Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
37
SUNNLENDIN GUR ÁRSINS
Fæ mikinn stuðning og
hvatning’u frá fólki
Svanur Ingvarsson trésmiður á
Selfossi var útnefndur Sunn-
lendingur ársins 1993 af lesendum
Dagskrárinnar á Selfossi. „Mér
þykir afar vænt um þessa útnefn-
ingu og lít á hana sem stuðning
og hvatningu," sagði Svanur, sem
er fatlaður. Hann er kunnur fyrir
þátttöku sína í íþróttum og ákveðni
í að láta fötlunina hefta sig sem
minnst. Frarnundan hjá honum er
þátttaka í Ólympíuleikum fatlaðra
í Lillehammer í Noregi 10.-20.
mars þar sem hann keppir í sleða-
stjaki.
Mikil þátttaka var í kjörinu og
bárust kjörseðlar víða að, en þetta
er í fyrsta sinn sem útnefningin fer
fram. Voru úrslitin kynnt í hófi á
Hótel Selfossi 18. janúar þar sem
Svani var afhent skrautritað viður-
kenningarskjal. Tilkynnti Örn Grét-
arsson ritstjóri Dagskrárinnar að
ákveðið væri að þetta kjör yrði ár-
legur viðburður.
Þátttakendur áttu að rökstyðja
val sitt á kjörseðlinum í nokkrum
orðum og sem dæmi má nefna setn-
ingar eins og þessar: „Hefur sýnt
kraft og ákveðni þrátt fyrir fötlun.
— Er góð fyrirmynd öllum, fötluð-
um og ófötluðum. — Er sérlega
bjartsýnn og kjarkaður maður,
syngur mikið og er vel gerður."
Smíðar eigin hjálpartæki
Svanur hefur nýtt sér kunnáttu
sína í smíðum með því að hanna
og smíða bekk til að standa í. Einn-
ig smíðaði hann handknúið hjól sem
hann notar i langferðum um Sel-
fossbæ. Þannig hefur hann bjargað
sér sjálfur í orðsins fyllstu merk-
ingu. „Ég nota stólinn sem hvíld
frá hjólastólnum, við lestur og að
horfa á sjónvarpið. Hann nýtist vel
sem hvíld og sem þjálfun. Það örv-
ar blóðrásins að geta staðið upp og
um leið hvílt sitjandann og bakið.
Svo er það líka gott fyrir andlegt
jafnvægi að geta staðið uppréttur.“
Hjólið sagðist hann hafa séð er-
lendis. Hann hefði síðan útfært
hugmyndina með aðstoð vinar síns
sem er vélsmiður.
Hvatningin er dýrmæt
Svanur er ættaður úr Flóanum
og frá Vestmannaeyjum. Hann er
sonur Helgu Guðmundsdóttur frá
Hurðarbaki í Flóa og Ingvars Gunn-
laugssonar frá Gjábakka í Vest-
mannaeyjum. Hann er kvæntur
Maríu Óladóttur og eiga þau einn
son, Ara Steinar, fjögurra ára.
„Ætli maður sé ekki bara góð
blanda, ættaður úr kjördæminu,“
sagði Svanur. „Það hefur reynst
mér vel að koma úr þessum bæ og
ég hef fengið mikinn stuðning héð-
an og af öllu Suðurlandi. Þetta kem-
ur fram í hvatningu frá fólki sem
er mér afar dýrmæt,“ sagði Svanur
Ingvarsson.
HJÁ ANDRÉSI
Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Svanur Ingvarsson ásamt eiginkonunni Maríu Oladóttur og syninum
Ara Steinari. Fyrir aftan þau rétt glittir í hjólið sem Svanur smíðaði.
Haddaway var ekki lengi að
kaupa sér glæsilegan sportbíl
þegar hann fór að hala inn pen-
inga með plötusölu.
TÓNLIST
Verðlaun-
ar sig með
hring
Popptónlistarmaðurinn 'Nestor
Haddaway sem komst inn á
vinsældalista á Islandi síðastliðið
sumar með laginu „What Is Love“
segist þakka Norðurlöndum fyrir
hversu tónlist hans sé orðin vinsæl,
því þar hafi hann í raun verið upp-
götvaður. í Danmörku hafa lögin
„What Is Love“ og „Live“ verið
lengi á vinsældalistum, en nú eru
öll lögin á plötunni meira og minna
að slá í gegn, enda þykja þau meló-
dísk og auðveld að læra. Þá eru
lögin góð sem danstónlist.
Haddaway, sem er 28 ára, á
ættir að rekja til Karíbaeyja, en
hefur mest alla ævi sína búið í
Evrópu. Nú býr hann til dæmis í
Þýskalandi.
Eitt er mjög sérstakt við
Haddaway en það er að í hvert
skipti sem eitthvert laganna hefur
komist inn á vinsældalista kaupir
hann sér hring. Sagan hermir að
þeir séu orðnir nokkuð margir.
ÁSTARSAMBAND
Vönduð jakkaföt, nýkomin
verð kr. 14.900
Giftir Alberto Tomba
sig innan tíðar?
Frá Bergljótu Leifsdóttur, fréttaritara Mbl. í Flórens.
Martina Colombari ásamt unnusta sínum, Al-
berto Tomba.
Alberto Tomba,
átrúnaðargoð
skíðaunnenda á ítal-
íu, er trúlofaður
Martinu Colombari,
sem kosin var
ungfrú Ítalía árið
1991. Alberto var
einn af gestum feg-
urðarsamkeppninn-
ar og kynntust þau
krýningarkvöldið.
Alberto lýsti því
yfir fyrir stuttu að
hann hygðist giftast
Marinu á þessu ári,
en þegar blaðamenn
spurðu Martinu
hvort þetta væri rétt kom hún af
fjöllum. Hún er aðeins 18 ára og
lýkur stúdentsprófí á þessu ári.
Alberto er hins vegar 27 ára.
Martina vinnur fyrir sér sem sýn-
ingarstúlka fyrir Armani,
Versace,Nazareno Gabrielli og
Blumarine og segist vel geta hugs-
að sér að gera sýningarstörf að
ævistarfi sínu. Hún er 1,76 m á hæð
og mál hennar eru 80-60-86. Hún
er fædd og uppalin á Riccione, sem
var einn af sumarleyfisstöðum ís-
lendinga og henni líkar vel að búa
þar. Hún gæti hins vegar þurft að
flytja til Mílanó vegna vinnu sinnar.
Faðir hennar vill að hún fari í
íþróttakennaraskóla en hún vill
frekar læra tungumál með því að
ferðast til New York, Parísar og
Tókíó. Alberto er ekki sammála
þessu og vill að liún verði húsmóð-
ir. Nú er bara að bíða eftir fréttum
af þeim skötuhjúum.
Janúartilboð
Jakkaföt áður kr. 9.B0Ó,- nú kr. 6.900,-
Stakir jakkar áður kr. 4>£KJCÍ,- & 5^00",-
nú kr. 3.900,-
10 TILBOÐSDAGAR
25. janúar til 3. febrúar
veitumvið 15°/o afslátt
af öllum vörum + sértilboð
Þegar þú gefur gjöf
Laugavegi 52, sími 91 -624244
UTSALA 10 - 60% AFSLATTUR
Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur,
íþróttaskór, íþróttagallar o.fl.
»hummel5
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 ■ Sími 813555 og 813655