Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994 15 Bætt þjónusta við aldraða í Reykjavík eftir Guðrúnu Zoega Þjónusta við aldraða í Reykjavík á vegum Reykjavíkurborgar hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Félagsmálaráð fer með yfirstjórn þessa málaflokks, en ég hef gegnt formennsku í ráðinu undanfarin íjögur ár. Öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar sér um dag- legan rekstur. Meðal helstu verk- efna er heimaþjónusta, þ.á m. heimilishjálp, heimsending matar o.fl., rekstur félags- og þjónustum- iðstöðva fyrir aldraða, húsnæðis- og vistunarmál og rekstur leigu- íbúða og hjúkrunar- og vistheimila fyrir aldraða. Heimaþj ónusta Mikil áhersla hefur verið lögð á eflingu heimaþjónustu. Borginni er skipt í sjö heimaþjónustuhverfi og er heimaþjónustan skipulögð út frá félags- og þjónustumið- stöðvum í hveiju hverfi. Tæplega nítján hundruð heimili, um 2.300 einstaklingar, njóta nú þessarar þjónustu og er svo komið að tekist hefur að fullnægja eftirspurninni og eru biðlistar engir. Þörfin á hinum einstöku heimilum er mjög mismunandi eða allt frá því að þurfa hjálp við þrif hálfsmánaðar- lega og upp í daglega aðstoð, jafn- vel allan daginn. Þá er um að ræða hjálp við ýmsar daglegar „Mikil áhersla hefur verið lögð á eflingu heimaþjónustu. Borg- inni er skipt í sjö heima- þjónustuhverfi og er heimaþjónustan skipu- lögð út frá félags- og þjónustumiðstöðvum í hverju hverfi.“ athafnir, sem hinn aldraði á í erfið- leikum með, svo sem að klæðast og matast, matseld og innkaup auk almennra heimilisstarfa. A þessu kjörtímabili hefur verið tek- in upp kvöld- og helgarþjónusta og er hún veitt þar sem þörfin er brýnust. Daglega eru sendar um 500 máltíðir í heimahús, en auk þess er hægt að fá keyptan mat vægu verði í hinum mörgu félags- og þjónustumiðstöðvum fyrir aldraða. Reynt er að skipuleggja heima- þjónustuna í samstarfi við heima- hjúkrun, en heimahjúkrunin heyrir undir ríkisvaldið og það gerir erfið- ara um vik að samræma þjón- ustuna eins og æskilegt væri, þar sem yfirstjórnin er ekki á einni hendi. Stefna Sjálfstæðisflokksins er að heilsugæslan færist yfir til sveitarfélaganna. Guðrún Zoega Með góðri heimaþjónustu minnkar þörf á stofnanavist, þar sem aldraðir geta búið lengur á eigin heimilum. Umfang þessarar þjónustu hefur vaxið mikið á kjör- tímabilinu, en nú virðist eftirspurn eftir henni hafa náð jafnvægi. Útgjöld til þess málaflokks hafa aukist í samræmi við aukna þjón- ustu. Ég hygg að flestir telji þeim peningum vel varið, m.a. vegna þess að góð heimaþjónusta sparar mikið fé annars staðar. Höfundur er borgarfulltrúi, formaður félagsmálaráðs og þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðisfóiks í Reykjavík. Stuðningsmenn árna Sigfússonar f 2. sætið í prófkjöri sjólfstæðismanna hafa opnað kosningaskrif- stofu ó Suðurlandsbraut 4, símar 6841 óó og 6841 54 Opið fró hódegi dag hvern og fram eftir kvöldi. GJAFVERÐI Bjóðum pínuiítið (vart sýnilega) framleiðslugallaða (ffMM KF-264 kæliskápa á frábæru verði. 1 CgJTZÆivs KF-264 m/lúxusinnréttingu 1 254 lítra kæliskápur með 199 Itr. kæli og 55 Itr. frysti. HxBxD = 146,5 x 55 x 60 cm. (Verðlistaverð kr. 67.680,-) Nú aðeins kr. 52.690,- stgr. Afborgunarverð kr. 56.660,- Takmarkaður fjöldi skápa á þessu verði | VISA og EURO raðgreiðslur tii allt að' |BB 18 mánaða, án útborgunar. I 1 ■ MUNALÁN með 25% útborgun og JeB VHwl eftirstöðvum kr. 3.000 á mánuði. HÁTÚNI6A REVKJAVÍK SÍMl (91)24420 MAZDA á in Nú er tækifæri til að eignast Mazda 323 fólksbíl á einstöku verði: Mazda 323 3 dyra á 998.000.- kr.* Mazda 323 4 dyra á 1.098.000.- kr* *staðgr. með ryðvöm og skráningu. Árum saman hefur MAZDA staðið sig frábærlega í evrópskum könnunum á bilanatíðni og rekstrarkostnaði fólks- bifreiða en kostir MAZDA koma einnig fram í aksturseiginleikum og þægindum. Hagstætt kaupverð M.AZDA kemur se'r vel nú. Lág bilanatíðni og lítill rekstrar- kostnaður nýtist þér til frambúðar. Hafðu samband við sölu- og umboðs- menn okkar sem veita þér allar nánari upplýsingar. óbilcmdi traust RÆSIR HF S0LUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóöbraut 1, sími 93-12622. Isafjöröur: Bílatangi hf., Suðurgötu 9, sími 94-3800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sími 96-26300. Egilsstaöir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bilasala Keflavíkur, Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaöir bílar: Bílahöllin hf., Bíldshöföa 5, sími 91-674949.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.