Morgunblaðið - 25.01.1994, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994
ATVINNUAUGÍÝSINGAR
Innheimta
Óskum eftir innheimtufólki á Ísafjörð-Hnífs-
dal, Patreksfjörð og Kirkjubæjarklaustur.
Upplýsingar veitir Halldóra í síma 812300
milli kl. 9 og 16.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Staða slökkviliðs-
stjóra
Brunavarna Árnessýslu er laus til umsóknar.
Slökkviliðsstjóri starfar samkvæmt lögum um
brunavarnir og brunamál nr. 41/1992, sam-
kvæmt ákvæðum byggingarlaga um bruna-
varnir nr. 54/1978, með síðari breytingum,
og samkvæmt reglugerðum þar að lútandi.
Hann annast fjármál, daglega stjórnun og
starfar á grundvelli samþykkta um Bruna-
varnir Árnessýslu frá 15. des. 1992. Slökkvi-
liðsstjóra ber að hafa náið og gott samstarf
við bygingafulltrúa og bygginganefndir þeirra
sveitarfélaga sem aðild eiga að Brunavörnum
Ánessýslu. Hann hefur einnig skyldur sem
framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar
Selfoss og nágrennis.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
á sviði mannvirkjagerðar og hafi reynslu af
notkun húsateikninga. Einnig er æskilegt að
viðkomandi hafi reynslu á sviði brunavarna,
hjálparstarfs og almennrar stjórnunar.
Miðað er við að viðkomandi hefji starf sitt
15. apríl nk. Laun eru samkvæmt samningum
Selfosskaupstaðar og Starfsmannafélags
Selfossi.
Umsóknir um starfið, ásamt upplýsingum um
menntun, reynslu og fyrri störf, sendist for-
manni framkvæmdastjórnar, Karli Björns-
syni, bæjarstjóra, Austurvegi 10, 800 Sel-
foss, eigi síðar en 4. febrúar nk.
Framkvæmdastjórn Brunavarna Árnessýslu.
Atvinnutækifæri
Vilt þú gerast ráðgjafi fyrir erlent fyrirtæki
sem sérhæfir sig í litgreiningu og útlitsráð-
gjöf ásamt sölu á snyrtivörum?
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „Tækifæri - 14771“, fyrir 30. jan.
Viðskiptafræðingur
Viðskiptafræðingur með mikla reynslu (12 ár)
í fjármála- og skrifstofustjórn óskar eftir starfi.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir til auglýs-
ingadeildar Mbl., merktar: „Reynsla - 4770“,
fyrir 1. febrúar nk.
Fyrirtæki í Reykjavík
óskar eftir að ráða
í eftirtalin störf:
Starfsmann í flutningadeild. Viðkomandi
þarf að hafa minnst 3ja ára reynslu af alþjóð-
legum skipa- og flugflutningum, gerð flutn-
ings- og tollskýrslna o.fl., ásamt góðri ís-
lensku- og enskukunnáttu.
Kerfisfræðing. Viðkomandi þarf að hafa
minnsta kosti eins árs reynslu í starfi hjá
stóru fyrirtæki, reynslu af skjalavistun,
Ambra tölvum og gerð flutningstollskýrslna.
Ritara. Starfið felst í almennum skrifstofu-
störfum, skjalavörslu, símavörslu o.fl. Starfs-
reynsla og enskukunnátta skilyrði og
frönskukunnátta æskileg.
Sölumann. Þarf að hafa reynslu af alþjóða-
viðskiptum og góða ensku- og íslenskukunn-
áttu.
Umsóknum með launahugmyndum viðkom-
anda skal skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir
8. febrúar nk. merktum: „E - 11390.
Ræstingar
Starfskraftur óskast til að sjá um þrif í heima-
húsi tvisvar í viku ca 4 tíma í senn.
Vinnutími eftir samkomulagi.
Upplýsingar í vinnusíma 679696.
Glaxo
GLAXO tók til starfa hér á landi í júlí 1990
og er dótturfyrirtæki GLAXO HOLDINGS
Ltd. í Englandi.
GLAXO er stærsta lyfjafyrirtæki veraldar
með yfir 45 þúsund starfsmenn í 150 löndum.
Rannsóknar- og þróunarstarfsemj er megin-
viðfangsefni fyrirtækisins og á síðastliðnu
ári varði GLAXO hærri upphæð en nokkuð
annað lyfjafyrirtæki til rannsókna eða 75
milljörðum króna.
Sökum aukinna umsvifa fyrirtækisins auglýs-
ir GLAXO á íslandi hf. nú eftir starfsfólki.
a) Starfsmaður rannsóknarsviðs (Clinical
Research Scientist).
Viðkomandi sér um uppsetningu, fram-
kvæmd og eftirlit með íslenskum sem og fjöl-
þjóða klíniskum rannsóknum í samvinnu við
GLAXO Research & Development Ltd og
íslenskrar heilbrigðisstéttir.
Leitað er eftir starfskrafti með háskólamennt-
un á sviði heilbrigðismála, líffræði, lífefnafræði
eða sambærilegt.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k.
einu Norðurlandamáli.
b) Lyfjakynnir
(Sales representative).
Starfið felst í kynningu á vörum fyrirtækisins
til heilbrigðisstétta og fræðslustarfsemi af
ýmsu tagi.
Leitað er eftir röskum og ákveðnum einstakl-
ingi með menntun á sviði heilbrigðismála
(lyfjafræðingi, hjúkrunarfræðingi eða sam-
bæril.).
Umsóknirsendisttil GLAXO, Pósthólf 10054,
130 Reykjavík, eða skilist á skrifstofuna,
Stangarhyl 5, fyrir 1. febrúar nk. Með allar
umsóknir verður farið sem fyllsta trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
RAÐAUGÍ YSINGAR
TILKYNNINGAR
Sjálfstæðismenn!
Kjósið Katrínu í 6. sæti.
Stuðningsmenn.
Verkamannafélagið Hlíf
Tillögur uppstillinganefndar og trúnaðarráðs
Verkamannafélagsins Hlífar um stjórn og
aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1994
liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og með
þriðjudeginum 25. janúar 1994.
Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlíf-
ar, Reykjavíkurvegi 64, fyrir kl. 16, föstudag-
inn 28. janúar 1994 og er þá framboðsfrest-
ur útrunninn.
Kjörstjóm Verkamannafélagsins Hlífar.
Hluthafafundur
Hluthafafundur verður haldinn í SR-mjöli hf.
þriðjudaginn 1. febrúar 1994 kl. 15.00 á
Hótel KEA, Akureyri.
Fundarefni: Lagabreytingar, kosning nýrrar
stjórnar og önnur mál.
Stjórn SR-mjöls hf.
ll
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
l; í I. A ('. S S T A R I-'
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði
heldur í kvöld þriðjudag 25. janúar kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
v/Strandgötu, kynningarfund með kvenframbjóðendum í prófkjöri
sjálfstæðismanna, sem fram fer um næstu helgi. Gestur fundarins
er Hjördís Guðbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi. Fundarstjóri: Sólveig Ág-
ústsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi. Ostakynning frá Ostahúsinu.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
auglýsingor
I.O.O.F. Rb,1 = 1431258-E.l.
□ EDDA 5994012519 III 2 Frl.
□ FJÖLNIR 5994012519 I H.v.
Frl.
□ HLÍN 5994012519 IV/V 1 Frl.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi í dag kl. 15.00.
Fjallið
mannræktar-
stöð,
Krókhálsi 4,
(Harðviðar-
valshúsið),
S. 91-672722.
Fyrirlestur
Fimmtudaginn 27. janúar nk. kl.
20.30 heldur Terry Evans miðill
fyrirlestur um boðskap Fjallsins.
Kaffihlé og umræður. Aðgangs-
eyrir kr. 700. Miðasala og skrán-
ing daglega frá 10-15.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi íslands
Kvöldnámskeið í jaröarheilun
verður haldið þriðjudagskvöldið
25. janúar kl. 20.30-23.00 í
Garðastræti 8. Með hjálp hins
andlega heims verður reynt að
lagfæra þær skemmdir á jörðinni
sem manneskjan hefur valdið.
Bókanir í símum 618130 og
18130.
Stjórnin.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi íslands
| Helgina 29. og 30.
janúar verður
haldið þyrjenda-
I námskeið um
I grunnundirstöðu
I miðilsskapar og
I heilunar frá kl.
10-16 báða dag-
ana. Leiðbeinend-
ur verða June og
Geoff Huges.
Bókanir í símum
618130 og 18130.
Stjórnin.