Morgunblaðið - 04.03.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
13
Enn um handhafa
veiðiheimilda
eftir Ágúst Einarsson
og Ragnar Árnason
Þann 11. janúar sl. birtu.þeir Gísli
Pálsson, prófessor, og Agnar Helga-
son, félagsfræðingur, grein í Morg-
unblaðinu þar sem þeir héldu því
fram að botnfiskkvótinn hefði safn-
ast á færri hendur frá því að afla-
heimildir urðu framseljanlegar.
Þessa skoðun byggðu þeir á gögnum
um úthlutun botnfiskkvóta til fyrir-
tækja.
Undirritaðir andmæltu þessari
kenningu í grein í Morgunblaðinu
þann 27. janúar sl. Bentum við m.a.
á að úthiutun kvóta til fyrirtækja
segði ekkert um eignarhald kvótans.
Það sem máli skiptí í því sambandi
væru eigendur útgerðarfyrirtækj-
anna, enda væru það þeir en ekki.
fyrirtækin sem nytu þeirra hlunninda
sem í kvótaúthlutun kunna að fel-
ast. Gísli og Agnar birtu hins vegar
engin gögn um eigendur fyrirtækja,
hvorki um fjölda þeirra né stærðar-
hlutföll. Þar með væru fullyrðingar
þeirra um að botnfiskvótar hefðu
safnast á færri hendur úr lausu lofti
gripnar.
Gísli og Agnar birtu nýja grein í
Morgunblaðinu 8. febrúar sl. þar sem
þeir svara gagnrýni okkar. Þau svör
valda okkur vonbrigðum. Fyrri grein
þeirra félaga var að ýmsu leyti gagn-
legt framlag til skilnings á þróun
íslenskra botnfiskveiða. Síðari grein-
in ber á hinn bóginn meiri keim af
þrætubókalist en áhuga á að upplýsa
lesendur. Við höfum engan áhuga á
að taka þátt í slíkri umræðu en telj-
um okkur þó knúna til að svara þeim
skeytum sem að okkur er beint.
Eigendum
sjávarútvegsfyrirtækja hefur
fjölgað
Gísli og Agnar viðurkenna að gögn
þeirra sýni ekki að eigendum kvóta
hafi fækkað. Þar með hafa þeir fall-
ist á grundvallaratriðið í gagnrýni
okkar. Gögn um úthlutun kvóta til
fyrirtækja fela einfaldlega ekki í sér
upplýsingar um það hvort kvótinn
hafi safnast á færri hendur eða ekki.
Enn síður gefa þau tilefni til þeirra
stórkarlalegu ályktana um málið sem
þeir tefla fram í grein sinni.
Gísli og Agnar draga á hinn bóg-
inn í efa að eigendum kvóta hafi í
raun fjölgað frá upphafi kvótakverf-
isins. I fyrri grein okkar bentum við
á að hluthöfum í sjávarútvegsfyrir-
tækjum hefði fjölgað verulega frá
upphafi kvótakerfisins. Þessa al-
þekktu staðreynd reyna þeir að ve-
fengja með yfirlýsingu um að fjölgun
hluthafa í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa um 200 síðustu tvö ár, sem
við nefndum sem dæmi, megi að
hluta rekja til þess, að Akureyrarbær
hafi selt um 4% af hlutdeild sinni
og „í raun verið að draga sig út úr
fyrirtækinu og í staðinn hafí komið
allt að tvö hundruð „nýir“ hluthaf-
ar.“ Þessi málflutningur er ekki
traustvekjandi. Eignaraðild Akur-
eyrarbæjar í ÚA hefur verið um 58%
um árabil. Hún minnkaði vissulega
lítillega í lok síðasta árs en ekki
vegna sölu hlutabréfa heldur vegna
þess að Akureyrarbær tók ekki að
fullu þátt í síðustu hlutafjáraukningu
félagsins. Hlutdeild Akureyrarbæjar
í ÚA er nú um 53%. Það er því afar
villandi og beinlínis rangt að halda
því fram að Akureyrarbær sé að
draga sig út úr fyrirtækinu og nýir
hluthafar hafi þess vegna komið í
staðinn.
Við getum raunar bætt því við,
úr því að Agnar og Gísli gera sérstak-
ar athugasemdir við dæmi okkar af
ÚA, að hluthöfum annars útgerðar-
fyrirtækis, Skagstrendings hf., sem
er eitt elsta almenningshlutafélag í
sjávarútvegi, hefur fjölgað um hátt
í 300 á síðustu tveimur árum og
þannig meira en tvöfaldast.
Gísli og Agnar virðast ekki hafa
áttað sig á því að stór hluti lands-
manna er nú ýmist beinn eða óbeinn
eigandi að botnfiskkvótanum með
eign í sjávarútvegsfyrirtækjum en
þúsundir landsmanna eru beinir hlut-
hafar. Enn fleiri eiga hlut í sjávarút-
vegsfyrirtækjum með hlutdeild sinni
í hlutabréfasjóðum. Þriðji hópurinn
er eigandi að sjávarútvegfyrirtækj-
um fyrir milligöngu lífeyrissjóða sem
margir hverjir eiga hluti í sjávarút-
vegsfyrirtækjum. Ekki þarf að orð-
lengja það að allri þessari eignar-
aðild, hvort sem hún er bein eða
óbein, fylgir samsvarandi hlutdeild í
þeim gæðum sem í kvótaeign felst.
Hér er um að ræða mjög mikla breyt-
ingu frá því sem var í sjávarútvegi
fyrir aðeins 10 árum. Tal Agnars og
Gísla um að fjölgun hluthafa í sjávar-
útvegsfyrirtækjum sé ósönnuð ber
vott um að þeir hafi hvorki fylgst
með þróun eignarhalds í sjávarút-
vegsfyrirtækjum né hlutabréfamark-
aðinum hérlendis undanfarin ár.
Önnur atriði
í svari sínu frá 8. febrúar freista
þeir Gísli og Agnar þess að drepa
málinu á dreif. Ekki eru tök á að
eltast við það allt nema í mjög iöngu
máli. Við látum okkur því nægja að
stikla á örfáum dæmum
Við bentum á í grein okkar að
tímabilið sem þeir Gísli og Agnar
velja, þ.e. 1991-1994 sé óheppilegt
vegna samdráttar í afla og misvægis
vegna smábáta. Agnar og Gísli leið-
rétta þetta í svargrein sinni þannig
að nú taka þeir til samanburðar allt
tímabilið frá 1984 til 1994. Þetta er
skýrara en þó gleymist veigamikill
þáttur, nefnilega að fyrir 1990 voru
fjölmörg fiskiskip á sóknarmarki
þannig að allur samanburður á út-
hlutuðu aflamarki, sem ekki var allt-
af nýtt, er í reynd ekki mikils virði.
Agnar og Gísli tala í vandlætinga-
tón um að „litlu fyrirtækin neyðast
til að leigja kvóta annarra eða veiða
fyrir stóru fyrirtækin til að geta
haldið rekstri sínum gangandi". Við
bentum á í grein okkar á að hag-
kvæmni í rekstri ræður stærð fyrir-
tækja og leiga kvóta er að jafnaði í
átt að hagkvæmustu fyrirtækjagerð.
Ef lítil fyrirtæki eru hagkvæm þá
Qölgar þeim. Þá þurfa þau væntan-
lega að verða sér út um kvóta frá
stærri fyrirtækjunum. Ferlið snýst
svo við ef stærri fyrirtæki eru hag-
kvæmari. Þá stækka fyrirtæki og
þeim fækkar væntanlega. Sama
máli gegnir um hagkvæmni sérhæf-
ingar sem gæti endurspeglast í sér-
hæfðum veiðiaðilum sem sjá sér hag
í því að veiða leigukvóta. Þetta er
alþekkt og væri fengur að því að
Agnar og Gísli gæfu hinum hagrænu
öflum fiskveiðjstjórnunar meiri gaum
í umræðu sinni.
Ágúst Einarsson
Lokaorð
Grein þeiira Agnars og Gísla sver
sig því miður í ætt við þá einföldu
fullyrðingaumræðu og þrætubókalist
sem er alltof tíð um þjóðmál í fjölmiðl-
um. Jafnframt sjá þeir ástæðu til að
krydda grein sína með stóryrðum eins
og „lénskerfi", „kvótabrask", „ólög-
legt og siðlaust" og „mesta þjófnað
íslandssögunnar“. Þótt þeir beri
vissulega oft aðra fyrir stóryrðunum
verður tæpast sagt að þessi orðanotk-
un gefí til kynna áhuga þeirra á hlut-
Ragnar Arnason
lægri skoðun viðfangsefnisins og
skynsamlegri niðurstöðu umræðunn-
ar. Okkur þykir miður að skoðana-
skipti sem byijuðu ágætlega skuli
með síðustu grein þeirra félaga hafa
tekið þessa stefnu. Við höfum ekki
áhuga á að taka þátt í umræðu af
þessu tagi. Af okkar hálfu verður því
ekki um framhald að ræða.
Höfundar eru prófessorar við
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands.
R E N A U L T
R N
- með hörkuskemmtilegri og sparneytinni 1400 vél.
HAGSTÆÐUSTU
BÍLAKAUP ÁRSINS?
Fallegur fjölskyldubíll á aðeins kr. 1.169.000,-
STAÐALBÚNAÐURINNIFALINN í KYNNINGARVERÐI:
* l400cc vél - bein innspýting.
1 80 hö. din.
► Eyðsla 8,1/100 km, innanbæjar .
* Rafdrifnar rúðuvindur framan.
* Vökvastýri.
* Olíuhæðarmælir í mælaborði.
* 460 lítra farangursrými.
vUtvarp með kassettu.
* Ryðvörn, skráning.
• Fjarstýrðar samlæsingar.
• Fjarstýrðir útispeglar.
• Oryggisbitar í hurðum.
• Vönduð innrétting.
• Snúningshraðamælir.
• Vetrardekk.
• Málmlitur.
• Veghæð 17 cm.
RENAULT
fer á kostum!
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 • Reykjavík • Sími 686633
„Stór hluti landsmanna er nú ýmist beinn eða
óbeinn eigandi að botnfiskkvótanum með eign í
sjávarútvegsfyHrtækjum en þúsundir lands-
manna eru beinir hluthafar.“