Morgunblaðið - 02.03.1994, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1994
SUND
Heimsmeist-
ariféllá
lyfjaprófi
Kínverska stúlkan Zhong
Weiyue, sem setti tvö heims-
met á heimsbikarmótinu í Peking
í janúar, féll á lyfjaprófi, sem þar
var tekið, og var dæmd í tveggja
ára keppnisbann auk þess sem
heimsmet hennar á mótinu voru
ógilt.
Stúlkan, sem er 18 ára, synti
50 m flugsund á 26,44 sek. og
bætti heimsmet Angelu Kennedy
frá Ástralíu um 0,49. sek. 100
metra flugsund fór hún á 58,71
og bætti 12 ára met Mary Meag-
her frá Bandaríkjunum. Alþjóða
sundsambandið gaf frá sér til-
kynningu um málið, en greindi
ekki frá hvaða efni stúlkan hefði
notað.
HANDKNATTLEIKUR
Sigbjörn Óskarsson, þjálfari Eyjamanna, í sjö mánaða keppnisbann
Eyjamenn og KR-ingar
leika fyrir luktum dyrum
AGANEFND HSÍ úrskurðaði
Sigbjörn Óskarsson, leikmann
og þjálfara ÍBV, í rúmlega sjö
mánaða keppnisbann fyrir
óíþróttamannslega frámkomu
í leik ÍBV og Víkings sem fram
fór íVestmannaeyjum 23.
febrúar sfðastliðinn. Bannið
tekur gildi á hádegi á morgun,
fimmtudag, og stendurtil 15.
október f haust. Hann getur
því leikið með og stjórnað ÍBV
gegn KR í kvöld áður en hann
tekur út bannið.
Hjörleifur Þórðarson, formaður
aganefndar HSÍ, sagði við
Morgunblaðið að Sigbjörn hafi vís-
vitandi hrint öðrum dómara leiks-
ins og kæmi það m.a. greinilega
fram á myndbandi úr leiknum.
Hann sagði að það ýtti undir
strangri dóm að Sigbjöm er einnig
þjálfari liðsins. „Leiðtogi á að vera
fyrirmynd," sagði Hjörleifur.
Ekki er hægt að áfrýja úrskurði
aganefndar.
Mótanefnd HSÍ kom einnig sam-
an til fundar í gær og tók fyrir
skýrslu eftirlitsamanns HSÍ,
Bjöms H. Jóhannessonar, vegna
umrædds leiks í Vestmannaeyjum
23. febrúar. Fyrir fundinum lágu
einnig skýrslur dómara leiksins og
greinagerð frá handknattleiksráði
IBV. Urskurður mótanefndar var
á þann veg, að leikur ÍBV og KR
í 1. deild karla í Vestmannaeyjum
í kvöld yrði spilaður fyrir luktum
dyrum. Að því leiðir að einungis
eftirtaldir aðilar mega vera við-
staddir leikinn: 14 leikmenn úr
hvom liði, 4 starfsmenn hvors liðs,
einn starfsmaður með þvegil, 2
starfsmenn leiksins, þ.e. tímavörð-
ur og ritari, fulltrúar HSÍ og tveir
fréttamenn frá hveijum fjölmiðli
sem ætlar að fjalla um leikinn.
Mótanefnd byggir ákvörðun
sína m.a. á þeim reglum sem móta-
nefnd hefur sett framkvæmdarað-
ila leikja um umgjörð, öryggi og
eftirlit. „í síðustu tveimur heima-
leikjum ÍBV áttu sér atvik, sem
ekki verður við unað,“ segir í
fráttatilkynningu mótanefndar.
KNATTSPYRNA
ÚRSLIT
Venables velur þrjá nýliða
- og kallar Peter Beardsley aftur í enska landsliðshópinn, eftir þriggja ára fjarveru
TERRY Venables hefur til-
kynntfyrsta landsliðshóp sinn.
Hann valdi 18 leikmenn vegna
æfingaleiks við Dani á Wembl-
ey í næstu viku og eru þrír
nýliðar í hópnum; Matthew Le
Tissier, miðherji Southampton,
Darren Anderton, kantmaður
hjá Tottenham, og Graeme Le
Saux, bakvörður hjá Blackburn.
Venables valdi einnig Peter
Beardsley, sem er 33 ára, og
á 49 landsleiki að baki og lék
síðast í marl991, en 10 leikmenn,
sem Graham Taylor valdi í hópinn
fyrir síðasta landsleik sinn, gegn
San Marínó í nóvember s.l., eru útí
kuldanum, þar á meðal markvörð-
urinn Chris Woods, Carlton Palmer,
Lee Dixon, Andy Sinton og John
Barnes.
„Ég þekki fæsta þessara leik-
manna, en því minni hópur, þeim
mun auðveldari verða kynnin,"
sagði Venables um valið. „Þetta er
hópur úrvalsmanna og ég vil að
samkeppni ríki.“
Athygli vakti að Venables hélt
Stuart Pearce inni, en þjálfarinn
vildi ekki segja hvort hann yrði
áfram fyrirliði. Leikmaður frá Erm-
arsundseyjum hefur ekki leikið með
A-liði Englands, en Le Tissier frá
Guemsey og Le Saux frá Jersey
geta breytt því. Þeir hafa þekkst
frá því þeir voru í skóla og léku
saman með B-liði Englands í sex
mínútur í Moskvu fyrir tveimur
árum. Eftirtaldir leikmenn eru í
hópnum:
David Seaman, Arsenal, Tim Flow-
ers, Blackbum; Paul Parker, Man.
Utd., Rob Jones, Liverpool, Stuart
Pearce, Nott. For., Graeme Le Saux,
Blackburn, Tony Adams, Arsenal,
Gary Pallister, Man. Utd., Des Wal-
KomlA tll mín og þið munið gleðjast...getur Terry Venables verið að segja, þar sem hann standur á Wembley-leikvang-
inum. Reiknað er með fullu húsi áhorfenda á fyrsta landsleik Englands undir hans stjóm — gegn Dönum í næstu viku.
ker, Sheff. Wed., Darren Anderton,
Tottenham, Paul Gascoigne, Lazíó,
Paul Ince, Man. Utd., David Batty,
Blackbum, David Platt, Sampdoría,
Matthew Le Tissier, Southampton,
Alan Shearer, Blackbum, Les Ferdin-
and, QPR og Peter Beardsley, Newc'-
astle.
Terry Venables er með ýmsar
hugmyndir í sambandi við undir-
búning liðs síns fyrir Evrópukeppni
landsliða í Englandi 1994 — og
segir að ef erfitt verði að fá lands-
leiki, þá myndi hann reyna að fá
vináttuleiki gegn sterkustu félags-
liðum heims, eins og AC Milan og
Barcelona. Venables þekkir vel til
hjá Barcelona, en hann þjálfaði fé-
lagið á áram áður, en undir hans
stjóm varð Barcelona Spánarmeist-
ari 1985.
Breytingar hjá Fram
Reykjavfkurmótið hefst 20. mars
JT_
IR-ingar mæta KR-
ingum í fyrsta leik
Reylcjavfkurmótið í knattspymu
hefst á gervigra8vellinum í
Laugardal 20. mars með leik ÍR
og KR. Nýtt fyrirkomulag er nú á
mótinu, leikið er í tveimur deildum
— A og B-deild. Þau sex lið sem
leika í A-deild, eru ÍR, KR, Valur,
Víkingur, Fram og Fylkir. í B-deild
leika Ármann, Þróttur; Leiknir,
Léttir, Fjölnir og Árvakur.
TvÖ efstu liðin í hvorri deild, leika
sfðan hreinan úrslitaleik. Úrslita-
leikurinn í A-deild verður 14. maí,
en í B-deild 15. maí. Neðsta liðið í
A-deild fellur f B-deild, en efsta lið-
ið í B-deild færist upp.
Aðrir leikir í 1. umferð A-deild-
ar, eru: Valur - Víkingur og Fran
- Fylkir. Fyrstu leikirnir í B-deild
eru: Ármann - Þróttur, Leiknir -
Léttir og Fjölnir - Árvakur.
Þetta verður í 78. sinn sem keppt
verður um Reykjavíkurmeistaratit-
ilinn, en Knattspymuráð Reykjavík-
ur verður 75 ára á árinu.
Talsverðar breytingar hafa orðið
á stjórn Knattspymudeild
Fram, en aðalfundir deildarinnar
var sl. föstudag. Halldór B. Jóns-
son, formaður deildarinnar sl. tólf
ár, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Halldór B. verður í varastjórn
ásamt Alberti Sævari Guðmunds-
syni og Ólafi Orrasyni, sem hafa
lengi átt sæti í aðalstjórn, en gáfu
ekki kost á sér. Ólafur í 17 ár, en
Albert Sævar í 11 ár. Eyjólfur Berg-
þórsson, varaformaður, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, en situr
Tiú í landsliðsnefnd KSÍ. Eyjólfur
hefur verið í stjóminni í 17 ár, lengi
sem formaður meistaraflokksráðs.
Þá lét Kristbjörn Þorkelsson, sem
hefur setið í unglingaráði frá 1979
og síðan í stjórn, einnig af störfum.
Ólafur Helgi Árnason, sem var
gjaldkeri sl. ár, tók við formennsku
deildarinnar, en nýir menn inn í
stjórnina eru Þröstur Sigurðsson,
varaformaður, Svavar Hilmarsson,
ritari og Vilhjálmur Sigurhjartar-
son, gjaldkeri, allir uppaldir Fram-
arar. Albert Þór Jónsson, sem var
meðstjómandi, er spjaldskrárritari,
en meðstjórnendur áfram eru Gunn-
ar Guðjónsson og Ragnar Ingólfs-
son.
Jóhann G. Kristinsson er áfram
framkvæmdastjóri deildarinnar.
Leiðrétting um skotfimi
Morgunblaðinu hefur borsti eftir-
farandi bréf frá Carli J. Ei-
ríkssyni, skotmanni úr UMFA:
„Enn einu sinni veður stjórn Skot-
sambands íslandg fram á ritvöllinn
með ósanna „fréttatilkynningu". Í
Mbl. 22. febrúar 1994 segir að árang-
ur Ólafs Jacobssonar (sem hefur búið
í Svíþjóð í mörg ár), 575 stig í lof-
skammbyssu, sé „tvímælalaust besti
árangur skotmanns hér á landi á
þessu keppnistímabili."
Sannleikurinn er sá að 575 stig í
loftskammbyssu svarar til 48. sætis
af 100 keppendum skv. töflum úr
meðaltali þriggja sterkustu móta í
heimi. Á Landsmóti Skotsambandsins
11. desember 1993 var árangurinn
592 stig í riffílskotfimi, á Flokka-
meistaramóti Skotsambandsins 6.
febrúar 1994 var árangurinn 593
stig í sömu grein og á Landsmóti
Skotsambandsins 12. feb. 1994 var
árangurinn 592 stig í sömu grein.
593 stig svara til 34. sætis í áður-
nefndum töflum og eru því fjórtán
sætum ofar en 575 stig í loftskamm-
byssu og 592 stig eru einnig ofar.
Hve lengi skyldu lesendur þurfa
að þola ósannar fréttatilkynningar
Skotsambands íslands?"
Knattspyrna
Evrópukeppni bikarhafa
Lissabon, Portúgal:
Benfica - Bayer Leverkusen...1:1
Isaias Soares (90.) — Marcus Happe (64.).
85.000.
UEFA-keppnin
Dortmund, Þýskaland:
Dortmund - Inter Mílanó.........1:3
Schulz (83.) — Jonk 2 (33., 36.), Chalimov
(88.). 35.800.
Sardinía, ítaliu:
Cagliari - Juventus.............1:0
Julio Cesar Dely Valdes (60.). 25.000.
England
1. DEILD:
Notts County - Barnsley.........3:1
Skotland
Bikarkeppnin:
St. Johnstone - Stirling........3:3
Motherwell - Dundee Utd.........0:1
- Brian Welsh (67.) 10.882.
Úrvalsdeildin:
Celtic - Kilmarnock.............1:0
Dundee - Hearts.................0:2
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir aðfaranótt þriðjudags:
Chicago - Cleveland...........81:89
■Brad Daugherty, Larry Nance og John
Battie léku ekki með Cleveland vegna
meiðsla, en liðið hélt áfram á sigurbraut og
sigraði í sjöunda leiknum í röð. Mark Price
gerði 19 stig og Bobby Phills 17, en B.j.
Armstrong var með 20 stig fyrir Chicago
og Scottie Pippen 18 stig. Chicago sigraði í
18 heimaleikjum og tapaði tveimur fyrir
stjömuleikinn, en hefur nú tapað fjóram af
síðustu sex heimaleikjum.
Utah - Houston..................89:85
■John Stockton jafnaði 83:83 með þriggja
stiga körfu, þegar 2.36 min. vora til leiks-
loka og gerði alls 17 stig fyrir Utah, en
Karl Malone var með 18 stig í þessum sjötta
sigurleik liðsins i röð. Hakeem Ol^juwon
skoraði 20 stig fyrir Houston og Kenny
Smith 12 stig.
Íshokkí
NHL-deildin
Leikir aðfararnótt þriðjudags:
Florida - Pittsburgh.................3:4
New Jersey - St Louis................5:1
NY Rangers - Philadelphia............4:1
Ottawa - Toronto.....................1:4
Winnipeg - San Jose..................3:3
Los Angeles - Montreal............. 3:3
■Tveir síðustu leikirnir eftir framlengingu.
í kvöld Handknattleikur 1. deild karla: KA-hús: KA - Stjaman ...20.30
Selfoss: Selfoss - Víkingur... 20
Seljaskóli: lR - UMFA 20
Strandgata: Haukar - Þór 20
Hlíðarendi: Valur-FH 20
Eyjar: ÍBV - KR 20
Körfuknattleikur Úrvalsdeildin: Hólmurinn: Snæfell - Valur.. 20
FELAGSLIF
Herrakvöld Stjömunnar
Herrakvöld Stjörnunnar verður haldið að
Garðaholti á föstudáginn og hefst kl. 19.30.
Halldór Blöndal landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra verður heiðursgestur
kvöldsins. Sala aðgöngumiða er í Stjörnu-
heimilinu.
Miðnæturmót HK
Miðnæturmót HK í innanhússknattspyrnu
verður haldið i Digranesi í Kópavogi 4. -
5. mars. Mótið hefst á föstudagskvöldið og
er leikið fram á nótt. Uppiýsingar og skrán-
ing i s. 667651 (Kristján).