Morgunblaðið - 04.03.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
29
sjálfsákvörðunarrétti íslendinga
heldur felur þessi eilífðarvél (afnota-
gjaldið) í sér sjálfvirkt tekjustreymi
til Ríkisútvarpsins, alveg sama
hvernig árar hjá öllum öðrum í land-
inu. Það er einnig að mínu mati þessi
sjálfvirkni í tekjuöflun sem hefur
slævt rekstrarvitund þeirra sem hafa
haldið um ijármál þessarar stofnunar
með þeim árangri að varla sjást ann-
að en taptölur frá rekstri Ríkisút-
varpsins.
En í krafti þessarar tekjulegu sér-
stöðu leikur Ríkisútvarpið einnig al-
gerlega lausum hala á almennum
auglýsinga- og kostunarmarkaði.
Engu er eirt. Fjárþörfin eykst stöð-
ugt, engin bönd halda rekstrinum í
skefjum.
Mín skoðun er sú að ef Ríkisút-
varpið á að vera til sem ríkisstofnun
ætti hún að vera á ijárlögum og
vera þannig háð sömu hagsveiflum
og aðrir íslendingar á hveijum tíma.
Að auki ætti stjómendum stofnunar-
innar ekki að líðast að leggja fram
áætlanir sem byggjast á taprekstri.
Fyrir þá sem eru að keppa á þessum
sama markaði, bæði ljósvakamiðlar
og dagblöð, er það óþolandi að sjá
Ríkisútvarpið á kostunar- og auglýs-
ingamarkaði í skjóli skattalegrar sér-
stöðu. Mig furðar á að á sama tíma
og Ríkisútvarpið talar um sérstöðu
pína gagnvart öllum öðrum að stofn-
unin skuli þá vilja lúta þeim lögmál-
um sem gilda á hinum almenna við-
skiptamarkaði. Þeim væri hollt að
líta til nágranna sinna hjá BBC í
þessum efnum.
Næsti stóri ágreiningsliður minn
við nefndina er liður númer 6 í erind-
isbréfí útvarpslaganefndar og heitir
„Hvernig tryggja megi sem jafnasta
aðstöðu ljósvakamiðla hér á landi“.
Liðir 9 og 12 falla inn í sama lið.
Nefndin telur, að það að setja
skorður við því að hægt sé að stela
lokaðri dagskrá Stöðvar 2 hafí eitt-
hvað með jöfnun samkeppnisaðstöðu
að gera. Því er ég algerlega ósam-
mála. Það að banna þjófnað í hvaða
mynd sem er ætti að teljast eðlilegt
réttlætismál í samfélagi eins og okk-
ar og hefur ekkert með samkeppnis-
mál að gera. Ef svo væri ekki þá
væri hinn valkosturinn að lögleiða
réttinn til að stela. Um þetta ætti
vart að þurfa að ræða nema af gefnu
tilefni, því miður.
Þá telur nefndin stofnun Dag-
skrárgerðarsjóðs vera bætta sam-
keppnisstöðu fyrir einkamiðlana.
Mér fínnst lítið til koma, því Ríkisút-
varpið getur fengið óbeina úthlutun
úr sjóðnum gegnum samstarf við
sjálfstæða dagskrárgerðarmenn.
Fróðlegt verður að mæla gildi þessa
ákvæðis í framtíðinni í dagskrá Rík-
isútvarpsins. Ég hefði talið eðlilegt
samkeppnisumhverfi tryggustu leið
til eflingar innlendrar dagskrárgerð-
ar, í stað þessa endalausa sjóðafarg-
ans, á þessu sviði sem öðrum í þjóð-
félaginu, og er ævinlega lakara
starfsumhverfi en ákvörðun um heil-
brigt viðskiptalíf. Sértækar lausnir,
svo sem sjóðatilbúnaður, eru ófagleg-
ar lausnir á óvönduðum ákvörðunum.
Til sanns vegar má færa að afnám
Menningarsjóðsins bæti almennt séð
örlítið úr fyrir einkastöðvarnar en
þó hlutfallslega meira fyrir Ríkisút-
varpið vegna hærra auglýsingahlut-
falls af tekjum. Aðrir telja að einung-
is sé þar um að ræða eðlilega leiðrétt-
ingu á óveijandi fyrirkomulagi sem
var pólitískur bastarður við tilbúning
laga um frelsisgjöf í ljósvakamiðlun
um miðjan síðasta áratug.
Tilraunir til að hefta fyrirferð Rík-
isútvarpsins á auglýsinga- og kost-
unarmarkaði með virkum tímatak-
mörku'num mistókust með öllu þó
það væri raunhæfasta leiðin til jöfn-
unar samkeppnisstöðu einkamiðl-
anna gagnvart Ríkisútvarpinu og sú
hreinlegasta eins og mál standa mið-
að við að afnotagjaldakerfinu verði
viðhaldið. Af hveiju ekki Ríkis-
útvarpið ef BBC getur forsvarað
þetta fyrirkomulag? Er það skylda
ríkisins að dreifa auglýsingum um
iandið þvert og endilangt?
Ég tel eins og fram er komið allar •
raunhæfar tilraunir til jöfnunar þessa
hróplega misréttis á milli Ríkisút-
varpsins annars vegar og einkastöðv-
anna hins vegar hafa mistekist með
öllu.
Eins og fram er komið tel ég því
starf útvarpslaganefndar hafa mis-
tekist í megindráttum. Ég er þeirrar
skoðunar að í nútíma samfélagi eigi
íslenska ríkið ekkert erindi í útvarps-
rekstur, en hefði jafnvel getað hugs-
að mér að lifa við þann veruleika,
ef útvarpslaganefndin hefði haft ein-
hvern minnsta áhuga á að afnema
þá gegndarlausu mismunun sem er
á samkeppnisstöðu Ríkisútvarpsins
og einkareknu ljósvakamiðlanna.
Þvert á móti mun nefndin leggja til
að núverandi misrétti verði áfram
lögbundið í öllum megin atriðum. Því
er borið við að ekki sé pólitískur vilji
á alþingi íslendinga til að breyta lög-
vörðu rekstrarmisrétti þessarar
starfsgreinar innbyrðis. Misskilning-
urinn stóri hjá mér var að ég taldi
það hlutverk stjómmálamanna að
gera ávallt sitt ítrasta til að skapa
sem eðlilegast starfsumhverfi aðila
innan sömu greinar. Mér finnst því
skrýtið ef stjórnmálamenn einsettu
sér að staðfesta lög um eins mikið
misrétti og frekast er unnt í þessum
efnum. Einhvers staðar skortir sam-
hengi í yfirlýsingar og efndir.
Ýmis önnur ágreiningsatriði mætti
nefna til viðbótar þeim sem hér hef-
ur verið fjallað um en ég tel óþarft
að fjölyrða um þau vegna tiltölulega
lítils vægi þeirra í heildarsamheng-
inu.
Þó langar mig að endingu til að
leiðrétta þann misskilning sem fram
kemur í texta nefndarinnar og er svo
hljóðandi; „Er þessi breyting gerð í
samræmi við þá skoðun útvarpslaga-
nefndar að Ríkisútvarpið gegni best
því hlutverki sínu að vera samnefn-
ari þjóðarinnar...“ Ég hafna því al-
gerlega að Ríkisútvarpið sé þessi
samnefnari eða eigi yfir höfuð að
vera það. Það er vart að undra þó
lítið hafí gengið í átt til upphaflegra
markmiða nefndarinnar, sbr. erindis-
bréf hennar, þegar texti sem þessi
er til í hugskoti manna.
Jóhann ÓIi Guðmundsson.
íslcindskostur
rcrmingar
Verö frá 1400 kr. á mann
(>1 48 49
VERSLUN í BORGARKRINGLUNNI. SÍMI 677340
Minnmg
Guðmundur Jón
Dan Marsellíusson
Fæddur 26. október 1927
Dáinn 22. febrúar 1994
í faðmi fjalla blárra,
þar freyðir aldan köld,
í sölum hamra hárra
á huldan góða völd,
sem lætur blysin blika
um bládimm klettaskörð,
er kvöldsins geislar kvika
og kyssa Isafjörð.
(Guðmundur Guðmundsson)
Nú ert þú farinn. Eftir stutt en
erfið veikindi hefur þú fengið hvíld.
Við systkinin viljum þakka þér fyr-
ir samfylgdina. Það verður erfitt
að sætta sig við að fá ekki hring-
ingu frá þér og spjalla í símann um
heima og geima, eins og oft eftir
að þú fluttir til Sandgerðis. Alltaf
glaður og reifur.
Samverustundirnar okkar hér á
ísafirði voru ljúfar, en hér bjóst þú
62 ár. Þú varst stoð okkar á erfiðum
stundum og manna glaðastur á
góðra vina fundum. Það er stór
systkinahópur sem kveður þig nú.
Við þökkum þér hlýjuna og alla
þína vináttu. Eftir sitja minningar
um góðan bróður. Við þökkum fyr-
ir að hafa átt þig að um stund.
Guð blessi minningu þína.
Jónína, Áslaug, Krislján,
Kristín, Helga, Högni,
Bettý, Þröstur, Sigurður
og Messíana.
í dag, 4. mars, kveðjum við elsku
afa okkar, Guðmund Marsellíusson,
sem lést eftir stutta legu á Borgar-
spítalanum 22. febrúar sl.
Það eru tæp 5 ár síðan afi og
amma fluttust frá Isafirði hingað
til Sandgerðis og mikið hefur okkur
barnabörnunum þótt gott að hafa
ykkur svona nálægt okkur. Það var
svo stutt að skjótast yfir og fá sér
skyr í hádeginu með afa og líka
þegar við vorum búin í skólanum
að koma við og fá afaköku. Líka
voru margar ferðir farnar í vinnu-
húsið hans afa og þá sérstaklega
síðasta sumar, þegar við vorum að
byggja kofann okkar, þá var alltaf
leitað til afa ef eitthvað vantaði og
aldrei fórum við tómhent til baka.
Elsku afi okkar, þó varst okkur
alltaf svo góður, við trúum því að
nú líði þér vel og þú gangir léttstíg-
ur um hjá Guði.
Guð geymi þig.
Elín Björg, Veigar,
Albert og Rúnar.
Bílvelta í
FÓLKSBÍLL valt á veginum
skammt austan við Hnappavelli í
fyrradag. Ökumaður og farþegi,
sem eru útlendingar, sluppu með
skrámur. Þakkar lögreglan bíl-
beltanotkun að ekki fór verr.
• •
Oræfum
Slysið varð þar sem bundið slitlag
endar og missti ökumaður stjórn á
bílnum við að fara á malarveginn.
Bíllinn er mikið skemmdur að sögn
lögreglu.
HORNSÓFI - SVEFNSÓFI
- EITT HANDTAK -
Verð kr. 75.000,- stgr.
Verð kr. 99.000,- stgr.
Nýjar gerðir af svefnsófum
Hagstætt verð
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
CB
raöorelðslur
ÞJONUSTU-
SÍMI
Við tökum við ábendingum
og tillögum sem varða
þjonustu SVR í símsvara
8I4626
Strætisvagnar Reykjavíkur hf
°!E£É mui rSl ]pp
Bílamarkadunnn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraun
Kopavogi, sími
671800
Opið sunnudaga
kl. 13-18.
iem
Ford Escort XR3i '87, hvítur, 5 g., ek. 96
þ. km., álfelgur, samlitir stuðarar o.fl. V.
630 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GL ’90, grásans, 5 g., ek.
76 þ., spoiler o.fl. Fallegur bfll. V. 680
þús., sk. á ód.
Volvo 440 GLT '89, svartur, 5 g., ek. 80
þ., álfelgur, spoiler o.fl. V. 850 þús., sk.
á ód.
Mercedes Benz 280 SE '82, silfurgrár,
sjálfsk., ek. 127 þ., toþplúga, álfelgur o.fl.
Tilboðsverð 980 þús. stgr.
MMC Galant GLSi hlaðbakur ’92, hvítur,
sjálfsk., ek. 40 þ. V. 1450 þús.
É
Subaru Legacy 1.8 Sedan ’91, rauður, 5
g., ek. 56 þ., sóllúga, dráttarkúla, rafm.
rúðum o.fl. V. 1380 þús.
Daihatsu Charade TS EFi 16v '93, rauð
ur, 1300 vól, bein innsp., 5 g., ek. aðeins
6 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús.
MMC Lancer GLX hlaðbakur '90, sjálfsk.
ek. 68 þ., ráfm. í rúðum o.fl. V. 850 þús.
Vantar sjálfsk. station.
MMC Lancer EXE '88, 5 g., ek. 63 þ.
rafm. i rúöum o.fl. V. 570 þús.
Toyota Carina E '93, sjálfsk., ek. 27 þ.
rafm. í rúðum, álfelgur, ABS o.fl. V. 1750
þús.
Toyota Carina XL '90, Ijósblár, sjólfsk
ek. 79 þ. V. 880 þús., sk. á ód.
Citroen BX14 '86, grásans, ek. 102 þ.
Tilboðsverð kr. 220 þús.
MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 62 þ
Gott eintak. V. 690 þús. stgr.
MMC Colt GL '90, grænsans, 5 g. ek.
72 þ. V. 650 þús.
Toyota Double Cab SRS bensín '93,
m/húsi, 5 g., ek. 20 þ., álfelgur, brettakant-
ar, 31“ dekk o.fl. V. 2.050 þús.
Toyota 4Runner V-6 '93, 4ra dyra, 5 g
ek. 2 þ. km. V. 2.9 millj.
Toyota Corolla XL '90, 3ja dyra, 4 g., ek
70 þ. V. 680 þús.
MMC Lancer GLX '92, silfurgrár, sjálfsk
ek. 23 þ. V. 1050 þús. stgr.
Fjöldi bifreiða á tilboðsverði.
Greiðslukjör við allra hæfi.
MetsöhiHad á hverjwn degi!