Morgunblaðið - 02.03.1994, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 02.03.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994 11 Bessi Bjarnason og Ámi Tryggvason í hlutverkum sínum. Leikfélag Reykja- víkur frumsýn- ir Gleðigjafana LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýnir nk. fímmtudag, 3. mars, Gleði- gjafana eftir Neil Simon á stóra sviði Borgarleikhússins. Þýðingu og staðfærslu á verkinu annaðist Gísli Rúnar Jónsson en hann er jafnframt Ieikstjóri. í aðalhlutverkum eru tveir reyndustu gamanleik- arar landsins, Arni Tryggvason og Bessi Bjarnason, en jafnframt er Guðmundur Ólafsson í einu aðalhlutverkanna. Far vel frillan mín Leslie Cheung og Zhang Fengyi eru stórkostlegir í erfíðum hlutverk- um. Hér eru þeir á sviði Pekingóperunnar í verkinu Far vel frillan mín. Neil Simon skrifaði Gleðigjafana eða „The Sunshine Boys“ árið 1972. Þar segir frá endurfundi tv’ggja gamalla skemmtikrafta, þeirra Alla og Villa, sem hafa ekki unnið sam- an í nær tólf ár en eiga að baki meira en íjörutíu ára samstarfsferil. Starf aðalleikara sýningarinnar á samanlögðum áttatíu ára ferli að flutningi gamanmála eykur við ís- lenska samsvörun Gleðigjafanna. Þeir Ámi og Bessi hafa enda kom- ið fram saman sem tvíeyki við ijölda tækifæra. Fyrir utan það að vera afkastamiklir leikarar á sviðum Þjóðleikhússins og Iðnó, hafa þeir sinnt skemmtibransanum á sviðum um allt land. Ferill þeirra samsvar- ar þannig að nokkra fimmtíu ára ferli þeirra Alla og Villa sem era aðalpersónumar í Gleðigjöfunum ásamt umboðsmanninum stressaða, bróðursyni Villa, Benna Breiðfjörð, sem leikinn er af Guðmundi Ólafs- syni. Gleðigjafamir lýsa þannig enda- lokum á ferli tveggja íslenskra gam- anleikara sem hafa eldað grátt silf- ur á löngum og stríðum samstarfs- ferli og tilraunum ungs umboðs- manns til að koma þeim saman enn á ný í glæsilegri sjónvarpsdagskrá. Verk Neils Simons hafa verið vinsæl hér á landi nú á síðustu áram, nægir að nefna Kjaftagang, Heima hjá Ömmu og söngleikinn Kirkjutónleikar í Bústaðakirkju KIRKJUTÓNLEIKAR verða í Bústaðakirkju í kvöld, miðviku- dagskvöld kl. 20.30, með Karla- kór Reykjavíkur ásamt tónlistar- fólki úr sókninni. Einsöngvari er Elín Huld Áma- dóttir, óbóleikari Guðrún Másdóttir, víóluleikari Vigdís Másdóttir og Guðni Þ. Guðmundsson organisti kirkjunnar Ieikur á orgelið. Sweet Charity sem Fjölbrautaskól- inn í Breiðholti sýnir um þessar mundir. í öðrum hlutverkum í Gleðigjöf- unum era Björk Jakobsdóttir, Ellert A. Ingimundarson, Steindór Hjör- leifsson, Pétur Einarsson og Guðrún Ásmundsdóttir. Lýsingu hannar Elfar Bjamason, Steinþór Sigurðsson gerir leikmynd og búninga en Gísli Rúnar Jónsson leikstýrir. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Regnboginn: Leikstjóri Chen Kaige. Handrit Lilian Lee og Lu Wei, byggt á skáldsögu Lee. Kvikmyndatöku- stjóri Gu Changwei. Tónlist Hu Bingyu. Aðalleikendur Leslie Cheung, Chang Fengyi, Gong Li, Lu Qi, Ying Da, Ying Da, Ge You. Kína/Tævan/Hong Kong 1993. Á síðari árum hafa Kínveijar, Hong Kong- og Tævanbúar, verið að taka forustuna meðal asískra kvikmyndagerðarmanna af Japön- um. Á meðan þeir síðamefndu hafa ekki eignast menn til að fylla skarð meistara á borð við Akira Kur- osawa, Kon Ichikawa og Yasujiro Ozu, svo nokkrir séu nefndir, hafa fjölmargir, bráðefnilegir leikstjóraf látið að sér kveða úr róðum Kín- veija. Ekki aðeins í Austurlöndum fjær heldur um allan heim. Fremst- ir fara þeir Zhang Yimou (Rauð dúrra, Ju Dou, Rauði lampinn og Chen Kaige, en Far vel frillan mín hefur farið mikla sigurför um Vest- urlönd og unnið til fjölda, eftir- sóttm verðlauna. Gott ef grillir ekkj í Óskarinn í framtíðinn.i Myndin hefst 1977, að lokinni Menningarbyltingunni. Tveir menn, klæddir búningum úr Pekingóper- unni, reika um autt sviðið. Vegfar- andi ber kennsl á þá, þama eru komnar þær tvær stjömur óperann- ar sem -lengst skinu skærast. Þeir Duan Xiaolou (Zhang Fengyi) og Cheng Dieyi (Leslie Cheung). Síðan er horfið aftur til þriðja áratugarins. Á leiklistarskóla kynn- ast þeir komungir, Duan og Cheng. Það skapast með þeim vinátta, hinn hrausti Duan tekur að sér að veija Cheng, hórusoninn veikbyggða. Líkamsbygging ræður þjálfun þeirra í hinum afar stranga skóla, þar sem mönnum er jafnvel refsað fyrir að gera hlutina vel. Sam- kvæmt Kínverskri hefð er hinn fín- gerði Cheng þjálfaður til að fara með kvenhlutverk í óperunni en Duan er skapaður fyrir hetjuímynd- ina. Meðal annarra verka sem þeir æfa er Far vel frillan mfn, ópera um konung (Duan) sem er að tapa striði og trygga hjákonu hans, sem leikin er af Cheng. Þetta hlutverk á eftir að fylgja þeim í gegnum lífið. Þeir félagar verða stjömur í lista- heimi Pekingborgar. Cheng á erfitt með að greina á milli óperannar og raunveraleikans. Hann elskar Duan, mótleikarann og ástmann sinn á sviðinu. En Duan leggur líf hans í rúst er hann giftist gleðikon- unni Juxian (Gong Li). Leitar Cheng þá á náðir eiturlyfja og gerist við- hald óperastjórans. Og utandyra óperunnar gnauða kaldir vindar; fyrst hemám Japana, síðan valda- taka kommúnista, Menningarbylt- ing öreiganna, en mjmdinni lýkur á upphafsatriðinu. Tímamir hafa sett sitt mark á þá félaga, síðustu sýn- ingunni er að ljúka. Þetta er rauði þráðurinn í svip- mikilli og einkar tilfinningaríkri, sögulegri stórmynd sem spannar bæði hálfa öld gífurlegra þjóðfé- lagsbreytinga í Kína og sára rauna- sögu þriggja persóna sem ástin tengir saman. Bæði Juxian og Cheng elska Duan, engu að síður svíkur hann þau bæði, þó hann elski eiginkonu sína og virði sviðsbróðir sinn og vin. Utan sviðsins snúast hlutverk þessara manna við. Þar er Duan ekki í hetjuhlutverkinu heldur hinn samkynhneigði Cheng, hann er fulltrúi hins fijálsa vilja og rís hæst um leið og niðurlæging Duáns — og Kínaveldis undir Maó - er mest. Það atriði líður manni ekki svo glatt úr minni. Það gerir myndin ekki heldur, hún heldur manni föngnum. Við fáum innsýn í bæði fjarrænan menningarheim og ekki era ástamálin síður óvenju- leg þar sem ekki er aðeins fjallað um tilfmningar gagnkynhneigðra heldur einnig hommans Cheng, þjáningum hans og óhamingju og þessi lykilhlutverkin eru í góðum höpdum. Með hið vandmeðfama hlutverk Duans fer Zhang Fengeyi og gerir það óaðfinnanlega. Hin undurfagra Gong Li, sem við þekkj- um úr myndum Zhangs Yimous, sýnir einfaldlega að hún er í hópi bestu leikkvenna í heiminum í dag. Það er þó Leslie Cheung sem rís hæðst í túlkun sinni á hinum lán- lausa Cheng og hefur þar að auki með sér minnisstætt fínlegt gervi frillunnar. Bæði brothætt útlitið og harmiþrangin túlkun Cheungs gerir það að verkum að maður hefur á tilfinningunni að persónan bresti á hinum fiölmörgu, hádramatísku augnablikum í öllu andstreyminu. Minni hlutverk era einnig,vel skip- uð. Tónlistin, sem m.a. er flutt af hljómsveit Pekingóperannar og kvikmyndataka Changweis, sem tekið hefur bestu myndir Yimous, eru vel gerðir þættir í kraftmikilli mynd. Utanum allt þetta vandmeðfama efni og persónur heldur leikstjórinn Kaige af öryggi. Hann hefur góða stjóm á þessum frábæru leikuram og þá lýsir hann mörgum óróatím- um í Kína afar vel í stuttum en því magnaðri atriðum sem sum minna á verk meistara Kurosawa. Kína- veldi verður eitt ógnarleikhús þar sem menn þurftu að vera snöggir að skipta um hlutverk eftir því hvemig vindurinn blés i það og það skiptið. Þar sem togstreitan var mögnuðust milli lífsins og listarinn- ar. Ljósmyfld: Hreinn Hreinsson elite the look of the year '94 á Hótel ísland miðvikudaginn 2. mars. Matseðill Kjúklingapasta með rjómalagaðri sósu ásamt salati og hvítlauksbrauði Verð kr. 2.700,- Húsið opnað kl. 19-00 fyrir matargesti. Verð fyrir aðra en matargeseti kl. 21.00 Verð kr. 1.200,- Miða- og borðapantanir í síma 687111 eftir kl. 13.00. HOm T^íiAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.