Morgunblaðið - 04.03.1994, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994-
Niðurgreiðslur á rafmagni til húshitunar
1.200 kr. lækkun
á meðalhús á árí
LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að hækka niðurgreiðslu sína á
rafmagni til húshitunar úr 26 aurum í 30 aura á kWst. Tekur breyt-
ingin gildi frá og með 1. mars. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, nemur hækkun niðurgreiðsl-
unnar um 1.200 krónum á ári á meðalhús og er rafmagn til húshit-
unnar niðurgreitt af Landsvirkjun um allt að 9.000 krónur á áx i
hjá meðalhúsi.
Um 7.500 heimili er hituð með
rafmagni á sölusvæði Rafmagns-
veitna ríkisins, hjá Orkubúi Vest-
fjarða eru um 1.500 hús hituð með
rafmagni og á hjá Hitaveitu Suður-
nesja fengust þær upplýsingar að
um 330 hús væru hituð með raf-
magni.
Gert er ráð niðurgreiðslurnar nái
til 30 þúsund kWst hámarksnotk-
unar á ári fyrir hvert heimili. Þor-
steinn segir að líklega sé notkunin
•eitthvað hærri eða um 33 þúsund
kWst á ári. í ár er áætlað að kostn-
aður Landsvirkjunar vegna niður-
greiðsla verði 87 milljónir króna að
teknu tilliti til hækkunar hans.
Hann segir að Landsvirkjun hafi
greitt niður rafmagn til húshitunar
frá árinu 1988. Einnig niðurgreiði
ríkið rafmagnið til að jafna hitunar-
kostnað milli landshluta.
Rafmagn er notað til húshitunar
á svokölluðum köldum svæðum, þar
sem lítinn eða engan jarðhita er að
finna. Þorsteinn segir að þessi
svæði séu einkum á Vestíjörðum,
einstaka svæði á Austfjörðum og
víðar.
Hann segir að Landsvirkjun
greiði niður rafmagn til að vera
samkeppnishæft við olíukyndingu
og taki greiðslurnar mið af olíu-
markaði.
4
&
m
% ■
Morgunblaðið/Albert Kemp
Sekkur í sandinn
FLAK björgunarbátsins Goðans hefur sokkið um tvo metra í sandinn
við Vöðlavík frá því að skipið strandaði þar 10. janúar sl. Nú stendur
aðeins skorsteinn skipsins og tvö loftnet uppúr, mest af brúnni hefur
tekið af og er það spá kunnugra að skorsteininn taki af næst þegar
brimi á þessum slóðum. Eins og kunnugt er fórst einn skipverji af
Goðanum þegar skipið fórst en sex var bjargað af björgunarsveit varn-
arliðsins.
Hélt þjófi
þar tíl lög-
regla kom
ÍBÚAR í húsi við Bergstaða-
stræti vöknuðu við umgang
óboðins gests snemma í gær-
morgun. Húsbóndinn fór á sljá
og greip innbrotsþjóf glóðvolg-
an.
Hjón, sem búa í húsinu, vökn-
uðu við torkennileg hljóð og á'kvað
maðurinn að kanna málið nánar.
Hann kom að innbrotsþjóf, sem
var búinn að stinga á sig þýfi og
tókst að halda honum þar til lög-
reglan kom á staðinn.
Þjófurinn, sem er rúmlega tví-
tugur, kom síðast við sögu lög-
i-eglu fyrir skömmu, þegar hann
var handtekinn eftir þjófnaðarleið-
angur um Austfirði ásamt 17 ára
félaga sínum. Hann var fluttur í
fangageymslur lögreglu, þar sem
hann ætti að vera orðinn hagvan-
ur.
VEÐUR
Lög á verkfall sjó-
manna samþykkt
ALÞINGI samþykkti í gær lög um stöðvun verkfalls sjomanna með 26
atkvæðum gegn 20. Þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu atkvæði
gegn lögunum en þeir tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem greiddu
atkvæði gegn lagafrumvarpinu við 2. umræðu um máhð, voru ekkx
viðstaddir atkvæðagreiðsluna í gær.___________________________________
Davið Oddsson forsætisráðherra
/ DAG kl. 12.00
Heimild: Veðursiofa fslands'
(Byggi á vaðuropá Kl. 18.30 (gær)
I/EÐURHORFUR í DAG, 4. MARZ
YFIRLIT: Um 500 km vestur af Reykjanesi er 964 mb ieegö sem þokast austnorð-
austur. Skammt norður af Faereyjum er 973 mb lapgð a hreyfingu n°tður. pr'®ia
iaagðin, 990 mb djúp, um 1.500 km suðsuðaustur af Hvarfi, hreyfist allhratt austur
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vestfjaröamiöum, Norðurdjúpi, Suður-
djúpi og Suðvesturdjúpi. , . . .
SPÁ: Suðaustlæg átt, sums staðar allhvöss suðvestan lands i fyrstu en armars
kaldi. Austanlands verður hæg breytileg átt. Éljagangur vestanlands en skyjað með
köflum é Norðaustur- og Austurlandi. Suðaustanlands verða stoku el. Hiti nálægt
STORMVIÐVÖRUNGert er ráð fyrir stormi á suður- og suðvesturdjúpum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Nokkuð hvöss norðan átt. snjókoma
eða éljagangur um landið norðanvert en þurrt og viða léttskýjað syðra. Frost verður
HORFUR/T M/ðilUDAG: Austan strekkingur við suðurströndina en annars breyti-
leq átt. Éi verða viðast hvar á landinu. Frost verður á bilinu 1-5 sttg._
Nýir veðurfregnatimar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30,19.30, 22. 30. Svar-
sími Veðurstofu íslands — Veðurfregnlr: 990600.
O
Heiðskírt
tik
Léttskýjað
Hálfskýjað
Vk
Skýjað
/ / / * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V V V
Skúrir Slydduél Él
$
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjoður er 2 vindstig,
10° Hitastig
Súld
= Þoka
V
'J
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30ígær)
Víða er snjór og hálka á þjóðvegum landsins, en færð góð. Fært er um Dali og
Reykhólasveit og sömuleiðis um Steingrímsfjarðarheiði til Isafjaröar og fært er um
Möðrudalsöræfi austur á firði og eins að austan og um Suöurlana.
Upplýsingar um færð eru velttar hjá Vegaeftlrlrti í síma 91-631500 og í grænni
,(nu 99~6315‘ Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavfk
hiti veður
1 skýjað
0 snjóél
Bergen 2 hálfskýjað
Helalnki +6 skýjað
Kaupmannahöfn 1 þoka
Narssarssuaq +10 snjókoma
Nuuk +15
Ósló •t'5 kornsnjór
Stokkhólmur +3 snjókoma
Þórshöfn 4 rigning
Algarve 18 léttskýjað
Amsterdam 7 þokumóða
Barcelona 15 mistur
Berlín 5 alskýjað
Chicago +6 heiðskirt
Feneyjar 12 þokumóða
Frankfurt 9 skýjað
Glasgow 5 úrkoma
Hamborg 7 skýjað
London 9 rigning
LosAngeles 12 þoka
Lúxemborg 6 þokumóða
Madrid 15 heiðskírt
Malaga 16 mistur
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal +11 alskýjað
New York + 1 ískorn
Orlando 12 alskýjað
Parls 9 súld
Madeira 17 skýjað
Róm 15 skýjað
Vín 12 léttskýjað
Washington 1 súld
Winnipeg +4 skýjað
sagði við þriðju umræðu um málið í
gær að stjórnarandstaðan hefði sýnt
af sér mikið ábyrgðarleysi með því
að greiða atkvæði gegn frumvarpinu,
þar sem í því fælist viljayfirlýsing
hvers einasta stjórnarandstöðuþing-
manns að sjómannaverkfall í miðri
loðnuvertíð loðnuflotanum hefjist
þegar í stað. Sennilega hefði ekki
nokkur stjórnarandstaða fyrr og síð-
ar sýnt annað eins ábyrgðarleysi.
Ólafur Ragnar Grímsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins, sagði að öll
þessi rök hittu þá tvo þingmenn í
flokki forsætisráðherrans sem
greiddu atkvæði gegn staðfestingar-
frumvarpinu um bráðabirgðalögin.
Það væri kannski skýringin á því
hvers vegna forsætisráðherra hefði
ekki lagt í að tala við nema tvo þing-
menn í sínum flokki áður en bráða-
birgðalögin voru sett, og ekki lagt í
að kalla þingið frekar saman þar sem
hann réði ekki við sinn eigin flokk.
Davíð sagðist skilja afskaplega vel
sérstöðu Guðmundar Hallvarðssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem
formanns Sjómannafélags Reykja-
víkur. En Davíð sagði að ef hann
þyrfti jafnan að reiða sig á stuðning
Inga Björns Albertssonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, við mál,
og láta það ráða úrslitum um fram-
gang þeirra, þá gæti illa gengið í
þinginu.
4% hækkun
áskriftar
að Stöð 2
ÁSKRIFTARGJALD Stöðvar 2
hækkaði 1. mars um 4%. Páll
Magnússon sjónvarpsstjóri segir
að gjaldið sé hækkað nú til að
vega upp á móti hækkunum sem
orðið hafa á aðföngum.
Áskriftargjald Stöðvar 2 hækkaði
síðast 1. mars 1992 og hefur því
ekki hækkað í tvö ár. Fyrir tveimur
árum kostaði Bandaríkjadollar 59
krónur en kostar nú tæpar 74 krónur.
„Við höfum tekið á okkur allar
verðlagshækkanir sem hafa orðið á
tímabilinu en öll okkar dagskrárað-
föng erlendis frá eru keypt í dollur-
um. Aðalástæðan fyrir hækkuninni
nú er til að vega með örlitlum hætti
upp á móti þeim gengishækkunum
sem hafa orðið á aðföngum," sagði
Páll.
Áskriftargjaldið hækkar um 123
krónur með virðisaukaskatti, fer úr
2.944 krónum á mánuði í 3.067 krón-
ur, sé borgað með greiðslukorti. Ef
borgað er með gíróseðli hækkar
gjaldið úr 3.067 í 3.190 krónur.
Úrskurði um gæslu-
varðhald var hnekkt
HÆSTIRÉTTUR hefur hnekkt gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Steingrími
Niálssvni og hefur honum verið sleppt úr haldi. Rannsóknarlögregla
ríkisins fór fram á að hann yrði í haldi þar til dómur í máli hans félli.
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ovarlegt væri að gera ráð
fvrir að verknaður sá sem Steingrímur er grunaður um, þ.e. líkains-
árás, varði við 2. mgr. 218. greinar hegnmgarlaga, sem kveður á um
allt að 16 ára fangelsi.
Steingrímur er grunaður um að
hafa, aðfaranótt 27. janúar sl., ráðist
að manni og veitt honum áverka með
því að rífa í pung honum svo annað
eistað lafði út. Hann var úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 21. febrúar, en
Rannsóknarlögreglan fór fram á
framlengingu gæsluvarðhaldsins, á
grundvelli alvarleika brotsins. Þá
voru rök RLR fyrir framlengingu
einnig þau, að Steingrímur væri sí-
brotamaður, en Hæstiréttur bendir á
að hann hafi ekki gerst sekur um
brot gegn almennum hegningarlög-
um frá árinu 1990. Refsidómar hans
fram að þeim tíma séu ekki nægur
lagagrundvöllur fyrir frekari gæslu-
varðhaldsvist hans.
í dag verður kveðinn upp dómur
yfir Steingrími Njálssyni í Héraðs-
dómi Reykjavíkur vegna þjófnaðar.