Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 Gylltur cha cha cha-draumur. Danska dansparið Allan Tornsberg og Vibeke Toft heimsóttu Island __________Pans______________ Jóhann Gunnar Arnarsson Föstudaginn 21. janúar kom hingað til lands hið heimsþekkta danska danspar Allan Tomsberg og Vibeke Toft og gestgjafi þeirra, dansskóli Hermanns Ragnars, stóð fyrir eftirmið- dagsskemmtun á laugardaginn, þar sem Allan og Vibeke fóru á kostum. Þrátt fyrir ungan aldur sinn hafa þau Allan og Vibeke sýnt það og sannað að þau eru meðal bestu para heims í suður-amer- ískum dönsum. Allan er 27 ára og er frá Kaupmannahöfn. Hann er lærður hárgreiðslumaður en hefur stundað dans frá 8 ára aldri. Vibeke er einnig 27 ára en kemur frá Árósum. Hún er einkaritari að mennt en hefur stundað dans frá 3 ára aldri. Allan og Vibeke em búin að dansa saman í 7 ár og era nú í hópi yngstu atvinnudansara í heiminum. Þau eru búsett í London en ferðast heimshorn- anna á milli til að kenna, keppa og sýna listir sínar. Allan og Vibeke hafa dansað saman þessi 7 ár við góðan orðs- tír. Sinn fyrsta alþjóðatitil unnu þau árið 1988 er þau hömpuðu Norðurlandameistaratitli áhuga- manna í suðuramerískum döns- um í Ósló. Eftir það kom hver titillinn á fætur öðram. Þau náðu þeim frábæra árangri árið 1992 að verða Norðurlanda-, Evrópu- og heimsmeistarar áhuga- manna; allt á sama árinu. Sem áhugamenn í dansi unnu þau alla „stóra“ titlana nema einn; British Open í Blackpool. Rétt fyrir British Open 1993, til- kynntu þau að þau hyggðust á vit atvinnumennskunnar í dans- Á fullum krafti í ,jive“. inum. Þetta kom flestum mjög á óvart. Allan og Vibeke tóku þátt í Rising Star keppninni í Blackpool, sem er keppni fyrir nýgræðingana í atvinnumanna- hópnum og þau unnu í henni! Það kom ekki síður á óvart en það er þau tilkynntu atvinnu- mennsku sína. Hvers vegna fóru þau svona snemma útí atvinnumennskuna? Allan sagði þetta vera alveg eins og að dansa suður-amerísku dansana; þetta væri allt spurn- ing um rétta tímasetningu og þetta hafí einfaldlega verið rétti tíminn! Þetta var fyrsta heimsókn Allans og Vibeke hingað til lands og létu þau mjög vel af. Laugar- daginn 22. janúar stóð dans- skóli Hermanns Ragnars fyrir danssýningum og skemmtun á Hótel íslandi. Dagskráin hófst á því að nemendur og kennarar skólans voru með stutta dag- skrá, sem hófst á að dönsuð var „standard" syrpa, sem elstu keppnisdansarar skólans döns- uðu. Á eftir sýndu yngri krakkar bamadansa og þá kom Rúmban sem ein 13 pör dönsuðu. Bæði atriðin voru skemmtileg á að horfa hvort á sinn hátt. JURM, var heitið á næsta atriði og virt- ist koma áhorfendum „hlægi- lega“ á óvart! En þess ber að geta að JURM er fyrsti _og eini atvinnudanshópurinn á íslandi. Að því loknu sýndu svo yngri hópar aftur, bæði Hermanns twist, eitt af sérkennum skól- ans, og vagg og veltu, bæði atr- iðin mjög skemmtileg og fjörug. í síðasta atriðinu fyrir hlé kenndi ung stúlka úlfalda að dansa, sérlaga vel útfært atriði, sem virtist gleðja fjölmörg lítil, áhugasöm andlit. Þá var komið að meisturan- um. Salurinn var almyrkvaður og mikil eftirvænting ríkti. Samba! Fyrsti dansinn hjá Allan og Vibeke. Það ríkti sannkölluð ykarnival“ stemming á Hótel Islandi, þrátt fyrir hríðarmugg- una úti fyrir. Þau sýndu þar á eftir cha cha cha og slógu þau ekkert af; á innan við mínútu hafði Vibeke skipt um kjól, kom- in úr „karnival" kjólnum í gyllt- an, sérlega smekklegan kjól. Að cha cha cha loknu, þakkaði Allan fyrir einstaklega hlýjar móttök- ur og sagði fáein orð um rúmb- una sem þau sýndu. Rúmban þeirra var mjög kynþokkafull og tilfinningarík og var túlkun þeirra óaðfinnanleg; hreint út sagt frábært! Áhorfendur sátu agndofa í sætum sínum. Dans nautabanans, Paso Do- uble, var næstsíðasti dansinn þeirra. Þessi dans er sá eini af fimm suður-amerísku dönsunum þar sem maðurinn er aðalatriðið í dansinum. „Pasóinn" var í raun þrískiptur, fyrst tveir hlutar þar sem parið sýndi listir sínar, heiminn þar sem karlmaðurinn sýnir yfirráð sín yfir konunni. I síðasta hlutanum, sem var Paso Double-flamenco-sóloatriði All- ans, var hægt að sjá hár áhorf- enda rísa. Þessu atriði fá engin orð lýst... Allan átti hug og hjörtu allra í salnum. Ameríski dansinn jive var síð- asta atriðið í „sjóinu“ hjá Allan og Vibeke. Þennan dans kynnti Vibeke, í enn einum kjólnum; rauðum charleston kjól. Hún sagði að tónlistinn í jive væri að hægjast og færast nær „búggíinu“. Jive-ið þeirra var í „west coast swing“ og „búggí“ stíl, eða eins og einn áhorfandinn sagði: „Alveg rosalega töff!“ Þakið var næstum rifnað af Hótel Islandi er þau voru búin með sýninguna og ætlaði fagnaðarlátum ekki að linna. Það er greinilegt að þau hafa lagt mikla vinnu í þessa sýn- ingu, sem dæmi má nefna bún- ingana; nýr kjóll fyrir hvern dans og margar frábærlega vel útfærðar hugmyndir. Húrra fyr- ir Allan og Vibeke. Það er ekki oft sem við hér á Fróni fáum tækifæri til að sjá svona frábæra dansara með eig- in augum. Það er í raun til skammar fyrir íslenskt dansá- hugafólk, hve fáir mættu á Hót- el Island að sjá þennan einstaka atburð og mig langar að spyija: Hvar var íslenskt dansáhugafólk á laugardaginn? pln'rgiim^ í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI EGLA -röð ogregla Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. Múlalundur Vinnustofa SÍBS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819 <g2Íjji RRENTDUFT ÁBESTA VERÐiNUS Við bjóðum prentduft (toner) / alla Hewlett Packard prentara á besta verðinu í bænum. Og meira en það: Við kaupum af þér gömlu prenthylkin! Njóttu öryggis meö rekstrarvörum frá... Tæknival Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 Brottför: 16.mars 15 nætur á 4ra stjörnu hóteli**** m/morgunveröi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.