Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 32

Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 Anna Guðmunds- dóttir - Fædd 1. ágúst 1903 Dáin 17. janúar 1994 Ég dey og ég veit nær dauðann að ber. Ég dey, þegar komin er stundin. Ég dey, þegar ábati dauðinn er mér. Ég dey, þegar lausnin mér hentust er, og eilífs lífs uppspretta er fundin. (St.Th.) Þannig hóf ég hugrenningar mín- ar, er ég minntist eiginmanns tengdamóður minnar, Einars S. Guðjónssonar, en hann lézt 2. ágúst 1991. Þetta sígilda sálmavers finnst mér eiga vel við nú, sem þá, við andlát hennar. Langri og farsælli ævi er lokið. Allt hefír sinn tíma og ég lít svo á, að tími tengdamóður minnar hafí verið kominn. Hin andlega heilsa var farin og ekki merkjanlegt, að hún nyti lífsins og lífsins gæða eða unnt væri að gleðja hana á nokkum hátt. Okkur, sem næst henni stóð- um, var huggun i, að henni virtist ekki líða illa og um hana var ann- azt af einstakri nærgætni af starfs- fóiki hjúkrunarheimilisins Skjóls. Því er okkur nánustu aðstandendum hennar ekki sorg efst í huga við andlát hennar. Hvíldin er svo sann- arlega líkn, þegar þreyttur og veik- burða iíkami gefst upp og sálin flyt- ur yfír á annað tilverustig. Hún trúði því, að hún ætti eftir að hitta látna ástvini, svo oft hafði faðir hennar vitjað hennar í draumi. Tengdamóð- ir mín skilaði sínu hlutverki með sóma. Anna Guðmundsdóttir var fædd að Stekk á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð. Þar og í nágrenni ólst Minning hún upp ásamt þremur systkinum, Sveinbjörgu, f. 25. nóvember 1901, þá Önnu, f. 1. ágúst 1903, Einari, f. 24. september 1904, og Jóni, f. 19. apríl 1909. Miili bræðranna fæddist drengur, Stefán, sem lézt fljótlega eftir fæðingu. Foreldrar þeirra voru hjónin Vilborg Sigríður Jónsdóttir og Guðmundur Bekk Ein- arsson bæði af austfirskum ættum. Tengdamóðir mín ólst upp við ástríki jafnvel dekur foreldra sinna, það sannar bezt, þegar rifjuð er upp barátta þeirra við veikindi Einars sonar þeirra, en hann veiktist af lömunarveiki á fyrsta aldursári og gat aldrei gengið óstuddur, báðir fætur lömuðust og öll hægri hlið líkamans einnig. Þegar Einar var níu ára árið 1913 tóku Vilborg og Guðmundur þá ákvörðun að freista þess að leita honum lækninga er- lendis til að bæta líkamlegt ástand sonarins, ef þess væri kostur, það þótti þrautreynt á íslandi. Því hélt Guðmundur faðir hans með.dreng- inn til Kaupmannahafnar. Það má segja, að sigur hafí unnizt. Við heimkomuna gat Einar gengið við staf og hækju. Aftur var haldið til Danmerkur þegar Einar var 18 ára og nú til að læra handiðn en enga starfs- eða sjúkraþjálfun var unnt að fá á íslandi í þann tíma. Einar lærði burstagerð, sennilega hefir ekki margt annað boðizt, og svo auðvitað dönsku og önnur bókleg fræði. Einari nýttist burstagerðin ekki, þegar heim til Seyðisfjarðar kom aftur. Þar gekk mannlífíð út á allt annað. Einari bauðst framhaldsdvöl í Danmörku, en það var lengra á milli íslands og Danmerkur þá en nú og Vilborg móðir hans gat ekki hugsað sér að skilja fatlaðan son sinn þar eftir, þannig leit hún á málið. Ég tel, að þó að Einar hafi ekki getað starfað við burstagerðina var betra af stað farið en heima setið. Allur lærdómur hlýtur að vera til góðs á öllum tímum. Einar var handlaginn þrátt fyrir fötlun sína og þótti nærgætinn og var eftirsótt- ur við kennslu barna. Aldrei hafði hann þó atvinnu af því. Það má ef til vill álíta, að hin börnin hafí liðið fyrir erfiði foreldr- anna vegna veikinda Einars en þroskazt hafa þau áreiðanlega þar af. Oft fannst mér, að Anna tengda- móðir mín hafí verið dekurbarn. Sem dæmi þar um minntist hún þess oft, þegar pabbi hennar seildist í þá bita af diskinum hennar, sem hann vissi, að henni féllu ekki í geð. Og þótt ótrúlegt megi virðast var tengdamóðir mín matvönd, nokkuð sem okkar kynslóð fínnst nánast ótrúlegt af konu, sem alin var upp á tveim fyrstu tugum aldar- innar. Og mikil var væntumþykja Önnu á þeim feðgum báðum og móður sinni líka, en Vilborg var látin, þegar ég kom inn í fjölskyld- una, sem tengdadóttir Önnu. Það, að mér verður svo tíðrætt um Einar bróður Önnu stafar af því, að allt, sem gert var til að gleðja Einar var henni mikils virði. Hún mat mikils þau bréf og kveðjur, sem Halldóra dóttir okkar hjóna sendi honum og hafði orð þar um. Anna tengdamóðir mín var ekki alira og hún bar heldur ekki tilfinningar sín- ar á torg. Ég minnist eins atviks, sem stendur mér ríkt í minni. Ég var beðin, að færa þeim hjónum andlátsfrétt lítillar dótturdótturdótt- ur. Einar meimaði strax. Fréttin kom ekki á óvart, svo mjög hafði það fengið á þau gömlu hjónin að fylgjast með baráttu iitlu stúlkunnar við sjúkdóm sinn. Anna aftur á móti virkaði köld og bitur. Ég sagði við hana, að stundum þyrfti maður að gráta til að lina sorgir sínar og bauð henni öxl mína. Hún þáði það og saman grétum við smá stund. Mér ieið strax betur og ég fann að svo var því líka farið með hana. Anna var söngvin og fýllti jafnan hóp söngvara þar sem lagið var tek- ið. Hreggviður sonur hennar segir að hún hafi gjama sungið þegar hún var ein við störf sín. Anna fór snemma að vinna og vinnan var henni lífið sjálft. Ég held, að fyrsta vinnan hafí verið að beita línu og ung reri hún til fiskjar með Einari bróður sínum. Anna reri og þau bættu hvort annað upp. Ung giftist Anna Einari S. Guð- jónssyni, hann var fæddur í Breiðu- vík við Borgarfjörð eystri, en flutt- ist ungur til Mjóafjarðar að föður sínum látnum. Til Seyðisfjarðar flutti hann svo 1918. Anna og Ein- ar kynntust ung og Einar sagði frá því, þegar hann reri með Önnu norð- ur yfir Seyðisfjörð að Dvergasteini til fermingamndirbúnings. Fjöl- skyldur þeirra bjuggu þá á Þórarins- staðaeyrum sunnan fjarðarins, sem gat talist þorp í þá tíð. Anna og Einar eignuðust þrjú börn: Vilborgu, gifta Einari Runólfssyni, Einar, kvæntan Ólöfu Stefánsdóttur, og Jórunni, gifta Friðþjófi Mássyni. Leiðir þeirra hjóna skildu, þegar börnin voru enn ung að áram. Einar kvæntist öðru sinni og bjó á Seyðis- fírði. Þau höfðu áður flutt inn í bæ, sem kallað var. Anna giftist ekki aftur en eignað- ist son, Hreggvið, eiginmann undir- ritaðrar, með Þorgeiri Sigurðssyni frá Borgarfirði eystri. Hún bjó um nokkurt árabil áfram á Seyðisfírði. Á þessum áram starfaði Anna sem matráðskona á sjúkrahúsinu á Seyðisfírði og einnig við hjúkranar- störf. Hún var harðdugleg til allra starfa og til hennar var jafnan leit- að, ef um veikindi eða aðra erfið- leika var að ræða hjá skyldum jafnt sem vandalausum. Það voru því margir, sem áttu henni gott upp að unna. En sjaldnast var ætlast til að hljóta umbun fyrir aðra en þá að aðstoðin væri þegin. Enda er sælla að gefa en þiggja eins og svo marg- ir hafa reynt. Einnig vann Anna fyrir sér á þessum árum með því að fara sem matráðskona á vertíð- ar, m.a. til Keflavíkur. Árið 1949 flutti Anna ásamt manni mínum, Hreggviði, sem þá var 13 ára, til Vestmannaeyja. Börn þeirra Einars höfðu þá öll stofnað eigin heimili og báðar dæturnar voru þar búsettar. í Vestmannaeyj- um vann hún ýmist í fiskvinnslu eða matargerð, en hún var listakokkur. Til Reykjavíkur flutti hún upp úr 1960 og þar stóð heimili hennar upp frá því. Einu fríin, sem hún tók sér Margrét Sigríður Kon ráðsdóttir — Minning Fædd 25. janúar 1891 Dáin 30. nóvember 1993 Kær afasystir mín, .Margrét Sig- ríður Konráðsdóttir, hefði orðið 103 ára í dag 25. janúar, en hún lést hinn 30. nóvember sl. á Droplaugar- stöðum í Reykjavík. Margrét var elsta barn hjónanna Sigríðar Björnsdóttur bónda og húsfrúar á Ytri Brekkum í Akra- hreppi í Skagafirði og Konráðs Am- grímssonar barnakennara og bónda. Sigríður var dóttir Margrétar Sigríð- ar Pálsdóttur og Bjöms Péturssonar hreppstjóra á Hofsstöðum í Viðvík- ursveit. Konráð var sonur Guðríðar Gísladóttur og Arngríms Jónssonar á Kjartansstöðum í Langholti. Kon- ráð ólst upp hjá Ragnheiði og Einari á Reynisstað í Staðarsveit. Systkini Margrétar eru öll látin. Þau voru Ragnheiður, húsfrú á Hellulandi í Hegranesi, gift Ólafi Sigurðssyni; Bjöm, bústjóri á Vífíls- stöðum, kvæntur Signhild Konráðs- son frá Argjö í Færeyjum; Anna, lengst af kennari í Austurbæjarskóla í Reykjavík; Emma, dó fyrir aldur fram; Pála, húsfrú á Ytri Brekkum, gift Vilhjálmi Jónassyni frá Hróarsd- al í Hegranesi. Strax á unga aldri var Margrét sérlega hög við saumaskap og pijón og gerði mikið af því að sauma og pijóna fyrir aðra. Margrét talaði oft um það með miklum söknuði, að hún hefði viljað fá að læra með piitunum sem faðir hennar tók að sér að kenna aukalega á heimilinu. Hana þyrsti í fróðleik, en í þá daga tíðkaðist ekki að stúlkur fengju að læra til bókar umfram skylduna. Margrét fór í Kvennaskólann á Blönduósi og var þar í tvö ár. Einnig var hún bamakennari í sveitinni um nokkurt skeið. Tæplega þrítug veiktist hún af berklum. Hún lá mikið veik, fyrst á Sauðárkróki, síðan eitt ár á Vífíls- staðahæli og fékk góðan bata. Á Vífilsstöðum kynntist hún mörgu fólki og myndaði við það ævarándi vináttutengsl. Eftir leguna á Vífilsstöðum sigldi hún til Kaupmannahafnar og dvaldi þar í fjögur ár. Anna systir hennar var þar með henni lengstan hluta tímans. í Kaupmannahöfn unnu þær fyrir sér á saumaverkstæði. Jafn- framt stundaði Margrét nám í hann- yrðum, málun, útskurði og leður- vinnu. Þegar heim kom fluttust þær syst- ur til Vestmannaeyja og bjuggu þar í sex ár. Margrét kenndi þar hann- yrðir og listiðn en Anna var barna- kennari. Eftir þetta flytjast þær búferlum til Reykjavíkur. Margrét stofnaði hannyrðaverslun á Vesturgötunni og rak verslunina í tæp 40 ár. Á þessu tímabili fór hún margar ferðir til útlanda, oftast til Danmerkur, bæði í verslunar- og skemmtiferðir. Anna systir hennar fór oft með henni. Þær heimsóttu þá gjarnan frændasinn Skúla Guðjónsson prófessor í Árós- um. Þau vora systrabörn. Eftir lát Skúla héldu þær góðu sambandi við fjölskyldu hans. Þær systur Anna og Margrét keyptu sér sína íbúðina hvor á Víði- mel 23. Þær voru mjög samdrýndar. Anna lést í mars 1985 og saknaði Margrét hennar mikið. Margrét hafði alla tíð áhuga á bókmenntun. Hún átti safn góðra bóka, sem hún l_as mikið, allt fram á síðasta æviár. íslendingasögurnar, Eddukvæði og Halldór Laxness las hún reglulega. Hún hafði yndi af ljóðalestri og var ávallt með ljóðabók nálægt sér. Einar Benediktsson var hennar uppáhaldsskáld ög vitnaði hún oft 5 hann. Hún unni fegurð og listum. Hún skemmti sér einnig við lestur tímarita. Var sjálfmenntuð í dönsku og ensku. Las dönskublöðin í tugi ára og fylgdist með frægu fólki og tíðarandanum í íslenskum tímaritum, þá orðin 100 ára. Kynni mín sem barns af þeim systrum eru sterk í minningunni. Þær tóku vel á móti telpunni og buðu ávallt til sætis í betri stofu. Þær spurðu frétta og hlustuðu. Höfðu lif- andi áhuga á að fylgjast með lífi og starfi barnsins. Það var gaman að eiga svona líflegar og skemmtilegar frænkur. Hin síðari ár var það oftar hún sem talaði og ég hlustaði. Sem áður spurði hún frétta. Svo fór hún að segja frá. Gamlir tímar og samferða- menn vora henni ofarlega í huga. Sárt fannst henni að hafa þurft að sjá á eftir svo mörgum ættingjum og vinum. Hún talaði líka um skáld- in og verk þeirra og kunni margar vísur utanbókar. Það var unun að hlusta á hana. Mörg minningarbrot úr ævi hennar fékk ég að heyra. Eitt sinn vann hún í síld á Siglufírði og kynntist þá ungu fólki eins og gengur. Stúdentar að sunnan vora þar í síldarvinnu og komu þeir oft í heimsókn til hennar, því að oft var hún með kaffí á könnunni. Eitt sinn þegar þeir drukku hjá henni kaffi, sem hafði staðið lengur á hitanum en skyldi, segir annar þeirra; Görótt- ur er drykkurinn ái. Margrét svarar að bragði: Lát grön sía sonur. Stúd- entar að sunnan urðu hvumsa við og undraðust kunnáttu síldarstúlk- unnar á Fomaldarsögunum, en Mar- grét taldi að það þyrfti ekki mikla kunnáttu til að lesa það sem skemmtilegt væri. Mest hissa var hún á því, að þeir væra hissa. Og var allt að því móðguð, að þeir skyldu halda að síldarstúlka gæti ekki lesið þessi fræði eins og hver annar. Annar þeirra bar við að yrkja ljóð og las fyrir Margréti og spurði hana hvemig henni þætti. Hún svaraði að sér fyndist álíka um það og Jónasi Hallgrímssyni um veðrið og fór með vísuna. Veðrið er hvorki vont né gott, varla kalt, og ekki heitt það er hvorki þurrt né vott, það er svo sem ekki neitt. Hann brást reiður við og sagði vísuna ekki vera eftir Jónas heldur annan höfund og sagðist veðja við hana koníaksflösku. Höfum þær þá tvær svaraði Margrét. En aldrei fékk hún flöskurnar, þó að hún hefði rétt fyrir sér. Seinna spurðu þeir hvernig hún þekkti ljóð Jónasar svona vel. Hún hélt nú að hún þekkti Jónas. Hún sem svæfí með hann undir kodd- anum. Mörgu öðru sagði hún frá og nær allt var það með spauglegu ívafi. Margrét var í mörg ár í Guðspeki- félaginu og leiddi oft hugann að því hvað tæki við eftir þetta líf. Nokkru fyrir andlát sitt sagði hún við góða vinkonu sína Helgu Rafnsdóttur sem heimsótti hana á Droplaugarstaði, að hún færi jafn fáfróð og hún var þegar hún kom. Var hún þá að tala um almættið og eilífðargátuna. Það er dýrmætt að hafa átt hana fyrir afasystur. Margrét var stórbrot- inn persónuleiki, heiðarleg og hrein- skiptin. Hún var stolt og stundum þver og stíf. Hjálpsöm og afar skemmtileg. Hún naut þess og sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og hlæja. Hún var hávaxin og glæsileg. Falleg kona. Ég er þakklát fyrir sam- verustundir okkar og að börnin mín skyldu fá að kynnast henni. Það auðgar lífið fyrir börn að eiga sam- neyti við aldrað fólk. Síðustu árin voru Margréti oft á tíðum erfið vegna líkamlegrar vanlíð- unar og hún átti bágt með að sætta sig við að verða æ meira ósjálf- bjarga. Sjálfsagi hennar og dugnaður var aðdáunarverður. Hún gætti vel að mataræði sínu, borðaði reglulega og gerði leikfimiæfingar daglega, helst á sama tíma. Hún var svo lán- söm að halda heilli hugsun og minni fram á það síðsta. A hún trúlega einhvern þátt í því sjálf með heilsu- samlegu lífemi og þjálfun hugans. í rúm tíu ár naut Margrét þjón- ustu frá Félagsmálastofnun Reykja- víkurborgar. Aðstoðarkona var hjá henni hálfan daginn. Síðustu sjö árin sinnti Guðný Maríusdóttir því starfi og gerði það vel. Einnig fékk hún þjónustu frá Heilsugæslustöð Sel- tjarnamess einu sinni í viku, og var hún mjög ánægð með Stefaníu sjúkr- aliða sem sýndi henni sérstaka hlýju og virðingu. Hún bjó í íbúð sinni á Víðimelnum þar til í júli' sl. er hún flutti á Droplaugarstaði. Foreldrar mínir Sigurður Björns- son og Helga Magnúsdóttir reyndust þeim systrum alla tíð mjög vel og mynduðu við þær góða vináttu. Þau ferðuðust saman og fóru m.a. hring- inn í kringum landið fyrir tæpum tuttugu árum. í þeirri ferð gekk Margrét eldhress upp að Svartafossi til að líta náttúrufegurðina augum, þá 83 ára gömul. Þau litu til með þeim og hjálpuðu þeim er þær gátu ekki lengur séð um hin ýmsu mál sjálfar. Faðir minn var bróðursonur Margrétar. Hann lést 6. apríl sl. Eftir það hélt móðir mín áfram að sinna Margréti og hlúa að henni. Hún á virðingu mína og þakklæti fyrir þá umönnun og velvild er hún sýndi Margréti. Ég þakka elskulegri frænku minni góð kynni og samverustundir. Ég bið góðan guð að taka hana í faðm sinn um eilífð. Signhildur Sigurðardóttir. Vegir skiptast. Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför eih, með sama brag. Veikt og Sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Mér er bæði ljúft og skylt að minn- ast afasystur minnar, Margrétar Sig- ríðar Konráðsdóttur frá Ytri-Brekk- um í Skagafirði. Hún fæddist á Miklabæ í Óslandshlíð í Skagafírði 25. janúar 1891 og lést á Droplaug- arstöðum hinn 30. nóvember sl, södd lífdaga, tæplega 103 ára gömul. Jarðsett var í kyrrþey að ósk hennar 15. desember. Magga frænka, eins og hún var jafnan kölluð, var afskaplega greind og vel gefin kona. Tilfinningar sínar bar hún ekki á torg og ekki var hún héldur allra. En þeirra sem hún var, var hún afar elskuleg og hjartahlý. Hún minnti um margt á nútímakon- una, því hún var ákveðin í að kom- ast til mennta og fannst mikið órétt- læti fólgið í mismunun kynjanna til mennta hér áður fyrr. Með ákveðni og þijósku náði hún þeim markmið- um sem hún setti sér, fór utan til Danmerkur til náms í hannyrðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.