Morgunblaðið - 04.03.1994, Page 11
MÓRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MÁRZ 1994
11
UM HELGINA
Myndlist
Eitt verka Ninnýar.
Ninný opnar í
Gallerí Listanum
Jónína Magnúsdóttir, Ninný, opnar
málverkasýningu í Gallerí Listanum,
Hamraborg 20 a, Kópavogi, á morgun
laugardaginn 5. mars. kl. 15. Myndirn-
ar á sýningunni eru unnar með bland-
aðri tækni á pappír.
Ninný er fædd í Reykjavík. Hún lauk
prófi frá MHÍ 1978. Hefur auk þess
stundað nám_ við Myndlistaskóla
Reykjavíkur. Á árunum 1983-1987
stundaði hún nám hjá dönsku listakon-
unni Elly Hoffman.
Þetta er þriðja einkasýning hennar,
en hún hefur auk þess tekið þátt í
tveimur samsýningum.
Sýningin mun standa til 20. mars
og er opin daglega frá kl. 13.30-18.
Giiðmimdur Karl Ásbjörnsson
Guðmundur Karl Ás-
björnsson sýnir í
Þýskalandi
Frá 20. mars til 20. apríl verður
Guðmundur Karl Ásbjörnsson með
málverkasýningu í Kapuzinerhof í
Staufen í Suður-Þýskalandi. Þetta er
6. einkasýning Guðmundar Karls í sýn-
ingarröð í Þýskalandi sem spannar yfir
fjögurra ára tímabil. Þessi sýning er
haldin í boði Goethe Institut og Menn-
irigarmálanefndar Staufen-borgar.
Sýningarröðin hófst 1990 í Staufen.
Hinar sýningarnar voru í Köln, í Hist-
orisches Rathaus, í Greifswald, í Kasp-
ar-David-Friedrich-Haus í tenglsum við
Snorra Sturluson Symposium, í Dort-
mund og í Bremerhaven í viðui-vist og
með opnunarræðu íslenska sendiherr-
ans í Bonn, Hjálmars W. Hannessonar.
Leitmotiv þeirra var „Islándische
Landschaftsimpressionen".
Á þessari sýningu verður Guðmund-
ur Karl með íslenskar og þýskar lands-
lagsmyndir í olíu, vatnslitum og past-
el, svo og fantasíur og portret. Málverk
eftir Guðmund Karl eru m.a. í eign
þýska þingsins í Bonn, í Deutche Bun-
desbank, listasverkasafni Bremer-
haven-borgar og öðrum opinberum
stofnunum i Þýskalandi.
Sýningin í Staufen verður opnuð af
Kjartani Jóhannssyni, sendiherra og
fastafulltrúa íslands hjá EFTA, for-
stöðumanni Goethe Instituts, Herr
Tetzeli von Rosador og Cristina Ziener
von Bauer-Broda listfræðing.
Sýning Erlu að ljúka
Sunnudaginn 6. mars lýkur sýningu
Erlu Þórarinsdóttur í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b.
Á sýningunni eru málverk, teikning-
ar, rýmis-, umhverfis- og víðavangs-
verk. Verkin eru staðsett í rýminu sam-
kvæmt höfuðáttum, sem táknaðar eru
með litum. Myndlistakonan vinnur með
Ijós, spegla, klæði, bedda, skálar, salt,
sykur, hrísgijón, ávexti og vatn.
Hver sýningarsalur er meðhöndlaður
á sérstakan hátt og leiðir ein stemmn-
ing af annarri upp í gegnum húsið.
Viðfangsefnið er staðsetning verkanna
í rýminu, en inntakið höfðar til sam-
kenndar, segir í kynningu.
Safnið er opið daglega frá kl. 14-18.
Baltasar og Kristjana Samper.
Baltasar og Kristjana
Samper sýna í Hafnar-
borg
Baltasar og Kristjana Samper opna
sýningar á verkum sínum í Hafnar-
borg, Menningarstofnun Hafnarijarð-
ar, á morgun laugardaginn 5. mars.
Á sýningu Kristjönu eru tíu skúlptúr-
ar og sex lágmyndir. Baltasar sýnir
sautján málverk og sex teikningar. Öll
þessi verk eru unnin á sl. þrem árum.
í kynningu segir: „Ég hef á liðnum
árum, segir Kristjana, leitast við að
draga í verkum mínum fram hliðstæður
og samsvaranir á milli huliðsheima eins
og við þekkjum þá úr þjóðsagnaarfinum
og tíðinda sem eru að verða í okkar
samtíð. Einnig má þar sjá stað öðrum
efnum skyldum, fantasíum úr draum-
um. Kristjana Samper hélt síðast sýn-
ingu í Brugge í Belgíu í janúar 1993.
Nokkur undanfarin ár hefur Baltasar
einkum málað myndir, margar stórar
í sniðum, sem sækja efnivið og hugblæ
til Eddukvæða og hafa þær verið uppi-
staðan í einum sjö sýningum lians hér
heima og erlendis. Ein slík stendur nú
yfir í Haag í Hollandi og á þessari
sýningu hér, segir Baltasar, held ég
áfram að ferðast um þennan undarlega
og magnaða goðaheim, glíma við tákn-
sæi hans og ramman galdur og rekja
safnan þá þræði sem tengja hann við
okkar tíma.“
Við opnunina á morgun munu Guðný
Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran
leika og Ástrós Gunnarsdóttir flytur
frumsamin dans við „Söng fuglanna",
þjóðlag frá Katalóníu. Sýningin stendur
til 20. mars og er opin kl. 12-18 alla
daga vikunnar nema þriðjudaga.
Elín Edda Árnadóttir
Síðasta sýningarhelgi
Elínar Eddu
Sýningu Elínar Eddu Árnadóttur,
leikmyndateiknara í Stöðlakoti, lýkur
sunnudaginn 6. mars nk. Elín Edda
sýnir búningateikningar, sviðsmódel og
myndir unnar með bleki á pappír, en
myndirnar tengjast Blóðbrullaupi sem
Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir.
blönduðu akrýl-lakki og efnið með-
höndlað likt og vatnslitur.
Sýningin er opið frá kl. 14-18.
Síðasta sýningarhelgi
á verkum Eyþórs
Nú fer i hönd síðasta sýningarhelgi
Eyþórs Stefánssonar í Listasafni ASI,
Grensásvegi 16. Sýningin hefur hlotið
góðar viðtökur segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sýningin er opin milli kl. 14 og 19
alla daga og lýkur á sunnudag. Allir
eru velkomnir.
Esoterískar myndir í
söngelsku andrúms-
lofti
Dagana 5.-27. mars sýnir Helga Sig-
urðardóttir myndar unnar með pastel-
krít á flauelispappír í sölum Söngsmiðj-
unnar í Skipholti 25.
í kynningu segir m.a.: „Flestar
myndanna birta veruleika sem er sam-
ofinn manneskjunni en er ekki alltaf
gaumur gefinn í erli dagsins."
Þetta er 9. einkasýning Helgu sem
hefur sérhæft sig í gerð hjálparmynda
fyrir fólk, en hún vinnur þær gegnum
bæn og hugleiðslu sem og aðrar mynd-
ir.
Allir eru velkomnir á opnun sýning-
arinnar laugardaginn 5. mars kl. 14
og sunnudaginn 6. mars kl. 14-18.
Annars er sýningin opin alla virka daga
frá kl. 13-17. Á öðrum tíma um kvöld
og helgar er söngkennsla í sölunum,
þá stendur almenningi yfirleitt til boða
að skoða sýninguna og njóta sönglistar
samtímis.
Ljósmyndasýning
Ingu Sólveigar
Ljósmyndasýning Ingu Sólveigar
Friðjónsdóttur „In Memoriam" verður
opnuð sunnudaginn 6. mars kl. 15.30
á Kirkjuviku í safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju.
Sýningin verður opin á meðan á
Kirkjuviku stendur, dagana 6.-15.
Ljóðlist
Ljóðakvöld verður í Reykholti á mánu-
dagskvöld.
Ljóðakvöld í Reykholti
Ljóðakvöld verður haldið í Reykholti
mánudagskvöldið 7. mars. Gestur
kvöldsins er Elísabet Jökulsdóttir. Leik-
hópur framhaldsskólans í Reykholti
flytur ljóð og sögur. Dagskráin hefst
kl. 21 og eru sveitungar velkomnir.
Heitt kaffi verður á könnunni og
aðgangur ókeypis.
Leiklist
Síðustu sýningar á
„Þetta reddast"
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir gam-
anleikinn „Þetta reddast! kjötfarsa með
einum sálmi“, eftir Jón St. Kristjáns-
son, í Bæjarleikhúsinu i Mosfellsbæ.
„Þetta reddast!" er gamanleikur, sem
gerist í núinu og fjallar um tilraunir
hjónanna Eyvindar og Höllu við að
reyna að bjarga sér og sínum í harðn-
andi kreppu neysluþjóðfélagsins, segir
í kynningu frá Leikfélaginu. Inn í leik-
ritið fléttast ýmsir atburðir sem gerst
hafa í þjóðfélaginu að undanförnu.
Næst síðasta sýning verður föstu-
daginn 4. mars kl. 20.30. og síðasta
sýning föstudaginn 11. mars kl. 20.30.
Eitt verka Onnu G. Torfadóttur.
Síðasta sýningarhelgi
Önnu G. Torfadóttur
Sýningu Önnu G. Torfadóttur í Port-
inu, Hafnarfirði, lýkur nk. sunnudag.
Anna sýnir myndir unnar með bland-
aðri tækni á pappír. Settir eru saman
hlutar úr eigin ljósmyndum. Teiknað
og málað er í verkin með litarefni,
Síðustu sýniugar verða m'i um helgina
á „Hljómsveitinni '.
Síðustu sýningar á
„Hljómsveitinni“
3. bekkur Leiklistarskóla íslands
verður með síðustu sýningar í Tónabæ
á leikritinu „Hljómsveitin" núna um
helgina. Söngleikurinn „Hljómsveitin",
Rokketa-í-A-dúr, fjallar um fimm ung-
menni sem æfa saman í bílskúrshljóm-
sveit fyrir Tónleika í Tónabæ. Söngvar-
inn kemst í eiturlyf og dregur smám
saman tvo aðra hljómsveitarmeðlimi
með sér í neyslu. Hin tvö hafna dópinu.
Verkið er samið til að vekja athygli
á skaðsemi „spítts", amfetamíns. Sér-
stök áhersla er lögð á þá einstaklinga
sem ekki vilja prófa þrátt fyrir þrýsting
félaganna og reynt er að forðast pred-
ikanir og alhæfingar.
Meðan verkið var að mótast va_r
unnið með leikhóp unglinga frá SÁÁ
sem þekktu málið af eigin reynslu og
þekkingu.
Sýningar í Tónabæ verða sem hér
segir: í dag 4. mars. kl. 16., á morgun
laugardag kl. 14. og kl. 16. og á sunnu-
dag kl. 14 og kl. 16.
Brúðuleikhúsið 10
fingur sýnir „Engla-
spil“
Brúðuleikhúsið 10 fingur var stofnað
nú í haust. Það er lítið eins manns
ferðaleikhús sem ætlar að ferðast á
milli leikskóla í landinu. Fyreta sýning
leikhússins heitir „Englaspil" og fjallar
um Veru sem er svolítið einmana og
leikur sér í þvottahúsi ömmu sinnar.
Hún hefur mikið hugmyndaflug og úr
þvottinum býr hún til heilt ævintýr.
Helga Arnalds stendur að þessu leik-
húsi. Hún hefur samið leikritið, búið
til brúður og leikmynd og leikur öll
hlutverkin í sýningunni. Leikstjóri er
Ása Hlín Svavarsdóttir sem m.a. leik-
stýrði „Ævintýri" í Borgarleikhúsinu
og ævintýrinu „Trítill" sem verið er að
sýna á höfuðborgarsvæðinu.
Englaspil tekur 50 mínútur í flutn-
ingi með hléi þar sem börnin fara fram
í leiki og syngja. Sýfiingin er stíluð á
aldurinn 2-7 ára og eru börnin látin
taka þátt í henni.
Forsýningar verða í Gerðubergi á
sunnudag kl. 13 og 15 og eru allir
velkomnir.
„Ingveldur“ á leikferð
um Suðurland
Leikdeild Ungmennafélags Bisk-
upstungna frumsýndi Ingveldi á Iða-
völlum.eftir Ingibjörgu Hjartardóttur,
Sigrúnu Óskarsdóttur og Árna Hjart-
arson 25. febrúar sl.
Eftir tvær sýningar í Aratungu og
eina á Flúðum verður nú farið í leik-
ferð. Næsta sýning verður í Árnesi í
Gnúpveijahreppi í kvöld, föstudags-
kvöld, í Heimalandi í Rangárvallasýslu
sunnudaginn 6. mars, að Félagslundi í
Gauivetjabæ þriðjudaginn 8. mars og
föstudaginn 11. mars aftur í Aratungu.
Allar sýningarnar hefjast kl. 21 og er
miðasala við innganginn.
Signý Pálsdóttir leikstýrði verkinu
og Hilmar Örn Agnarsson stjórnar tón-
listarflutningi með aðstoð_ fjögurra ann-
arra hljóðfæraleikara. Átján leikarar
flytja tuttugu hlutverk og aðstoðar-
menn eru nokkrir.
í kynningu segir m.a.: „Leikurinn er
í léttum dúr og gerist í rammíslenskri
sveit árið 1906, er sæsímastrengur var
lagður til íslands. Bændur bjuggu enn
að höfðingjasið og allt litróf mannsins
rúmaðist undir einu þaki í torfbæ. Fjöldi
sveitunga kemur við sögu en flókin
ástamál hinnar yndislegu húsfreyju á
Iðavöllum eru meginviðfangsefnið.
Grímnir frumsýnir
„Með vífið í lúkunum“
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi
frumsýnir leikritið „Með vífið í lúkun-
um“ eftir breska rithöfundinn Ray Co-
oney í þýðingu Árna Ibsen, laugardags-
kvöldið 5. mai’s. Leikstjóri er Ingibjörg
Björnsdóttir, leikarar í sýningunni eru
átta en að sýningunni standa fast að
þijátíu manns, allt áhugafólk um leikl-
ist.
Önnur sýning á verkinu verður
mánudaginn 7. mais. Ætlunin er að
ferðast með leikritið um nærliggjandi
byggðarlög. Leikfélagið Grímnir og
Hótel Stykkishólmur hafa tekið hönd-
um saman og bjóða nú sameiginlegan
„pakka"; gistingu, leiksýningu og
kvöldverð.
Tónlist
Opið hús hjá Söng-
smiðjunni
Opið hús verður í nýju húsnæði Söng-
smiðjunnar, Skipholti 25, á morgun,
laugardaginn 5. mai's.
Kl. 13.30 munu u.þ.b. 200 nemendur
safnast saman fyrir utan skólann og
syngja nokkur lög. Þá verður sýni-
kennsla í sölum skólans, þar sem fólki
gefst kostur á að fylgjast með starfsem-
inni og jafnvei taka þátt. Kaffisala
verður við jazzundirleik og ýmsar uppá-
komur.
Þetta er þriðja starfsár Söngsmiðj-
unnar, en starfsemi skólans skiptist í
nokkrar deildir, þ.e. almenn söngnám-
skeið, einsöngsdeild, söngleikjadeild og
barna- og unglingadeild.
Kl. 17 verður ný Grotrian-Steinweg-
flygill Söngsmiðjunnar vigður á tónleik-
unum til styrktar honum. Ýmsir lista-
menn munu koma fram. Þeirra á með-
al verða Hrönn Hafliðadóttir, Hafliði
Jónsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Guðríður Sigurðardóttir og Jóhanna
Linnet.
Um kvöldið verður árshátíð Söng-
smiðjunnar.
Barnakóramót í Víði-
staðakirkju
Barnakóramót verður í Víðistaða-
kirkju á morgun laugardaginn 5. mars.
Um 200 börn úr kirkjum Kjalarness-
prófastsdæmis koma saman til að
syngja. Kórarnir eru Skólakórár Varm-
árskóla og Garðabæjar, Barnakórar
Víðistaðakirkju, Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði, HafnarQarðarkirkju og Grinda-
víkurkirkju. Mótið er eitt af samstarfs-
verkefnum prófastsdæmisins og með
stuðningi þess.
Kórarnir halda svo tónleika í Víði-
staðakirkju kl. 16 á laugardag og kem-
ur þá einnig fram Strengjasveit Tónlist-
arskóla HafnarQarðar, þannig að flytj-
endur á tónleikunum verða á þriðja
hundrað.
Aðgangseyrir verður enginn og eru
allir velkomnir.
Söngdagar í Klepp-
j árnsrey kj askóla
Um helgina verða haldnir söngdagar
í Kleppjárnsreykjaskóla í Reykholtdal,
Borgarfirði. Jón Stefánsson organleik-
ari við Langholtskirkju og Margrét
Bóasdóttir söngkona kenna fólki ætt-
jarðarlög í ljórum röddum auk nokk-
urra laga eftir Björn Jakobsson frá
Varmalæk, en á þessu ári hefði hann
orðið 100 ára.
Allir sem áhuga hafa eru velkomnir,
á hvaða aldri sem er og hvort sem
þeir eru vanir að syngja eða ekki. Sung-
ið verður frá kvöidinu í kvöld og lítil
hvíld tekin fram á sunnudag, en þá
lýkur námskeiðinu með samkomu kl.
15 i Logalandi. Þar verður almennur
söngur og kaffiveitingar í umsjá Kven-
félags Reykdæla.
Þetta er i annað sinn sem Tónlistar-
félag Borgarfjarðar stendur fyrir söng-
dögum af þessu tagi.
Tónleikar Kórs Akur-
eyrarkirkju
Kórtónleikar verða í Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 8. mars kl. 20.30. Flytj-
endur verða Kór Akureyrarkirkju, Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópran og Dóróthea
Dagný Tómasdóttir á orgel. Stjórnandi
er Björn Steinar Sólbergsson. Á efnis-
skránni verða verk eftir Róbert A. Ott-
ósson, Jakob Tryggvason, Sigvalda S.
Kaldalóns, Björgvin Guðmundsson,
Edward Elgar, Lajos Bárdos, Giacomo
Puccini, Gioacchino Rossini og Felix
Mendelssohn.
Bókmenntir
Bokakynmng í Nor-
ræna húsinu
Aldís Sigurðardóttir sendikennari í
dönsku við Háskóla Islands mun kynna
danskar bækur gefnar út á árinu 1993
í Norræna húsinu á morgun laugardag-
inn 5. mars kl. 16.
Danska skáldkonan Suzanne Brogg-
er verður sérstakur gestur og mun hún
segja frá ritstörfum sínum.
I kynningu segir: Frá því að fyrsta
bók hennar kom út árið 1973 hefur
Suzanne Brogger verið einn af athygl-
isverðustu rithöfundum Danmerkur og
eftirlæti danskra Qölmiðla. Hún hefur
verið óspör á yfírlýsingar varðandi sam-
skipti karla og kvenna.
Suzanne Brogger er afkastamikill
rithöfundur en hún hefur einnig fengist
við kvikmyndaleik, blaðamennsku og
verið virk í allri þjóðfélagsumræðu."
Allir eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis.________________________
Kvikmyndir
„Emil í Lönne-
berga“ í Norræna hús-
inu
Sænska kvikmyndin „Emil i Lönne-
berga" verður sýnd í Norræna húsinu
sunnudaginn 6. mars kl. 14.
í kynningu frá Norræna húsinu seg-
ir: „Emil er alltaf af fremja strákapör
og þá er liann iðulega sendur út í smíða-
verkstæðið þar sem hann dundar sér
við að skera út trékalla. Uppátæki
Emils eru óteljandi og honum tekst sí-
fellt að koma manni á óvart."
Kvikmyndin er byggð á bók eftir
Astrid Lindgren. Sýning myndarinnar
tekur um eina og hálfa klst. og er með
sænsku tali.
AUir eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis.