Morgunblaðið - 25.01.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
23
Bill Clinton Bandaríkjaforseti sakaður um fjöllyndi í ástamálum
Fyrrverandi viðhaldi boðið
þægilegt starf fyrir að þegja?
St. Louis. The Sunday Telegraph.
FYRRVERANDI fegnrðardrottning, sem kveðst hafa verið í þingum
við Bill Clinton Bandaríkjaforseta árið 1983, segir í viðtali við The
Sunday Telegraph að sér hafi verið boðið starf hjá ríkinu ef hún
þegði yfir sambandi þeirra í kosningabaráttunni fyrir forsetakosning-
arnar árið 1992. Þá segist hún hafa orðið fyrir ofsóknum og hótun-
um af ýmsu tagi ef hún hegðaði sér ekki „eins og þæg stelpa“ í
kosningabaráttunni.
Konan heitir Sally Miller Perdue,
er 55 ára gömul og fyrrverandi
Ungfrú Arkansas. Hún var með
dagiegan viðtalsþátt í útvarpi í Little
Rock, höfuðstað Arkansas, þegar
meint samband hennar við Clinton
átti sér stað.
Perdue býr nú í St. Louis í Misso-
uri og er forstöðukona heimilis fyrir
fullorðið fólk með Downs-syndróm
og lömun vegna heilaskaða. Hún
segir að eftir að kosningabaráttan
hófst hafi hún sætt hótunum af
hálfu manns á sextugsaldri, Rons
Tuckers, sem hafi sagst ganga er-
inda „háttsettra demókrata“. Hún
segist hafa talað við hann í þijár
klukkustundir á veitingahúsi 19.
ágúst 1992 og hann hafi þá boðið
henni embætti sem myndi tryggja
henni góða afkomu fyrir lífstíð, um
4,2 milljónir króna á ári. „Og hann
sagði að ef ég tæki ekki tilboðinu
vissu þeir að ég væri oft ein úti að
hlaupa og hann gæti ekki ábyrgst
hvað kæmi fyrir fæturna á mér. Líf
mitt yrði mjög erfitt.“
Vinnufélagi konunnar, Denison
Diel, kveðst hafa hlerað allt samtal
þeirra og hefur skýrt bandarísku
alríkislögreglunni, FBI, frá því.
Perdue segist hafa sætt ofsóknum
eftir að hún hafnaði tilboðinu. Hún
hafi misst starf við háskóla í Misso-
uri, fengið hótanir í síma og bréfum
og bíll hennar hafi verið skemmdur.
Perdue segir að hún hafi ákveðið
að skýra frá sambandi sínu við Clint-
on vegna þess að hún vildi staðfesta
ásakanir fyrrverandi lífvarða forset-
ans, sem héldu því fram fyrir jólin
að forsetinn hefði notað ríkisbifreið-
ar og starfsmenn til að komast til
ástkvenna sinna. „Það þarf að segja
frá þessu öllu svo bandaríska þjóðin
geti tekið afstöðu í málinu."
Perdue heldur því fram að lífverð-
ir Clintons hafi ekið honum í ríkisbif-
reiðum heim til hennar tólf sinnum
í ágúst til desember árið 1983. „Þeir
lögðu bílnum í skógi skammt frá
húsinu og biðu þar,“ sagði hún.
„Þegar Bill var tilbúinn til að fara
gaf hann þeim merki með því að
kveikja og slökkva ljósið á verönd-
inni.“
Perdue segist hafa kynnst Clinton
þegar hann hafi komið inn í húsið
Stenberg tekur við
stjórninni hjá SAS
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
JAN Stenberg, 54 ára gamall sænskur framkvæmdastjóri, hefur
verið ráðinn aðalframkvæmdastjóri SAS-flugfélagsins.
Stenberg leysir af hólmi Norð-
manninn Jan Reinás sem hefur
stjórn SAS til bráðabirgða eftir að
Jan Carlzon sagði af sér. Hans bíð-
ur að endurskipuleggja starfsemi
SAS eftir skakkaföll í rekstrinum
undanfarið. Stenberg þykir hafa
staðið sig vel sem framkvæmda-
stjóri rafeindafyrirtækisins LM
Ericsson þar sem hann hafði umsjón
með' endurskipulagningu fyrirtæk-
isins. Hann þykir hreinn og beinn
stjórnandi sem ekki lætur tilfinn-
ingar ráða þegar starfið er annars
vegar.
r
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ÞRIÐJUDACiSTILBOÐ
Verð kr. 4.995
verð áður kr. 7,995
Litur: Brúnn
Stærðir: 36-46
Tcg.: 170
Verð kr. 4.995
verð áður kr. 7.995
Litur: Svartur, brúnn
Stærðir: 36-46
V 0 S T S I \ I) I M S V M I) i: (, I 15 S
| Tökum við notuðum skóm til handa bágstöddum
STEINAR WAAGE STEINAR WAAGE ^
Sally Miller Perdue
hennar í skokkfötum þegar hún hafi
verið að spila á píanóið sitt. Hann
hafi beðið hana að spila fyrir sig.
Seinna hafi hann komið með saxófón
með sér og þau hafi leikið gömul
rokklög saman. Þau hafi síðan gerst
elskendur. „Hann var gæddur
strákseiginleikum sem ég stóðst
ekki,“ segir hún. Perdue lýsir forset-
anum sem „skemmtikrafti" og „frá-
bærum leikara", sem hafi mikla þörf
fyrir ástúð kvenna.
Kvennafarið þagað í hel?
Talsmaður FBI í Missouri vildi
ekki ræða málið, kvaðst ekki geta
tjáð sig um mál sem verið væri að
rannsaka.
Asakanir Perdue um að forsetinn
hafi notað ríkisbifreiðar og lífverði
á þennan hátt þykja alvarlegar. Old-
ungadeildarþingkona frá Texas, Kay
Bailey Hutchison, hefur verið ákærð
fyrir að hafa látið starfsmenn sína
sinna einkaerindum hennar og hún
á allt að 10 ára fangelsisdóm yfir
•höfði sér. Mál hennar er þó ekki
talið eins aivarlegt og Clintons.
Ýmislegt þykir benda til þess að
frásögn Perdue sé sönn og að aðstoð-
armenn Clintons hafi beitt mikilli
hörku til að þagga niður í fólki í
kosningabaráttunni. Lögfræðingur í
Little Rock, Gary Johnson, sagði til
að mynda félögum sínum frá því að
hann hefði tekið myndir upp á mynd-
band af Clinton ganga inn í hús
söngkonunnar Gennifer Flower, sem
hélt því fram að hún hefði átt í ástar-
sambandi við forsetann. Skömmu
síðar, 22. júní 1992, komu þrír menn
heim til hans, slógu hann í rot og
stálu myndbandsspólunni.
Þá var brotist þrisvar sinnum inn
í skrifstofu tímaritsins American
Spectator þegar verið var að leggja
síðustu hönd á grein um ásakanir
fyrrverandi lífvarða forsetans. Þykir
þetta grunsamlegt þar sem í 26 ára
sögu tímaritsins hafði aldrei áður
verið brotist inn í skrifstofuna.
Perdue sakar bandaríska fjöimiðla
um að hafa þegið málið í hel í kosn-
ingabaráttunni og því hafi hún
ákveðið að segja sögu sína í breska
biaðinu The Sunday Telegraph.
Telly Sav-
alas látinn
TELLY Savalas, sem öðlaðist
frægð fyrir hlutverk einkalög-
reglumannsins Kojak í sam-
nefndum sjónvarpsþáttum, lést
á laugardag úr krabbameini.
Hann stóð á sjötugu.
Mirror bjargar
Independent
MIRROR-útgáfan sem eitt sinn
var í eigu blaðakóngsins Ro-
berts Maxwells hefur ákveðið
að koma blaðinu Independent,
sem átt hefur í fjárhagsörðug-
leikum, til bjargar með kaupum
á 40% hlutíjár. Útgefendur El
Pais á Spáni og La Repubblica
á Ítalíu hafa sömuleiðis ákveðið
að auka hlutafjáreign sína úr
37% í rösk 50%.
Cartland hug-
myndasmiður
Majors?
BARBARA Cartland, 92 ára
gömul skáldkona sem skrifað
hefur hátt í 600 ástarsögur án
þess að minnast á kynlíf, sagð-
ist í viðtali um helgina hafa
gefið John Major forsætisráð-
herra Bretlands hugmyndina að
nýrri fjölskyldustefnu, aftur-
hvarfi til gamalla gilda, er þau
hittust yfir hádegisverði í fyrra.
Kosningaskrifstoffa
Gunnars Jóhanns
Birgissonar vegna
prófkjörs í Reykjavík
er ó Grensósvegi 8,
símar 883244 og
883248.
Gunnar Jóhann í 4.
sæti.
Stuóningsmenn
SKOVERSLUN ^
SÍMI 18519
SKOVERSLUN
SÍMI 689212 ^
Júlíus Hafstein
borgarfulltrúa í 2.
Kröftugan málsvara sjálfstæðisstefnunnar.
REYNSLA - FORUSTA - ARANGUR