Morgunblaðið - 04.03.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
15
Á að útrýma náttúrulegum
laxastofnum við Breiðafjörð?
eftir Árna Baldursson
Vestur í Hraunsfírði við Breiða-
fjörð hefur verið rekin um nokkurra
ára skeið hafbeitarstöðin Silfurlax.
Það hefur ekki farið ýkja hátt um
rekstur þennan nema smáræði, sem
birst hefur í fjölmiðlum um fjölda
slepptra seiða, árangur af seiða-
sleppingum o.s.frv.
Fiskeldið var á allra vörum um
tíma og þóttust menn vissir um að
þessi atvinnugrein ætti eftir að
bjarga þjóðarbúinu. Allir þekkja
eftirleikinn. Flestar þessara fisk-
eldisstöðva urðu fljótlega gjaldþrota
og þjóðarbúið sat eftir með millj-
arðatjón. Örfáar stöðvar urðu lifðu
þó af þessar hremmingar og er Silf-
urlax ein þeirra. Silfurlax hf. hefur
rekið sitt fyrirtæki af mikilli elju
og er ekki að heyra annað en að
menn þar séu tiltölulega ánægðir
með reksturinn sem og margir aðr-
ir aðilar sem áhuga hafa á fiskeldi
og hafbeit. Loks er komið fyrirtæki
sem hefur sýnt og sannað að haf-
beit á íslandi er ekki óraunhæfur
kostur.
Það var fyrst fyrir tveimur árum
að undirritaður fór að heyra sögu-
sagnir um að ekki væri allt með
felldu um hvernig staðið væri að
töku á þeim laxi sem skilaði sér í
þær hafbeitarstöðvar sem enn væru
reknar hér á landi, þar á meðal
hafbeitarstöð Silfurlax hf., en í
grein þessari verður aðallega fjallað
um þá stöð. Sagt var að fískeldis-
stöðvunum gengi illa að fá laxinn
til að ganga í svo til gerða endur-
heimtugildru, laxinn dólaði sér dög-
um saman í sjónum og kæmi ekki
í gildrurnar nema í litlum skömmt-
um í einu. Hermt var að starfsmenn
hefðu brugðið á það ráð að fara
með nót út í sjó á fjöru. Þegar sið-
an sjávarflóðið kom og laxinn leit-
aði upp að landinu þá var nótin
dregin upp og gerð klár þannig að
hún umkringdi laxinn, síðan fjaraði
frá og þegar laxinn hopaði með
fráfallinu lenti hann í nótinni og
komst hvergi. Fyrst þegar þessar
sögur fóru að berast mönnum og
þá aðailega veiðimönnum, komu
menn algjörlega af fjöllum. Gæti
það verið rétt að drepnir væru á
annað hundrað þúsund laxar í sjó
við ísland ár hvert? Mikið var talað
um þetta manna á meðal en það
var hreinlega eins og enginn gæti
trúað þessu, þetta gæti ekki verið
rétt. Ekki hefur verið fjallað um
þetta mál að ráði. Það er engu lík-
ara en að ákveðnir aðilar keppist
um að halda þessu leyndu. Þó hafa
hagsmunaaðilar óskað eftir skýr-
ingum frá Veiðimálastofnun, en þar
hefur jafnan verið fátt um svör.
Ég hef samt alltaf staðið í þeirri
bjargföstu trú að Veiðimálastofnun
hafi upphaflega verið sett á laggirn-
ar til að vernda íslenska laxa og
silungsstofna, en ekki að róa undir
atvinnuvegum sem geta stofnað
stofninum í hættu.
Samkvæmt lögum eru laxveiðar
í sjó bannaðar. Hafbeitarstöðvarnar
virðast þó stunda þessar sjávarveið-
ar með fullu samþykki yfirvalda þar
sem Veiðimálastofnun hefur í um-
boði Landbúnaðarráðuneytis gefið
út undanþágur, þar sem hafbeitar-
stöðvunum er heimilt að fara út í
sjó með þessi net, allt að 200 m frá
frárennsli stöðvanna, sem þýðir að
þeim er fijálst að valsa um með
netin fleiri hundruð metra ef ekki
kíiómetra á stórstraumsfjöru. Það
sér náttúrulega hver maður sem
eitthvað hefur kynnt sér þessi mál,
hversu óréttlát þessi veiðiaðferð er.
Það er löngu sannað mál að laxinn
hefur yfir að ráða fullkomnasta
þefskyni sem um getur í dýrarík-
inu. Viðkomandi hafbeitarstöð á
ekki að geta slegið eign sinni á all-
an þann lax sem er í sjónum fyrir
utan stöðina. Reynum að skýra
þetta. Þegar laxinn hefur gengið
úr sjónum upp í ferskvatn, þaðan
sem hann upphaflega gekki til sjáv-
ar sem gönguseiði, þá er engum
blöðum um það að fletta hver á fisk-
inn. En hafbeitarstöðvarnar telja
sig ekki geta beðið eftir þessum
úrskurði náttúrunnar hver á hvað,
heldur er vaðið út í sjóinn með net-
ið hvern þann dag sem verður vart
við fisk og hann hirtur, ekkert
kemst undan. Nú er það þekkt að
laxinn er hópfiskur og kemur hann
oft á tíðum í stórum torfum upp
að landinu í leit að æskustöðvunum,
síðan dreifist hann í hópum hver í
sina á. Það er því nokkuð líklegt
að hafbeitarstöðvarnar taki toll af
náttúrulegum fiski sem þær eiga
ekki tilkall til.
Oft á tíðum getur skapast þurrk-
ástand í ánum svo vikum skiptir.
Þá gengur sá lax sem er kominn
upp að ströndinni ekki í árnar, held-
ur lónar með ströndum fram í stór-
um torfum, sem fylgja sjávarföllum.
Alltaf stækka torfurnar og loksins
þegar rignir þá notar laxinn tæki-
færið og fer upp í árnar. Þessi lax
getur auðveldlega í þessu ástandi
blandast öðrum torfum svo sem
hafbeitarfiski og endar svo ævidaga
sína sem ísfiskur tilbúinn til útfiutn-
ings.
Ég hef ásamt öðrum orðið vitni
að því að í nokkur skipti, þegar
vænar iaxagöngur hafa komið upp
í Laxá í Kjós og gengið upp ána
framhjá ós í Bugðu (sem rennur í
Laxá, 1 km frá sjó). Þegar gangan
var komin nokkur hundruð metra
upp fyrir ós Bugðu í Laxá komst
mikið rót á laxinn. Eftir dálitla
stund slitnaði hluti af göngunni og
tók að synda niður ána á mikilli
ferð og renndi sér síðan upp í sína
heimaá sem var Bugðan. Þetta sýn-
ir að laxatorfurnar geta ferðast
saman og jafnvel ruglast augnablik
á milli ósa. Ef þessi ganga hefði
fylgt göngu hafbeitarlaxa hefði hún
aldrei komist á sínar heimaslóðir.
Umtalað er meðal veiðimanna
sem stundað hafa laxveiðiárnar við
Breiðafjörð síðastliðin ár, hversu
lítið af fiski hefur gengið í árnar,
t.d. í Laxá í Dölum sem er þekkt
stóriaxaá. Þá var frekar lítill lax i
ánni síðasta sumar og nánast ekk-
ert af stórlaxi. Á sama tíma-er
metveiði (á endurheimtum) í liaf-
beitarstöð Silfurlax og óvanalega
mikið af vænum tveggja ára laxi.
Hafbeitarstöðin fær góðar endur-
heimtur á sleppiseiðum, en aftur á
móti skila náttúruleg seiði sér illa
í upprunaár sínar. Staðið er vel að
sleppingum í ár við Hvammsfjörð,
endurheimtur eru ekki í samræmi
við þær heimtur sem hafbeitarstöð
Silfurlax fær. Þetta gefur tilefni til
að ætla að hafbeitarstöðin taki ein-
hvern toll af náttúrulegum laxi úr
ánum í nágrenninu.
Ef við gefum okkur einhveijar
forsendur hvað þessi tollur gæti
verið mikill, t.d. ef við förum mjög
varlega og gefum okkur það 95%
af laxinum sem tekinn er í netið
séu sleppiseiði og um 5% af laxinum
séu villtir laxar úr ánum, þá er
útkoman sú, að af þeim 100.000
þúsund löxum sem talið er að hafi
komið í nót þeirra Silfurlaxmanna
á síðastliðnu sumri eru 5.000 villtir
laxar teknir sem annars gengju i ár
í Hvammsfirðinum, 5.000 laxar er
nánast allur laxastofn ánna í
Hvammsfirði. Ef þessi kenning á
við rök að styðjast þá liggur það
beint við að laxinn á þessu svæði er
í bráðri útrýmingarhættu. Þetta er
auðvitað leikur að tölum en skýrir
samt alvöru málsins. Laxar gætu
verið færri eða þá töluvert fleiri,
en hitt er þó víst að umtalsvert
magn af villtum laxi hlýtur að
slæðast með í aflanum.
Nú spyr ég, hvernig stendur á
því að sönnunarbyrði hafbeitar-
stöðvanna virðist nánast engin? Það
gefur augaleið að þegar laxinn er
halaður upp á þennan hátt hlýtur
Árni Baldursson
„En hvað er að gerast
hér á landi: 300.000 lax-
ar hafa verið háfaðir
upp síðastliðin tvö ár í
hafbeitarstöðvunum og-
þeir flestir veiddir í
söltum sjó. Þar að auki
eru um 6.000-7.000
laxar veiddir I neta-
lagnir í Hvalfirði og á
ósasvæði Langár á Mýr-
um.“
það að vera réttlát krafa allra hags-
munaaðila villta laxins að hafbeitar-
stöðvarnar sanni að þær eigi tilkall
til þessa fisks. Þetta er hægt að
gera með því að taka hreistursýni
af veiddum löxum og aldursgreina
fiskinn. Sleppifiskur er yngri heldur
en villtur fiskur. Villt seiði dvelja
lengur í ferskvatni heldur en seiði
sem alin eru upp í fiskeldistöð. Frá
aldursgreiningu á að vera hægt að
sjá mun á hafbeitarlaxi og villtum
laxi. Einnig má örmerkja þau seiði
sem sleppt eru til hafbeitar til að
taka af allan grun. í raun þyrfti
ekki að leggja út í þennan kostnað
nema kannski i 2-3 ár eða á með-
an rannsóknir stæðu, sem skæru
úr um hvort stöðvar þessar eru í
raun að veiða villtan lax. Ef þessar
stöðvar væru reknar samkvæmt
lögum og laxinn yrði að ganga alla
leið upp í ferskvatn áður en honum
er slátrað, þá væru þessi orð óþörf.
Enginn ætti þá að efast um að við-
komandi ætti fiskinn með réttu.
Ef hins vegar kemur í ljós að stöðv-
arnar taka villtan fisk, þá verður
að stöðva þessar veiðar strax áður
en það verður um seinan.
Furðulegt í þessu máli er að ein-
hvetjar rannsóknir ltafa verið í
gangi. Hreistursýni hafa verið tekin
af fjölda laxa, en legið er á niður-
stöðunum. Veiðimálastofnun hefur
verið beðin um þessar upplýsingar
af hagsmunaaðilum, en stofnunin
hefur svarað því til að þetta sé trún-
aðarmál. Getur verið að legið sé á
þessum upplýsingum vegna þess
að komið hefur í ljós að villtir laxar
séu i aflanum? Annað er að þegar
tekin eru hreistursýni til rannsókn-
ar í svona viðkvæmu máli verður
það að vera gert af hlutlausum
aðila, því oft má auðveldlega sjá
hvort laxinn er villtur eða hafbeitar-
lax.
Áreigendur við Hvammsfjörð
liafa lagt mikinn kostnað í árnar,
vegna ýmissa rannsókna svo og
vegna seiðasleppinga til að styrkja
laxastofninn. Þetta starf er búið að
vinna svo ártugum skiptir. Allt í
einu er komin hafbeitarstöð til
skjalanna sem virðist ógna þessu
lífríki og hún fær umsvifalaust
starfsleyfi og það án undangeng-
inna rannsókna á vatnasvæði
Hraunsfjarðar. Ef laxinn gengur
illa inn í stöðina, þá er það ekkert
stórmál, bara gefin út undanþága
frá lögum. Farið með net í sjóinn
og fiskurin sóttur. Fiskirækt og
rannsóknum á þessu svæði er hent
fyrir róða vegna einnar hafbeitar-
stöðvar sem er að stórum hluta í
eigu erlendra aðila.
Flestir vita hvað íslenski laxinn
er verðmætur. Hingað flykkjast
erlendir veiðimenn í stórum hópum
til að komast í tæri við konung allra
fiska, Atlantshafslaxinn. Þessir
menn borga stórar upphæðir til að
fá að veiða hér á landi, íslandi,
Mekka allra laxveiðimanna. Tekjur
þessar skipta hundruðum milljóna
króna á ári í gjaldeyri fyrir þjóðar-
búið. Á meðan hafbeitarstöðvarnar
fá 1.000 til 2.000 krónur fyrir hvern
veiddan lax, þá gefur hver lax
veiddur á stöng upp úr íslenskri
laxveiðiá 10 til 20.000 krónur, fyr-
ir utan alla þjónustu sem veiðimenn
greiða háu verði. Hér er verið að
tala um verulega hagsmuni sem
getá tapast ef ekki er rétt að málum
staðið.
Síðastliðið ár er íslenska ríkið
búið að ausa ómældum fjármunum
í misheppnaða atvinnuvegi, þar á
meðal má nefna minka- og refrækt-
ina og núna síðst fiskeldið. En nú
stefnir í það að þjóðarbúið hafi
ekki bara tapað öllum þessum fjár-
munum, heldur ætlar þessi mis-
heppnaði atvinnuvegur að eyði-
leggja atvinnuvegi sem hafa
blómstrað árum saman og það án
lánsfjár frá ríkissjóði. Góð fjárfest-
ing það eða hitt þó heldur.
Erlendis hafa íslandingar um
árabil verið taldir alþjóðlegur frum-
kvöðull um verndun villtra laxa-
stofna. Við höfum vakið athygli og
aðdáun um allan heim vegna okkar
ströngu lax- og silungsveiðilaga,
svo sem um stangafjölda og veiði-
tíma, en þó aðallega fyrir það sem
við mest hreykjum okkur af, lax-
veiðar í sjó eru bannaðar. Greinar
hafa verið skrifaðar í fjölmörg er-
lend tímarit þar sem okkur Islend-
ingum er hælt á hvert reipi og þeir
hafa viljað læra og gera það sama
og við.
En hvað er að gerast hér á landi:
300.000 laxar hafa verið háfaðir
upp síðastliðin tvö ár í hafbeitar-
stöðvunum og þeir flestir veiddir í
söltum sjó. Þar að auki eru um
6.000-7.000 laxar veiddir í neta-
lagnir í Hvalfirði og á ósasvæði
Langár á Mýrum. Þessi laxafjöldi
er margfaldur íslenski laxastofninn.
Netalagnirnar eru aðeins kippkorn
frá laxveiðiánum. í þurrkatíð þegar
laxinn gegnur ekki í árnar, þá veiða
þessar lagnir aftur og aftur laxa
úr sömu göngunni þegar torfurnar
dóla sér með ströndum fram.
Á Suður- og Vesturlandi eru
þtjár stórtækar- hafbeitarstöðvar
sem veiða nú um 150.000 laxa á
ári, en þær eru Vogavík, Kollaijarð-
arstöðin og Silfurlax. Allar þessar
stöðvar eru staðsettar í gönguleið
villtra laxa.
Hin ríkisrekna hafbeitarstöð,
Kollaljarðarstöðin, er í farabroddi
í þessum sjávarveiðum. Oft hefur
manni orðið hverft við þegar leiðin
liggur um Vesturlandsveg framhjá
hafbeitarstöðinni í Kollafirði. Þar
stekkur lax um allan sjó, en hvað
er að sjá. Þeir draga fyrir laxinn
með nótum og tæki eru önnum
kafin við að hala laxinn upp í kör
þar sem hann bíður slátrunar. Allt.
í kring eru laxveiðiár, þar sem veiði-
menn bíða eftir laxagöngunum.
Þessir veiðimenn verða að bíða
þangað til að aðstæður verði þann-
ig að laxinum þóknist að ganga.
Flestum er kunnugt um það
geysistóra átak sem hefur verið
gert í kaupum á úthafskvótum víðs-
vegar. Þar hafa mörg lönd stillt
saman strengi sína og safnað
hundruðum milljóna til kvótakaupa.
Að Alþjóðakvótakaupanefndinni
standa ýmis stangaveiðifélög og
veiðiréttarhafar í viðkomandi lönd-
um. íslendingum hefur verið treyst
til að hafa forystu í þessum málum,
með Orra Vigfússyni í fararbroddi
sem reynst hefur óþreytandi að
koma samningum heim og saman.
Hefur honum tekist það sem flest-
um þótti ganga kraftaverki næst,
að kaupa upp laxakvóta Færeyinga,
svo Grænlendinga, auk þess að
hafa unnið að mörgum öðrum mál-
um, svo sem sjóræningjaveiðum
Dana á laxi milli Færeyja og ís-
lands. Orri Vigfússon og kvóta-
kaupin hafa vakið verðskuldaða
athygli í flestum erlendum veiði-
tímaritum. Virtasti félagsskapur i
heimi um verndun laxastofna er án
efa Atlantic Salmon Federation.
Eins og nafnið bendir til hefur þessi
alþjóðlegi félagsskapur sett á odd-
inn verndun á Atlantshafslaxinum.
ASF gefur út tímaritið Atlantic
Salmon Journal. Þar hefur verið
mikið fjallað um forystu og dugnað
okkar Islendinga í þessum málum.
Allt er gott á yfirborðinu, en
þegar betur er að gætt þá kemur
í ljós að við íslendingar göngum
ekki hreint til verks í þessum mál-
um. Á meðan við vinnum þrekvirki
á alþjóðavettvangi erum við með
allt niður um okkur hér heima. Ég
hef haft þá atvinnu um árabil að
skipuleggja veiðiferðir fyrir erlenda
veiðimenn. Þeir fara ekki varhluta
af þessum váfréttum þegar _þeir eru
hér að veiðum á sumrin. Ég lendi
nú í því hvað eftir annað að gefa
þeim skýringar á því hvað er hér á
seyði. í þessari aðstöðu sem ég er,
geri ég mitt besta til að gera sem
minnst úr þessum málum, en nú
dugir það ekki til. Þessir menn
kreljast skýringa, þeir hafa greitt
það hæsta verð sem um getur fyrir
að veiða lax. Þá peninga reiða þar
fram í þeirri trú að þeir séu í landi
þar sem lax er friðaður fýrir sjávar-
veiðum.
Ég vona að þessi grein verði til
þess að vekja einhveija til umhugs-
unar um hvort ekki sé vert að taka
á þessu máli áður en laxastofnar
hljóta varanlegt tjón af.
Höfundur er áhugamaður um að
banni við laxveiðum ísjó sé
framfylgt.