Morgunblaðið - 18.01.1994, Síða 27

Morgunblaðið - 18.01.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994 27 Öflugur jarðskjálfti ríður yfir Los Angeles og fjöldi skjálfta fylgir í kjölfarið Líkast því að vera um borð í skípi í miklum öldugangi - segir Guðlaugur Sigurgeirsson, verkfræðingur í Los Angeles „Jarðskjálftinn varði að manni fannst heila eilífð, þó að hann hafi ekki verið nema um mín- útu,“ sagði Guðlaugur Sigur- geirsson, verkfræðingur, sem búsettur er ásamt eiginkonu sinni og tveimur sonum í Los Angeles, um 40 mílur frá upp- tökum jarðskjálftans, sem skók Los Angeles aðfararnótt mánudags. Var skjálftinn um 6,6 stig á Richterkvarða en fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjöl- farið. Guðlaugur líkir því acf’koma sér út úr húsinu er skjálftinn reið yfir, við að vera'um borð í skipi í miklum sjó- gangi. „Manni fannst hann vara heila ei- lífð. Fyrsta hugsunin var að ná í börnin og koma öllum út úr húsi. Við búum í ein- býlishúsa- hverfi og mér sýndist að ekki hefðu nærri allir farið út,“ segir Guðlaugur en hann býr aust-suð- austur af miðborg Los Angeles, um 64 km frá upptökunum. Talsvert tjón varð hjá Guð- laugi, hlutir hrundu úr hillum. Sagðist Guðlaugur hafa orðið var við fáeina eftirskjálfta en vita að þeir væru mun fleiri en hann fyndi. Guðlaugur var í Los Angeles fyrir tæpum tveimur árum er þar varð skjálfti mun minni en skjálftinn nú. „Sá var allt öðru vísi, snöggur kippur. Nú varð byigjuhreyfing sem varði miklum mun lengur. Þó að fólki hafi brugðið við skjálft- ann, kom hann fólki held ég ekki á óvart, þar sem jarðskálftar eru tíðir hér.“ Guðlaugur Sigurgeirsson. Gríðarleg eyðilegging NOKKRAR hraðbrautir í Los Angeles og úthverfum hennar hrundu í jarðskjálftanum í gær. Myndirnar eru frá Sherman Oaks-hraðbrautinni en lögreglu- maður fórst er mótorhjól hans þeyttist fram af brautinni er hún hrundi. Liggur lík hans á braut- inni en félagi hans kannar veg- summerki. Sat fjöldi fólks fastur í bílum sínum en í gærkvöldi hafði ekki verið tilkynnt um fleiri dauðsföll á götum borgarinnar. Lárétt færsla í jarð- skorpu - segir Þorvaldur Þórsson jarðvís- indamaður „MIÐAÐ við þær upplýsingar sem ég hef virðist sem þarna hafi átt sér stað svonefndur þvergengisskjálfti, en svo er það nefnt þegar á sér stað Iá- rétt færsla jarðskorpunnar um misgengisflöt,“ sagði Þorvald- ur Þórsson, jarðvísindamaður við háskólann á Hawaii í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Þorvaldur sagði að helst mætti líkja því sem gerðist í skjálfta af þessu tagi við það þegar mað- ur stingur hnífi í smjör og dreg- ur klípu til hliðanna í smjördoll- unni. „Á skálftasvæðinu nuggast saman tveir jarðskorpuflekar, svonefndur Ameríkufleki og Kyrrahafsfleki. Gífurleg orka leysist úr læðingi þegar færslan verður. Það tekur mörg ár að byggja upp svona spennu en hún leysist meira og minna í einu höggi.“ Seinkar trúlega stóra skjálftanum „Skjálftinn varð á sama sprungukerfi og San Andreas- sprungan en hún er ekkert ósvip- uð í eðli sínu sprungunum sem Suðurlandsskjálftarnir verða á. Það er útilokað að segja hvenær svonefndur stóri skjálfti ríður yfir í Kaliforníu og skjálftafræð- ingar forðast eins og heitann eld að spá um það. Og þessi skjálfti seinkar honum frekar, alla vega dregur úr spennu á þessari sprungu og þessu svæði sem skalf nú,“ sagði Þorvaldur. „Það er lán að ekki varð meira tjón en raun varð á því þetta var stór skjálfti og hefði valdið miklu tjóni annars staðar í heiminum." Einn róttækastí umbótasinni rússnesku stjórnarinnar á útleið Get ekki setið í sljóm og verið ósammála stefmmni —sagði Jegor Gajdar í bréfi sínu til Borís N. Jeltsíns forseta Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. JEGOR Gajdar, efnahagsmálaráðherra og einn helsti frammá- maður umbótasinna í Rússlandi, lýsti yfir því á sunnudag að hann myndi ekki taka sæti í nýrri ríkisstjórn sem verið er að setja saman. „Ég get ekki samtímis setið í ríkisstjórn og verið stefnu hennar ósammála“, sagði Gajdar í bréfi sínu til Borís N. Jeltsíns forseta. Forsetinn mun eiga fund í dag með Viktor Tsjernomýrdín forsætisráðherra um þann vanda sem ákvörðun Gajdars skapar. Lloyd Bentsen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagðist á sunnudag ekki óttast að umbóta- stefnan myndi verða lögð á hilluna en starfsbróðir hans í Þýskalandi, Theo Waigel, gaf í skyn í gær að ákvörðun Gajd- ars væri merki um mikla erfiðleika í Rússlandi. Jeltsín samþykkti ákvörðun Gajdars í gær. Forsetinn fór um hann Iofsamlegum orðum en full- yrti að umbótum yrði haldið áfram. Flokkur Gajdars, Valkostur Rússlands, gagnrýndi í gær ríkis- stjórnina, sagði að vikið hefði ver- ið oft af umbótabrautinni að und- anförnu. Túlka mátti yfirlýsinguna sem hvatningu til ^annarra um- bótasinna um að gefa ekki kost á sér j stjórn Tsjernomýrdíns og er einkum rætt um þá Borís Fjodorov fjármálaráðherra og Anatolíj Tsjúbajs, ráðherra einkavæðingar. Jeltsín hefur gefið í skyn að und- anförnu að hægt verði á umbótum og er talið að hann óttist að ella verði hörð átak við nýja þingið óhjákvæmileg. Gajdar lýsti óánægju sinni með ríkisstjórnina, sér hefði gengið illa að fá æðstu menn hennar til að ræða stefnuatriði. Hann sagði að kornið sem fyllt hefði mælinn hefði verið sú ákvörðun að tengja efna- hag Rússlands og Hvíta-Rússlands nánum böndum á ný. Þetta gæti haft hörmulegar afleiðingar. Einn- ig finnst Gajdar það vera fjar- stæða að ætla að byggja nýtt þing- hús fyrir nær 40 milljarða króna. ERLENT Hann benti á að þetta væri meira fé en ætlunin væri að nota til að breyta vopnaverksmiðjum svo að þær framleiddu nytjavöru fyrir almenning í stað vopna. Gajdar lýsti einnig óánægju yfir því að hafa ekki verið boðið í viðhafnar- kvöldverð í Kreml til heiðurs Bill Clinton Bandaríkjaforseta. Fyrir tveim árum fól Jeltsín for- seti Gajdar, sem þá var forsætis- ráðherra, það hlutverk að gera verðlag í landinu frjálst og átti þessi aðgerð að vera fyrsta skrefið í átt til róttækra efnahagsumbóta. Margt í þessum umbótum hefur tekist, þess má m.a. geta að sam- kvæmt breska tímaritinu The Ec- onomist vinnur nær helmingur Rússa nú hjá einka- eða samvinnu- fyrirtækjum. Áður unnu nær allir hjá ríkisreknum fyrirtækjum og stofnunum. Bítlar hljóð- rita ný lög New York. Reuter. ÞRIR liðsmenn bresku Bítl- anna, The Beatles, hefja í næsta mánuði hljóðritanir nýrra laga og er það i fyrsta sinn sem þeir koma saman í hljóðveri frá því hljómsveitin hætti árið 1970. Skýrði tímaritið New Yorker frá þessu í gær og bar fyrir sig tvo fulltrúa EMI-hljómplötufyrirtækis- ins. Upptökunum mun George Martin stjórna, sá hinn sami og stjórnaði upptökum á hljómplötum Bítlanna meðan þeir voru og hétu. Hefur hann einnig umsjón með sérstakri útgáfu sem ráðgerð er á lög- um frá þeim tíma er Bítlarnir voru á hátindi frægðar en hafa flest aldrei komið fyrir eyru hlustenda fyrr. Er þar um að ræða fjóra til sex geisladiska. Hermt er að Paul, George og Ringo hafi tekið mikinn þátt í undirbúningi þeirrar útgáfu svo og mynd- bands um sögu Bítlanna sem ráðgert er að komi út á næsta ári. Sýningartími myndbands- ins verður 10 klukkustundir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.