Morgunblaðið - 04.03.1994, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 4. MARZ 1994
Laun flugumfer ðar stj óra skertust
vegna bráðabirgðalaga
Greiðslur vegna
lægri eftirlauna-
aldurs halda sér
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær þá niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur að bráðabirgðalögin sem síðasta ríkisstjóm setti
árið 1990 til að hamla gegn almennum launahækkunum í kjöl-
far kjarasamninga við BHMR hafi ekki náð til launahækkana
flugumferðarsljóra vegna lækkunar starfsaldurs. Dómurinn
dæmdi því fjármálaráðherra, fyrir hönd rikissjóðs, til að greiða
einstaklingi í Félagi íslenskra flugumferðarstj óra, sem höfðað
hafði mál, launakröfu hans að upphæð kr. 280.000 auk vaxta.
Starfslokaaldur flugumferðar-
stjóra var lækkaður árið 1989, úr
70 árum í 60. Með vísan til þess
að ævitekjur hefðu skerst, gerði
þáverandi fjármálaráðherra sam-
komulag við flugumferðarstjóra í
mars 1990 um að laun þeirra
hækkuðu um sex launaflokka, um
16,85% alls. Ríkið féll frá samn-
ingnum í september og vísaði til
bráðabirgðalaganna.
Einn um það bil 100 félaga í
Félagi flugumferðarstjóra höfðaði
mál til að fá sér dæmdar þær
launahækkanir og vann málið í
héraðsdómi sem fjallaði um það
síðastliðið vor.
í dómi Hæstaréttar frá í gær
var sú niðurstaða staðfest en þar
segir að úrslit málsins ráðist af
því hvort hinar umsömdu launa-
breytingar hefðu verið þess eðlis
að þær yrðu að víkja vegna þeirra
launaákvarðana sem bundnar voru
með bráðabirgðalögunum. Af lög-
unum verði ráðið að þeim hafí ver-
ið beint gegn almennum launa-
hækkunum er raskað gætu þeim
efnahagslegu markmiðum sem
lögunum væri ætlað að veija. Ekki
verði séð að þau hafi að öðru jöfnu
átt að girða fyrir kjarabreytingar
af sérstöku tilefni eða í sértæku
formi, svo sem með tilfærslum
milli launaflokka vegna endurmats
á störfum launþega. Ljóst sé að
breytingar af því tagi hafí gerst
meðal ýmissa starfshópa eða
starfsmanna á gildistíma laganna
án þess að talið væri í andstöðu við
þau.
Almennar launabreytingar
Hinar umdeildu launabreytingar
hafí einvörðungu verið almennar í
þeim skilningi að þær náðu til allra
flugumferðarstjóra. Þær hafí verið
gerðar af sérstöku tilefni sem hafí
verið óumdeilt og jafnframt í sér-
greindu formi sem sjálfstætt samn-
ingsefni. Það endurmat sem í þeim
fólst hafi verið sérstakt að því leyti
að það varðaði ekki samanburð við
störf eða starfshæfni annarra,
heldur breytingu á skilyrðum varð-
andi starfið sjálft. Því beri ekki
að líta svo á að samkomulagið um
launahækkanir vegna breyttra
reglna um starfsaldur flugumferð-
arstjóra hafi ekki raskast. vegna
ákvæða laganna um launamál
enda hafí samkomulagið legið fyr-
ir áður en lögin voru sett, án þess
að á því væri tekið með beinum
ákvæðum í lögunum. Jafnframt
beri að hafa í huga tímabundið
gildi laganna en breytingunni á
starfsaldursreglum hafi verið ætl-
aður varanlegur sess. Loks hafí
ríkissjóður ekki rift samkomulag-
inu í heild heldur hafí umsamin
skipan í launaflokk verið látin hald-
ast. Hið sérstaka samkomulag
flugumferðarstjóra og ríkisins um
launabreytingar á gildistíma kjara-
samnings aðilanna hafí falið í sér
fullmótaðan og bindandi samning
og beri að taka kröfu flugum-
ferðarstjórans til greina.
XXWVV'WW -
8>uu> mmú um t u„
* . _ Morgunblaðið/Björn Blönda!
I biöstoðu
RÚSSNESKA Boeing 727 flugvélin sem bíður á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í hreyflum.
Rússnesk þota bíður við-
gerðar á Keflavíkurflugvelli
BOEING 727-þota hefur verið
á Keflavíkurflugvelli undanfar-
inn hálfan mánuð vegna bilunar
sem varð í hreyflum vélarinnar
skömmu eftir flugtak héðan,
og eru menn á vegum eiganda
vélarinnar og tryggingafélags
nú í samningaviðræðum við
Flugleiðir um viðgerð á hreyfl-
unum. Vélin sem var á leið frá
Bandaríkjunum til Rússlands
með þriggja manna áhöfn og
átta rússneska og bandaríska
farþega er skráð á Kayman-eyj-
um, en að sögn Skúla Jóns Sig-
urðssonar hjá Loftferðaeftirlit-
inu er vélin sem er í einkaeign
í rekstri félags sem heitir Tat-
arstan og er skrásett í Kasan
í Rússlandi.
Vélin hlaut venjulega af-
greiðslu á Keflavíkurflugvelli en
sneri síðan við eftir 15 mínútna
flug og lenti aftur, en þá kom í
ljós að verulegar skemmdir höfðu
orðið á einum hreyfli vélarinnar
og einnig höfðu orðið skemmdir
á hinum tveimur.
Leigðu Boeing 757
Skúli Jón sagði að áhöfn og
farþegar í vélinni sem innréttuð
væri með lúxusinnréttingu, setu-
stofu, svefnherbergi o.fl., hefðu
leigt Boeing 757-vél Flugleiða
þegar óhappið varð og hefði hún
flutt þá ásamt vamingi sem í vél-
inni var til Rússlands. Vamingur-
inn sem í vélinni var samanstóð
meðal annars af sjónvarps- og
myndbandstækjum, en Skúli Jón
sagði að engar grunsemdir hefðu
verið hjá Loftferðaeftirlitinu um
að neitt óeðlilegt hefði verið við
þá vöruflutninga. „Í okkar augum
er þetta svolítið óvanalegt mál þar
sem vélarnar sem fólkið ferðaðist
með eru af stærri gerðinni, en það
er hins vegar ekkert sem við vitum
til að hafí verið ólöglegt við flug
vélarinnar,“ sagði Skúli Jón.
Örlitlar tilslakanir af hálfu
tollayfirvalda í Frakklandi
Frakkar hræddir við hefndaraðgerðir frá hendi Bandaríkjamanna
FRÖNSK tollayfirvöld gáfu í fyrradag tollembættismönnum fyrir-
mæli um að vísa ekki fiski frá á þeirri forsendu einni að eitthvað
væri örlítið athugavert við skjöl. Þá hefur Reuíer-fréttastofan
greint frá því að slakað hafi verið á eftirliti með fiskinnflutningi
frá Bandaríkjunum til þess að komast lyá hefndaraðgerðum af
hálfu bandarískra stjórnvalda. Nú er fiskskortur farinn að gera
vart við sig í Frakklandi á ákveðnum tegundum og verð á þeim
hefur hækkað allra síðustu daga.
Síðustu vikur hafa franskir toll- 17 lönd á þeim lista sem flytja má
embættismenn verið ótrúlega smá-
smugulegir og hafa vísað fískgám-
um frá ef tollskjöl hafa ekki verið
algjörlega óaðfinnanleg. Pétur Ein-
arsson, starfsmaður Icelandic
France, dótturfyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, í París,
segir að sennilega hafí Frakkarnir
gert sér grein fyrir því hversu fár-
ánlegar þessar kröfur þeirra hefðu
verið og séð að sér. Nú er innflytj-
endum gefínn kostur á að setja físk-
inn í geymslu og fá skjölin leiðrétt.
Verðið hækkar
Pétur sagði að ekki væru nema
físk frá til Frakklands og nú væri
farið að vanta ýmsar tegundir og
verðið væri á uppleið. Hann sagði
að verðhækkanimar myndu að ein-
hvetju leyti vega upp þann kostnað
sem innflytjendur hefðu orðið fyrir
undanfarið vegna innflutnings-
hindrananna.
Ástandið er annars óbreytt við
innflutning og sagði Pétur að inn-
flytjendur væra búnir að laga sig
að hinu nýja fyrirkomulagi sem
væri þó engu að síður algjörlega
óþolandi. Nánast allur fískur fæst
tollafgreiddur en hann fer líka allur
í sýnatöku og er fastur í geymslu
í u.þ.b. viku. Eina breytingin er
þessi tilslökun varðandi tollskjölin.
Norðmenn ekki í vandræðum
Pétur sagði erfítt að meta það
tjón sem SH hefði orðið fyrir á síð-
ustu vikum vegna hertra innflutn-
ingsreglna. Viðskiptavinir fyndu inn
á það hvaða innflytjendur ættu í
meiri erfiðleikum en aðrir og sagð-
ist hann vita til að einhveijir þeirra
hefðu snúið sér til Norðmanna í stað
SH. Pétur sagði það benda til þess
að Norðmenn fengju ekki sömu af-
greiðslu og íslendingar í þessu máli
og sagði að sér virtist að Norðmenn
ættu ekki í nokkrum vandræðum
með að fá fisk afgreiddan inn í
Frakkland.
Frakkar hræddir við
hefndaraðgerðir
Frakkar hafa slakað á eftirliti
með fískinnflutningi frá Bandaríkj-
unum til þess að komast hjá
hefndaraðgerðum af hálfu banda-
rískra stjómvalda, að því er fulltrú-
ar fiskvinnslu í Bandaríkjunum
sögðu í fyrrakvöld.
Fulltrúi í franska sendiráðinu í
Washington staðfesti að slakað
hefði verið á eftirliti með fískinn-
flutningi frá Bandaríkjunum á
frönsku landamærunum síðustu
daga. Hann neitaði því hins vegar
að það væri vegna ótta franskra
yfirvalda við refsiaðgerðir af hálfu
Bandaríkjamanna.
Fyrr í vikunni sögðu bandarískir
embættismenn að stjórn Clintons
íhugaði að bregðast við aðgerðum
frönsku stjórnarinnar gegn fiskinn-
flutningi með því að hefta innflutn-
ing á frönskum matvælum til
Bandaríkjanna. Búist var við því að
fulltrúum bandarísku fiskvinnslunn-
ar og þingmönnum yrði í gærkvöldi
kynnt til hvaða aðgerða yrði gripið
í deilunni við Frakka.
í dag
Hólmaborg aflahæst
mm
vam
Hólmaborgin hefur veitt mest
loðnuskipa og er hásetahlutur orð-
inn 3 millljónir króna frá í júlí 7
Ópið
Maður býðst til að skila málverkinu
Ópinu í skiptum fyrir 80 milljónir
króna. 23
Handknattleikur
fjlfggZZ. l a| Karlarístarfihjá rikinu
'~y*rwr*k« r«*U í
m
W&fi. ftx. 1^4 eSíÍÍM Hfcíi
wml ' SHgí
1*5 f&i m
Geir H. Haarde verður formaður
framkvæmdanefndar fyrir HM 47
Fasteignir
Daglegt lif
Leiðari
Reyklaus frystihús 24
► Nýtt aðalskipulag í Hafnar- ► Þjóðbúningagerð - Líf eftir
firði - Markaðurinn - Tréstigar dauðann - Fjölskyldan - Hafa
- Lagnafréttir - Innan veggja fundið sinn eftirlætisstað - Ferða-
heimilisins veisla í Singapore - Sælgætisát
íslendinga - Sumarferðir BSÍ
Bankastjórastöður í Seðlabanka íslands
Steinsrímur verður
‘rnernn
meðal umsækjenda
STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins Ás-
mundur Stefánsson, framkvæmdastjóri hjá Islandsbanka, og Guðmund-
ur Magnússon, hagfræðiprófessor við Háskóla íslands, verða meðal
umsækjenda um þær tvær stöður seðlabankastjóra sem auglýstar hafa
verið lausar til umsóknar af bankaráði Seðlabanka íslands. Umsóknar-
frestur um stöðurnar rennur út í dag.
Fjöldi umsókna hefur borist, fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki
þ. á m. liðlega 300 frá nemendum að ná sambandi við Ágúst Einarsson
Menntaskólans við Hamrahlíð. Sam- formann bankaráðs Seðlabankans í
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gær, en Morgunblaðið hefur upplýs-
er talið fullvíst að fimm yfírmenn ingar um að formaðurinn sé staðráð-
Seðlabanka fslands verði meðal um- inn í því að segja af sér formennsku
sækjenda. Þeir eru: Bjarni Bragi í ráðinu, verði niðurstaðan sú að Sig-
Jónsson, Eiríkur Guðnason, Ingi- hvatur Björgvinsson viðskiptaráð-
mundur Friðriksson, Már Guðmunds- herra skipi Steingrím Hermannsson
son og Yngvi Öm Kristinsson. Þrátt seðlabankastjóra.