Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 45
* MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 45 Sérframboð verkalýðs- og sjómanna félaga í næstu alþingiskosningum Frá Kristjáni Péturssyni: Miklar umræður hafa verið í fjöl- miðlum undanfama mánuði um launa- og kjaramál. Þessi umfjöllun hefur eins og oft áður verið meira á pólitískum en fagiegum grund- velli. Svo virðist sem láglaunafólkið eigi sífellt færri málsvara og bilið milli hæstu og lægstu launa eykst stöðugt. Fjölmennir hópar embætt- ismanna og yfirmenn stærri fyrir- tækja hafa a.m.k. 15-20 sinnum hærri laun en láglaunastéttimar. í skjóli pólitískrar spillingar og samtryggingar hafa þessar „jrfír- stéttir" mótað ákveðna hálauna- stefnu sér til handa, sem er ekki í neinu samræmi við kaup og kjör á hinum almenna vinnumarkaði. Ótal dæmi era um að hundrað þúsunda kr. era greidd ofan á umsamin mánaðarlaun fyrir hvers konar bitl- inga og nefndarstörf, sem þó era unnin innan tímamarka samnings- bundinna mánaðarlauna. Framkvæmda- og löggjafarvald- ið og VSÍ bera höfuðábyrgð á þessu hrikalega misrétti. Pólitísk fyrirgre- iðsla og hvers konar hagsmunapot hafa skapað fordæmi, sem leitt hafa til almennrar spillingar. Ýmsar valdamestu stöður þjóðfélagsins era eymamerktar ákveðnum stjórn- málaflokkum og era þessar ráðn- ingar því oft ekki grundvallaðár á hæfni og mannkostum. Þessi hrika- lega spilling og misnotkun valds er orðin svo almenn og rótgróin, að þjóðin lætur hana að mestu yfir sig ganga afskiptalaust. Láglaunafólk verður að taka höndum saman um markvissar leið- ir í kjaramálum. Kjarabarátta ASÍ og BSRB undanfarin ár hefur stað- fest að þessi heildarsamtök launa- fólks vantar alla samstöðu, kraft og þor til að beijast fyrir bættum kjöram. Það er því einsýnt að launa- misrétti og láglaunatöxtum verður ekki breytt í kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins. Því verður ekki hjá því komist að ákvarða iág- marks- og hámarkslaun með lög- gjöf, en um aðra þætti kjaramála verði sem fyrr samið um í frjálsum samningum. Konur hafa verið og era enn beittar miklu órétti í stöðuveiting- um og 60-70% kvenna búa við mun lakari kjör en karlar. Ef hámarks- og lágmarkslaun væru ákveðin í lögum væri rétt að skilgreina launa- bilið þannig að lægstu mánaðarlaun væra 80 þúsund kr., en hæstu laun 240 þúsund kr. eða þrisvar sinnum hærri. Kjaradómi væri óheimilt að úrskurða hærri laun, enda væri hann bundinn við þessi viðmiðunar- mörk. Ríkisvaldið og VSÍ hafa ögrað og reynt að niðurlægja láglauna- fóikið um áratugaskeið. Banka- stjóram og ýmsum forstjóram ríkis- stofnana era greiddar 700-1.100 þúsund kr. í mánaðarlaun. Hliðstæð laun hafa forstjórar olíu- og trygg- ingarfélaganna og flestra almenn- ingshlutafélaga, s.s. Eimskipafé- lagsins og Flugleiða. Meinsemdim- ar koma víðar fram, stóreignamenn með uppgefín laun um og undir skattleysismörkum skipta þúsund- um í þessu þjóðfélagi. Vísir réttvís- innar beinist ekki að þessum aðil- um, þó öllum sjáandi mönnum sé ljóst, að ekkert samræmi er milli eigna og tekna né neysiu þeirra. Undanskot fjármuna við gjald- þrot skipta milljörðum árlega, eng- inn er dreginn til ábyrgðar í þessum ijársvikamálum, pólitískir banka- stjórar kenna í versta falli um slæmu árferði eða ótímabærri bjart- sýni. Þjóðin verður öll að taka á sig tjónið með hærri vöxtum og.auk- inni skattbyrði. Fjármunir í sjávarútvegi (kvóti) era nú að mestu leyti í höndum nokkurra útgerðarmanna fyrirð til- styrk „stengjabrúðanna" við Aust- urvöll. Þúsundir sjómanna era orðn- ar leiguliðar kvótakónganna og aðr- ir era neyddir til að brjóta eigin kjarasamninga með ólögmætum kvótakaupum með útgerðarmönn- um. Þó er fískurinn í sjónum sam- kvæmt laganna hljóðan sameign þjóðarinnar. Stjórnsýsla af þessum toga á ekkert skylt við lýðræði, hún er sjúk og vitskert, eins og gamall trillukarl orðaði það nýverið. Pólitísk spilling, siðleysi og hvers konar lögleysa gengur eins og rauð- ur þráður í gegnum allt stjórnsýslu- kerfíð. Dómsvaldið höktir í fyrsta gír, framkvæmda- og löggjafar- valdið lýtur forsjá ftjálshyggjunnar með tilstyrk kolkrabbans. Völd og fjármunir færast sífellt á færri hendur og áhrif félagshyggjufólks og launþegasamtaka fara minnk- andi. Það dugar ekki lengur að mót- mæla ranglætinu, það verður að móta nýja launa- og lq'arastefnu, sem tekur til allra þjóðfélagsþegna. Ef við ætlum að lifa mannsæmandi lífí í þessu landi, verðum við fyrst og síðast að virða lög og reglur og styrkja siðgæðisvitund þjóðarinnar. íjóðin má ekki undir neinum kring- umstæðum líta svo á að núverandi stjórnmálaástand sé eðlileg fram- þróun efnahagsmála, heldur tíma- bundið ástand, sem hægt er að breyta með nýjum stjómarháttur. Sá mótleikur sem best kynni að duga verkalýðshreyfingunni, sjó- mönnum og félagshyggjufólki er að hefjast strax handa um sjálf- stætt framboð fyrir næstu alþingis- kosningar. Þeir stjómmálaflokkar sem kenna sig við félagshyggju hafa að mestu bragðist skyldum sínum við láglaunafólk eins og launataxtar sýna. Slík breiðfylking gæti breytt núverandi flokkaskipan og sameinað félagshyggjufólk í ein sterk samtök. Við getum búið í þessu landi undir merki jafnréttis og bræðralags, við þurfum ekki að lúta lögmálum kolkrabbans né frjálshyggjuófreskjunnar. KRISTJÁN PÉTURSSON, fv. deildarstjóri. Pennavinir ÁTJÁN ára fínnsk stúlka með áhuga á íþróttum, ljósmyndun, menningu og tónlist, kvikmyndum og bókmenntum. Vill skrifast á við 17-22 ára pilta og stúlkur: Sylvia Partanen, Kasvihuoneenkatu 16, 28130 Pori, Finland. ÁTJÁN ára pólsk stúlka með áhuga á ferðalögfum, íþróttum en hún stundar sjálfsvamaríþrótt sem nefnist Aikido: Magdalena Nowak, ul. Limanowskiego 12, 64-920 PUa, Poland. NÍU ára tékknesk stúlka með áhuga á hestum og bókalestri: Celestyna Krausova, 507 81 Lazne Belohrad 65, Czech Republic. FIMMTÁN ára Gambíupilt sem á fjóra bræður og fjórar systur langar að fræðast um ísland. Er frá smá- þorpi sem heitir Tungina en gengur í skóla í bænum Brikama: Sanna Fofana, Brikam School, Brikama, Kombo Central, Ghana. FINNSK 21 árs stúlka með marg- vísleg áhugamál: PSivi Harju, Punkkerikatu 2 A 26, 53850 Lappeenranta, Finland. SEXTÁN ára Ghanapiltur með áhuga á tónlist og safnar útlendum peningaseðlum: Barko Samuel, c/o Kalamazoo Photos, P.O. Box 26, Kade, E/Region, Ghana. VELVAKANDI TÖLVUBILUN HJÁ VELVAKANDA TÆKNIN lék Velvakanda grátt sl. fimmtudag og týndist allt efíii sem tekið hafði verið við gegnum síma. Þeir, sem hringdu til Velvakanda þann dag með ósk um birtingu á auglýsingum eða öðra efni, era því vinsamlega beðnir að hringja aftur. Velvakanda þykir þetta mið- ur. TAPAÐ/FUNDIÐ ÞANN 28. eða 29. desember tapaði ung stúlka brúnum skinnhönskum, sem sennilega hafa dottið í götuna er hún steig út úr bíl við Grenimel. Ef einhver hefur fundið þá væri vel þegið að fá þá til baka. Upplýsingar í síma 28204. Gleraugu týndust GLERAUGU í glærri og rauðri plastumgjörð töpuðust á leið- inni frá Flúðum til Reykjavík- ur. Þau voru í svörtu hufttri. Upplýsingar í síma 668044. GÆLUDÝR Köttur i heimilisleit NÍU mánaða fressköttur af angórakyna, grár með hvítar loppur, óskar eftir góðu heim- ili. Hann er mjög þrifínn og barngóður. Upplýsingar í sfma 616209. Týndur köttur STÓR gulbröndóttur fresskött- ur, eymamerktur G-1017, hvarf frá heimili sínu í Setbergsverfi á gamlárskvöld. Þegar hann fór var hann með svarta hálsól. Þeir sem kynnu' að hafa orðið hans varir eru vinsamlega beðn- ir að hringja í síma 50245. Týndur köttur KÓTTURINN sem myndin er af týndist frá Flötunum í Garðabæ 22. desember. Hann er eymamerktur og þegar hann fór var hann með marglita hál- sól. Þeir sem kynnu að hafa orðið hans varir eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 656028 eða í Kattholt. j -röð ogregla Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. Múlalundur Vinnustofa SÍBS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819 Þetta er uppáhaldsmatseðill Eivis: Grænmetissúpa, grísakótilettur m/brúnni sósu, eplakaka m/ís eða rjóma - kr. 1.290. i dag, laugardag, er Elvis Presley hátíð á Hard Rock Cafe. Við bjóðum m.a upp á uppáhaldsmat Elvis, spilum mikið af Elvis-lögum og bjóðum upp á karaoke fyrir þá sem vilja og í kvöld munu nokkrir þekktir Elvis Presley aðdáendur taka lagið með sjálfan Þorstein Eggertsson i broddi fylkingar. ELSKUM ALLA - ÞJONUM OLLUM L HARD ROCKCAFE - SÍMI 689888 Á Námskeiða kynning Málaskólar, dansskólar, tónlistarskólar, flugskólar, líkamsræktarstöðvar og fleiri munu kynna starfsemi sína og er margir þeirra meö sértilboð tii handa gestum Kolaportsins þessa helgi. ÆÐISKAST í KOLAPORTINU í janúar þar sem 200 seljendur bjóöa allt milli himins og jaröar og prísarnir hafa aldrei veriö betri. Heimsækið okkur þessa fyrstu Kolaportshelgi ársins og njótið góðs afi Opið laugardag og sunnudag kl.10-16. KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG - miklu ódýrara I!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.