Morgunblaðið - 25.01.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994
7
Istak með lægsta til-
boð í brú á Jökulsá
ÍSTAK hf. átti lægsta tilboð í byggingu nýrrar
brúar á Jökulsá á Dal í lokuðu útboði Vegagerð-
ar ríkisins. Tilboð fyrirtækisins var 94,8 milljón-
ir kr. sem er 88% af kostnaðaráætlun en hún
hljóðaði upj) á 107,7 milljónir. Næst lægsta tilboð-
ið var frá Álftárósi hf., 97,1 milljón.
Núverandi brúarstæði Jökulsár á Dal (Jökulsár á
Brú) er hið elsta á landinu. Brúin er rúmlega 60
ára gömul og aðkoman að henni er slæm. Nýja brú-
in verður nokkru ofar í Jökuldal og styttist Austur-
landsvegur milli Akureyrar og Egilsstaða um 2,6
km með nýja vegarstæðinu.
Verkfræðistofan Línuhönnun hf. hannaði nýju
brúna í samvinnu við brúahönnuði Vegagerðarinn-
ar. Aðstæður til brúargerðar eru fremur erfiðar.
Gljúfrið er um 60 metra breitt og hæð veglínu yfir
Ný brú á Jökulsá
NÝJA brúin á Jökulsá á Dal verður stafboga-
brú, eins og sjá má á þessari tölvuteikningu, og
svipar henni til gömlu brúarinnar.
gljúfurbotni um 40 metrar. Undir er beljandi jökulá-
in. Ákveðið var að byggja svokallaða stafbogabrú
með fimm höfum yfir boga. Er það svipað form og
er á núverandi brú.
Hámark bifreiða-
gjalda 18.136 kr.
HÁMARK bifreiðagjalda er 18.136 krónur sem greiða ber tvívegis
á árinu 1994, þannig að samanlagt getur fólk þurft að greiða
36.272 krónur. Samsvarandi hámark á árinu 1993 var 12.729 krón-
ur og því er um rúmlega 40% hækkun á þessu hámarki að ræða
milli ára.
Þess misskilnings gætti í Morg-
unblaðinu á laugardag að há-
marksupphæðin í fyrra var sögð
hámarksupphæð í ár. Gjalddagi
bifreiðagjalda er tvisvar á ári, 1.
janúar og 1. júlí, og er eindagi
greiðslu síðasti dagur næsta mán-
aðar eða lok febrúar og 31. ág-
úst. Gjaldið fer eftir þyngd bifreið-
ar og greiðast á árinu 1994 5,62
kr. fyrir hvert kíló að 1.000 kílóa
þyngd og 9,27 kr. fyrir hvert kíló
umfram það, en þó aldrei meira
en 18.136 kr. í hvort skipti eins
og fyrr sagði.
Strand Bergvíkur
I
>
>
>
>
>
>
I
>
*
I
I-
Fullnaðar-
viðgerð
kostar um
10 milljómr
HAFIN er bráðabirgðaviðgerð á
Bergvíkinni, sem strandaði í
Vöðlavík 18. desember, hjá
Dráttarbrautinni hf. í Neskaup-
stað. Gunnar Felixson, forstjóri
Tryggingamiðstöðvarinnar, sem
er tryggingaraðili skipsins, segir
að útgerðin hafi óskað eftir því
við Siglingamálastofnun að
frestun fengist vegna lokavið-
gerðar og ekki væri ljóst hvenær
hún færi fram. Hann segir að
áætlanir geri ráð fyrir að fulln-
aðarviðgerð á skipinu kosti um
10 milljónir króna.
„Á skipinu eru botnskemmdir,
laga þarf stýri, kæla og botnstykki
eru ónýt. Svo þarf að yfirfara raf-
ala, aðalvél, skoða öxul, skrúfur
og fleiri tæki,“ sagði Gunnar. Hvað
bráðabirgðaviðgerð varðaði sagði
hann að farið yrði yfir skipið og
gert við botn þess.
Aftur á veiðar
Gunnar sagði að gert væri ráð
fyrir að viðgerðin nú tæki um tvær
vikur og eftir hana færi skipið á
veiðar. Hann sagði að útgerðin
hefði óskað eftir því við Siglinga-
málstofnun að frestun fengist á
lokaviðgerð á skipinu. Skipið lá á
strandstað í þijár og hálfa viku
og eru skemmdir þess ekki taldar
miklar miðað við þann tíma.
-----» ♦ ♦-----
Kindur heimt-
ast á þorra
Borg í Miklaholtshrcppi.
ERFIÐLEGA hefur gengið að
handsama kindur úr fjalli á
Skógarströnd en fyrir nokkru
fóru menn að kanna livort eitt-
hvað væri um kindur þar í fjöll-
um.
í leiðangrinum fundust 18 kind-
ur en þær voru varar um sig og
vildu hafa sitt frelsi lengur. Þá
náðust þrjár en fimmtán sluppu.
Nú var gerður út annar leiðangur
og fundust þá átta kindur. Leitar-
skilyrði voru erfið, mikill laus snjór
og sleipt í spori.
Kindurnar voru mikið snjóbryn-
jaðar og þungar á sér. Þijár kind-
ur af þeim voru frá Minni Borg
og ein frá Hrútsholti. Hinar voru
af Skógarströnd. Holdafar kind-
anna er talið þokkalegt.
- Páll
Taktu markvissa stefhu
í spamabi 1994
íslandsbanki kynnir nýjar, einfaldar og
árangursríkar Sparileiöir
Nýir möguleikar í sparnaöi á Sparileiöum
íslandsbanka.
Meginmarkmiöiö meö nýjum Sparileiöum er aö bjóöa spari-
fjáreigendum fjölbreyttarí valkosti og betri ávöxtun af sparnaöi
sínum, eftir því sem spariféö stendur lengur óhreyft.
«► Sparileiö 12
Verötryggö Sparileiö 12 hentar vel fyrir sparnaö sem getur
staöiö óhreyföur í aö minnsta kosti 12 mánuöi.
^Sparileiö 24
Verötryggö Sparileiö 24 er sniöin fyrir sparnaö í minnst 24
mánuöi.
# Sparileiö 48
Verötryggö Sparileiö 48 hentar vel fyrir sparnaö Í48 mánuöi
eöa lengur.
♦ Óbundnar Sparileiöir
Fyrirþá sem ekki vilja binda fé sitt bjóöast einnig óbundnar
Sparileiöir, en íslandsbanki var einmitt meö bestu ávöxtunina
á óbundnum reikningi áriö 1993.
Fleirí möguleikar meö reglubundnum sparnaöi
Nú opnast nýir möguleikar fyrírþá sem vilja spara reglubundiö
og taka allt spariféö út í lok sparnaöartímans.
Efþú gerir samning um reglubundinn sparnab á Sparíleiöum
12, 24 eöa 48, þá er öll sparnaöarupphœöin laus aö loknum
umsömdum binditíma reikningsins og öll upphœbin nýtur
verbtryggingar, óháö því hvaö hvert innlegg hefur staöiö lengi
á reikningnum.
Ánœgjuieg „útgjöld"
Þaö ánægjulega viö reglubundinn sparnab er ab jafnvel
smáar upphœöir eru fljótar aö vaxa ef þœr eru lagöar reglulega
til hlibar. Þaö hefur því reynst mörgum vel aö gera sparnaöinn
aö föstum, ófrávíkjanlegum hluta af „útgjöldum" hvers
mánaöar. Þab er aubveldara en þú heldur.
Nú er réttl tímirm til aö taka markvissa stefnu
íspamabi.
/
ÍSLANDSBANKI
YDDA F26.186 / SlA