Morgunblaðið - 04.03.1994, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1994
*** MBL.
*** Rás2
*** DV
***** B.T.
***** E.B.
NOTHÍNG
ItíNNtTH ík'
Nútímaleg feminisk mynd eftir
Zhang Yimou (Rauði lampinn).
Sigraði á hátíðinni í Feneyjum '93.
Sýnd kl. 7.
Undir vopnum
Vanrækt vor
Ys og þys út af engu
Spennumynd með Al Pacino (Scent of a Woman, Scarface) og Sean
Penn (Indian Runner) í aðalhlutverkum. Pacino afbragð að vanda.
Sýran og diskóið nýtur sín fullkomlega
í nýju DTS DIGITAL hljóðkerfi HÁSKÓLABlÓS.
Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Sagan af
Sýnd k\. 5
hreyfimynda
JWé lagiö
í nafni föðurins
7 ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
Grín- og spennumynd með
CHRISTOPHER LAMBERT.
Sýnd kl. 11.10.
ORSON WELLES
HÁTÍÐ 1. TIL 10. MARS
THE THIRD MAN
Stórkostleg mynd sem hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda.
Sýnd kl. 5 og 9.
PETE POSTEETHWAITE
Berlin &
\!2í/
IN THE NAME OF THE FATHER
SÝND KL. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára.
jF A \
X CoWtmljh» X
\ Berlin
\ 1994 /
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÖIÐn
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
ÓÞELLÓ
Sýnd kl. 9
HASKOLABIO
SÍMI22140
■ í ÞÓRSHÖFN í Færeyj-
um verður boðið upp á starf-
skynningu á sumri komanda
á vegum Nordjobb. Þessi
starfskynning er ætluð ungu
fólki á aldrinum 18-26 ára.
Þátttakendur verða um 20 frá
öllum Norðurlöndunum og
borga þeir einungis ferðir og
vasapeninga. Starfskynningin
stendur í 3 vikur og verður
seinni hluta júlí fram í byrjun
ágúst. Þátttakencjur vinna við
ýmis störf og flestir munu búa
hjá fjölskyldum, 2-4 hjá hverri
fjölsjcyldu. Þetta er einstakt
tækifæri til að kynnast lífi og
starfi Færeyinga svo og ung-
menna frá hinum Norðurlönd-
unum. Umsóknarfrestur er til
15. mars. Allar nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Nor-
ræna félagsins, Norræna hús-
inu, Reykjavík.
■ ALÞJÓÐLEG ung-
mennaskipti, A US, halda
kynningar- og valráðstefnu
helgina 5.-6. mars. Ráðstefn-
an er fyrir fólk á aldrinum
18-27 ára sem hefur hug á
að vera skiptinemar 1994-95.
Umsóknareyðublöð þurfa að
berast til skrifstofu AUS hið
fyrsta.
*** MBL
** Rás 2
★★★ DV
** NY POST
**** EMPIRE
DANIEL DAY-LÉWIS
EMMA TIIOMPSON
Uppáhaldsmynd
meistarans og
sú síðasta sem hann
lauk fullkomlega.
Gáskafullur óður til
frelsisins í falsinu og
blekkingunni.
F FOR FAKE
Welles íturvaxinn,
ofsafenginn og
yfirgnæfandi
i hlutverki Óþellós.
Vann í Cannes 1952.
BESTA MYNDIN • BESTI LEIKSTJÓRINN Jim Sheridan • BESTI AÐALLEIKARINN Daniel Day-Lewis
• BESTU LEIKARAR í AUKAHLUTVERKUM Emma Thompson og Pete Postlethwaite
★★★★ A.l. MBL.
★★★★ A.l. MBL.
Heimsmeistararnir mætast í dag
_____Skák_______________________
Margeir Pétursson
SIGURGANGA Anatólís
Karpovs á stórmótinu í Linares
heldur enn áfram. Hann lagði
Júdit Polgar að velli í fyrra-
kvöld og hefur þar með unnið
sex fyrstu skákir sínar sem er
fáheyrt á svo öflugu móti. I dag
hefur hann svart gegn Gary
Kasparov í sjöundu umferðinni
og þarf Kasparov nauðsynlega
á sigri að halda. Þessir tveir
heimsmeistarar FIDE og at-
vinnumannasambandsins tefldu
síðast á Linares-mótinu fyrir
réttu ári og þá vann Kasparov
glæsilegan sigur með svörtu.
Frí var á mótinu í gær svo góð-
ur tími gefst fyrir keppinautana
til að undirbúa sig fyrir þessa mik-
ilvægu viðureign.
Staðan eftir sex umferðir:
1. Anatólí Karpov 6 v.
2. Gary Kasparov 5 v. ,
3. Vladímir Kramnik 4 v.
4. Gata Kamsky 3‘/2 v. og biðskák.
5. -6. Vyswanathan Anand og Aleksei
Shirov 3>/2 v.
7.-8. Joel Lautier og Boris Gelfand 3 v.
9. Evgení Barejev 2'/i v.
10. Júdit Polgar 2 v.
11. Veselin Topalov Vh v. og biðskák.
12. Alexander Beljavskí P/2 v.
13. -14. Vasilí ívantsjúk og Miguel Illesc-
as 1 v.
Karpov var heppinn með drátt-
inn í töfluröð að því leyti að hann
dró númer 11, en Kasparov númer
10. Þetta þýðir að nærri allir kepp-
endurnir á mótinu tefla fyrst við
Kasparov og síðan strax á eftir á
móti Karpov. Þeir eru þá sumir
þreyttir og jafnvel niðurbrotnir
eftir glímuna við Kasparov og
verða þá tilvalin bráð fyrir FIDE-
heimsmeistarann.
Það er tæplega hægt að vinna
sex skákir í röð í slíku móti án
nokkurrar heppni og í fyrstu um-
ferð vann Karpov varnarsigur á
Joel Lautier, sem á endanum lék
gróflega af sér í jafnteflislegri
stöðu. I næstu umferð gerðist síðan
það ótrúlega að Barejev lék sig í
mát í aðeins einum leik gegn
Karpov og tapaði hrók í leiðinni.
Sú staða var alls ekkert flókin,
Karpov átti örlítið betra endatafl:
Svart: Barejev Hvítt: Karpov
35. Hd5!?
Eina skýringin á næsta leik
Barejevs er sú að hann hafi haldið
að Karpov léki riddara sínum á
d5, en ekki hróknum.
35. - Ba7??? 36. Hxd8 mát
Kasparov sigraði ívantsjúk
glæsilega í fjórðu umferð og í þeirri
næstu lék Úkraínumaðurinn illa
af sér peði gegn Karpov. Honum
varð svo mikið um að hann gafst
upp án frekari baráttu, Kasparov
til mikillar gremju, en hann taldi
sig sjá leið til að fá mótspil fyrir
peðið. Lítum á vinningsskák
Karpovs úr fjórðu umferð:
Hvítt: Karpov
Svart: Topalov
Enski leikurinn
1. d4 - Rf6 2. c4 - c5 3. Rf3
Þar sem Karpov vill ekki loka
stöðunni með 3. d5 kemur upp
enskur leikur.
3. — cxd4 4. Rxd4 — e6 5. g3
- Rc6 6. Bg2 - Bc5 7. Rb3 -
Be7 8. Rc3 - 0-0 9. 0-0 - d6
10. Bf4 - Rh5 11. e3!
Sterk nýjung hjá Karpov, enn
ein sönnunin um yfirburðastöðu-
skilning hans. Áður hefur verið
leikið 11. Be3. Eftir uppskiptin
sem nú fylgja í kjölfarið verður
svarta staðan afar þröng.
11. - Rxf4 12. exf4 - Bd7 13.
Dd2 - Db8?!
13. — a5! Næsti leikur hans er líka
vafasamur.
14. Hfel - g6 15. h4! - a6 16.
h5 - b5? 17. hxg6 - hxg6 18.
Rc5! — dxc5 19. Dxd7 — Hc8
Nú mætti svartur vel við una
eftir 20. Bxc6 - Ha7 21. Dd3 -
Hxc6. En Búlgaranum hefur yfir-
sést sterkur millileikur:
20. Hxe6! - Ha7 21. Hxg6+ -
fxg6 22. De6+ — Kg7 23. Bxc6
- Hd8 24. cxb5
Með þijú peð fyrir skiptamun
og sóknarfæri að auki stendur
Karpov með pálmann í höndunum.
24. - Bf6 25. Re4 - Bd4 26.
bxa6 — Db6? Hér varð svartur
að reyna 26. — Dxb2.
27. Hdl - Dxa6 28. Hxd4!
Glæsilega teflt. 28. Rxc5 — Db6
29. Hxd4 hefði einnig dugað til
vinnings.
28. - Hxd4 29. Df6+ - Kg8
30. Dxg6+ - Kf8 31. De8+ -
Kg7 32. De5+ - Kg8 33. Rf6+
- Kf7 34. Be8+ - Kf8 35.
Dxc5-i— Dd6 36. Dxa7 — Dxf6
37. Bh5 - Hd2 38. b3 - Hb2
39. Kg2 og svartur gafst upp.
Tveir ungir sigurvegarar á
NM í skólaskák %
Um helgina fór fram í Espoo í
Finnlandi árlegt Norðurlandamót
í einstaklingskeppni í skólaskák.
íslenskir drengir sigruðu í tveimur
yngstu aldursflokkunum. Bragi
Þorfinnsson, Æfingaskóla Kenn-
araháskóla Islands, varð hlut-
skarpastur í flokki fæddra
1981-82 og Sigurður Páll Stein-
dórsson, Grandaskóla, sigraði með
miklum yfirburðum í yngsta
flokknum, fyrir þá sem fæddir eru
1983 og síðar. Auk þess urðu tveir
íslendingar í öðru sæti í sínum
flokkum. Helgi Áss Grétarsson,
Verslunarskóla íslands, missti
naumlega af efsta sætinu á stigum
í flokki fæddra 1977-78 og Jón
Viktor Gunnarsson, Hvassaleitis-
skóla, varð annar í flokki fæddra
1979-80. íslensku keppendurnir
náðu langbestum samanlögðum
árangri á mótinu, hlutu 38 vinn-
inga, en Finnar komu næstir með
31 >/2 v. Úrslit í einstökum flokkum
urðu sem hér segir. Tefldar voru
sex umferðir eftir Monrad-kerfi í
öllum flokkum:
A flokkur (f. 1975-76)
1. Lars Borbjerggárd, Danm. 4'h v.
2. Daniel V. Pedersen, Danm. 4 v.
3. Erkki Lassila, Finnl. 4 v.
4. Magnús Örn Úlfarsson 4 v.
Anatólí Karpov,
5. Arvid Wikner, Svíþjóð 3 v.
6. Ervik Hedman, Svíþjóð 3 v.
7. Sigurbjörn Bjömsson 3 v.
8. John A. Nilsson, Færeyjum 2'h v.
o.s.frv.
B flokkur (f. 1977-78)
1. Janne Mertanen, Finnl. 4'h v.
2. Helgi Áss Grétarsson 4‘/2 v.
3. Johan Upmark, Svíþjóð 4 v.
4. Gustaf Trolle, Svíþjóð 3 'h v.
5. Flóvin Þór Næs, Færeyjum 3 v.
6. Pál V. Hagesæther, Noregi 3 v.
7. Arnar E. Gunnarsson 3 v. o.s.frv.
C flokkur (f. 1979-80)
1. Thorbjörn Bromann, Danm. 6 v.
2. Jón Viktor Gunnarsson 3'/2 v.
3. Heikki Lehtinen, Finnl. ?hh v.
.4. Antti Lehttinen, Finnl. 3V2 v.
5. Matthías Kjeld 3'/2 v. o.s.frv.
D flokkur (f. 1981-82)
1. Bragi Þorfinnsson 4'h v.
2. Anders Olsson 4 v.
3. Andreas Skytte Hagen 4 v.
4. Mika Karttunen 4 v.
5. Bergsteinn Einarsson 3'h v.
E flokkur (f. 1983 og síðar)
1. Sigurður Páll Steindórsson 5V2 v.
2. Patrick Siegbahn 4 v.
3. Lars Grotmol 3V2 v.
4. Tapio Helin 3 v.
5. Hjalti Rúnar Ómarsson 3 v.
F’ararstjórar fyrir íslensku kepp-
endurna voru þeir Olafur H. Olafs-
son og Ríkharður Sveinsson.