins vegar
ekkert bóla á neinu
barni.
Anna Bretaprinsessa og Tim Laurence
ásamt hundinum Eglantyne.