Morgunblaðið - 25.01.1994, Side 5

Morgunblaðið - 25.01.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994 Sýning á samkeppnisverkum grunnskólanema í Ráðhúsinu Nær 7 0 skólar sendu um 8 þúsund myndir o g kjörorð SÝNING á verkum nemenda í grunnskólum landsins sem þátt tóku í samkeppni um gerð viðvörunarmerkinga á tóbaksvörur var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur sl. laugardag af Guðmundi Árna Stefáns- syni, heilbrigðismálaráðherra. Verðlaun voru afhent við sama tæki- færi. Samkeppnin fór fram dagana 15. september til 15. nóvember á liðnu ári og sendu nálægt sjötíu skólar um fjögur þúsund myndir og annað eins af kjörorðum með nýjum tillögum að viðvörunarmerk- ingum á tóbaksvörur. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Landlæknisembættið og Tóbaks- varnanefnd stóðu að samkeppninni, en auk fulltrúa þessara aðila sátu í nefndinni um viðvörunarmerking- ar á tóbaksvörur fulltrúar Félags myndmenntakennara og Sambands íslenskra auglýsingastofa. Hrafn Pálsson, formaður nefndarinnar, sagði að athygli hefði vakið að stór hluti innsendra mynda og texta í samkeppninni var með slíkum ágætum að erfitt hafi verið að velja þá fremstu meðal jafningja. Nem- endurnir sem tóku þátt voru á aldr- inum 6-12 ára og segir Hrafn að þátttakan hafi farið fram úr vonum nefndarmanna. „Sérstaklega vorum við ánægð með dreifbýlisskólana, vegna þess að þar virðist ekki glepja eins mikið framboð af ýmsu efni þar og hér á Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Þannig komu heilu skólarnir með sérstaklega góða og jafna út- komu, t.d. norður í Húnaþingi þar sem margir fengu góð verðlaun. Þar fengu skólastjórarnir heilsu- gæslulækna, hjúkrunarfræðinga og aðra sérfróða menn til að ræða við krakkana um þessi mál og áhrif á hjarta og lungu, þannig að krakk- arnir höfðu eitthvað áþreifanlegt úr að moða og er til fyrirmyndar í alla staði,“ segir Hrafn. Hann segir þennan aldurshóp áhrifamikinn og duglegan erind- reka í baráttunni gegn tóbaksnotk- un og mikilvægt að virkja eftir Háskóli íslands Byrjað að brautskrá 17. júní 1995 BRAUTSKRÁNING kandídata frá Háskóla Islands á vormisseri verður 17. júní frá og með næsta ári í stað síðasta laugardags í júní eins og verið hefur undan- farin ár. Háskólinn brautskráir kandídata þrisvar á ári og vegna breytinga á misseraskipan sem gerð var fyrir nokkrum árum var brautskráning í febrúar færð fram. Að sögn Þórð- ar Kristinssonar, kennslustjóra Há- skóla íslands, var beðið með að færa brautskráningu í júní fram til að sjá hver reynslan af nýrri miss- eraskipan yrði. Ástæður fyrir því að beðið er til 1995 sagði Þórður vera þær helstar að háskólaárið væri í fyrsta lagi skipulagt með löngum fyrirvara og um þetta leyti í fyrra var búið að ákveða braut- skráningu í ár og í öðru lagi væri 17. júní í ár mjög ásetinn dagur vegna lyðveldisafmadisins. Menntaskólinn á Akureyri hefur útskrifað stúdenta 17. júní en að sögn Tryggva Gíslasonar skóla- meistara hafa skólanum borist nokkrar fyrirspurnir frá fulltrúum afmælisárganga, sem jafnan heim- sækja skólann við útskrift stúdenta, um það hvort útskrift verði flýtt þetta árið. Tryggvi segir fyrirspurn- irnar hafa borist vegna þess hve margir vilji vera á Þingvöllum á þjóðhátíðardaginn. Enn er ætlunin að útskrifa 17. júní en að sögn Tryggva er í athugun hvort því verður breytt vegna áðurnefndra fyrirspurrla. megni. Sýningin í Ráðhúsinu stend- ur til 28. janúar nk. en áður en verðlaunamyndir og kjörorð verða send aftur til höfunda sinna ásamt viðurkenningarskjali verða þau skráð í gagnabanka Tóbaksvarna- nefndar sem er í vörslu Krabba- meinsfélagsins. Hrafn segir að þar sé að finna efnið sem skaraði fram- úr í fyrri samkeppnum af sama tagi og hyggist nefndin nýta sér slagorð og myndir úr keppninni nú eftir atvikum. Kostnaður við keppn- ina var um ein milljón króna, sem Hrafn segir lága upphæð miðað við þann „óþijótandi brunn skemmtileg- heita, hugmyndaflugs og sköpunar sem samkeppnin færir okkur“. ' Morgunblaðið/Þorkell Frá opnun sýningar á verkum úr samkeppni sem efnt var til meðal grunnskólanema á síðasta ári um viðvörunarmerkingar á tóbaksvörur. m VAKNADU! 0 Þriðjungur íslenskra heimila er ótryggður. * Býr ffólskylda þín við stíkt óöryggi ? Óhöpp gera ekki boð á undan sér og erfitt er að varast þau. Li'til óhöpp sem stór geta hæglega sett varanlegt strik f fjárhag heimilisins. A tímum samdráttar og erfiðrar fjárhagsstöðu heimilanna koma slík álöll veir við eldhúsbuddumar en nokkm sinni. Skandia býður heimilis- og húseigendalryggingar á verði og kjömm sem flest heimili ættu að ráða við. I leimilistryggingin veitir fjölskyldum heilsteypta vemd. Hún er þríþætt og skiptist í irmbústryggingu, ábyrgðartryggingu gegn skaðabótaábyrgð og slysatryggingu í fntíma. Húseigendatryggingin vemdar eigendur fyrir skakkaíöllum vegna tjóna á húseignum. Öryggisráðgjafar Skandia heimsækja flesta þá sem panta húseigendatryggingu og leiðbeina um öryggismál á staðnum, eigend- unum að kosmaðarlausu. TILBOÐ Efþúkaupirbæðiheimilis-og | húseigendatryggingarfyrir 1. mars n.k. færðu vandaöan reykskynjara í bónus. Pantaðu strax - þín ogjjölskyldu þinnar vegna! msg Skandia Vátryggingarfélagið Skandia hf. Laugavegi 170, sími 61 97 00 • Akureyri, sími 1 22 22 * Samkvœmt iqiplýsingam Sattibands íslenskra tryggingatfélaga eni 33% Lslenskra heitnila áti heimilistryggingar og 48% án húseigendatryggingar. B ■ Vátryggingarfélagið Skandia hf. er alfarið i eigu Skandia-sarnsteypunnar. IHBllHBHBililtlWiiHiiliWiliiiiilliiiHliWililiiiiliiiimtl IHIi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.