Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 55
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18: JANÚAR 1994 55 Slitnað upp úr sjómannaviðræðum á Vestfjörðum Verkalýðsfélögin vildu fá að- gang að bókhaldi útgerðanna VIÐRÆÐUM Alþýðusambands Vestfjarðar og Útvegsmannafélags Vestfjarða um nýjan kjarasamning fyrir sjómenn var hætt á laugar- dag án þess að samningar hefðu náðst. Slitnaði upp úr viðræðunum vegna kröfu Alþýðusambandsins um að fá aðgang að bókhaldi ein- stakra útgerða sem grunur léki á að létu sjómenn taka þátt í kvóta- kaupum. Alþýðusamband Vestfjarða semur fyrir undirmenn og vélstjóra og tók sambandið ekki þátt í verkfalls- aðgerðum sjómanna í öðrum lands- hlutum. Aðilar hafa rætt saman á fimm samningafundum síðan í des- ember. Að sögn Péturs Sigurðssonar formanns Alþýðusambandsins hefur verið rætt um ýmis atriði í kjara- samningunum sem skekkst hafí á undanförnum árum vegna þess að ekki hefði fengist efnisleg umfjöllun um þau frá því 1988. Hann sagði að Alþýðusambandið hefði lagt áherslu á endurskoðun á hafnafríum, línulengd, tryggingatímabilum, mönnun á rækjuflotanum, samning- um um skelfisk og fleiri atriði. Á móti hefðu útvegsmenn gert kröfu um lækkun skiptaprósentunnar. Pétur sagði að slitnað hefði upp úr viðræðunum á laugardag vegna óvissu í kjölfar setningar bráða- birgðalaga á verkfall sjómannasam- takanna. Ríkisstjórnin ætlaði sér að koma í veg fyrir kvótabraskið þó hann sæi ekki hvernig hún ætlaði að fara að því. Pétur sagði að þó kvótabraskið þekktist lítið á Vest- fjörðum teldu menn að það kæmi þangað fyrr eða síðar. Því hefði Al- þýðusambandið viljað fá inn í kjara- samning þá tryggingu að ef upp kæmi kvittur um kvótabrask gæti fulltrúi verkalýðsfélagsins fengið aðgang að gögnum útgerðarinnar til að kanna það. Óskað verkfallsheimildar? Ingimar Halldórsson, formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða, sagði að upp úr viðræðunum hefði slitnað vegna þeirrar úrslitakröfu Alþýðusambandsins að starfsfólk verkalýðsfélaganna fengi aðgang að bókhaldi útgerðarfyrirtækjanna. Út- vegsmenn teldu það óþarfa því í núverandi kjarasamningi væru ákvæði sem heimiluðu trúnaðar- mönnum sjómanna að skoða öll þau gögn sem sneru að launauppgjörum skipverja. Auk þess væri ætlunin að taka á þessu máli á Alþingi. Ingimar sagði að skiptaprósenta útgerðar og skipveija á línubátum væri hærri á Vestfjörðum en í öðrum landshlutum. Útvegsmenn vildu leið- réttingu á skiptakjörunum svo og ákvæðum um línulengd. Ingimar sagði að málin væru í biðstöðu fram yfir mánaðarmót en þá ættu að liggja fyrir tillögur þriggja ráðuneytisstjóra um aðgerðir í kjölfar bráðabirgðalaganna. Pétur Sigurðsson sagði að ef ekkert kæmi þá út úr viðræðum við útvegsmenn yrði að leggja það fyrir félagsmenn hvort þeir vildu fara í verkfall til að fylgja eftir kröfum sínum. Aflaheimildir Hagræðingarsjóðs Flest tonn fara til Norðurlands eystra ÚTLHLUTUN aflaheimilda úr Hagræðingarsjóði skiptist þannig eftir kjördæmum að mest rennur til Norðurlands eystra, eða rúm 2.025 þorskígildistonn til 148 skipa en minnst til Reykjavíkur, eða rúm 832 þorskígildistonn til 44 skipa. Næstmest rennur til Vestfjarða eða rúm 2.018 tonn í þriðja sæti kemur Austurland með rúm 1.824 tonn til 143 skipa, þá Reykjanes með rúm 1.583 tonn til 134 skipa, Vesturland með rúm 1.393 tonn til 107 skipa, Norður- land vestra með um 1.312 tonn til 44 skipa, Suðurland með um 846 tonn til 57 skipa og loks Reykjavík eins og áður sagði. Tekið skal fram að þegar skip eru flokkuð eftir kjördæmum er miðað við heimhöfn þeirra, en heimahöfn er ekki alltaf útgerðar- til 104 skipa. staður. Fiskistofa annast úthlutun á aflaheimildum Hagræðingarsjóðs til þeirra skipa sem urðu fyrir meira en 9,8% skerðingu á afla- marki, í þorskígildum talið, á milli fiskveiðiára. Aflaheimildum er skipt á milli einstakra tegunda í samræmi við hlutfallslega skipt- ingu á aflaheimildum Hagræðing- arsjóðs, og leiðir það til að sum skip fá aflaheimildir af öðrum teg- undum en þeim sem þau veiða. Skoðanakönnun DV um borgarstj órnarkosningar Sameiginlegt fram- boð næði meirihluta SAMEIGINLEGUR listi minni- hlutaflokkanna í Reykjavík fengi meirihluta atkvæða ef kosið yrði til borgarsljórnar nú, eða 63,2% atkvæða og 10 borgarfulltrúa ef aðeins eru teknir þeir sem af- stöðu tóku í skoðanakönnun sem DV gerði á sunnudag. Sjálfstæð- isflokkur fengi 36,8% atkvæða og 5 fulltrúa. Skv. heildarniðurstöðum könnun- arinnar fengi sameiginlegur listi 50,3% og Sjálfstæðisflokkur 29,3% en óákveðnir voru 15,8% og 4,5% neituðu að svara. í könnuninni var einnig spurt hvað menn myndu kjósa ef valið stæði á milli Sjálf- stæðisflokks, sameiginlegs lista og lista Alberts Guðmnndssonar. Ef aðeins eru teknir þeir sem afstöðu tóku varð niðurstaðan sú, að Sjálf- stæðisflokkur fengi á 33,7% og 5 fulltrúa, sameiginlegur listi 57,4% og 9 fulltrúa og listi Alberts fengi 8,9% og 1 fulltrúa. Úrtakið í könnuninni náði til 600 kjósenda i Reykjavík og var jafnt skipt milli kynja. ÍfíUtM HF. SKÓGARHLÍÐ 10 - SÍMI 20720 adidas 5 milljónum úhlut- að úr sjóði Storr NÝLEGA var úthlutað styrkjum úr Menningar- og framfara- sjóði Ludvigs Storr. Alls var úthlutað 5 milljónum króna og var ákveðið að styrkja eftirtalda aðila: Limtré hf. 1.500.000,00 kr. til verkefnisins Límdar samsetning- ar á timburvirkjum og prófanir á þeim, Útgerðartækni hf. 1.300.000,00 kr. til verkefnisins Ventlasnúningsmælir, RT hf. 1.200.000,00 kr. til verkefnisins Stöðuleikamælir, Línuhönnun hf. 1.000.000,00 kr. til verkefnisins Tæknilegar eiginleikar fslenskra bergtegunda. Tilgangur sjóðsins er: „Að stuðla að framförum á sviði jarð- efnafræði, byggingariðnaðar og skipasmíða með því að styrkja vísindamenn á sviði jarðefna- fræði, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga og iðnaðarmenn til framhaldsnám, svo og að veita styrki til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í þessum grein- um.“ Menningar- og framfarasjóður Ludvigs Storr er sjálfseignar- stofnun í vöruslu Háskóla ís- lands. æfingagallar - íþróttaskór Skíða- og vetrarfatnaöur ó börn og fullorðna. Þekkt og vönduð merki. SPORTHÚS REYKJAVÍKU R LAUGAVEGI 44. SÍMI 62 24 77 V. 2. leikvika , 16. jan. 1994 Nr. Leikur: Röðin: 1. Atalanta - Torino - X - 2. Genoa - Milan - X - 3. Inter - Foggia 1 - - “ 4. Juventus - Roma - X - 5. Lazio - Reggiana 1 - - 6. Napoii - Cremonese 1 - - 7. Piacenza - Sampdoria 1 - - 8. Udinese - Cagliari - X - 9. Acircále - Ancona - X - 10. Cesena - Fiorcntina 1 - - 11. Lucchese - Venezia - X - 12. Padova-Bari - - 2 13. Pescara - Cosenza - X - UeUdarvinnlngsupphæðin: 14,8 milljón krónur 13 réttir: 3.957.770 _| kr- 12 réttir: 30.760 | kr. 11 réttir: 2.130 j kr. 10 réttir: 520 1 kr VAKORTALISTI Dags. 18.1.1994.NR. 148 5414 8300 0310 5102 5414 8300 0957 6157 5414 8300 2814 8103 5414 8300 3122 1111 5414 8300 3163 0113 5414 8301 0494 0100 5422 4129 7979 7650 5221 0010 9115 1423 Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti óg sendir sundurklippt til Eurocards. A'r. Leikur: Röð'ut: 1. Aston Villa - West Ham 1 - - 2. Everton - Swindon 1 - - 3. Leeds - Ipswich - X - 4. Man. öty - Arsenal - X - 5. Norwich - Chelsea - X - 6. Oldham - Livcrpool - - 2 7. ShefT. Utd - Blackbum - - 2 8. Southampt - Coventry 1 - - 9. Tottcnham - Man. Utd. - - 2 10. Wiinblcdon - ShcfT. Wcd 1 - - 11. Dcrby - Portsmouth 1 - - 12. Oxford - Southend 1 - 13. Wolves - C. Palace 1 - Hcildarvinningsupphæðin: 120 milljón krónur 13 réttlr: | 300.990 kr. 12 réttir: | 7.630 kr. 11 réttir: 1 660 kr. 10 réttir: | 200 kr. Höföar til .fólksíöllum starfsgreinum! J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.