Morgunblaðið - 04.03.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
23
Reuter
Svalandi sólbað
RÚSSNESKIR sóldýrkendur njóta lífsins á bökkum árinnar Nevu í
miðhluta Pétursborgar í gær, þrátt fyrir 16 gráðu frost. Borgin var
lengi þekkt fyrir harðsnúinn hóp fólks sem stundaði böð i ánni á vet-
urna og braut þá gat á ísinn en ekki er vitað hvort mengun í ánni
hefur eitthvað dregið úr ákafanum síðari ár. Samkvæmt rússneskri
hefð telst 1. mars vera upphaf vorsins.
Yill skila „Öpinu“
fyrir 80 milljónir
Ósló. Rcuter.
Menningarmálaráðherra Nor-
egs, Aase Kleveland, sagði í gær
að maður hefði boðist til að sjá
til þess að „Ópi“, málverki Ed-
vards Munchs, yrði skilað, fengi
hann sem svarar áttatíu milljón-
um króna fyrir vikið. Verkinu
var stolið i síðasta mánuði úr
Ríkislistasafninu í Osló.
Erfíngjar Pasternaks
Rifíst við
aldraða
ástkonu
ERFINGJAR rússneska Nó-
belshöfundarins Borísar Past-
ernaks eiga nú í deilum við 81
árs gamla konu, Olgu
Ivínskaju, um handrit og bréf
úr fórum skáldsins en ritin eru
talin vera andvirði hundraða
milljóna króna. Ivínskaja var
ástkona Pasternaks frá því
skömmu eftir heimsstyijöldina
síðari, að sögn vikublaðsins
The European.
Pasternak
varð heims-
frægur er
skáldsaga
hans, Sívagó
læknir, kom út
á Vesturlönd-
um 1957 en
henni var
smyglað frá
Sovétríkjunum. Ári síðar fékk
Pasternak Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum en fékk ekki leyfi
til að fara úr landi og taka við
þeim í Stokkhólmi.
Skjölin sem deilt er um eru
m.a. handrit Pasternaks að
Sívagó auk 130 sendibréfa sem
Ivínskaja fékk til varðveislu eftir
andlát skáldsins 1960. Ívínskaja
var fangelsuð skömmu seinna og
borin ýmsum sökum. Skjölin hafa
síðan flest verið í opinberri
geymslu.
Langt er síðan Ívínskaja fékk
uppreisn æru og nú krefst hún
þess að fá skjölin aftur. Natalja
Pasternak, eiginkona yngsta son-
ar rithöfundarins, veitir forstöðu
minningasafni um Pasternak
skammt frá Moskvu og vill að
bókmenntafræðingar geti fengið
aðgang að skjölunum þar. Hún
fullyrðir að tengdasonur
Ivínskaju, sem er Frakki, muni
selja skjölin úr landi; Ívínskaja
hafi þegar selt safni í Georgíu
nokkur rit sem hún hafi fengið
afhent.
Borís Pasternak.
Það var Tor Erling Staff, lög-
fræðingur mannsins, sem hafði
samband við yfirvöld. Kvaðst lög-
fræðingurinn telja að maðurinn
gæti raunverulega skilað verkinu.
Kleveland neitaði að tjá sig um það
hversu áreiðanlegt hún teldi tilboðið
en því fylgdu engar tryggingar fyr-
ir því að maðurinn stæði við ætlun-
arverk sitt.
Dagbladet hafði eftir Staff að
skjólstæðingur hans krefðist um 2%
af áætluðu söluvirði málverksins,
sem blaðið segir metið á um 4 millj-
arða ísl. króna. Sagði lögfræðingur-
inn að maðurinn hefði ekki stolið
„Ópi“ og að hann hefði það ekki í
fórum sínum. „Eg vonaðist satt
best að segja til þess að þetta kæm-
ist ekki í hámæli. Best hefði verið
ef samningaviðræður við yfirvöld
hefðu getað farið fram án vitneskju
íjölmiðla," sagði Staff sem kvaðst
hafa tekið málið að sér eftir langa
umhugsun, þar sem hann teldi það
vera hag þjóðarinnar fyrir bestu að
endurheimta verkið.
Ekki er ljóst hvort gengið verður
til samninga við manninn en það
er undir stjórn Ríkislistasafnsins
komið. Yfirvöld höfðu boðið sem
svarar 2 milljónum þeim sem gætu
gefið upplýsingar um hvar verkið
er niðurkomið. Hafa lögreglu borist
um 30 vísbendingar en hún telur
enga þeirra vera áreiðanlega.
Listsltautar
Tvöfaldur leöurskór
Hvítir
St 27-33, kr. 3.850,-
St. 35-42, kr. 4.370,-
Svartir
St. 35-38, kr. 4.370,-
St. 39-46, kr. 4.050,-
5% staðgreiðsluafsláttur,
g einnig af póstkröfum
* greiddum innan 7 daga.
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ . SÍMI 812922
lcu 11lANIUM gleraugnaumgjarðir
AIR^tÍÍaNÍU^M vil^a létt °8 Þæ8i,e§ g|erau8u' hvort sem er við vinnu, formleg tækifæri eða íþróttaiðkun.
er góð lausn fyrir þá, sem hingað til hafa ekki getað með góðu móti þolað hefðbundnar
gleraugnaumgjarðir vegna þyngsla á nefi eða hafa nikkelofnæmi. Við val á þessum heimsins léttustu gleraugna-
umgjörðum getur viðskiptavinurinn valið úr fjölda lita og haft lögun glerja að eigin vild.
ANNA OG ÚTLITIÐ
veitir ráðleggingar um liti og lögun gleraugna í Gleraugnaversluninni í Mjódd,
Álfabakka 14, í dag, föstudag, 4. mars.
GL6RRUGNRV6RSLUN í /VUÓDD
GL6RRUGNRV6RSLUN K6FLRVÍKUR