Morgunblaðið - 04.03.1994, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir
Leikin voru þekkt rokklög- frá sjötta og sjöunda áratugnum og tóku eyjarskeggjar vel við sér. Þótti
þessum dömum ekki mikið mál að dansa uppi á borðum.
SKEMMTUN
Tryllt stuð á rokk-
kvöldi í Grímsey
Rokkkvöld var haldið í félags-
heimilinu Múla í Grímsey síð-
astliðið laugardagskvöld. Var gey-
simikið stuð í húsinu, dansað uppi
á stólum og borðum og skemmtu
eyjarskeggjar sér hið besta.
Það var hópur ungs fólks frá
Dalvík sem kom sérstaklega út í
eyju til að skemmta íbúunum og
er óhætt að segja að kvöldið hafi
verið vel heppnað, en rokkdagskrá-
in stóð yfír í hátt í þijá klukku-
tíma. Leikin voru þekkt rokklög frá
sjötta og sjöunda áratugnum og var
Amar Símonarson í hlutverki kynn-
is að nafni Ducky og hafði hann
með sér lagskonuna Pussy sem var
Freygerður Snorradóttir. Allur hóp-
urinn tók þátt í dagskránni og
sungu félagamir til skiptis.
Hópurinn hefur þrívegis komið
fram í Sæluhúsinu á Dalvík og flutt
þessa dagskrá og einu sinni í Gríms-
ey. Áform eru uppi um að halda
áfram að skemmta Eyfirðingum og
er fyrirhugað að troða upp t.d. á
Akureyri, Hrísey og á Árskógs-
sandi. Áður hefur hópurinn sfaðið
fyrir amerískum kvöldum og
kántrýkvöldum.
Friðrik prins og Ástríður tóku fyrst eftir hvort öðru í Noregi...
KÓNGA^UC
Fríðrik prins loks
að ganga út?
Hinn kvensami Frikrik Dana-
prins hefur nú enn og aftur
skipt um vinstúlku og er sú nýjasta
bráðfalleg 22 ára greifadóttir frá
Belgíu. Heitir snótin Astrid Ullens
de Schooten og hefur sést til þeirra
hönd í hönd í samkvæmislífinu .
Blöð í Danmörku fara hamförum
og allt sem tönn á festir sem varð-
ar stúlkuna er dregið upp og skellt
í risafyrirsagnir. Skyldi drengurinn
loks ætla að ganga út? Þegar stórt
er spurt verður oft fátt um svör,
en frændur okkar Danir iða í skinn-
inu af eftirvæntingu og fylgja
skötuhjúunum eftir hvert fótmál.
Hin unga Astrid virðist taka
þessu öllu létt, a.m.k. ekki eins og
hið skæra sviðsljós fari eitthvað í
taugarnar á henni. Hún hefur verið
fús að svara spurningum blaða-
manna og sagt að hún og Friðrik
séu „góðir vinir“, en ekki „kær-
ustupar“. Þetta telja Danir sig hafa
heyrt áður og draga sínar eigin
ályktanir byggðar á því hvað þeir
lesa út úr myndum af þeim Friðrik
og Astrid sem birst hafa í blöðum.
Og þar þykjast þeir sjá að þau séu
annað og meira heldur en „góðir
vinir“. Fjölskylduhagir og greindar-
vísitala Ástríðar hafa verið brotin
til mergjar og ekki ber á öðru en
að ungfrúin sé boðleg prinsinum.
Það er að segja ef að alvara er á
ferðum.
Ástríður og Friðrik hittust í silf-
urbrúðkaupsafmæli norsku kónga-
hjónanna í ágúst á síðasta ári og
kom þeim svo vel saman að hún
bauð honum til útskriftarsam-
kvæmis síns í Brussel þá um haust-
ið. Það var vinur Ástríðar sem tók
myndirnar í þeirri veislu. Ástríður
hefur látið í veðri vaka að hún sé
ekki hrifin af því uppátæki hans
að hafa myndirnar að féþúfu án
þess að spyrja sig fyrst hvort það
væri í lagi, en því verði ekki breytt
héðan af og hún muni ekki erfa
það. Hún segir engin áform uppi
um frekari fundi, en þar sem þau
séu „góðir vinir“ sé ekki loku fyrir
það skotið að til einhvers verði blás-
ið fyrr eða síðar. Og á meðan bíða
Danir með öndina í hálsinu.
...og þróaðist í þessa átt í útskriftarveislu Ástríðar í Brussel.
HJÁLPSEMI
Díana aðstoðar
óheppna ökumenn
Díana prinsessa kom breskum
hjónum til aðstoðar um helg-
ina, er bíll þeirra bilaði á fjölförn-
um gatnamótum í Lundúnum.
Prinsessan var á leið frá skólanum
sem synir hennar sækja þegar hún
ók fram á bíl hjónanna. Hún spurði
þau hvort eitthvað væri að og
bauð þeim að hringja eftir aðstoð
úr bílasíma sínum.
Aðrir ökumenn, sem sáu prins-
essuna stöðva hjá hjónunum,
hægðu mjög á sér, enda ekki á
hveijum degi sem meðlimur kon-
ungsfjölskyldunnar sést við þessar
aðstæður. Prinsessan var ekki í
fylgd lífvarða sinna.
Díana var ein á ferð fyrir
skömmu þegar hún kom að fólki
í vandræðum. Hún var ekki lengi
að stöðva bifreiðina og bjóða
fram aðstoð sína.
Skúli Nielsen formaður heiðursveitinganefndar heldur þrumuræðu yfir hópnum sem fékk viðurkenn-
ingu. F.v. Ólafur Kjartansson og Kristján Jóhannesson fyrrum formenn félagsins, sem hafa snúið sér
að öðrum störfum, Kári Elíasson, Pétur Guðjónsson, Egili Valgeirsson, Reynir Jónsson, Sigvaldi Sigurðs-
son, Helgi Jóhannsson og Leifur Jóhannesson. Auk þeirra voru Haraldur Kristjánsson og Sigurður G.
Sigurðsson heiðraðir, en þeir höfðu ekki tök á að vera viðstaddir athöfnina.
HARSKERAR
Ellefu félagar heiðraðir
Sjötíu ára afmælishátíð Meistara- Lionsheimili Kópavogs laugardag- voru nokkrir félagar heiðraðir fyrir
félags hárskera var haldin í inn 26. febrúar sl. Við þaA tækifæri heiiladtjúg störf í þágu félagsinsj