Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn'Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Kaupum nýja þyrlu Föðurland vort hálft er hafið. Þessi orð eru oft viðhöfð á hátíðarstundum. Þau voru og upphafsorð við- tals við Hafstein Hafsteins- son forstjóra Landhelg- isgæzlunnar hér í blaðinu síðastliðinn sunnudag. Til- vitnunin er við hæfi. Islenzk lögsaga óx mjög þegar land- helgin var færð út í 200 sjó- mílur árið 1975. Auðlindir sjávar vega og þyngra í efna- hagslegu fullveldi og lífskjör- um þjóðarinnar en nokkuð annað. Landhelgisgæzlan hefur með höndum veigamikil verkefni í þágu þjóðarinnar. í fyrsta lagi annast hún löggæzlu í fiskveiðilögsög- unni. Það verkefni er bæði mikilvægt og vandasamt, eins og bezt kom_ fram í þorskastríðunum. í annan stað sinnir hún björgunar: starfi og öryggisþjónustu. í því sambandi þarf að hafa í huga erfið starfsskilyrði þús- unda sjómanna á hafi úti, sem sækja björg í sameigin- legt bú, oft við erfið veður- skilyrði. Til að sinna þessum hlutverkum sem vert er þarf .gæzlan góðan skipa-, flug- véla- og þyrlukost, auk ann- ars tæknibúnaðar. A það skortir töluvert, að því er fram kemur í viðtali Morgun- blaðsins við forstjóra gæzl- unnar. Þar segir orðrétt: „Frá því þorskastríð voru til lykta leidd hefur bæði starfsmönnum og varðskip- um fækkað. Ekki hefur verið samið um smíði á varðskipi fyrir Landhelgisgæzluna frá því Hafsteinn vann þar fyrir 20 árum. Yngsta varðskipið, Týr, er orðinn 18 ára og það elzta, Óðinn, fyllir 34 ár á þessu ári. Auk varðskipanna er í flotanum nýlegur sjó- mælingabátur, Baldur. í flugflotanum eru tvær þyrl- ur, 5 manna og 7 manna, og Fokker-flugvél.“ Skammt er að minnast frækilegs björgunarafreks áhafna tveggja þyrlna varn- arliðsins austur í Vöðlavík. Þar var sex skipverjum bjargað á elleftu stundu við erfiðar aðstæður af brúar- þaki strandaðs skips. Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF- SIF, sem lögð var af stað á slysstað, þurfti að snúa við vegna veðurs og ísingar. Forstjóri Landhelgisgæzl- unnar komst svo að orði hér í blaðinu um þann atburð: „Veðrið var henni ofviða þegar komið var austur fyrir Þjórsá, þyrluna skorti afl og þyngd og hún var eins og laufblað í vindi. . . Þyrla búin þeim kostum sem við höfum gert kröfu um hefði flogið austur í einum áfanga, bjargað mönnunum og getað farið með þá hvert sem er á Austurlandi. Ef björgunin á slysstað hefði ekki tekið nema 30 mínútur hefði hún komizt aftur til Reykjavíkur með mennina. Það er ljóst að Landhelgisgæzlan þarf að fá stóra og öfluga björgunar- þyrlu ef hún á að gegna því hlutverki sem henni er ætl- að.“ Forstjóri Landhelgisgæzl- unnar sagði ennfremur: „Ég legg ríka áherzlu á að það verði keypt ný þyrla sem uppfyllir kröfur okkar um burðargetu og lang- drægni og að hún verði búin sem beztum tækjum og afís- ingarbúnaði. Það er engin ástæða til að ýta þessu máli lengur á undan sér og komið að því að taka ákvörðun um kaupin." Það kom fram í máli for- stjórans að gæzlan hefur átt mjög gott samstarf við varn- arliðið. Þyrlusveitin á Kefla- víkurflugvelli hefur iðulega æft með áhöfnum varðskip- anna. Til umræðu hefur ver- ið nánara samstarf íslend- inga og björgunarsveitarinn- ar í Keflavík, en á þessu stigi liggur ekkert fyrir um hvern veg þau mál þróast. Mergur- inn málsins er hins vegar sá, óumflýjanlegur og krefjandi, „að Landhelgisgæzlan þarf að fá stóra og öfluga björg- unarþyrlu, ef hún á að gegna því hlutverki sem henni er ætlað“ í björgunar- og ör- yggisþjónustu, svo enn sé vitnað til orða Hafsteins Hafsteinssonar. Ljóst er að kaup og rekst- ur nýrrar björgunarþyrlu, sem uppfyllir þær kröfur sem gera verður um burðargetu, langdrægni og tæknibúnað, þar með talinn afísunarbún- aður, kostar mikla fjármuni. Sá kostnaður er hins vegar ekki svo mikill, að hann sé íslenzku þjóðinni ofviða. Þess vegna eiga stjórnvöld nú að taka af skarið og kaupa nýja þyrlu. Stj órnarfrum varp lagt fram í kjölfar hæstaréttardóms Innflutningur land- búnaðarafurða verði háður ráðherraleyfí LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA mun í dag leggja fram lagafrumvarp á Alþingi um að innflutningur á tilteknum landbúnaðarvörum sé óheimill nema að fengnu leyfi landbúnaðarráðherra. Segir Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra að frumvarpið tryggi það réttarástand sem Alþingi samþykkti með lögum 21. desember síðastliðinn en í athugasemdum með frumvarpinu segir að þau lög þyki, eftir dóm Hæstaréttar í síðustu viku, ekki fela með ótvíræðum hætti í sér bann við innflutningi landbúnaðarvara. í athugasemdunum segir einnig, að markmið frumvarpsins sé að tryggja í löggjöf að innflutningur þessara landbúnaðarvara verði háður leyfi fram að gildistöku Ur- úgvæ-samnings GATT, en Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að sú gildistaka yrði væntanlega ekki fyrr en um mitt næsta ár. Frumvarpið var unnið að frum- kvæði forsætisráðherra í samvinnu við landbúnaðarráðherra auk þess sem fjármálaráðuneyti og viðskipta- ráðuneyti hafa fjallað um málið. Báðir stjórnarflokkarnir samþykktu í gær að fyrrnefnt frumvarp verði lagt fram og mun landbúnaðarnefnd Alþingis fjalla um það í dag. Tollnúmeralisti fylgir frumvarpinu Með frumvarpi landþúnaðaráð- herra fyigir toilnúmeralisti yfir þær vörur sem innflutningsbannið á við um. Landbúnaðarráðherra setti reglugerð á síðasta ári um takmörk- un á innflutningi þessara sömu vöruflokka en samkvæmt dómi Hæstaréttar hafði sú reglugerð ekki iagastoð. Þær vörur sem taldar eru upp í frumvarpinu eru kjöt, nýtt, fryst, saltað, þurrkað eða reykt. Einnig egg, mjólk og rjómi, ijómaís, jóg- úrt, smjör, ostur og aðrar vörur með mjólkurfitu. Á listanum eru að auki dýrafita, pylsur og aðrar kjöt- vörur unnar eða varðar skemmdum, þar á meðal kalkúnakjöt. Pasta með kjötfyllingu og pítsur verða háðar innflutningsleyfi sem og tré og runnar. Þingviljinn skýr Mál þetta var rætt utan dagskrár á Alþingi í gær að ósk Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar þingmanns Framsóknarflokks. Sagði hann meðal annars, að sá vandræðagang- ur sem verið hefði í þessu máli staf- aði ekki af vanhæfni Alþingis held- ur væri þetta pólitískt úrlausnarefni sem ríkisstjórnin væri ófær um að leysa. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagðist telja að almenn sátt ríkti á Alþingi um það hvernig haga ætti innflutningi á landbúnaðai’vörum. Sátt væri um að auka frelsi á inn- flutningi landbúnaðarvara í sam- ræmi við samningana um Evrópskt efnahagssvæði og GATT-samning- ana en halda sig við aðra þá niður- stöðu sem þingið hefði nánast sam- hljóða komist að. Þannig væri skýr vilji þingsins, að leyfa ekki hömlu- lausan innflutning á landbúnaðar- vörum, heldur í samræmi við þá milliríkjasamninga sem ísland hefði gert eða myndi taka þátt í. Dómur meirihluta Hæstaréttar hefði nokkuð breytt stöðunni, ekki þó þannig að þingviljinn hefði breyst, heldur mætti færa rök fyrir því að staðfesting þingviljans lægi ekki nægilega skýrt fyrir. „Því er að mínu mati og ríkisstjórnarinnar nauðsynlegt að taka af allan vafa í þeim efnum og hnykkja á þessum þáttum,“ sagði Davíð. Forræði hjá landbúnaðarráðherra Jóhannes Geir spurði sérstaklega um hvar forræði með innflutningi á búvörum yrði, og sagði Davíð Odds- son að eftir gildistöku GATT-samn- ings yrðu ekki iengur í gildi bann- reglur heldur yrði samkeppnisstöðu landbúnaðarins gætt með verðjöfn- unarþáttum. Sú breyting breytti ekki forræði málsins og það forræði yrði áfram hjá landbúnaðarráðu- neytinu. Þá sagði hann að nefnd fimm ráðuneyta myndi fara yfir innflutningslöggjöfina með tilliti til skuidbindinga íslands gagnvart GATT. Fordæmi í EES Össur Skarphéðinsson starfandi utanríkisráðherra sagði að með lagabreytingu á síðasta ári hefði landbúnaðarráðherra verið falið for- ræði með innflutningi og verðjöfnun á búvörum sem féiiu undir tvíhliða samning við Evrópusambandið og aðra milliríkjasamninga. Sagði Öss- ur að þótt sú grein hafi að sönnu ekki átt við GATT þá fælist í þeirri málsmeðferð fordæmi sem yrði væntanlega fylgt. Atvinnumálin for- gangsverkefni hjá Reykjavíkurborg 27 milljarðar til framkvæmda á þremur árum eftirMarkús Örn Antonsson Á vegum Reykjavíkurborgar er- unnið að langtímamarkmiðum á sviði atvinnumála, en samtímis hef- ur miklum fjármunum verið veitt til þess að draga úr atvinnuleysinu með tímabundnum aðgerðum. Þar munar að sjálfsögðu mest um það, að Reykjavíkurborg tókst að halda óbreyttu framkvæmdastigi í fyrra og hitteðfyrra frá því sem það var 1991. Á þessum þremur árum hefur því hvorki meira né minna en ríf- lega 27 milljörðum króna verið ráð- stafað til framkvæmda á vegum borgarinnar. Af þeirri fjárhæð komu tæplega 19 milljarðar úr borgarsjóði, en gera má ráð fyrir, að skuldir hans hafi á sama tíma aukist um nálega 5,5 milljarða króna og hafi numið um 10,5 millj- örðum um síðustu áramót. Frá þessum skuldum má draga áætlaðar útistandandi kröfur, sam- tals að fjárhæð um 4 milljarða króna, og bera mismuninn, 6,5 milljarða króna, saman við skatt- og rekstrartekjur borgarsjóðs í heild, sem urðu að líkindum nálægt 14 milijörðum í fyrra. Þá kemur í ljós, að skuldir að frádregnum úti- standandi kröfum eru innan við 50% af árstekjum borgarsjóðs. Af þessu sést, að ijárhagsstaða borgarsjóðs er traust, þrátt fyrir þann mikia skerf, sem borgin hefur lagt af mörkum til þess að milda atvinnu- ástandið. Þörf á sértækum úrræðum Sá árangur, sem nýlega hefur náðst í vaxtamálum, vekur vissu- lega vonir um, að atvinnulífið rétti nokkuð úr kútnum og því sé af borgarinnar hálfu rétt að beina kröftunum að nokkru leyti frá al- mennum aðgerðum að sértækum úrræðum í atvinnumálum. Þar kem- ur margt tii og skulu hér sérstak- lega tilgreind þrjú atriði: í fyrsta lagi hefur komið í ljós, að almennar aðgerðir, eins og óskil- yrt framlög til framkvæmda sem boðnar eru út, virðast fremur styrkja stöðu þeirra, sem hafa vinnu, en hafa síður í för með sér fjölgun starfa. I öðru lagi hefur komið í ljós,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.