Morgunblaðið - 25.01.1994, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994
47
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokks á kj ördæmaþingi
Atvinnu- og fjölskyldu-
mál eru mál málanna
KJÖRDÆMAÞING Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík var haldið
á Hótel Sögu á laugardag. Björn
Bjarnason alþingismaður flutti
erindi um hvort rétt væri að
Reykjavik yrði eitt kjördæmi og
að loknum umræðum um það
mál fluttu formenn nokkurra
sjálfstæðisfélaga erindi um hvað
þeir teldu efst á baugi í iands-
og borgarmálum. Frambjóðend-
ur í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík, sem fram fer um
næstu helgi, kynntu sig og
stefnumál sin einnig með stuttri
framsögu. Voru þeir flestir sam-
mála um að þeir málaflokkar,
sem mesta áherslu bæri að leggja
á næstu misserin, væru atvinnu-
mál og fjölskyldumál.
Ólafur F. Magnússon, læknir,
lagði í ræðu sinni m.a. áherslu á
nauðsyn þess, að það yrði gert að
valkosti fyrir íbúa Reykjavíkur að
ganga og hjóla í stað þess að nota
bifreið og að aðgengi fatlaðra að
mannvirkjum í borginni yrði bætt.
Páll Gíslason, læknir, sagði að
það sama og gerðist árið 1978 er
vinstriflokkamir náðu meirihluta í
Reykjavík mætti ekki endurtaka
sig. Samsuðan þá hefði reynst
blekking og það sama myndi einnig
gerast nú. Vinstrimeirihluti yrði
Reykvíkingum dýrkeypt reynsla.
Hann sagði nauðsynlegt að leggja
mikla áherslu á atvinnumál. Það
starf væri hafið með Aflvaka en
meira yrði að koma til.
Sigríður Sigurðardóttír, fóstra,
sagði að hafa bæri í huga varðandi
dagvistunarmál að endurmat á
kerfinu varðandi t.d. niðurgreiðslur,
forgangsröð foreldra og fleira væri
þegar hafið. Það yrði að breyta
skiljrrðum fyrir innritun í leikskóla
þannig að þau yrðu óháð hjúskapar-
stöðu foreldra. Þá yrði að bæta
aðstöðu heilsdagsskólans.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmað-
ur, sagði að á Ig'örtímabilinu hefði
hann fengið dagsskipun frá boigar-
sljómarflokknum um að hagræða
í rekstri almenningssamgangna og
hefði tekist að bæta afkomu SVR
um 200 milljónir króna. Ennfremur
hefði það komið í hans hlut að fram-
fylgja niðurstöðu fjölmennrar borg-
armálaráðstefnu Sjálfstæðisflokks-
ins um að breyta Strætisvögnum
Reykjavíkur í hlutafélag. Hann
sagðist sannfærður um að sú breyt-
ing væri rétt og að hún myndi skila
sér. Það væri líka býsna undarlegt
ef hann væri ekki sannfærður um
gildi sjálfstæðisstefnunnar. Hann
sagði að á næsta kjörtímabili teldi
hann forgangsverkefni að öllum
bömum yrði tryggt leikskólapláss.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði
að það sem mestu skipti væri sam-
staða og góð málefnastaða boigar-
stjómarmeirihlutans. Menn hefðu
reynt eftir megni að vinna vel sam-
an og þó að þeir hefðu ekki alltaf
verið sammála hefðu þeir staðið
þétt og vel saman. Hann sagði
Markús Öm Antonsson hafa staðið
sig frábærlega vel við erfiðar að-
stæður í embætti borgarstjóra.
Fjárhagsstöðu borgarinnar sagði
hann sterka og mikilvægt að svo
yrði áfram. Því mættí ekki lofa
gulli og grænum skógum.
Þorbergur Aðalsteinsson, iands-
liðsþjálfari, sagði að stundum væri
sagt að þeir sem næðu árangri í
íþróttum væru vel til stjómunar-
starfa fallnir. Þeir væm vanir að
beijast til að ná settu markmiði.
Hann sagði gmndvöll þess að borg-
in gæti mætt sívaxandi kröfum um
aukna þjónustu vera að auka ráð-
stöfunartekjur hennar með spamaði
og ráðdeild. Þá yrði að treysta at-
vinnulífið í borginni.
Fulltrúar á kjördæmisþingi sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Sterk málefnastaða
Þórhallur Jósepsson, aðstoðar-
maður samgönguráðherra, sagði
tvo málefnaflokka verða efst á
baugi á næstunni. Annars vegar
atvinnumál til að fólk gæti lifað af
og hins vegar málefni fjölskyldunn-
ar. Um þetta myndu kosningamar
snúast og væri málefhastaða Sjálf-
stæðisflokksins á þessu sviði góð.
Þá væri einnig mikilvægt að Sjálf-
stæðisflokkurinn byði fram aðlað-
andi lista í kosningunum.
Amal Rún Qase, háskólanemi,
sagði mikilvægasta málið vera að
Markús Öm Antonsson fengi glæsi-
lega kosningu. Hann væri vandaður
og heiðarlegur maður, sem Reyk-
víkingar mættu ekki missa sem
borgarstjóra. Amal sagðist hafa
búið á mörgum stöðum í heiminum
og séð margt ljótt um ævina. Hvergi
hefði henni liðið jafii vel og í Reykja-
vík.
Ámi Sigfússon, framkvæmda-
stjóri, sagðist á núverandi kjörtíma-
bili hafa einbeitt sér að uppbygg-
ingu í fræðslumálum, heilsdags-
skóla, atvinnumálum og málefnum
Borgarspítalans. Hefði hann sett
fram hugmyndir sem ætlað væri
að byggja upp sterka framtíðar-
möguleika og reyna um leið að forða
sem flestum frá atvinnuleysi. Hann
sagðist hafa hug á að vinna áfram
að eflingu þessara málaflokka og
teldi sig hafa öðlast dýrmæta
reynslu í því að vinna fyrir Reykvík-
inga.
Axel Eiríksson, úrsmíðameistari,
sagði að þau mál sem honum væm
sérstaklega hugleikin væm verndun
þeirra opnu svæða, sem enn væri
að finna í borginni og heilsdagsskól-
inn. Hann væri eitt af því jákvæð-
asta sem gerst hefði í langan tíma.
Heilsdagsskólinn væri enn að þró-
ast og markmiðin með honum
myndu ekki nást fyrr en allir skólar
væm orðnir einsetnir. Einsetinn
skóli ættí því að vera eitt af aðal-
málum sjálfstæðismanna á næsta
kjörtímabili.
Aukin ábyrgð einstaklinga
Björgólfur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, sagðist fagna því að
vera kominn aftur til starfa á vett-
vangi Sjálfstæðisflokksins eftir
langa fjarvera. En af hveiju væri
hann kominn aftur? Hann sagðist
bjóða sig fram því hann vildi taka
þátt í því að skapa nýtt umhverfi.
Islendingar væm nú komnir í harð-
an heim [með EES] og hvemig tíl
tækist með dagvistarmál, gang-
stéttir og annað færi eftir því hvem-
ig við stæðum okkur. Hann sagðist
vera á móti sameiningu sveitarfé-
laga og að í staðinn yrði að auka
ábyrgð einstaklinganna. Einnig
væri hann á móti öfgum og ein-
strengingshætti. Einkavæðingar-
vesenið væri gengið of langt. Það
ætti ekki að einkavæða nema sam-
keppni væri fyrir hendi. Ef hún
væri það ekki ætti að leggja áherslu
á að skipa rétta menn í ráð og
nefndir.
Anna K. Jónsdóttir, lyfjafræðing-
ur, sagði ljóst að smáflokkamir
hefðu sterk spil á hendi en þeir
hefðu gert þau mistök að leggja
þau á borðið nú þegar. Hún sagði
að þeir sem hefðu verið í boigar-
stjóm með Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur vissu að hún væri sterk-
ur málsvari síns flokks en einnig
að hægt væri að svipta af henni
hulunni. Hún gæti sýnt á sér aðrar
hliðar en fólk sæi í dag.
Einar G. Guðjónsson, veitinga-
maður, sagði að Reykvíkingar ættu
að leggja aukna áherslu á að gæta
sinna hagsmuna. í ljósi vaxandi
atvinnuleysis hlyti að vakna sú
spuming hvort atvinna í Reykjavík
ættí ekki fyrst og fremst að vera
fyrir Reykvíkinga. Menn hlytu að
gera þá kröfu að fjármununum
væri haldið innan borgarinnar.
Guðrún Zoega, verkfræðingur,
sagði mikilvægt að sveitarfélög
reyndu ekki að leysa atvinnuleysis-
vandann með eigin atvinnurekstri
I samkeppni við einkaaðila. Slíkt
væri skammgóður vermir, sem
mörg sveitarfélög hefðu farið illa
út úr. Hún sagði mikla uppbygg-
ingu hafa átt sér stað undanfarið
og væri Reykjavík nú með fegurstu
borgum. Hún sagði mikilvægt að
sjálfstæðismenn féllu ekki í gryíju
yfirboða og færu að lofa gulli og
grænum skógum.
Gunnar Jóhann Birgisson, lög-
maður, sagði festu og stöðugleika
vera þá eiginleika, sem sjálfstæðis-
menn ættu að leggja mesta áherslu
á. Það ætti að slá á þann málflutn-
ing að borgarstjómarflokkurinn
væri ósamstílltur. Hann las einnig
upp kafla úr ævisögu Hannesar
Hafsteins þar sem Reykjavík í byij-
un aldarinnar var lýst á miður fagr-
an hátt. Hann sagði þetta minna á
hve miklar breytingar hefðu orðið
í borginni á einni mannsævi en einn-
ig að alltaf væri ástæða til að minna
á að gömlu góðu gildin væru enn
í gildi. Fjölskyldan, einstaklingurinn
og virðingin fyrir eigum annarra.
Óhræddir við atvinnurekstur
Haraldur Blöndal, lögmaður,
Morgunblaðið/Þorkell
sagði að Reykjavíkurborg hefði ver-
ið óhrædd við að fara út í atvinnu-
rekstur og nefiidi sem dæmi Sogns-
virkjun og bæjarútgerðina. Sjálf-
stæðismenn hefðu aldrei verið
hiæddir við að beita sér fyrir opin-
bemm rekstri þar sem það ættí við
en jafnframt að breyta honum þeg-
ar þurfa þætti, líkt og hið vel heppn-
aða dæmi af Granda sýndi. Hann
sagði Reykjavík hafa byggst upp
af fólki sem hefði flúið vinstri-
byggðimar úti á landi. Einu árin
sem hefði fækkað í borginni hefði
verið þau íjögur ár sem vinstrimenn
vom við völd.
Helga Jóhannsdóttir, húsmóðir,
sagði að nú þegar krepptí að íþjóð-
arbúskapnum yrði að leggja aukna
áherslu á atvinnumál. Nú væri líka
ár fjölskyldunnar og því yrði Sjálf-
stæðisflokkurinn að leggja áherslu
á að gera veg hennar sem mestan.
Hilmar Guðlaugsson, múrari,
sagði komandi kosningar vera ein-
hveijar þær mikilvægustu til þessa.
Hafa bæri þrennt í huga. Að hlutur
kvenna jrrði veglegur á framboðs-
lista, að listínn væri þannig að hann
endurspeglaði allar stéttir og að
hann væri skipaður jafnt reynslum-
iklum mönnum sem fulltrúum end-
umýjunar.
Inga Jóna Þórðardóttir, rekstrar-
hagfiæðingur, sagði að það eina
sem sameinaði vinstrimenn væri
heift út í sjálfstæðismenn. Staða
Sjálfstæðisflokksins væri sterk og
i Reykjavík hefðu þeir sýnt fram á
hvernig haldið væri á málum þar
OLTINN
3. leikvika, 23. Jan. 1994
Nr. Lákur:
Röóiiu
1. Cremonese - Inler - - 2
2. Foggia - Lecce 1 - -
3. MUan - Piacenza 1 —
fftlftltf HF.
SKÓGARHLÍÐ 10 - SÍMI 20720
4. Parma - Lazio 1 - -
5. Rcggiana - Atalanta 1 - -
6. Roma - Udinese - - 2
7. Sampdoria - Juventus - X -
8. Torino - Napoli - X
9. Ancona - Vcrona - X
10. Bari - Lucchcse
11. Brescia Hd.Andria
1 - -
12. Modena-Pba 1 — 13. Ravenna - AscoU - X -
Ileildarvinningsupphsrðin:
17,2 milljón krónur
13 réttir: 752.630 | kr.
12 réttir: 11.230 1 kr.
11 rcttir: 840 I kr.
10 rcttir: 0 \ kr.
sem flokkurinn færi einn með völd.
Hún sagði trúna á manninn og
framtak hans, þörfina fyrir fram-
farir, bjartsýni og stórhug vera það
sem vinstri menn vildu koma í veg
fyrir að yrði áfram haft að leiðar-
ljósi.
Enginn gerljafn vel og
Reykjavík
Markús Örn Antonsson, bfjrgar-
stjóri, sagði Reykjavík vera vaxtar-
broddinn í íslensku þjóðlífi. Hann
sagði borgarstjómarmeirihlutann
hafa orðið að bregðast til vamar
og sóknar vegna samdráttar í þjóð-
arbúinu. Hefði enginn gert jafn vel
og Reykjavík til að bregðast við
atvinnuleysinu, jafnt með skamm-
tíma- sem langtímaaðgerðum.
Framkvæmdir hefðu verið miklar
þó að það hafi köstað að skuldí?'
jrðu auknar lítillega. Fyrirtækið
Aflvaki hefði til dæmis verið að ná
samstarfí um ýmis verkefni þar sem
Reykjavík hefði haft forgöngu um
að leiða fyrirtæki saman. Boigar-
stjóri sagði einnig mikilvægt að
nútímavæða Reykjavík og stjóm-
sýslu borgarinnar.
Hann sagði sjálfetæðismenn líka
hafa sinnt mjúku málunum þannig
að tekið væri eftir og mikil áhersla
verið lögð á umhyggju fyrir bömum
og unglingum. Það væri þó nauð-
sjmlegt að taka uppeldismál æsk-
unnar miklu fastari tökum.
Jóna Gróa Sigurðardóttir sagði
það vera staðrejmd að stuðningur--
við sambræðing vinstrimanna ein-
kenndist af nýjungagimi. Það væri
líka óhjákvæmilegt að langvarandi
aflasamdráttur og kreppa leiddi til
óánægju með Sjálfetæðisflokkinn.
Vinstriflokkamir veittust nú að
Sjálfstæðisflokknum fyrir stefiiu-
leysi en þegar málið væri athugað
sæist að ekki væri fótur fyrir slíkum
ásökunum.
Júlíus Hafstein, framkvæmda-
stjóri, sagði enga stjómmálastefnu
hafa náð eins inn i huga íslendinga*.
og sjáJfstæðisstefnan. Andstæðing-
ar Sjálfstæðisflokksins hefðu nú
sameinast í hræðslubandalagi, sem
hefði það eitt að markmiði að fella
meirihlutann og komast að kjötkötl-
unum. Þau leiktjöld sem vinstri-
menn hefðu verið að setja upp villtu
hins vegar er.gum sýn og væri sókn
besta vömin.
Katrín Gunnarsdóttir, húsmóðir,
sagði atvinnumál vera mál málanna
en nú væri á fjórða þúsund Reykvík-
inga án atvinnu. Það yrði að auka
nýsköpun í atvinnulífinu samhliða
skammtímaaðgerðum og efla Afl-
vaka þannig að honum yrði kleift
að hefja sókn sína. Þá yrði að sam-
ræma reglur um dagvistarmál og -
opna umræðu um hvort leikskóla-
kerfið væri það eina sem hentaði.
Tveir frambjóðendur, Siguijón
Fjeldsted og Þorleifur Fjeldsted,
vora forfallaðir og fluttu því ekki
erindi á kjördæmaþinginu.
3. leikvika, 22. Jan. 1994
Nr. Lexkur:
RnAin:
1. Arsenal - OMham - X -
2. Chebea - Aston VHla -X-
3. Coventry-QPR - - 2
4. Ipswich - Wimbledon - X -
5. Liverpool - Manch. City 1 - -
6. Manch. IJtd. - Everton 1 - -
7. Newcastle - SouthampL - - 2
8. ShefT. Wed - ShefT. Utd 1 --
9. Swindon - Tottenham 1 —
10. Btrmingh.- Sundertand - X -
11. C. Palace - Lekrester 1 --
12. Luton - Derby 1 - -
13. WBA - Milhraii -X-
Heildarvinningsupphsrðin:
126 milljón krónur
11 rcttir:
1 8.484.820 1
1 102.730 1 kr-
1 6.460 1 kr-
L 1360 1 kr-