Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
19. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reynt að
sökkva
norskum
hvalbát
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SEA Shepherd-samtökin hafa
í annað sinn unnið skemmdar-
verk á norskum hvalbát. Að
þessu sinni reyndu liðsmenn
þeirra að sökkva bátnum Senet
við bryggju fyrir utan Fredrik-
stad en á síðustu stundu tókst
þó að koma í veg fyrir það.
Arvid Enghaugen, eigandi Se-
nets, var að líta eftir bátnum
snemma í gærmorgun þegar hann
sá, að kominn var í hann mikill
sjór og stutt í, að hann sykki. Á
sömu stundu barst svo lögreglunni
í Fredrikstad skeyti frá Sea Shep-
herd þar sem samtökin hreyktu
sér af því að hafa sökkt bátnum
með því að skera í sundur tvær
slöngur frá lensidælunni. Var
sama aðferð viðhöfð þegar reynt
var að sökkva bátnum Nybræna
í Lófót. Enghaugen kallaði á
slökkviliðið í bænum til hjálpar og
tókst því að dæla úr Senet en
verulegar skemmdir urðu samt á
ýmsum tækjum.
Litið alvarlegum augum
Norska utanríkisráðuneytið ætl-
ar að taka þetta mál upp við
bandarísk stjórnvöld og fá úr því
skorið hvort þau leggi blessun sína
yfir, að hryðjuverkastarfsemi af
þessu tagi sé stunduð frá Banda-
ríkjunum en höfuðstöðvar Sea
Shepherd eru í Kaliforníu. Sagði
talsmaður ráðuneytisins, að
norska stjórnin liti þennan atburð
mjög alvarlegum augum.
Nyr yfirmaður kynntur
FRAKKINN Jean Cot hershöfðingi (t.v), yfirmaður gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Júgóslavíu fyrrver-
andi, kynnti í gær breska hershöfðingjann Miehael Rose við athöfn á flugvellinum i Sarajevo en Rose
hefur tekið við sem yfirmaður liðsins í Bosníu-Herzegóvínu. Cot lætur af starfi í mars vegna ágreinings
við Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóra SÞ, um gæslustörfin.
*
Agreiningur vex um friðargæslustarf SÞ í Bosníu
Frakkar hóta að
kalla lið sitt heim
Sarajevo. Reuter.
ÁGREININGUR er með Frökkum og Bandaríkjamönnum um hlut-
verk gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Bosníu-Herzegóvínu og Alain
Juppé, utanríkisráðherra Frakklands, hótar að kalla franska herlið-
ið heim verði ekki fundin leið til að stöðva stríðið. Yfirmaður
gæsluliðs SÞ sagði í gær, að verið væri að endurskipuleggja starf-
semi þess til að það gæti sinnt hlutverki sinu betur. Ovenju hörð
sprengjuhríð var í Sarajevo í gær en þar hefur verið tiltölulega
kyrrt i hálfan mánuð.
Eftirmaður Les Aspins í embætti varnarmálaráðherra
Clinton forseti
tilnefnir Perry
Washingfton, New York. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær William Perry í
embætti ráðherra varnarmála en hann hefur að undanförnu ver-
ið aðstoðarráðherra Les Aspins, núverandi varnarmálaráðherra.
Perry kom hingað til lands fyrr í mánuðinum til að undirrita
samkomulag íslenskra og bandarískra stjórnvalda um varnarstöð-
ina á Keflavíkurflugvelli.
Talið er að þingið greiði atkvæði
um tilnefninguna eftir mánuð.
Dagblaðið The New York Times
sagði í gær að Perry hefði á laugar-
dag sagt starfsmannastjóra Hvíta
hússins, Thomas McLarty, að hann
vildi ekki embættið. A1 Gore, vara-
forseti og vinur Perrys, hefði
skömmu síðar hringt í Perry og
beðið hann að bregðast stjórnvöld-
um ekki. Þá hitti Perry Clinton
forseta á föstudag þar sem forset-
inn fór yfir lista með nöfnum þeirra
sem til greina komu í starfið. Clint-
on viðurkenndi í gær að hann hefði
boðið öldungadeildarþingmannin-
um Sam Nunn starfið en hann
hefði hafnað boðinu.
Undanfarið ár hefur Perry, sem
er 66 ára gamall, borið ábyrgð á
daglegum rekstri varnarmálaráðu-
neytisins. Hann hefur beitt sér fyr-
ir notkun hátæknivopna og er sagð-
ur talsmaður þess að vopnaiðnaðin-
um verði haldið gangandi. Haft var
eftir embættismanni i varnarmála-
ráðuneytinu að Perry hefði það eitt
á móti sér að ékki væri víst að
William Perry á blaðamanna-
fundi í Reylgavík er kynnt var
samkomulag Bandaríkjanna og
Islands um varnarmál.
hann yrði harður talsmaður ráðu-
neytisins, hann væri ekki þekktur
fyrir slíka hagsmunagæslu.
Juppé lagði til í viðræðum við
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í París í gær,
að stríðandi fylkingum í Bosníu yrði
gert að fallast á ákveðið friðarsam-
komulag en Christopher hafnaði
því. Var haft eftir bandarískum
embættismanni, að Bandaríkja-
menn vildu ekki gera múslimum,
sem hefðu ekki hafið stríðið, slika
afarkosti. Þá lægi það líka í hlutar-
ins eðli, að samkomulaginu yrði að
fylgja eftir með hervaldi og til þess
væru Bandaríkjamenn ekki tilbúnir
að öðru leyti en því, að þeir styddu
samþykkt Atlantshafsbandalagsins,
NATO, um loftárásir á Bosníu færu
Sameinuðu þjóðirnar fram á það.
Gagnrýna skriffinnsku hjá SÞ
Franski hershöfðingi Jean Cot,
yfirmaður UNPROFOR, gæsluliðs
SÞ í Bosníu, sagði í gær, að verið
væri að vinna að ýmsum endurbót-
um á starfsemi þess til að það gæti
betur sinnt hlutverki sínu. Cot lætur
af starfmu i mars vegna ágreinings
við Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóra SÞ, en Cot krafðist
heimildar til að kalla á herþotur
NATO til verndar gæsluliðinu án
þess að bera það hveiju sinni undir
„skriffinnana" í aðalstöðvunum í
New York. Cot og aðrir yfirmenn
gæsluliðsins hafa gagnrýnt yfir-
stjórn SÞ harðlega fyrir gífurlega
skriffinnsku og segja þeir, að það
sé nánast óvinnandi vegur að koma
einföldustu málum í gegnum yfir-
boðarafrumskóginn þar á bæ.
Sjá frétt á bls. 22.
Stjórn Rússlands
Verðstöðv-
uii íhiiguð
Moskvu, Bonn. Reuter.
VÍKTOR Tsjernomýrdín, forsæt-
isráðherra Rússlands, átti fund
með Borís Jeltsín forseta í gær
og sagði eftir hann að enginn
ágreiningur væri milli sín og for-
setans. „Nýja stjórnin er rétt að
hefja störf ... og menn eru strax
búnir að grafa hana,“ sagði ráð-
herrann og vísaði þar fil harðrar
gagnrýni umbótasinna. Hann
sagðist vilja ræða möguleika á
verðstöðvun við ráðamenn stór-
fyrirtækja og verkalýðssamtök.
Brotthvarf róttækra umbóta-
sinna úr stjórninni veldur víða
óvissu. Talsmenn erlendra fyrir-
tækja sem fjárfest hafa í Rússlandi
lýsa margir vonleysi sínu, einkum
segja þeir að skattakerfið sé þeim
andstætt. „Stjómin er í örvænting-
arfullri leit að erlendri flárfestingu
en virðist ekki vilja eiga nein sam-
skipti við fjárfestaná,“ sagði einn
þeiyra.
í könnun sem gerð var meðal
stjórnenda 1.400 þýskra fyrirtækja
er hafa viðskipti við Rússa er sagt
að skortur hinna síðarnefndu á al-
þjóðlegum gjaldeyri sé erfiðasta
hindrunin. Einnig eru nefnd spilling
embættismanna, glæpir, óvissa í
réttarkerfinu, vandkvæði í tengsl-
um við eignarrétt, verðbólga og
ófullkomin fjarskipta- og sam-
göngukerfi. Aðeins 20% aðspurðra
voru ánægð með viðskipti sín við
Rússa.
Yfirlýsing páfa
Sjónvarpið
ógnar fjöl-
skyldunni
Páfagarði. Reuter.
JÓHANNES Páll II páfi fór
hörðum orðum um sjónvarpið
í gær og sagði það vera beina
ógnun við heilbrigt fjölskyldu-
líf. Þar væri kynlíf og ofbeldi
I hávegum haft og áróður rek-
inn fyrir röugum lífsgildum.
Skoraði hann á foreldra að
„slökkva einfaldlega á tæk-
inu“.
Páfi var mjög harðorður í ræðu
sinni og fordæmdi foreldra sem
notuðu sjónvarpið sem eins konar
barnfóstru. Hvatti hann foreldra
til að rísa upp gegn framleiðend-
um og auglýsendum og krefjast
þess, að settar yrðu strangar
siðareglur til að vernda börnin.
Sagði hann að þótt sumt sjón-
varpsefni væri uppbyggilegt,
mætti flokka megnið af því und-
ir niðurrifsstarfsemi.
„Foreldrar geta haft áhrif á
sjónvarpsgláp barna sinna ein-
faldlega með því að slökkva á
tækinu. Það er margt þarflegra
við tímann að gera,“ sagði páfi
og nefndi sem dæmi að óvirk
seta fyrir framan tækið kæmi í
veg fyrir eðlileg samskipti og
samræður milli fólks.