Morgunblaðið - 04.03.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
52. tbl. 82. árg.
FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Friðrof í Sarajevo
Arásinni
var ekki
svarað
Sarcyevo, Brussel. Reuter.
MICHAEL Rose, yfirmaður frið-
argæsluliðs Sameinuðu þjóðanna
í Bosníu, sagði fulltrúum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) að ekki
væri þörf á loftárásum á umsát-
urslið Serba í grennd við Sarajevo
þótt svo virtist sem það hefði beitt
þungavopnum í skammvinnri árás
á borgina í gær.
Friðsamlegt hafði verið í
Sarajevo frá 21. febrúar þegar út
rann frestur sá sem NATO gaf
Serbum til að flytja þungavopn sín
að minnsta kosti 20 km frá borg-
inni og hótaði að gera loftárásir á
þá ella. Fregnir um árásina í gær
voru misvísandi og menn greindi á
um hvort vopnin sem Serbar beittu
féllu undir skilgreiningu NATO á
þungavopnum - þ.e. fallbyssur,
skriðdrekar, flugskeytabyssur,
sprengjuvörpur og loftvarnabyssur.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu að Serbar hefðu beitt
hreyfilknúnum sprengjum (RPG)
og vélbyssum. Sjónarvottar, þeirra
á meðal þaulvanir stríðsfréttaritar-
ar, sögðu hins vegar að skotið hefði
verið úr sprengjuvörpu.
Nokkru seinna skutu franskir
friðargæsluliðar viðvörunarskotum
að serbneskri umsáturssveit, sem
hafði hafið skothríð með vélbyssum
á skotgrafir bosnískra stjórnarher-
manna í grennd við Sarajevo.
Embættismenn NATO sögðu að
Michael Rose hefði tjáð þeim að
hann vildi ekki að gerðar yrðu loft-
árásir vegna árásar Serba þar sem
vopnahléð héldist enn. Embættis-
mennirnir óttast að loftárásir
myndu stefna friðargæsluliðinu í
hættu vegna hugsanlegra hefndar-
aðgerða Serba.
Breskur friðargæsluliði sagði við
blaðamenn í gær að Serbar hefðu
stofnað sérsveitir sem ættu að ráð-
ast á friðargæsluliða sem fylgjast
með serbnesku þungavopnunum ef
flugvélar NATO gerðu loftárásir.
Zhírínovskíj sakaður um ávísanafals Moskvu. The Daily Telegraph. DAGBLÖÐ í Moskvu héldu því fram í gær að rússneski þjóðernissinninn Vladímír Zhírínovskíj hefði fjármagn- að kosningabaráttu sína með fölsuðum bankaávísunum. Dagblöðin, Moskovskíj Kom- somolets og Sevodnja, birtu myndir af fölsuðum ávísunum sem Zhírínovskíj á að hafa greitt sjónvarps- og útvarps- stöðvum fyrir auglýsingar í kosningabaráttunni. Stöðvarn- ar hafa hótað að höfða mál gegn Zhírínovskíj greiði hann ekki skuld sína, jafnvirði 10,5 milljóna krón. Talsmenn hans vísuðu þessu á bug. Talið er að vel heppnaðar auglýsingar hans í sjónvarpi hafí átt stærstan þátt í kosn- ingasigri hans.
Króatískir hermenn að tafli KRÓATÍSKIR hermenn tefla skák í skotgröf nálægt múslimska bænum Vitez í Bosníu, sem Króatar hafa setið um. Múslimar og Króatar hafa samið um vopnahlé og náð samkomulagi um að stofna sam- bandsríki.
Danir sáttir við tillögur færeysku landstjórnarinnar um takmörkun fiskveiða
Sjómenn og útgerðimar
hóta að leggja flotanum
Kaupmannahöfn, Þórshöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur og Grœkaris D. Magnussen, fréttariturum Morgunblaðsins.
DANIR segjast fúsir til að endurfjármagna erlend lán Færeyinga
þar sem tillögur færeysku landsljórnarinnar komi nægilega til
móts við kröfur Dana um að eyjarskeggjar standi við samning
frá því í haust um að dregið verði úr ofveiði. Auk þess leggja
Danir skilyrðislaust fram lánatryggingu upp á um hálfan milljarð
íslenskra króna, til að fjármagna atvinnuleysissjóð Færeyinga,
sem er tómur, ef lögþingið samþykkir tillögurnar í atkvæða-
greiðslu sem ráðgerð er í dag. Færeyskir sjómenn eru hins veg-
ar æfir yfir þeim þætti tillagnanna sem kveður á um lækkun
tekjutryggingar og hóta allsherjarverkfalli.
Ekki hafa verið greiddar út at-
vinnuleysisbætur í viku í Færeyjum
vegna vanda sjóðsins.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, hefur lýst því
yfir að hann álíti síðustu tillögur
Færeyinga nægja þótt ekki sé að
fullu gengið að dönskum kröfum
um framseljanlega fiskveiðikvóta. í
tillögunum sem nú liggja fyrir er
gert ráð fyrir að frá og með næsta
kvótaári, sem hefst 1. september
næstkomandi, verði teknir upp
framseljanlegir kvótar, með tak-
mörkunum þó. M.a. eru takmarkan-
ir á hversu mikinn kvóta einstakir
aðilar geta keypt og er þetta gert
til að koma í veg fyrir að kvótinn
safnist á fáar hendur.
Formaður færeyskra útgerðar-
manna, Emil Nolsoe, hefur sagt að
hljóti frumvarpið samþykki verði
öllum togurum á eyjunum siglt í
höfn. Segir Nolsoe að frumvarpið
minnki svo möguleika á ábatasöm-
um veiðum að bráðlega verði allar
útgerðir á eyjunum gjaldþrota.
Danir hafa einnig krafíst þess að
tekjutrygging sjómanna verði aðlög-
uð aðstæðum í þjóðfélaginu en það
hefur í för með sér verulega lækkun
hennar. Óli Jacobsen, formaður Sjó-
mannafélags Færeyja, segir að nái
áætlanir stjórnarinnar fram að
ganga verði gripið til harðra að-
gerða. „Mér fínnast aðferðir stjórn-
arinnar og einkum forsrætisráðherr-
ans í þessu máli vera afar grófar."
Segir Jacobsen að ekki verði hægt
að komast hjá allsheijarverkfalli ef
hróflað verði við tekjutryggingunni.
Vopnahlé rofið í
Nagorno-Karahak
YFIRVÖLD í héraðinu Nagorno-
Karabak, sem er umlukið Az-
erbajdzhan en að mestu byggt
Armenum, sögðu að hersveitir Az-
era hefðu í gærmorgun rofið
tveggja daga gamla vopnahlés-
samninga með stórskotaliðsárás.
Hefðu þær brotist inn fyrir varnar-
línur varðsveita Nagorno-Karabak,
tekið borgina Goradis skammt frá
írönsku landamærunum og stefndu
á borgina Fuzuli. Þeim hefði verið
sýnd mikil mótspyrna og því hefði
manntjón í liði hvorra tveggja orð-
ið umtalsvert. Talsmaður varnar-
málaráðuneytisins í Bakú, höfuð-
stað Azerbajdzhan, vísaði þessu á
bug. Átök Ármena og Azera hafa
leitt til mikils flóttamannavanda
og var myndin tekin í fyrradag af
azerskri fjölskyldú í flóttamanna-
búðum skammt frá borginni Biarda
í Mið-Azerbajdhzan.
Rcuter
Rússar skrúfa fyr-
ir gas til Úkraínu
Tallinn. Reuter.
RÚSSAR byrjuðu í gær að skrúfa fyrir gas til Úkraínu og Hvíta-
Rússlands vegna vanskila ríkjanna. Verður gasrennslið stöðvað alveg
um helgina hafi greiðslur ekki borist, að sögn rússneskra embættis-
manna. Til stóð að skrúfa einnig fyrir gas til Moldovu en því var
afstýrt á síðustu stundu með nýjum samningum um vöruskipti.
Gasleiðslur frá Rússlandi til Evr-
ópu liggja um Úkraínu og er óttast
að þau viðskipti kunni að raskast
vegna deilu Rússa og Úkraínu-
manna. Þeir síðarnefndu staðfestu
að byijað væri að skrúfa fyrir gas-
ið og hótuðu að bjarga sér með því
að leiða gas úr Evrópuleiðslunum
inn í sitt kerfi.
Eistlendingar beittir þrýstingi
Viðræður Rússa og Eistlendinga
um heimkvaðningu í ússneskra her-
sveita frá Eistlandi fóru næstum
út um þúfur í fyrrakvöld vegna
þeirrar kröfu Rússa að Eistar
byggðu yfir hermennina í Rúss-
landi. Láta mun nærri að það kosti
23 mitljónir dollara, um 1.700 millj-
ónir króna.
Vasílíj Svírín, formaður í'úss-
nesku samninganefndarinnar, sagði
að ekki hefði heldur verið komið til
móts við þá kröfu Rússa að fyrrver-
andi hermenn sem sest hefðu að í
Eistlandi fengju þar varanlega land-
vist.