Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 41

Morgunblaðið - 10.03.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994 41 dóttur, sem var skrifstofustjóri Hjúkrunarfélags íslands í yfir 25 ár. Störf Ingibjargar fyrir það félag voru einstök. Þau voru ræktuð af slíkri hollustu og trúmennsku að einsdæmi er. Nær daglega í öll þessi ár kom Móses á skrifstofu félagsins og fylgdist þannig vel með þeim verk- efnum sem þar voru unnin. Fleiri daga en færri tók hann að sér verk eða viðvik fyrir félagið. í lok vinnu- dags, í hádegishléi og á frídögum sinnti hann slíkum verkum. Þau vora margvísleg og era óteljandi. Ber þar hæst allur undirbúningur að flutningi félagsins í nýtt húsnæði fyrir um átta árum. Þau ár sem ég var samstarfsmað- ur Ingibjargar kynntist ég því að ekkert var svo lítið eða svo stórt að ekki væri hægt að leita liðsinnis hjá Móses. Bónbetri mann var vart hægt að hugsa sér. Átti það við um verkefni sem lutu að húsnæði fé- lagsins jafnt skrifstofuhúsnæði sem orlofshúsnæði og sumarhúsum, en einnig ýmis viðvik tengd rekstri fé- lagsins. 011 þessi verk vann hann án þess nokkur vissi og af einstakri natni og velvilja. Margar stundir sat hann á skrif- stofu félagsins og beið eftir Ingi- björgu meðan hún lauk verkefnum dagsins, alltaf hljóður og einlægur. Öll návist við hann var einstaklega ljúf. Móses fylgdi Hjúkrunarfélagi Is- lands allt til þess dags er nýtt félag hjúkrunarfræðinga var stofnað. Hann aðstoðaði við lokafrágang í húsnæði félagsins langt fram á kvöld daginn áður en það var fært í hendur Félags íslenskra hjúkran- arfræðinga og hann samfagnaði með okkur á stofndegi hins nýja félags fyrir aðeins nokkrum vikum. Á síðastliðnu ári greindist Móses með illkynja sjúkdóm. Það var okk- ur öllum mikið áfall og báðu hjúkr- unarfræðingar þess að hann næði heilsu á ný. Þeir fýlgdust náið með hvernig honum vegnaði og glöddust yfir því að sjá hvemig hann virtist ná heilsu og styrk á ný. Aldrei heyrðist æðruorð af hans vöram og flestir töldu að komist hefði verið fyrir meinsemdina. En sjúkdómur- inn hafði búið meira um sig en við öll höfðum talið. Móses lést í hönd- um konu sinnar Ingibjargar, Ragn- heiðar dóttur þeirra og hjúkranar- fræðinga á gjörgæsludeild Landspít- alans 26. febrúar síðastliðinn. Fyrir hönd hjúkrunarfræðinga og Móses Aðalsteinssyni færð ævar- andi þökk fyrir allt sem hann gerði fyrir hjúkrunarfræðinga og Hjúkr- unarfélag íslands. Elsku Ingibjörg. Ég bið góðan Guð að vera ávallt með þér og styrkja þig og alla fjölskyldu þína. Blessuð sé minning Móses Áðal- steinssonar. Vilborg Ingólfsdóttir. Fleiri minningargreinar um Móses Aðalsteinsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ERFIDRYKKJUR ■14T p E R L A N sími 620200 Ertidtyldíjur Glæsileg kaffi- hlaðborðfcdlegir salirogmjög góð þjónustiL Upplýsingar ísíma22322 0 FLUGLEIDIR HÉTEL LtFTLBIIIR t Eiginmaður minn og faðir okkar, KJARTAN ÞORLEIFSSON, Fannborg 7, (áður Melgerði 25), lést í Landspítalanum 8. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Kristin María Kristinsdóttir og börn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SIGURÐSSON, Espigerði 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 11'. mars kl. 13.30. Bogey Dagbjartsdóttir, Margrét Guðlaug Sigurðardóttir, Sigurður Kr. Sigurðsson, Eria Möller og barnabörn. t Faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI STEFÁNSSON póstmaöur frá Vestmannaeyjum, Bjarkargötu 12, lést að morgni dags 8. mars í Landspít- alanum. Fyrir hönd aðstandenda, Þorsteinn Árnason, Elín S. Aðalsteinsdóttir, Arnar Ágústsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN SVEINSSON, Hafnarbraut 22, Hólmavík, áður bóndiá Kirkjubóli í Staðardal, verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju þann 12. mars kl. 14.00. Lilja Kristinsdóttir, Sveinn Kristinsson, Pálfna Guðlaugsdóttir, Guðbjörg Kristinsdóttir, Sverrir Björnsson, Sigurður Kristinsson, Sigríður Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Mágkona mín og frænka okkar, HALLA SNÆBJÖRNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, fyrrv. forstöðukona Blóðbankans, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 11. mars kl. 13.30. Guðbrandur Vigfússon, Guörún Guðbrandsdóttir, Guttormur Þormar, Halla Eyjólfsdóttir, Hörður Sigurvinsson, Guðmunda Eyjólfsdóttir, Jón Rfkharðsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts SKÚLA ÁRNASONAR frá Gnýstöðum. Ragnheiður Eyjólfsdóttir, synir, tengdadætur, barnabarn og tengdaforeldrar. t faðir Ástkær sonur minn, eiginmaður, okkar, tengdafaðir og afi, VALUR SNORRASON frá Blönduósi, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.00. Rútuferð verður frá BSÍ kl. 08.00 þann sama dag. Þóra Sigurgeirsdóttir, Kristín Ágústsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Sævar Óskarsson, Þóra L. Valsdóttir, Kristófer Sæmundsson, Ágúst G. Valsson, Sigurlaug Jónsdóttir, Valur K. Valsson, Kristín Jóna Sigurðardóttir og barnabörn. t Maðurinn minn, afi, faðir og tengda- faðir, BJARNI TÓMASSON, Markarflöt 21, Garðabæ, er lést 4. mars sl., verður jarðsunginn mánudaginn 14. mars kl. 10.30 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Minningarsjóð Guðmundar Óla Haukssonar í Búnaðarbanka ís- lands, Kópavogi metbók 877-054. Fyrir hönd systkina hins látna og annarra vandamanna, ída Ingibjörg Tómasdóttir, Bjarni Tómas Jónsson, Rannveig Guðleifsdóttir, Birna Bjarnadóttir, Haukur Ingibergsson, Hildur Halldóra Bjarnadóttir, Þóröur Elefsen. t Innilegar þakklr færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu, GUÐRÚNAR JÓHANNSDÓTTUR, Maríubakka 22. Ellert Jensson, Helga Auðunsdóttir, Kolbeinn Sigurðsson, Viiborg Auðunsdóttir, og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móð- ur, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR ÞORLEIFSDÓTTUR, Hrauntungu 81, Kópavogi. Sérstakar þakkir eru færðar heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir umönnun hennar. Haukur Ársælsson, Gfsli Kr. Hauksson, Ólafur Hauksson, Ársæll Hauksson, Þorleifur Hauksson, Jóhann G. Hauksson, Hrafnhildur Snorradóttir, Sigurlaug Þ. Bragadóttir, Helga Haraldsdóttir, Björk Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir fyrir sýndan hlýhug og samúð við fráfall og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU BJÖRNSDÓTTUR, Brekastíg 24b, áðurtil heimilis Klöpp, Vestmannaeyjum. Georg Þ. Kristjánsson, Björn Kristjánsson, Guðfinna S. Kristjánsdóttir, Margrét G. Kristjánsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Mjöll Kristjánsdóttir, Óðinn Kristjánsson, Þór Kristjánsson Kristrún Harpa Rútsdóttir, Margrét Sigrún Skúladóttir, Hafsteinn Stefánsson, Reynir S. Jóhannesson, Björn Þorgrímsson, Sigurjón Birgisson, Hulda Sæland Árnadóttir, og barnabörn. t Af alhug þökkum við öllum þeim, er sýndu vináttu og kærleik við andlát og útför okkar góða föður, tengdaföður og afa, sr. JÓNS M. GUÐJÓNSSONAR, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum við færa bæjarstjóra og bæjarstjórn Akra- ness, Sigurbirni Einarssyni, biskupi, og Hauki Guðlaugssyni, söng- málastjóra, fyrir þann heiður og virðingu, sem þau sýndu honum og okkur öllum. Guð geymi ykkur. Pétur og Margrét Veturliðadóttir, Margrét, Sjöfn og Björn Jónsson, Ólafur og Svanhildur Jakobsdóttir, Helga og Ralph Hutchinson, Þórunn og David Bratwright, Vaidimar og Jóna M. Guðmundsdóttir, Gyða og David Wells, Edda og Guðmundur Hermannsson, Jóhanna og Valdimar Björgvinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.