Morgunblaðið - 04.03.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
21
Loðnubræðsla
Hagnaður hjá Krossanesi
HAGNAÐUR af rekstri Krossaness hf. á Akureyri nam á síðasta ári
tæpum 8,7 milljónuin króna þegar tekið hafði verið tillit til fjármagns-
kostnaðar, en aðalfundur félagsins var haldinn í síðustu viku. Heildar-
tekjur voru 466 milljónir og heildargjöld 396 þannig að hagnaður fyr-
ir fjármagnsliði var 70 milljónir samanborið við 17,6 milljónir árið
1992. Þá varð tæplega 54 milljóna tap af rekstrinum eftir að tekið
hafði verið tillit til fjármagnskostnaðar.
Samkvæmt efnahagsreikningi
námu skuldir í árslok 1993 354 millj-
ónum. Langtímaskuldir eru 300
milljónir og skammtímaskuldir um
54 milljónir. Jóhann Pétur Andersen,
framkvæmdastjóri Krossaness, segir
að skuldir fyrirtækisins hafí lækkað
á síðasta ári, bæði vegna þess að
staðið hafí verið í skilum með afborg-
anir og vegna þess að Akureyrarbær
kom þá inn í reksturinn með nýtt
hlutafé upp á 100 milljónir sem nýtt
Fyrirtæki
Flutnings-
miðlunin í
nýtthúsnæði
FLUTNINGSMIÐLUNIN hf. Hyt-
ur í dag starfsemi sína frá
Tryggvagötu 26, þar sem fyrir-
tækið hefur verið til húsa í 12 ár,
að Skútuvogi 1 í Reykjavík (Heild
3). Um leið mun fyrirtækið hefja
rekstur eigin vörugeymslu fyrir
ótollafgreiddar vörur. Þannig
verða allar vörusendingar sem
koma til landsins í nafni fyrirtæk-
isins settar beint í eigin geymslu
þess og afgreiddar þaðan til við-
skiptavina.
var til að greiða niður langtímaskuld-
ir. Jóhann Pétur segir skuldastöðuna
viðunandi miðað við útlitið í grein-
inni og að fyrirtækið ætti að geta
staðið undir greiðsluskuldbindingum
sínum. Eigið fé Krossaness var í
árslok um 104 milljónir króna og
eiginfjárhlutfallið því 22%.
Krossanes tók á siðasta ári á
móti 49 þúsund tonnum af hráefni.
Þar af var loðnan um 38 þúsund
tonn og annað hráefni var t.d. bein,
rækjuskel og lifur. Árið 1992 var
heildarhráefnið 46 þúsund tonn.
Biimia na rthimiii
k 10 IdÍK.
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR NÝBAKAÐ
Samhliða flutningunum mun
Flutningsmiðlunin fyrst íslenskra
flutningsmiðlara, taka upp pappírs-
laus viðskipti við Tollstjóraembættið
varðandi tollafgreiðslur. Með SMT-
téngingu (skjalasamskiptum milli
tölva) verða tollafgreiðslur miklu
fljótvirkari og öruggari en áður, og
taka jafnvel aðeins nokkrar mínútur,
að því er segir í fréttatilkynningu.
Flutningsmiðlunin hefur um árabil
séð um gerð tollskýrslna fyrir fjölda
íslenskra fyrirtækja, stórra sem
smárra, og mun með þessu skrefi
fára enn frekar inn á þá braut. Fyrir-
tækið hefur í gegnum árin komið sér
upp víðfeðmu þjónustuneti erlendis,
með sínum samstarfsaðilum. Er þar
bæði um að ræða skipa-, flug-, hrað-
eða safnsendingar.
Helstu samstarfsaðilar Flutning-
smiðlunarinnar eru Frans Maas í
Hollandi, Federal Express, Burling-
ton Air Express og WACO (World
Air Cargo Organization).
Flutningsmiðlunin hf. var stofnuð
í apríl 1980 og vinna þar nú 10
starfsmenn. Fyrirtækið sér um flutn-
ing og þjónustu á um 15-20 þúsund
sendingum á ári og nam veltan 269,8
milljónum króna á árinu 1993. Fyrir-
tækið hefur ávallt verið rekið með
hagnaði utan eitt ár (1989), segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
^^"Vaskhugi
íslenskt bókahaldsforrit!
Fjárhags-, sölu-, launa-, birgða-,
viðskiptamannakerfi og margt fleira er
í Vaskhuga. Einfalt og öruggt í notkun.
Vaskhugi hf. Sími682 680
A/7els|.
MastZ^ucke
zers*ykker
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað. Settu HATTING smábrauð eða
rúnstykki í ofninn og aðeins 10 mín. síðar er brauðið tilbúið, nýtt og rjúkandi á borðið.
Tryggðu þér miða
þú mátt bara til.
HAPPDRÆTTI
HASKOLA ISLANDS
vænlegast til vinnings
ÖRKIN 1012