Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
foRÚntR
FOLX
■ GEIR Sveinsson lék sinn 74.
landsleik sem fyrirliði í gærkvöldi.
Þorbjörn Jensson var einnig fyrir-
liði 74 sinnum, en sá leikmaður sem
oftast hefur verið fyrirliði er Þorg-
ils Óttar Mathiesen, sem lék 134
landsleiki sem fyrirliði. Geir nær
öðru sætinu á fyrirliðalistanum á
morgun^ með 75 leiki.
■ HVIT-Rússar voru aðeins með
tíu leikmenn á leikskýrslu, en voru
með fimm menn fyrir aftan vara-
mannabekkinn — til að hlaupa í
^skarðið, ef á þyrfti að halda.-
■ HSÍ bauð leikmönnum lands-
liðsins sem tók þátt í HM í Tékkó-
slóvakíu 1964 á leikinn í gærkvöldi.
■ MARKÚS Örn Antonsson,
borgarstjóri, var heiðursgestur í
gærkvöldi og heilsaði upp á leik-
menn landsliðanna fyrir Jeikinn.
■ ÍSLENSKI þjóðsöngurinn var
aðeins leikinn fyrir leikinn, þar sem
Hvít-Rússar eiga enn ekki þjóð-
söng.
STAÐAN í 4. RIÐLI
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HVÍT-RÚSSL 6 5 1 0 192: 136 11
KRÓATÍA 7 5 1 1 187: 142 11
iSLAND 6 3 1 2 149: 132 7
FINNLAND 5 0 1 4 115: 150 1
BÚLGARÍA 6 0 0 6 104: 187 0
ÚRSLIT
UMFN - KR 99:88
íþróttahúsið í Njarðvík, Úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fdstudaginn 7. janúar 1994.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 7:7, 18:18,
30:28, 40:37, 54:43, 63:47, 75:57, 82:78,
Æ5:81, 91:83, 94:88, 99:88.
Stig UMFN: Rondey Robinson 28, Teitur
Örlygsson 21, ísak Tómasson 16, Friðrik
Ragnarsson 11, Jóhannes Kristbjömsson
11, Rúnar Ámason 7, Valur Ingimundarson
4, Eysteinn Skarphéðinsson 1.
Stig KR: Mirko Nikolic 26, David Grisson
25, Falur Harðarson 15, Hermann Hauks-
son 13, Guðni Guðnason 6, Ólafur Ormsson
3.
Dómarar: Ámi Freyr Sigurlaugsson og
Leifur Garðarsson sem dæmdu vel.
Áhorfendun Um 350.
NBA-deildin
Charlotte — Portland........110:116
Milwaukee — New York..........86:92
Golden State — San Antonio...102:98
UM HELGINA
Handknattleikur
Sunnudagvr:
EM landsliða:
Höllin: Hvít-Rússl. — ísland......20.30
2. deild karla:
Digranes: HK-Fjölnir..............14.00
Strandgata: ÍH - Fram................14
Seltj’nes: Grótta - Fylkir...........20
Mánudagvr:
Höllin: Ármann - UBK.................20
Körfuknattleikur
Laugardagur:
1. deild karla:
Hagaskóli: Léttir-Þór................14
Egilsst.: Höttur - Reynir............14
1. deild kvenna:
Hagaskóli: KR-ÍS..................15.30
Seljaskóli: ÍR-UMFT..................14
Sunnudagur:
Úrvalsdeild:
'Borgames: Skallagr. - ÍBK...........16
Strandgata: Haukar-UMFG..............16
Valsheimili: Vaiur - Snæfell.........20
1. deild kvenna:
Grindavík: UMFG - Valur..............20
Mánudagur:
1. deild kvenna:
Kennarahásk.: ÍS-ÍBK.................20
1. deild karla:
Austurberg Leiknir - ÍR..............20
Knattspyrna
íslandsmótið innanhúss fer fram í íþrótta-
húsinu Austurbergi og í Laugardalshöll um
helgina. Úrslitaleikurinn f meistaraflokki
kvenna verður í Laugardalshöll kl. 12.08 á
sunnudag, en úrslitaleikurinn í 1. deild karla
á sama stað kl.15.38 á sunnudag.
' Sund
Nýársmót fatlaðra bama fer fram í Sund-
höll Reykjavíkur á morgun, sunnudaginn
9. janúar, og hefst kl. 14.30.
Badminton
Unglingameistaramót TBR verður haldið í
TBR-húsunum um helgina. Keppni hefst
kl. 13 í dag og verður framhaldið kl. 10 á
morgun. Keppt verður í öllum greinum í
fjómm flokkum unglinga.
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Varnarleik-
urinn brást
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Það er ljóst að möguleikarnir á
að komast til Portúgals eru
nánast úr sögunni með þessu tapi,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf-
ari íslenska landsliðs-
ins, eftir leikinn.
„Þetta tap gjörbreyt-
ir þeirri áætlun sem
við höfðum gert fram
að HM 1995. Einu leikirnir sem við
komum til með að fá í sumar eru
leikir við þær þjóðir sem eru að und-
irbúa sig fyrir úrslitakeppnina í Port-
úgal. Við verðum að einbeita okkur
að því að vinna heimavinnuna fram
að HM.“
Það eru tveir leikir eftir og við
ætlum að gera okkar besta í þeim
báðum. Því miður náðum við ekki að
sýna okkar besta í þessum leik. Varn-
arleikurinn var slakur og við réðum
ekki við Hvít-Rússana. En strákarnir
sýndu þó harðfylgi — voru komnir
sex mörkum undir um miðjan síðari
hálfleik og með smá heppni hefðum
við getað unnið."
- Hefði ekki verið betra að taka þessa
tvo leikmenn úr umferð fyrr í leikn-
um?
„Það er alltaf spuming sem maður
spyr sig. Reynslan sýnir það, að ætla
að taka tvo úr umferð heilan leik,
gengur yfírleitt ekki. Við reyndum
að taka Jakimovitch úr umferð í fyrri
hálfleik og það gekk frekar illa og í
byijun seinni hálfleiks gekk það alls
ekki.“
- Sóknarleikurinn hefur verið vanda-
málið í undanfömum leikjum, en nú
brást varnarleikurinn og markvarsl-
an, hver er skýringin?
„Hluti af skýringunni er að stærri
hlutinn af lykilmönnum liðsins eru
ekki í toppæfingu. Við vorum skref-
inu á eftir í vamarleiknum."
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
liðsins, var ekki ánægður með vamar-
leikinn. „Við spiluðum vamarleikinn
illa og ég spilaði hann sjálfur og
fannst ég engan veginn spila hann
vel. Ég get tekið undir orð Þorbergs
hvað sjálfan mig varðar að ég er ekki
í nægilega góðri varnaræfíngu — hef
ekki nægilega góða fótavinnslu og
held að það eigi við um fleiri í lið-
inu,“ sagði Geir. „Við lögðum meiri
áherslu á sóknarleikinn í undirbún-
ingnum fýrir þennan leik því við höfð-
um meiri áhyggjur af honum en vam-
SOKNAR-
NÝTING
HVÍTA-RÚSSLAND
ÍSLAND
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
14 24 58 F.h 12 23 52
15 23 65 S.h 14 24 58
: 29 47 62 Alls 26 47 55
Evrópukeppni
landsliða 1994
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Vfti
10
4
2
1
6
3
KORFUKNATTLEIKUR
Sannfærandi hjá IMjarðvík
Njarðvíkingar unnu sannfærandi
sigur á KR í Njarðvík í gær-
kvöldi.o Falur Harðarson úr IBK,
sem hefur verið við
nám í Bandaríkjun-
um en er nú í jól-
afríi, lék með KR-
ingum og gerði
margt laglegt en það
dugði skammt. Lokatölur urðu 99:88,
en í hálfleik var staðan 54:43. Laszlo
Nemeth þjálfari KR-inga var í leik-
Bjöm
Blöndal
skrifar frá
Njarövík
banni og varð að fylgjast með liði
sinu af árhorefndabekkjunum.
Það var aðeins framan af fyrri
hálfleik sem KR-ingar veittu heima-
mönnum einhveija keppni. í hálfleik
vora Njarðvíkingar komnir með 11
stiga forskot. Úndir lokin slökuðu
Njarðvíkingar á og KR-ingum tókst
að minnka muninn í 4 stig, 82:78,
og aftur 85:81. En þá skrúfuðu
Njarðvíkingar fyrir og tryggðu sér
sannfærandi sigur.
„Það er alltaf gaman að leika
körfubolta, en það er erfítt að koma
svona inn í lið sem þegar er orðið
mótað. Þetta gekk ekki nógu vel hjá
okkur og þar fannst mér vamarleik-
urinn skipta sköpum," sagði Falur
Harðarson.
Bestu menn Njarðvíkinga voru
Rondey Robinson, Teitur og ísak og
einnig er vert að nefna Friðrik Ragn-
arsson, Jóhannes og Rúnar. Bestir
hjá KR vora Grissom og Nikolic.
arleiknum. Kannski hefur vamarleik-
urinn setið aðeins eftir og það er
auðvelt að segja það eftir á.“
Um þá spurningu hvort ekki hefði
átt að taka tvo úr umferð fyrr í leikn-
um sagði Geir: „Ég held að við hefð-
um aldrei klárað það í sextíu mínút-
ur. Það er kannski um að kenna út-
haldsleysi, en ég held að tímasetning-
in hafi verið rétt og með smá heppni
hefðum við getað jafnað leikinn."
Lékáof
þröngu svæði
- sagði Guðjón Jónsson
Vamarleikurinn var afspymulé-
legur og markvarslan eftir því.
Þá var sóknarleikurinn of ráðvilltur
og of stuttur — leikmenn voru óþolin-
móðir,“ sagði Guðjón Jónsson, fýrr-
um landsliðsmaður úr Fram, sem var
langt frá því að vera ánægður með
leik íslenska liðsins.
„Vinstra hornið var óvirkt í leikn-
um, þar sem skytturnar vinstra meg-
in leituðu of mikið til hægri — þann-
ig að leikurinn fór fram á mjög
þröngu svæði, eða upp hægri væng-
inn. Leikmenn treystu greinilega of
mikið á að Sigurður Sveinsson myndi
stjóma sóknarleiknum. Sigurður hélt
sókninni gangandi og Valdimar
Grímsson naut þess að leika í horn-
inu við hlið hans, þó svo að Valdi-
mar hafí tvisvar tekið djarfar áhætt-
ur, sem heppnuðust ekki. Leikur
Hvít-Rússa var miklu yfirvegaðri
heldur en Islendinga, enda vora leik-
menn greinilega í miklu meiri jafn-
vægi — voru afslappaðir þegar þeir
léku knettinum og gerðu það sem
íslendingar gerðu ekki; að hreyfa sig
án þess að hafa knöttinn."
LYFJAMAL
Vilhjálmur Þór Sigurjónsson sem dæmdur var í bann vegna lyfjanotkunar:
Hef ofl tekið ákvarðanir sem ég
sé eftir en enga þó eins og þessa
Morgunblaðinu barst í gær eft-
irfarandi yfírlýsing frá Vilhjálmi
Þór Sigurjónssyni, lyftingamanni,
sem dæmdur var í 18 mánaða
keppnisbann vegna lyfjanotkunar,
eins og fram kom í blaðinu í gær:
„í kjölfarið á falli mínu í lyfja-
prófí hinn 23. október síðastliðinn
hef ég ákveðið að gefa þessa yfir-
lýsingu, mína hlið á'málinu.
Það lyf (clenbuterol) sem ég tók
flutti ég sjálfur inn frá Finnlandi
fyrir ári. Eg keypti 100 töflur af
manni sem var að sniglast í kring-
um mótið. Hann kom til mín og
bauð þetta og ég þáði það i
heimsku minni því þá hafði verið
mikið fjallað um þetta lyf (mál
Katrínar Krabbe) og ég hélt að
þetta væri löglegt (tveir breskir
lyftingamenn, Andrew Davies og
Andrew Saxon, féllu á þessu lyfi
á Ólympíuleikunum og voru sýkn-
aðir).
Nú er ég enginn lyfjafræðingur
og hafði lítið pælt í þessum mál-
um, þrátt fyrir uppfræðslu á yngri
árum, þannig að ég hugsaði með
mér: Ef aðrir nota þetta og þetta
er löglegt, hvers vegna ætti ég
þá ekki að nota það. Þannig stóð
á því að ég hafði þetta lyf undir
höndum. Mín mistök voru þau,
að ganga ekki úr skugga um það
hvort þetta væri bannað þegar ég
tók þá ákvörðun að nota lyfið.
Oft er líka mjög óljóst hvort eitt-
hvað er bannað eða ekki og auð-
velt að týnast í frumskógum lyfja-
heita, lyfjaflokka (hafa menn séð
bannlistabókina frá lyfjaeftirlit-
inu? Ég sá hana fyrir stuttu, því-
líkur fjöldi lyfja!) og umfjöllun
fjölmiðla.
Ég hef æft lyftingar í sex ár,
síðustu tvö árin í Reykjavík, og
náð kannski þokkalegum árangri
(fer eftir viðmiðun). Ég hef keppt
á Norðurlandamótum unglinga og
í fyrra (1992), í Finnlandi, varð
ég í öðru sæti, hársbreidd frá
sigri.
Fyrir síðasta mót þyngdi ég
mig upp um flokk. I mínu dæmi
gekk það nokkuð vel en bætingin
lét á sér standa. Ég æfði eins og
vitlaus maður en ekkert gerðist.
Ég vissi af nokkrum mjög
sterkum strákum frá hinum Norð-
urlöndunum og þóttist sjá að ég
væri að missa af lestinni. Og
mánuði fyrir mótið tek ég þá
óheillaákvörðun að reyna að bæta
árangurinrt með lyfjum. Þessa
ákvörðun tók ég án vitundar fé-
laga minna og bið þá hér með
afsökunar.
Árangurinn af þeirri ákvörðun
varð því sem næst enginn, ég
bætti mig um 5 kg í samanlögðu
frá móti sem var tveim mánuðum
áður og ég hefði að öllum líkindum
hvort eð er bætt mig um án lyija!
Ég hef oft tekið ákvarðanir sem
ég sé eftir en enga þó eins og
þessa. Ég hef eyðilagt mjög mikið
fyrir félögum mínum, lyftinga-
íþróttinni, íþróttalífínu í landinu
almennt og kannski hvað mest
fyrir sjálfum mér.
Ég bið þá sem velta fyrir sér
að nota lyf til að bæta árangur
sinn að falla ekki í freistni, því
trúið mér, það er ekki þess virði.
Áður en fóljc dæmir mig vil ég
að það hugsi sig vel um, hvaða
glæp þessi unglingsbjáni framdi:
Drap hann mann? Keyrði hann
fullur á mann og olli honum fjör-
tjóni (það virðist nú vera minni
glæpur miðað við umfjöllun fjöl-
miðla)? Nei, hann tók - nokkrar
töflur af lyfi sem mörg þúsund
manns taka daglega. Glæpurinn
er í því fólginn að hann tók þetta
ekki vegna asma heldur vegna
aulaháttar. Menn ættu fyrst að
líta í eigin barm áður en þeir
dæma.
Ég gerði mistök, mér þykir það
mjög leiðinlegt, ég biðst afsökun-
ar og ég tek út mína refsingu.
Ég hef hér að framan sagt
heiðarlega frá hvernig þetta allt
bar til og hef engu við að bæta.
Þessi yfirlýsing eru lokaorð mín
um þetta mál.
Vilhjálmur Þór- Siguijónsson."