Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 29

Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 29 Sálfræði Betri samskipti á vinnustað SÁLFRÆÐIN GARNIR Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð hafa um nokkurt skeið haldið námskeið í samvinnu við fyrir- tæki og stofnanir um samskipti fólks á vinnustað. Kennslugögn eru útbúin sérstaklega fyrir hvert námskeið, þar sem tekin eru raunhæf dæmi úr vinnuum- hverfi þátttakenda. „Við ræðum við nokkra starfs- menn áður en námskeið er haldið og fáum upplýsingar um aðstöðu, starfsemi og helstu vandamál sem til staðar eru á vinnustaðnum. Þannig er hvert námskeið í raun sérhannað þó grundvallaratriði í kennslu séu alltaf hin sömu.“ Wilhelm Hugo Þórisson Norðfjörð Algengast segja þeir að að starfs- mannastjóri eða stjórnandi fyrir- tækis hafí samband við þá, en þó komi fyrir að fulltrúar starfsmanna- félaga óski eftir námskeiði.“ „Við lítum á góð samskipti samstarfs- fólks sem hluta af gæðastjórnun fyrirtækja, enda er ekkert fyrirtæki betra en starfsfólkið sem vinnur þar.“ Báðir eru þeir sálfræðingar frá háskólanum í Árósum og er Hugo yfirsálfræðingur hjá unglingádeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, jafnframt því að vera formaður Sálfræðingafélags Íslands. Wilhelm er forstöðusálfræðingur á Heilsu- gæslustöð Seltjarnarness. Undan- farin átta ár hafa þeir haldið marg- vísleg námskeið um bætt samskipti og eru kenningar sálfræðingsins dr. Thomasar Gordons hafðar til gnmdvallar á öllum námskeiðum þeirra. Byggingariðnaður Innval setur upp , 130 Islands- stiga INNVAL hf. í Kópavogi hefur nú lokið uppsetningu 130 tré- stiga í nýjum húsum Húsnæðis- nefndar Reykjavíkur í félags- lega íbúðakerfinu. Hér er um að ræða 120-130 fermetra rað- hús í Húsa- og Rimahverfi í Grafarvogi sem voru fyrstu áfangarnir og nú síðast 24 rað- hús við Laufengi í Grafarvogi. Samkvæmt upplýsingum Ed- vards Sverrissonar, framkvæmda- stjóra Innvals er þetta stærsta „verkefni við smíði og uppsetningu tréstiga frá upphafi nýbygginga hér á landi. Tréstiginn sem smíð- aður er úr furu var sérstaklega og fyrir þetta verkefni. Verksamn- ingur Innvals og Húsnæðisnefndar Reykjavíkur var gerður í kjölfar útboðs. Verð á Islandsstiganum hefur hins vegar lækkað frá því gengið var frá samningum m.a. vegna gengislækkunar sænsku krónunnar og er nú á sérstöku tilboðsverði. TRESTIGAR ~■ Nýiega lauk Innval uppsetningu 130 tréstiga fýrir Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. Á myndinni eru þeir Páll Sveinbjörns- son, trésmiður og Edvard Sverrisson, framkvæmdastjóri Innvals. hannaður fyrir þetta yerkefni og hlaut fyrir vikið heitið íslandsstig- inn hjá framleiðandanum, sænska fyrirtækinu Tratrappor ab í Nord- sjö í norðurhluta Svíþjóðar. Þetta fyrirtæki er stærsta stigaverk- smiðja á Norðurlöndum og fram- leiðir um 12 þúsund tréstiga á ári bæði staðlaða og sérsmíðaða eins NÝSKÖPUN FRÁ HUGMYND TIL HAGNADAR Aðgerðaþing um nýsköpun á Hótel Holiday Inn föstudaginn 28. janúar 1994 12:45-13:15 Skráningþátttakenda 13:15-13:30 Setning - ávarp Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra 13:30-14:45 Concepts and instruments in innovation policies in OECD countries - Nordic experience (Hugtök og stjórntœki sem varða nýsköpunarstefnu í OECD ríkjunum - reynsla Norðurlanda) Keith Smith, Research director Norsk Regnesentral, Oslo Fyrirspumir 14:45-15:00 Heiðursviðurkenningfyrir nýsköpun Pétur Stefánsson, formaður Rannsóknaráðs ríkisins 15:00-15:20 Kaffi 15:20-16:05 Hvernig má efla nýsköpun á íslandi? Nýsköpun tengd hefðbundnum reynslusviðum íslendinga Islenskar sjávarafurðir hf. Gunnar Már Kristjánsson Vaki hf. Hermann Kristjánsson Nýsköpun á nýjum sviðum - nýjar vörur - nýir markaðir Taugagreining hf. Sigurður Helgason Sigurður Hjálmarsson 16:05-17:15 Vmrœðuhópar 17:15-18:30 Skýrslur umrœðuhópa - niðurstöður Þingstjóri: Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands Þátttökugjald er 1000 kr., veitingar innifaldar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Rannsóknaráðs ríkisins í síma 621320, eða til Útflutningsráðs íslands í síma 688777. 0 /// ^ • ÚTFLUTNINGSRÁÐ JJ RANNSÓKNARÁÐ ÍSLANDS I WJrikisins R AÐ A UGL YSINGAR ÞJÓNUSTA Stakfell 687633 rf Fasleignasaia Sudurianasbraui 6 íbúð óskast til leigu Einn af umbjóðendum okkar óskar eftir góðri 4ra herbergja íbúð (eða stærra húsnæði) til leigu sem fyrst. Leigutími um 2 ár. Æskileg staðsetning í Austurborginni. Þrennt í heim- ili, hjón með 13 ára ungling. Góðri umgengni heitið. Reyklaust. Öruggar greiðslur. Upplýsingar í síma 688513 og 688591. Einnig í Stakfelli á skrifstofutíma. Málverk Óskum eftir verkum gömlu meistaranna. Fyrir viðskiptavin okkar leitum við að góðri mynd eftir J.S. Kjarval. Höfum hafið móttöku á málverkum fyrir næsta listmunauppboð. Opið daglega frá kl. 12.00-18.00. Sími 24211. BORG Fjármálaþjónusta Endurskipulagning fjármála, gerð rekstrar- og greiðsluáætlana, bókhald, ársuppgjör og skattaskýrslur fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Víðtæk reynsla. Sími 91-19096, fax 91-19046. TÓNLISTARSKÓLI ÍSLENSKA SUZUKISAMBANDSINS Er ekki tilvalið á ári fjölskyld- unnar að læra að syngja með börnunum okkar? Bjóðum upp á söngnámskeið fyrir foreldra, börn og verðandi mæður í anda uppeldis- kenninga Dr. Shinichi Suzuki. Námskeiðin hefjast í febrúar. Nánari upplýsingar og skráning í síma 15777 frá kl. 9.00-13.00 alla virka daga. Mígrensamtökin Mígrensamtökin halda fræðslufund þriðju- daginn 25. janúar kl. 20.30 í Bjarkarási, Stjörnugróf 9, Reykjavík. Fyrirlesari: Karl Örn Karlsson. Efni: Er bitið aðeins höfuðverkur tannlækna? Kvenfélagið Hringurinn 90 ára Afmælishóf verður í Hótel Borg laugardaginn 29. jan. nk. kl. 19.00. Aðgöngumiðar- seldir í Hótel Borg í dag þriðjudaginn 25. jan. milli kl. 15 og 18, borð tekin frá um leið. Ath. aðgöngumiðar verða ekki seldir við inn- ganginn. Hátíðarnefndin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.