Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 3

Morgunblaðið - 10.03.1994, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 3 „ÞÁ RÁÐUM VÉR SJÁLFIR...“ Það ríkti stórhugur og bjartsýni meðal þeirra íjölmörgu íslendinga sem sóttu stofnfund Hf. Eimskipafjelags íslands, laugardaginn 17. janúar 1914. Þjóðin hafði sameinast um að stofna eigið skipa- félag og taka þannig skipaferðir til útlanda í eigin hendur. Mikið var í húfi, eins og lesa má í upphaflega hlutaútboðsbréFmu: „Þá ráðum vér sjálfir, hvert skip vor sigla. Þá látum vér þau sigla til þeirra landa, sem bjóða oss bezt kjör á hverri vörutegund og gefa oss beztfyrir afurðir vorar... En þó að hátt væri stefnt er óvíst að nokkum fundarmanna haFi órað fyrir þeim stórstígu framfömm sem framund- an vom í íslensku þjóðlíFi á næstu áratugum og hið nýstofnaða skipa- félag átti eftir að taka þátt í að rnóta. Eimskip hefur enn, áttatíu árum síðar, mikilvægu hlutverki að gegna í vaxandi samskiptum þjóðarinnar við umheiminn - sem nútíma flutningafyrirtæki að störfum fyrir íslenskt atvinnulíf. Verkefhi okkar allra er enn sem fyrr að nýta af stórhug og bjartsýni þau margvíslegu tækifæri sem framtíðin býr yfir. 80 EIMSKIP 1914 - 1994 Fyrir íslenska þjóð vjs / OISOH VilAH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.