Morgunblaðið - 25.01.1994, Side 43

Morgunblaðið - 25.01.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 43 Mr. Wonderful er hressilega skrifuð og vel mönnuð... Uppfull af skemmtilegum rómantískum uppátækjum... Indælis kvöldskemmtun fyr- ir þá sem eru í rómantísku stuði og líka fyrir þá sem hefðu áhuga á að komast í slíkt hugarástand. (Guðlaugur Bergmundsson D.V.) Fyrir þá sem skemmta sér að vönduðum og vel leiknum rómantískum gamanmynd- um er „Hinn eini sanni" myndin til að sjá. (Arnaldur Indriðason Mbl.) ★ ★ ★ A.I.Mbl. ★ ★ ★ ★ Fllm Review ★ ★ ★ ★ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 21. - .24. janúar 1994 Á föstudagskvöld var til- kynnt um þjófnað á núm- erslausum vélsleða frá verkstæði í Höfðahverfi. Nokkru síðar var tilkynnt um drengi á tveimur núm- erslausum vélsleðum er ek- ið höfðu frá bensínaf- greiðslu í austurborginni án þess að greiða fyrir elds- neytið. Lögreglumenn komu fljótlega auga á sleð- ana þar sem þeim var ekið áleiðis í Mosfellssveit. Sleð- unum var veitt eftirför upp í Kollafjörð. Við malarnám- ið í firðinum var öðmm sleðanum ekið utan í kyrra- stæða lögreglubifreið. Öku- maður sleðans og farþegi duttu af honum. Ökumað- urinn meiddist lítilsháttar, en talið var að farþeginn hefði slitið krossbönd við hné. Báðir vom þeir fluttir með sjúkrabifreið á slysa- deild. Hinum vélsleðanum var snúið við áleiðis í bæ- inn. Akstur hans var stöðv- aður af lögreglunni á Vest- urlandsvegi við Skálatún. Sleðinn, sem lenti í árekstri við lögreglubifreiðina, reyndist sá er tilkynntur hafði verið stolinn fyrr um kvöldið. Skömmu eftir hádegi á sunnudag var tilkynnt um menn vera að stela bifreið við veitingahús í miðborg- inni. För þeirra endaði á ljósastaur þar skammt frá. Þrír menn voru handteknir og færðir á lögreglustöð- ina. Talið er að Bakkus hafi verið í för með mönn- unum. Eitthvert ónæði hlaust af akstri vélsleðamanna um helgina, sérstaklega í aust- urborginni. Ekið er um göngustíga, gagnstéttar, útivistarsvæði, garða og annað, sem fyrir er. Tveir þeirra ökumanna, sem.lög- reglan þurfti að hafa af- skipti af, reyndust réttinda- lausir. Samkvæmt óná- kvæmum ákvæðum um- ferðarlaganna mega þeir, sem þurfa yfir veg, einung- is aka vélsleðum sínum eft- ir vegi skemmstu leið sem hentugt er. Þar má ekki aka sleðunum hraðar en 40 km/klst. Að öðru leyti má ekki aka vélsleða á vegi, sem ekki er einkavegur. Þar segir sig því sjálft að ekki má aka slíkum tækjum á öðrum þeim leiðum, s.s. á umferðareyjum og á gangstéttum, sem öðrum vélknúnum ökutækjum eru bannaðar. í lögreglusam- þykkt Mosfellsbæjar er akstur vélsleða bannaður um götur bæjarins. í lög- reglusamþykkt Seltjarnar- ness er notkun vélsleða á götum bæjarins háð leyfi lögreglu. í lögreglusam- þykkt Reykjavíkur er ekki minnst á vélsleða eða tor- færutæki, einungis tor- færuhjól. Hins vegar liggur fyrir samþykkt frá borgar- stjórn, sem kveður á um bann við akstri vélsleða í Elliðaárdalnum og er svæð- ið við hesthúsin í Víðidal þar ekki undanskilið. Þá hefur verið lagt bann við akstri vélsleða á fólkvöng- um, s.s. á skíðasvæðunum í Bláfjöllum. Lögreglan hef- ur nokkrum sinnum reynt að fá reglur um akstur vél- sleða samræmdar á höfuð- borgarsvæðinu, en lítið hef- ur unnist. Málið hefur verið í höndum SSH um nokk- urra missera skeið. Lög- reglan vill hvetja ökumenn vélsleða til þess að fara að reglum og gæta þess að valda ekki öðrum óþarfa ónæði eða hættu. Lögreglan þufti níu sinn- um að hafa afskipti af sendibílstjórum, sem reynd- ust vera að flytja fólk gegn gjaldi. Slíkt er með öllu óheimilt, því sá sem vill stunda leiguakstur með fólk gegn gjaldi á höfuð- borgarsvæðinu þarf að hafa atvinnuleyfi útgefið af um- sjónanefnd fólksbifreiða, hafa afgreiðslu á viður- kenndri fólksbifreiðastöð, nota í leiguakstrinum eigin bifreið, sem skráð er fólks- bifreið samkvæmt reglu- gerð um gerð og búnað ökutækja, hafa TAXA- merki á þaki bifreiðarinnar og löggiltan gjaldmæli í bifreiðinni. Fylgst verður með því á næstunni hvort atvinnubifreiðar séu notað- ar til þess sem þeim er ætlað. Að öðru ieyti er dagbókin með venjubundnum hætti; 39 skráð ölvunartilvik, 2 umferðarslys, 38 árekstrar, 6 ökumenn grunaðir um ölvunarakstur (þar af 2 í umferðaróhöppum), 7 inn- brot, 4 þjófnaðir, 4 líkams- meiðingar, 1 nauðgun, 11 heimilisófriðir, 17 vegna hávaða og ónæðis, 45 um- ferðarlagabrot o.s.frv. Fátt fólk var í miðborg- inni að kvöldi og næturlagi eða þangað til hleypt var út af vínveitingastöðunum. Þrátt fyrir leit fundust þar engir unglingar 'undir 16 ára aldri. Þá var ekki held- ur að finna í úthverfunum. Svo virðist sem foreldrar og börn þeirra hafi brugðist vel við nauðsyn þess að halda reglur í gildi um úti- vist barna og unglinga. Vonandi er að sú samstaða megi halda þegar fram líða tímar. SÍMI: 19000 KRYDDLEGIIM HJÖRTU Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA frá upphafi. „ Drífið ykkur. Þetta er hnossgæti, sæl- gæti, fegurð, ást, losti, list, matarlyst, þolgæði og snilld...“ „...Gerið það nú fyrir mig að sjá þessa mynd og látið ykkur líða vel...“ „...Fyrsta flokks, verk, þetta er lúxusklass- inn...“ „...Ef það erlíf íbíó, þá er það íhinum slá- andi Kryddlegnu hjört- um í Regnboganum." ★ ★ . ★ hallar í fjórar, OlafurTorfa- son, Rás 2. ★ ★ ★ ★ H.H. Pressan. ★ ★ ★ J.P. Kemp Eintak ★ ★ ★ Hilmar Karisson, D.V. Bragðmikil „latínó" ástarsaga í orðsins fyllstu merkingu, krydduð með kímni, hita, svita og tárum. Aðalhlutverk: Marco Leonardi (Cinema Paradiso) og Lumi Cavazos. Leikstjóri: Alfonso Arau. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ‘ MAÐUR ÁN ANDLITS Stepping Razor ★ ★ ★ A.l. MBL. Aðalhlutverk: Mel Gib- son og Nick Stahl. Leikstjóri: Mel Gibson. Sýnd kl. 4.50,6.50,9 og 11.10 TIL VESTURS Into the West ★ ★ ★ G.E. DV. Aðalhlutverk: Gabriel Byrne, Ellen Barkin. Sýnd kl. 5 og 7. Miðav. kr. 350 HVTrATJALÐffi Stórbrotin mynd um reggí- meistarann Peter Tosh. Sýnd kl. 9 og 11. Miðav. kr. 350. PÍANÓ Sigurvegari Cannes-hátíðar- innar 1993 „Píanó, fimm stjörnur af fjórum mögulegum.11 ★ ★★★★ G.Ó. Pressan Aðalhlutverk: Holly Hunter, Sam Nelll og Harvey Keitel. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. „Gur -‘ igsson vág in i barndomslandet ár rakare án de flestas." Elisabet Sörensen, Svenska Dagbladet. „Pojkdrömmar ár en oerhört chármerande och kánslig film som jag tycker ár váldigt bra.“ Nils Peter Sundgren, Gomorgon TV ★ ★ ★ ★ íslenskt - já takk! Sýnd kl. 5,7,9 og 11. „Ég hvet alla sem vilja sjá eitthvað nýtt að drifa sig i bíó og sjá Hin helgu vé. Þetta er yndisleg Irtil saga sem ég hefði alls ekki viljað missa af!“ Bíógestur. „Hrrfandi, spennandi, eró- tisk.“ Alþýðublaðið. „...hans besta mynd til þessa ef ekki besta ís- lenska kvikmynd sem gerð hefur verið seinni árin.“ Morgunblaðið. ★ ★★y2„MÖST“ Pressan Keppni hafin hjá hestamönnum Grímuglens í Hafnarfirði Hestar Valdimar Kristinsson Sörlamenn í Hafnar- firði byrjuðu sitt keppnistímabil á laugar- dagskvöldið sem leið með léttri töltkeppni þar sem knapar klæddust grímu- búningum. Keppnin fór fram í hinni glæsilegu reiðskemmu Sörla, sem er staðsett á mótssvæði þeirra. Var hér um að ræða léttan leik þar sem glens og gaman sat í fyr- irrúmi enda hestarnir vart komnir í gott keppn- isform enn sem koniið er. í fullorðinsflokki sigraði Pjetur N. Pjetursson á Safír frá Ríp, í öðru sæti Elsa Magnúsdóttir á Kol- baki frá Húsey, Þorsteinn Sófusson þriðji, í fjórða sæti Sævar Leifsson og fimmti Sigrún Magnús- dóttir. Bestu tilþrif í full- orðinsflokki sýndi Sigurð- ur Ævarsson og verðlaun fyrir besta búning hlaut Sindri Sigurðsson klæddur sem hirðfífl. í flokki ungl- inga og barna sigraði Hrafnhildur Guðrúnar- dóttir á Roða, Ragnar Ágústsson varð annar, Magnea Rós Axelsdóttir á Vafa frá Mosfellsbæ varð þriðja, Bryndís K. Sigurð- ardóttir fjórða og Ríta Björk Þorsteinsdóttir í fimmta sæti. Verðlaun fyr- ir besta búning í barna- og unglingaflokki hlaut Sigríður Pjetursdóttir sem var klædd sem Trópí fugl og hesturinn Skagfjörð frá Þverá allur skreyttur með Trópífernum. Bestu tilþrif í unglingaflokki þótti Hin- rik Þór Sigurðsson sýna. Dómarar voru hjónin Ragnar Hinriksson og Hildur Claessen auk Guð- rúnar Eysteinsdóttur, en þulur Sigurður Sigmunds- son sem jafnframt stjórn- aði keppninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.