Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
Fjárhagsáætlun Grýtubakkahrepps samþykkt
Stærsta verkefnið
að klára íþróttahúsið
Tjaldstæði komið upp í Fjörðum
FJÁRHAGSÁÆTLUN Grýtubakkahrepps var samþykkt á fundi sveit-
arstjórnar í vikunni. Tekjur hreppsins eru áætlaðar tæpar 40,5 millj-
ónir króna og eru um einni milljón króna lægri en var fyrir síðasta
ár. Reksturinn er áætlaður upp á tæpar 29 milljónir króna eða um
72% af tekjum.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjón
sagði að helsta skýring þess að tekj-
urnar eru þetta lægri í ár en var í
fyrra væri fækkun íbúa, atvinnu-
ástand í hreppnum og þá hefði hann
farið illa út úr afnámi aðstöðu-
gjaldsins.
Vinabæjavika
í Alasundi
VINABÆJAMÓT verður haldið
í Álasundi, vinabæ Akureyrar í
Noregi í lok júní í sumar og er
ungmennum á aldrinum 16-20
ára boðið að taka þátt í ýmis
konar dagskrá á listasviðinu.
Allar listgreinar sem hægt er að
sýna eða kynna á senu koma til
greina, s.s. hljóðfæraleikur, söngur,
leiklist, Ijóðagerð, samkvæmisdans-
ar, ballet, jassballett, þjóðdansar
og töfrabrögð.
Starfshópar í ákveðnum list-
greinum verða í gangi og eins er
ætlast til að þátttakendur frá öllum
vinabæjunum á mótinu komi fram
með kynningu á list sinni. Á vina-
bæjavikunni verður fjölbreytt dag-
skrá í boði, bátsferðir, veiðiferðir
og kynnisferðir um Álasund, en vik-
unni lýkur með sameiginlegu nor-
rænu kvöldi.
Þátttakendur gista á einkaheim-
ilum og bæði Álasund og Akur-
eyrarbær styrkja væntanlega þátt-
takendur í vinabæjavikunni, þannig
að kostnaður hvers þeirra verður
um 7.500 krónur. Þeir sem áhuga
hafa á að taka þátt þurfa að skila
inn umsóknum fyrir 18. mars næst-
komandi, en nánari upplýsingar og
umsóknareyðublöð liggja framm í
framhaldsskólum, félagsmiðstöðv-
um, Amtsbókasafninu, Tónlistar-
skólanum og á skrifstofu menning-
armála.
(Úr fréttatilkynningu.)
Mest í íþróttahúsið
Stærsta framkvæmdin í ár og
nánast sú eina er að ljúka byggingu
íþróttahúss þannig að hægt verði
að taka það í notkun á árinu. Verið
er að klæða húsið að innan um
þessar mundir og leggja rafmagn,
en stærstu verkin sem eftir eru að
því loknu er að leggja í það gólf
og koma upp bráðabirgðahitun auk
tækjakaupa.
Áætlað er að leggja hálfa milljón
króna til ferðamála, gera á göngu-
leið upp á Þengilhöfða og koma þar
fyrir útsýnisskífu. Fyrirhugað er að
gera tjaldstæði við Kaðalstaði í
Hvalvatnsfirði í Fjörðum og þá
sagði Guðný, að einnig væri áætlað
að hafa landvörð starfandi í Fjörð-
um í sumar og myndi hann væntan-
lega hafa bækistöð að Gili.
-------♦ ♦ ♦
■ EDDA Möller framkvæmda-
stjóri Kirkjuhússins og Skálholtsút-
gáfunnar ræðir um útgáfumál
kirkjunnar og kynnir Öldrunarráð
þjóðkirkjunnar á opnu húsi fyrir
aldraða í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju í dag, fimmtudag, frá
kl. 15-17. Karolína Stefánsdóttir
fjölskylduráðgjafi við Heilsugæslu-
stöðina á Akureyri flytur erindi um
Heilbrigt fjölskyldulíf. Kór Lundar-
skóla syngur undir stjórn Elínborg-
ar Loftsdóttur.
■ SÖNGLEIKURINN Jósep verður
sýndur á kirkjuviku í Akureyrar-
kirkju í kvöld, fimmtudagskvöldið
10. mars kl. 20.30. Það erLeikfélag
Verkmenntaskólans á Akureyri sem
flytur söngleikinn, sem er eftir
Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice, í þýðingu Þórarins Hjartar-
sonar. Leikstjóri er Sigurþór Al-
bert Heimisson, tónlistarstjóri
Michael Jón Clark en Ingólfur
Freyr Guðmundsson fer með aðal-
hlutverkið.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Onýtur eftir árekstur
FOLKSBILLINN er talinn ónýtur eftir harðan árekstur við gatna-
mót Hlíðarbrautar og Austursíðu.
Á sjúkrahús eftir
harðan árekstur
ÖKUMAÐUR fólksbíls, ófrísk
kona, var flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri eftir
harðan árekstur við stóran
fjallajeppa síðdegis í gær.
Áreksturinn varð á gatnamótum
Hlíðarbrautar og Austursíðu kl.
16.20 í gærdag. Fólksbíl var ekið
niður Austursíðu og í veg fyrir stór-
an jeppa sem ekið var eftir Hlíðar-
braut.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
var konan sem ók fólksbílnum flutt
á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
en meiðsl hennar voru ekki talin
alvarleg.
Heimamenn semja leikrit fyrir F rey vangsleikhúsið
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Freyvangsleikhúsið frumsýnir annað kvöld leik-
ritið Hamförina, gleðileik úr Eyjafirði eftir
heimamennina séra Hannes Örn Blandon og
Helga Þórsson. Þeir eru á myndinni til hægri,
en hin er tekin á æfingu nýlega.
Gleðileikurinn
Hamförin
frumsýndur
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frumsýnir annað kvöld,
föstudagskvöld 11. mars, nýtt íslenskt leikrit eftir
séra Hannes Örn Blandon, sóknarprest á Syðra-
Laugalandi, og Helga Þórsson, umhverfisfræðing
í Kristnesi.
Þeir félagar sömdu leikritið fyrr í vetur og hafa
æfingar staðið yfir síðastliðna tvo mánuði. Leikritið
heitir Hamförin, gleðileikur úr Eyjafirði. Hlutverk eru
um 30 en leikarar nokkru færri. Leikstjóri ásamt séra
Hannesi er Emilía Baldursdóttir.
SpéspegiII
Þegar Helgi Þórsson var spurður að því hvers vegna
þeir hefðu samið þetta verk sagði hann: „Við vildum
gera okkar norrænu sögu hátt undir höfði og erum
að minna á forfeðurna og koma þessu fram á nýjan
hátt, notum semsagt þessa gömlu karaktera og sýnum
þá í spéspegli. Þetta er allt stórmerkilegt fólk sem
kemur við sögu og full ástæða til að nota þessi gömlu
minni úr forn- og þjóðsögum okkar íslendinga."
Frumsýningin á Hamförinni hefst kl. 20.30 í Frey-
vangi. Benjamín
Samdráttur í sjávarútvegi og landbúnaði í Grýtubakkahreppi
Þorskkvóti um 30% minni
en fyrir fjórum árum
25% samdráttur í dilkakjötsframleiðslu
SAMDRÁTTUR í sjávarútvegi og
Iandbúnaði hefur komið illa við
íbúa Grýtubakkahrepps. Þorsk-
kvóti er um 30% minni en var
fyrir örfáum árum og þá hefur
dilkakjötsframleiðsla dregist sam-
an uih 25%.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri í
Grýtubakkahreppi sagði að atvinnu-
leysi í hreppnum hefði verið á bilinu
1-2% síðastliðin ár sem væri vissu-
lega minna en á mörgum stöðum í
nágrannabyggðarlögunum. Sam-
dráttur í sjávarútvegi og landbúnaði
hefði þó komið illa við íbúa hreppsins
og kæmi það niður á öllu, m.a. gengi
erfiðlega að halda uppi vinnslu í
frystihúsinu í kjölfar minni afla.
Samdráttur
Þorskkvóti báta og skipa sem gerð
eru út frá Grenivík hefur dregist
saman um 30% frá því sem var fyrir
4 árum og það hefur vitanlega sínar
afleiðingar, minni atvinnu og tekjur.
„Við viljum trúa því að ef okkur tekst
að þreyja þorrann og góuna, muni
birta upp, við trúum því að ástandið
versni ekki í sjávarútveginum," sagði
Guðný.
I hreppnum hefur einnig orðið
mikill samdráttur í landbúnaði, fyrir
um þremur árum voru bændur að
framleiða um 8.000 tonn af dilka-
kjöti, en hún hefur dregist saman
um 25% og er nú um 6.000 tonn.
„Bændafólk hefur leitað eftir vinnu
á Grenivík með sínum störfum í land-
búnaði þegar þar hefur orðið sam-
dráttur og það hefur gerst í ríkari
mæli. Það er því mikilvægt að hér
sé einhveija atvinnu að hafa,“ sagði
Guðný.
Hún sagði að varnarbaráttan væri
einkennandi í atvinnulífinu, reynt
LINDA Rós Vilbergsdóttir, nem-
andi i 8. bekk í Glerárskóla á
Akureyri, varð fyrir líkamsárás í
miðbæ Reykjavíkur um helgina,
en þar var hún á ferð ásamt félög-
um sínum úr félagsmiðstöð skól-
ans. Hún kærði árásina til Rann-
sóknarlögreglunnar á Akureyri í
gærdag.
„Við vorum að koma af veitinga-
stað við Lækjargötu og á leið í stræt-
isvagn þegar tveir strákar komu á
móti okkur og fóru eitthvað að tala
við okkur, biðja um sígarettur en við
sinntum því ekkert, segir Linda.
Hópurinn hélt áfram för sinni þegar
stúlka sem var með piltunum réðst
skyndilega að Lindu, gerði tilraun
til að slá hana í andlitið og sparkaði
í hana með þeim afleiðingum að hún
væri að veija hvert starf. Hvað nýj-
ungar varðar sagði hún að verið
væri að skoða möguleika á að koma
á fót bleikjueldi í Gljúfurárgili en við
það gætu skapast þijú störf „og það
er nú bara heilmikið í ekki stærra
byggðarlagi," sagði Guðný.
féll í götuna og hélt stúlkan áfram
að sparka í hana liggjandi á götunni.
Ótrúlegt
Ferðafélagar Lindu áttuðu sig þá
á hvað var að gerast, komu henni
til aðstoðar og hringdu á lögreglu,
sem síðar um kvöldið náði þremenn-
ingunum.
Linda flutti með fjölskyldu sinni
frá Reykjavík ti! Akureyrar fyrir
fímm árum. „Ég ætlaði varla að trúa
að þetta gæti gerst, auðvitað hefur
maður heyrt alls konar sögur af
miðbæjarlífinu í Reykjavík, en ég
hélt að hægt væri að komast milli
staða snemma kvölds óhultur. Mér
datt aldrei í hug að þetta gæti gerst,
maður þorir varla að vera á ferðinni
í Reykjavík eftir þetta," sagði Linda.
Ráðist á skólastúlku í Lækjargötu
Þorir varla til Reykja-
víkur eftir þetta