Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 23 Eins og hugur manns, segir yfirkokkur á Grillinu um nýju eldavélina sína í GRILLINU á Hótel Sögu er nú notuð nýstárleg eldavél sem gengur fyrir rafmagni, en straumurinn fer í gegnum seg- ulsvið sem hitar aðeins þann flöt potts og pönnu sem snert- ir helluna. Grillið er eini veitingastaðurinn á landinu sem á slíkan búnað, sem að sögn yfirmatreiðslumeistara staðarins er bylting fyrir matreiðslumenn. aVélin er tölvustillt ná- kvæmlega eins og hentar •JJ fyrir matreiðslu hverju jjg sinni, að sögn Ragnars Ui Westmann yfirmatreiðslu- Qtí meistara. á Grillinu. Hún er frönsk og heitir Induc’c- hef. Ragnar segir að þróun 5 hennar hafi tekið mörg ár, enda sé virknin ólík þeirri sem hingað til hafi tíðkast. Hann segir til dæmis að best sé að sjóða fisk við 62 gráðu hita og hitastig eldavélahell- unnar því stillt á 62 gráður þegar fiskur er soðinn. „Þannig haldast eggjahvítuefni í fiskn- um í stað þess að fara út í soð- ið eins og þegar hann er eidað- ur við hærra hitastig. Ekki lengur með brenndar hendur Það er þekkt vandamál að bræða súkkulaði og líka að sósa eða súpa brenni við eða mjólk sjóði uppúr. Með nákvæmri still- ingu á hitastigi erum við lausir við þessi vanda- mál. Áður elduð- um við allt á gasi sem ég hef alla tíð verið mjög hrifinn af.“ Hann viður- kennir að trölla- trú hans á gas- eldavélum hafi í upphafi gert hann tortrygginn í garð þessarar nýju tækni, en síðan hafi orðið sinnaskipti hjá honum. „Þessi vél er eins og hugur manns. Mér fannst merkilegt að uppgötva allt í einu að kokkar þurfa ekki endi- lega að vinna í 60-70 gráðu hita eins og við vorum vanir. Umhverfi þessarar vélar hitnar nefnilega ekki eins og þegar annars kon- ar eldavélar eru lengi í notkun. Kokkar þurfa heldur ekki að vera brenndir á höndum upp undir olnboga, því hellurnar á þessari vél hitna ekki nema pottur eða panna komi í snert- ingu við þær. Um leið og pottur er tekinn af kólnar hellan. Hraði skiptir þá miklu máli sem vinna við matreiðslu á veit- ingastað og þessi vél er mun hraðvirkari en gasvél. Það tekur okkur til dæmis 24 mínútur að fá suðu á 10 lítra af köldu vatni á tilsvarandi rafmagns-eða gas- hellu, en 14 mínútur á þessari." Nákvæmur og nýtinn Ragnar lýsir eldhúsi Grillsins sem „léttklassísku og evr- ópsku.“ Hann segir að hvorki sé slumpað né slett, heldur séu allar uppskriftir nákvæmar og þeim fylgt út í ystu æsar. „Fólk þarf að geta treyst því að rétt- irnir séu alltaf eins.“ Elsti rétturinn á matseðli Grillsins er jafngamall veitinga- staðnum, rösklega þrítugur. Sá heitir Saga-gratín og er sjávar- réttagratín. Að sögn Ragnars eru sjávarréttir og fiskur nú soðnir við 62 gráðu hita og það því eina breytingin sem réttur- inn hefur tekið á rúmum þrem- ur áratugum. Ragnar segist vera nýtinn en ekki nískur kokkur. Hann vill nýta hráefnin til fullnustu og sjá til þess að bætiefnin skili sér öll líka. ■ BT Morgunblaðið/Árni Sæberg Ragnar Westmann yfirmatreiðslumeistari á Grillinu undirbýr matreiðslu á hinni nýju Induc’Chef-vél, sem hitar 10 lítra af vatni á 14 mínútum. Buxna- bleiur frá Libero NÚ eru komnar á markað nýjar bleiur frá fyrirtækinu Libero. Um er að ræða buxnableiu fyrir börn sem vega 9-15 kíló. Bleiurnar eru í laginu eins og nærbuxur og með teygjubelti í mitt- inu sem kemur í staðinn fyrir lím- band. Barnið getur því sjálft farið á koppinn og tekið upp og niður bleiuna. Hægt er að opna bleiuna á samskeytunum ef vilb j ■ Ny Up&Go fra Libero Morgunblaðið/Þorkell Steinunn og Svanhildur í hinni nýju verslun við Laugaveginn. Sígilt og róman- tískt á Laugaveginum VIÐ LEGGJUM áherslu á sígildan fatnað og höfum mest af samkvæ- miskjólum frá tímabilinu í kringum 1950,“ segir Steinunn Roff sem nýlega opnaði verslunina Divu við Laugaveg ásamt Svanhildi Oskars- dóttur. í verslun þeirra eru bæði ný föt og notuð, en þau eiga það sameigin- legt að vera öll frá árunum 1930- 1960. Steinunn segir að þær kaupi aðallega inn frá Bandaríkjunum. „Þar er fólk sem annast innkaup á fötum fyrir okkur og sér um að senda hingað til lands. Annars kaupum við líka inn frá Frakklandi auk þess sem við höfum föt í um- boðssölu." Þær stöllur eru ekki nýj- ar í viðskiptalífi Reykjavíkur, því þær hafa rekið verslunina Móanóra um nokkurt skeið. Algengt verð á kjólum í Divu er í kringum 6.000 krónur en fer til dæmis upp í 10 þúsund krónur þeg- ar um er að ræða kjól með jakka frá 1930. „Við reynum að halda verðinu lágu í samræmi við kaup- getu fólks. Við seljum fyrst og fremst kvenfatnað _sem er róman- tískur og sígildur." í versluninni eru einnig ýmsir fylgihlutir, sem ýmist eru frá liðinni tíð, eða nýir og í anda fyrri ára. g Kolaportið efnir til tölvu-og tæknisýningar um helgina RÚMLEGA 30 aðilar kynna nýjungar í tölvum, hugbúnaði og tækni í Kolaportinu um helg- ina og finna þar allir aldurshóp- ar eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars verða kynnt bók- haldskerfi fyrir heimili og fyrirtæki, ensk-íslensk orðabók í tölvuformi á 2.900 kr., tölvur af ótal gerðum ásamt fylgihlutum, disklingum, tyk- sugum, skjásíum, símboðum og fl. auk þess sem yngsta kynslóðin fær að spreyta sig á að mála á boli með taulitum og skrautskrift. Bóksala stúdenta verður með úr- val af bókum og blöðum á sérstöku afsláttarverði. Tölvunarfræðinemar við HI efna til kynningar. Sömuleiðis verður nýtt „tölvu-karaoke“ kynnt og Nýhetji kynnir sérstök forrit sem notuð eru við tölvukennslu barnu allt niður í 5 ára aldur. Sýningin verður opin kl. 10-16 laugardag og sunnudag. ■ DÚXINN... námstækninámskeið ..og námið verður leikur einn! Bók og snældur. Verð kr. 2.900,- HRAÐLESTRASKÓLINN, sími 642100. Snjóbuxur Stærðir 104-170. Verð frá kr. 4.180-4.980 mmúTiLíFmm GLÆSIBÆ . SÍMI 812922 TILB0Ð VlklWAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.