Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
Leitað að þremur mönnum frá Stokkseyri á Kjalvegi
Fundust við Innriskúta
Selfossi.
LEIT hófst í gærmorgun að þremur mönnum sem fóru frá Stokks-
eyri á sunnudagsmorgun áleiðis til Hveravalla á Willys-blæjujeppa
árgerð 1965. Lítil CBS-talstöð, var í bilnum en mennimir gátu ekki
látið vita af sér. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann mennina klukkan
15.15 í gær þar sem þeir vom á gangi við Innriskúta á Kjalvegi.
Mennimir fóru frá Stokkseyri um
hálfátta á sunnudagsmorgun. Jepp-
inn drap á sér þegar þeir settu á
hann bensín úr birgðabrúsum sem
þeir höfðu meðferðis. Þeir yfirgáfu
jeppann milli tólf og hálfeítt á
sunnudagskvöldið skammt austan
við Rjúpnafell og gengu í stjömu-
björtu veðri í Svartárbotna þar sem
þeir gistu í skála. Þaðan fóru þeir
síðan um í góðu veðri um hádegi í
gær.
Gengu í góðu veðri
„Það var ekki annað að gera en
ganga af stað. Við vorum með góð
vasaljós og gátum fyigt slóðinni.
Það var fjandi kalt í skálanum í
Svartárbotnum en við gátum hitað
upp með gaseldavél sem er þar.
Við fórum svo úr skálanum um
hádegi og gengum af stað í sól og
blíðu. Við vorum vel búnir og okkur
varð aldrei kalt,“ sagði Guðlaugur
Rúnar Asgeirsson, einn þremenn-
inganna. Hann bað fyrir þakkir frá
þeim félögum til leitarmanna og
áhafnarinnar á þyrlunni. Bróðir
hans Jón Bjöm sagði að tunglskin-
ið hefði verið svo bjart um nóttina
að þeir hefðu ekki þurft ljós í ská-
lanum.
Fegnir að sjá þyrluna
„Það var mjög ánægjulegt að sjá
þyrluna og maður varð mjög feg-
inn,“ sagði Jón Ásgeir Guðjónsson,
19 ára. „Við veifuðum handklæði
þegar við sáum hana og þeir tóku
strax eftir okkur. Síðan lenti hún
skammt frá okkur eftir að þeir
köstuðu út blysi til að kanna vind-
attma.
Björgunarsveitarmenn í Biskups-
tungum voru lagðir af stað inn á
Kjöl til leitar og aðrar björgunar-
Morgunblaðio/Sigurður Jónsson
Jón Ásgeir Guðjónsson, Guðlaugur Rúnar Ásgeirsson og Jón Björn
Ásgeirsson.
sveitir í Ámessýslu voru í þann
mund að senda menn til leitar inn
á hálendið. Þá var verið að und-
irbúa flugvél til leitar frá Selfossi.
Jeppann ætluðu þeir félagar að
sækja sem fyrst áður en veður
versnaði.
Ekki einir á öræfin
Gunnar Einarsson í stjómstöð
björgunarsveitanna í Ámessýslu
sagði, þegar hann var spurður um
þetta ferðalag: „Okkar hlutverk er
að aðstoða fólk í nauðum. Aðstand-
endur leita til okkar og við gerum
allt sem við getum til að fínna fólk-
ið og koma því til hjálpar. Það er
ekki okkar að setjast í dómarasæti
um það sem gerst hefúr en hin al-
menna regla er sú að menn fari
ekki einir inn á öræfín um hávetur
og séu með góðan fjarskiptabúnað
ásamt því að láta vita um ferðir
sínar.“
Sig. Jóns.
9
\
i
í
i
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 25. JANUAR
YFIRLIT: Austur við Noreg er minnkandi 985 mb lægð, en 1.020 mb
hæð er yfir N-Grænlandi. Um 700 km suðvestur af Reykjanesi er vax-
andi 975 mb lægð sem þokast norðaustur og síðar austur.
STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi ó Suðvesturmiðum, Vestur-
djúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi.
SPA: Allhvöss eða hvöss norðaustanátt, úrkomulftið eða úrkomulaust
sunnanlands en él í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austan- og norðaustanátt, viðast fremur hæg
um sunnan- og vestanvert landið, en heldur hvassara norðanlands.
Snjókoma norðan- og austanlands en úrkomulftið annars staðar. Frost
8 til 9 stig.
HORFUR A FIMMTUDAG: Norðaustanátt, víðast fremur hvöss. Urkomu-
laust sunnanlands en él í öðrum laridshlutum. Frost 9 til 10 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðanátt, víðast aðeins gola eða kaldi. Smáél
á annesjum norðaustan- og austanlands, en úrkomulaust annars stað-
ar. Frost 11 til 12 stig.
Nýir veðurfregnatfmar 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarstmi Veðrstofu íslands — Veðurfregnir 990600.
0 a & rM m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyric,
Heiðskirt Léttskýjaö Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjóður er 2 vindstig
f r r * f * * * * • A * 10° Hitastig
f f f f f f f * f ♦ * * * * V V V V Súld, J
Rigning Slydda Snjökoma Skúrir Slydduél B = Þoka '
| 1
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 i gaer)
Vegir á Suðvestur- og Vesturlandi eru flestir færir. Fært er um Snæfells-
nes og einnig um Heydal og Dalasýslu til Reykhóla. A Vestfjörðum er
fært frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og Bíldudals. Einnig er fært um
Botns- og Breiðadalsheiðar. Frá ísafirði er fært fyrir jeppa og stóra bfla
til Hólmavíkur en þaðan er fært suður. Brattabrekka er ófær en fært
um Holtavörðuheiði og Norðurtand til Akureyrar og Siglufjarðar og frá
Akureyri er fært til Ólafsfjarðar. Austan Akureyrar er fært um Þingeyjar-
sýslur og einnig með ströndinni til Vopnafjarðar. Mývatns- og Möðrudals-
öræfi eru ófær. Á Austfjörðum er þungfært um Vatnsskarð eystra, en
fært er um Fjarðarheiði og Oddsskarð. Þá er faert um Suðurfirði og
með Suðurströndinni til Reykjavíkur. Víðast á landinu er snjór og hálka
á vegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísi. tima
hití voöur
Akureyri +10 úrkomaígrennd
Reykjavilt +7 sfcwað
Björgvin 2 úrkomafgn
Hehánfci +1 snjókoma
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq +10 íéttskýjað
Nuuk +13 léttskýjað
Óstó 3 helðskírt
Stokkhólmur +2 heiðskírt
Þórshöfn +2 snjóél
Algarve 14 heiðskfrt
Amsterdam 6 skýjað
Barcetona vantar
Beriín 4 skúr
Chicago 1 alskýjað
Feneyjar 6 þokumóða
Frankfurt 6 stcýjað
Glasgow 4 rigning
Hamborg 4 skúr
London 5 súld
LosAngeles 13 hálfskýjað
Lúxemborg 4 rigiring
Madrtd 8 heiðskirt
Maiaga 16 hetðskirt
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal +16 snjókoma
NetaYoric 2 mistur
Oriando 11 alskýjað
Paris 11 súld
Madeira 15 alskýjað
Róm 12 þokumóða
Vín 10 skýjað
Washirvgton 1 hálfskýjað
Winrripeg +23 heWsk/rt
/ DAG kl. 12.00
BeimtkJ: Veöurslofa Ísíands
{Byggí ó veðurspa kl. 16.30 i gaer)
*
Oánægja starfsmanna Þorgeirs & Ellerts
Stjórnvöld beiti undir-
boðs- og jöfnunartolliim
STARFSMENN Þorgeirs & Ellerts mótmæla því harðlega að ákveðið
hafi verið að gera breytingar á Svaninum RE 45 í Póllandi í tilkynn-
ingu frá trúnaðarmönnum starfsmanna fyrirtækisins. Þeir taka fram
að þvi hafí verið lýst yfír að 13% niðurgreiðsla fengist úr ríkissjóði
væri verkið framkvæmt hjá fyrirtækinu.
Starfsmennimir segja að verkið
hafi verið flutt til Póllands á grund-
velii skeQalausra undirboða. Við þær
aðstæður kreíjast þeir þess að ís-
lensk stjómvöld beiti þegar í stað
undirboðs- og jöfnunartollum eins
og réttur sé til samkvæmt alþjóða-
samningum. „Verði það ekki gert
lýsa starfsmenn Þorgeirs & Ellerts
hf. fullri ábyrgð á hendur stjómvalda
að umrætt stórverkefíii er flutt til
útlendinga í krafti óeðlilegrar sam-
keppni,“ segir í tilkynningunni.
Sljóm Sveinafélags málmiðnaðar-
manna mótmælti harðlega, á fúndi
sínum 20. janúar, þeim vinnubrögð-
um sem viðhöfð vora við útboð vegna
breytinga á ms Svan RE. Stjómin
kpefst þess að stjómvöld grípi tafar-
laust til aðgerða sem hindri að er-
lendir aðilar geti athugasemdalaust
undirboðið íslenskar skipasmíða-
stöðvar til að skapa vinnu i sínu
heimalandi og geri ráðstafanir til að
tryggja vinnu íslenskra jámiðnaðar-
manna til frambúðar.
Ungnr læknir hlýtur 7 milljóna kr. styrk
Raimsakar beingisn-
un aldraðra kvenna
Flórída. Frá Atla Stelnarssyni, frcttaritara Morgunblaðsins.
UNGUR íslenskur læknir, Aðalsteinn Guðmundsson, sem búsettur
er i Madison í Wisconsin, var annar tveggja iækna sem nú um
áramótin hlutu 100 þúsund dollara styrk til rannsókna í klínískri
lyfjafræði aldraðra. Styrkina veitir vísindasjóður Merck-lyfjafyrir-
tækisins en úthlutun annaðist stjóm American Federation for
Aging Research. Styrkurinn er ætlaður til tveggja ára rannsóknar-
starfa við háskóla og jafngildir um 7,2 miUjónum íslenskra króna.
Margir sækja um
þennan sfyrk og er
það mikill heiður fyr-
ir Aðalstein að vera
annar tveggja Iækna
sem styrkinn fengu
að þessu sinni. Rann-
sóknarverkefni Aðal-
steins snýr að rann-
sóknum á beingisnun
í konum og ber titil-
inn: „Ultradian and
Circadian Varation
in interleukin-6 be-
fore and after estrog-
en replacement in
woman with osteoporosis."
í stuttu símaviðtali tjáði Aðal-
steinn fréttaritara Morgunblaðs-
ins að hann hefði verið við fram-
haldsnám við háskólann í Wisc-
onsin undanfarin fimm ár, fyrst í
lyflækningum sem hann lauk fyrir
hálfú öðru ári og síðan i öldrunar-
sjúkdómum og mun hann ljúka
því námi í sumar. Stenst það á
endum því útborgun styrksins
hefst 1. júlí nk. og verður styrkur-
inn síðan greiddur á 6 mánaða
fresti, en hann er ætlaður til
tveggja ára rannsóknarstarfa.
Aðalsteinn mun
stunda rannsóknir
sínar við útibú há-
skólans í Madison í
_ samvinnu við tvo
bandaríska lækna;
Molly Cames og Will-
iam B. Ershler.
Aðalsteinn var að
vonum í sjöunda
himni yfír styricveit-
ingunni og kvað hann
með bestu styrkjum
sem völ væri á eftir
að nokkurs samdrátt-
ar gætti í styrkjum
til rannsóknarstarfa. Hann kvaðst
þakklátur stjóm rannsóknarsjóðs
öldrunarsjúkdóma og Merk-vís-
indasjóðnum sem væri öriátur á
fé til vísindalegra rannsókna og
hefði m.a. veitt 14 milljóir dollara
til slíkra verkefna í fyrra.
Aðalsteinn útskrifaðist frá
læknadeild Háskóla íslands 1986.
Hann er kvæntur Ástu Aðalsteins-
dóttur og eiga þau þijú böm. For-
eldrar hans era Guðmundur Aðal-
steinsson og Steinunn Aðalsteins-
dóttir sem búsett eru í Reykjavík.
Aðalsteinn Guðmundsson
í
i
i
i
i
i
i