Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994 Lj óðatónleikar ________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Michael Jón Clarke og Jónas Ingimundarson stóðu fyrir fyrstu ljóðatónleikunum í Gerðubergi á þessu ári og fluttu söngverk eftir ensk, íslensk og þýsk tónskáld. Enski hluti tónleikanna hófst á Music for a while, eftir Purcell og síðan komu þrír söngvar eftir Roger Quilter, við kvæði eftir Shakespeare. Eftir Vaughan- Williams var flutt ágætt söngv- erk, Silent Noon og enska hlutan- um lauk með tveimur sakleysileg- um lögum eftir Óliver Kentish við kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og Tómas Guðmundsson. Flutningur Jóns á þessum lög- um var fágaður, raddbeytingin sérlega áreynslulítil og framburð- ur texta til fyrirmyndar. Lög Quilters (1877-1953) eru hvað stíl snertir hárómantísk en hann þykir í sönglögum sínum hafa náð að samhæfa texta og lagferli sér- lega vel, þó lagferlið sé að öðru leyti sagt vera nokkuð nærri dægurtónlist á hans tíð. Lögin eftir Kentish eru frekar laus í gerð, eins og hann hafi ekki með öllu verið sáttur við áherslur ís- lenska textans eða tilfinningalegt innihald hans. Þrátt fyrir þetta var niðurlagið á Fagra veröld töluvert rismikið. íslensku lögin voru fjögur, tvö eftir Atla Heimi Sveinsson og tvö eftir Björgvin Guðmundsson. Lag Atla við gamansamt kvæði, Haust, eftir Thor Vilhjálmsson, var skemmtilega flutt og í laginu Komdu, við kvæði eftir Þorstein frá Hamri, náðu flytjendurnir vel þeirri stemmningu sem er í þessu ágæta lagi eftir Atla. Best sungnu lögin voru Sofðu unga ástin mín, og Tunglið, tunglið taktu mig eftir Björgvin Guð- mundsson. Það er vandasamt að flytja ljóðasöngva Schuberts og þó Michael Jón Clarke bæði syngi og túlki vel, vantaði hrifninguna í samspili texta og lags, svo að flutningurinn var oft næstum því hlutlaus, t.d. í því áhrifamiída lagi Der Wanderer, þar sem hin þungstíga ganga förumannsins á að vera mögnuð vonleysi. Skyndi- leg hugljómun hans í Wo Bist du, mein geliebtes Land, var allt of Michael Jón Clarke. hratt sungin og án allrar eftir- væntingar, svo að svartnætti von- leysisins vantaði í síðustu vísuna. Líklega er um að ræða sam- spil í skilningi á erlendri tungu eða um má kenna þungu tónmáli hjá Brahms, að „Alvarlegu söngv- arnir“ urðu helst til hlutlausir í nokkuð vönduðum flutningi beggja flytjendanna. í þessum lögum birtist einmanaleiki Brahms og hugleiðingar um hin duldu markmið almættisins, en sérstaklega þó það, sem hann fór á mis við en var þrátt fyrir það „glaður í sínu erfiði“, eins og heyra má í fyrsta söngnum. Ann- ar söngurinn fjallar um óréttlæti og illgjörðir sem enginn gat veitt huggun gegn en fær menn til að prísa hina dauðu. í þriðja laginu er sjálfur dauðinn, beiskur þeim sem enn hefur lyst til lífsins en góður þeim sem „ekki hefur neitt betra að vona né eftir að bíða“. Niðurstaðan, fjórða lagið, er „trú- in, vonin og kærleikurinn og þeirra er kærleikurinn mestur“. Eins og fyrr segir var fiutningur- inn, bæði hjá Michael Jóni Clarke og Jónasi Ingimundarsyni, í alla staði vandaður, bestur í ensku og íslensku lögunum en einum of hlutlaus og ósnortinn í Schu- bert og Brahms. Má vera að hlut- laus söngur Jóns að þessu sinni sé til kominn vegna þess að söngvarinn fann sig þurfandi með að kíkja af og til á textann. Betra er að halda beinlínis á bókinni, því sá sem þarf að kíkja og reyn- ir jafnvel að fela það, hættir á að missa fótanna þegar minnst varir og verður því að fara var- lega. ujvvíj t i j'AiBÁiLVtUiA RiWLiU Fyrir 5 eða fleiri: Þorratrog í heimahús kr. 1.190,- 18 tegundir ( i | Fyrirtæki: Þorramatur í fyrirtæki kr. 1.190,- 18 tegundir. Félagasamtök og hópar: Þorramatur í veislur, gerum verðtilboð. Giæsilegt þorrahlaðborð á Pottinum og pönnunni bóndadaginn 21. janúar. Á konudaginn 20. febrúar drögum við út einn þorraþræl úr hópi viðskiptavina þorrans, og sendum hann til írlands á slóðir víkinga ásamt gesti sínum. Sendum á staðmn ykkurað kostnaðarlausu Sinfóníuhljómsveit æsk- unnar og Christopher Adey _________Tónlist_____________ Ragnar Björnsson Eftirvænting lá í loftinu í Há- skólabíói fyrir tónleika hljómsveit- arinnar sl. laugardag. Hér var söðl- að um. Ekki skyldi einstefna varð- andi val hljómsveitarstjóra lengur ráðandi, hér eftir fengju nemend- umir að kynnast ýmsum hljóm- sveitarstjórum. Þetta sýnist ekki óeðlileg breyting. Það hlýtur að vera skemmtilegra og forvitnilegra nemendum að kynnast margskon- ar túlkunarleiðum og mismunandi slagtækni, það er, a.m.k. þau at- riði sem fyrir tónlistarmönnum liggur í framtíðinni, að glíma við stíltegundir, túlkunarleiðir, slag- tækni og fl. Christopher Adey er mjög góður hljómsveitarstjóri, tekknískur og lifandi. Hljómsveitin að þessu sinni samanstóð af nem- endum á mjög misjöfnum stigum, frá því að vera tæplega í miðju námi upp í að nálgast einhverskon- ar lokapróf. Að venju komu svo nokkrir úr atvinnumennskunni til að styrkja veikustu punktana, en þeir voru ekki fleiri en venja er. Efnisval tónleikanna var ekki af auðveldari geiranum. Rómeó og Júlía eftir Prokofief og 10. sinfón- ía Shostakovitsj. Strax í fyrsta hluta Prokofief-svítunnar kom hljómur og spil sveitarinnar þægi- lega á óvart, mjúkur fallegur hljómur, merkilega mikil ná- kvæmni í tæknilega erfiðum köfl- um eins og t.d. öðrum þættinum og spilagleðinni hélt stjómandinn Chr. Adey til loka svítunnar og voldugan hljóm tókst krökkunum að sýna í upphafi síðasta þáttar. Að halda lífinu í tæplega klukku- tíma langri 10. sinfóníu Shostako- vitsj er tæplega ætlandi nemendum í miðju námi, en þrátt fyrir að telja mætti upp einhver mistök í hljóm- sveitinni, tókst Adey að kveikja í hljómsveitinni með sterkri innlifun sinni sem aldrei gaf grið. Nefna mætti margar vel leiknar ein- leiksstrófur frá hljómsveitarmeð- limum, en dagurinn var fyrst og fremst stjórnandans Christophers Adeys sem leiddi hljómsveitina til mjög ánægjulegrar útkomu. Eftir standa svo spurningar sem enn er ósvarað. Hvers vegna eru af 52 strokhljóðfæraleikurum sveitar- innar á'ðeins 10 karlmenn og þar af fjórir á kontrabassa? Upphaf- lega var áætlað eitt hljómsveit- arnámskeið á ári og þá að sumrinu eftir að skólunum lyki, er kannske um of, af ýmsum ástæðum, að hafa þau allt upp í þijú og það öll á þeim mánuðum sem tónlistar- skólarnir eru starfandi? Þarna koma mörg sjónarmið til greina. En tónleikarnir á laugardaginn voru mjög ánægjulegir. Málverkasýn- ing í á „ A næstu grösumu í VEITINGAHÚSINU „Á næstu grösum“, Laugavegi 20, stendur yfir málverkasýning Kristínar Blöndal. Á sýningunni eru sex verk öll unnin í olíu á striga og nefnast þau „dans“. Sýningin stendur fram í febrúar og Á næstu grösum er opið alla virka daga kl. 11.30 til 14 og kl. 18 til 20. Kristín Blöndal Kristín Blönd- al sýnir í gall- eríinu Hjá þeim Í GALLERÍINU „Hjá þeim“, Skólavörðustíg 6b, stendur yfir málverkasýning Kristínar Blön- dal. Á sýningunni eru sjö verk unnin i ýmis efni. Kristín stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1988-92. Hun tók þátt í óháðri listahátíð „Ólétt“ 1993. Sýningin stendur til 5. febrúar og er opin alla virka daga frá kl. 12-18 og iaugardaga frá kl. 10-14. -----» ♦------ Gerðuberg Sýning á mynd- um Erlu Sig- urðardóttur ÞESSA dagana stendur yfir sýn- ing á myndum Erlu Sigurðar- dóttur myndlistarmanns úr nýút- kominni bók, Fjallgöngunni, sem hefur að geyma ljóð Tómasar Guðmundssonar. Myndirnar eru til sýnis í barnadeild safnsins. Safnið er opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9-21 , föstudaga kl. 9-19 og kl. 13-16 laugardaga og sunnudaga, en safnið mun hafa opið á sunnudögum til vors. Á Borgarbókasafninu í Gerðu- bergi er m.a. hægt að fá tónlist á geisladiskum og myndböndum og nótur til útláns, enskar hljóðbækur, s.s. spennusögur og klassískar bók- menntir, tímarit, auk annars hefð- bundins safnefnis. -----» ♦ ♦---- ■ JAFNRÉTTISNEFND Kópa- vogs gengst fyrir málþingi í sam- komuhúsinu á Digranesvegi 12, laugardaginn 22. janúar nk. kl. 11. Til þingsins er boðið fulltrúum úr öllum jafnréttis- og/eða félags- málanefndum á svæðinu frá Kjalar- nesi suður á Reykjanes, starfs- mönnum á skrifstofu jafnréttismála og bæjarfulltrúum Kópavogs. Til- gangur málþingsins er sá að nefnd- ir á svæðinu hittist og beri saman bækur sínar um stöðu jafnréttis- mála og framtíðarhorfur. Hildur Jónsdóttir, ritstjóri, og Gunnlaug- ur Ástgeirsson, menntaskólakenn- ari, halda erindi og ræða m.a. af- stöðu kvenna til þess að taka að sér ábyrgðarstöður í þjóðfélaginu, segir í fréttatilkynningu. Á eftir erindunum verða fyrirspurnir og almennar umræður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.