Morgunblaðið - 10.03.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1994
11
ÞAÐ ER EINLEIKIÐ
María Reyndal og Jóhanna Jónas.
_________Leiklist______________
Súsanna Svavarsdóttir
Skjallbandalagið í Héðinshúsinu:
Dónalega dúkkan. Höfundar:
Dario Fo og Franca Rame. Þýð-
endur: Jón Karl Helgason og
Jóhanna Jónas. Leikmynd: Illugi
Eysteinsson. Ljósahönnun: Jó-
hann Bjarni Pálmason. Hljóð-
hönnun: Birgir Mogensen.
Brúðugerð: Katrín Þorvaldsdótt-
ir. Hönnun á skuggamyndum:
Þorvaldur Þorsteinsson. Leik-
stjórn: Maria Reyndal.
„Við konur höfum grátið undan-
farin tvö þúsund ár,“ segir á einum
stað í þessum þríieik, sem Dario
Fo og Franca Rame sömdu fyrir
eina leikkonu. Leikstjóri sýningar-
innar í Héðinshúsinu bætir við: „Nú
er tími til kominn að hlæja, jafnvel
að okkur sjálfum."
Og það er óhætt að segja að leið-
in að hlátrinum sé greið í þessari
sýningu, því eins og mörgum er
eflaust kunnugt, getur Dario Fo
verið drepfyndinn.
Einleikimir eru skrifaðir um kon-
ur og reynslu þeirrá og í þeim er
óspart gert grín að hlutverkum og
samskiptum karla og kvenna. En
þótt gamanið beri hæst eru verkin
harðar ádeilur á ofbeldi, styijaldir
og lítilsvirðingu gagnvart manniíf-
inu. Eg gat ekki að því gert að velta
því fyrir mér hvers vegna svo marg-
ir einleikir eru til fyrir konur, þar
sem þær tala um samskipti sín við
karlmenn. Skemmst er að minnast
Sigrúnar Ástrósar sem talaði við
vegginn heima hjá sér. Hvers vegna
geta þessar konur aðeins sagt það
sem þeim býr í bijósti, ef enginn
er til að hlusta nema veggirnir?
í fyrsta einleiknum tekur ung
stúlka á móti elskhuga sínum. Hún
er orðin lúin á því að vera alltaf
undir í samleik þeirra og hefur út-
hugsað (í smáatriðum) leið til að
snúa dæminu við. Hún leikur sér
að honum eins og köttur að mús;
er ýmist blíð og tælandi og kallar
hann nöfnum sem eru samsett úr
sýrópi og sykri, eða öskureið og
skipandi og frussar út úr sér ósóm-
anum.
Annar þátturinn er hreint ekki
eins fyndinn. Hann fjallar um konu
sem orðið hefur fyrir hrottalegu
kynferðislegu ofbeldi, sem hún rek-
ur á nokkuð hlutlausan hátt, nema
ef vera skyldi léttúðugan. Hún á í
rauninni ekki að vera til frásagnar
um atburðinn, miðað við hvernig
var gengið frá henni. Þeir karlmenn
sem réðust að henni voru hermenn.
Þessi þáttur er ákaflega vel skrif-
aður og mjög ljóst að hér er Dario
Fo ekki aðeins að íjalla um það of-
beldi sem konur eru stundum beittar
af sumum karlmönnum, héldur má
segja að hér sé persónugert það
ofbeldi sem fylgir hernaði; ofbeldi
gegn sakleysingjum sem ekki eiga
aðild að stríðsleikjunum en eru lok-
aðir inni á þeim svæðum sem barist
eru um — konan er lokuð inni í klefa
og á sér engrar undankonu auðið —
og ofbeldi gegn móður jörð, sem er
rist á hol, rifin og tætt.
Þriðji þátturinn fjallar svo um
móðurina sem eignast dóttur og fer
að segja henni sögu af lítilli stúlku,
sem á dúkku, sem kann bara dóna-
leg orð. Þann þátt sýndi Jóhanna á
Óháðri listahátíð í sumar. Af því
tilefni skrifaði ég um þennan ein-
leik og mun ekki endurtaka það hér.
Það er óhætt að segja að leikkon-
an, Jóhanna Jónas, sem tjáir hug
og tilfinningar þeirra þriggja
kvenna, sem þættirnir fjalla um,
fari á kostum. Þær eru allar dálítið
undarlegar. Kannski vegna þess að
búið er að skafa utan af þeim leik-
araskapinn. Þær taka ekki þátt í
því leikriti sem skilgreiningin á
„konum“ fjallar um. Búið að skafa
af þeim bælinguna, þögnina (þær
tala mikið um hluti sem á ekki að
tala um), þær verða reiðar, pirrað-
ar, beiskar, háðskar og andstyggi-
legar. Það má segja að þessi verk
afhjúpi mjög rækilega innra líf tölu-
vert margra kvenna. Og Jóhanna
sveiflar sér á milli hláturs og gráts
og hrífur áhorfendur með sér. Hún
sýnir hér enn einu sinni að hún er
einhver athyglisverðasta leikkonan
af yngstu kynsióðinni; hefur mjög
afgerandi sviðssjarma, er jafnvíg á
harmleikinn og gamanleikinn. Hún
hefur gott vald yfir mikilli og sterkri
rödd sinni og látbragð (5g svipbrigði
eru_ stórskemmtileg.
Útlit sýningarinnar í Héðinshús-
inu er einfalt og ágætlega heppnað.
Það er dálítið hrátt og er fremur
sem rammi utan um leiklistina held-
ur en uppfylling á henni. Brúður
og skuggamyndir gefa þessum
ramma mjög magnaða áherslu þeg-
ar við á og var sú vinna vel unnin.
Leikstjórnin er vel af hendi leyst.
Það er mikill hraði og hreyfing í
sýningunni og alveg einstök ná-
kvæmni. Þær Jóhanna og María
hafa valið nettan ýkjustíl á fyrsta
og þriðja eintal og eru samkvæmar
sjálfum sér í þeirri vinnu frá upp-
hafi til enda. Þetta er í heildina bráð-
skemmtileg og eftirminnileg sýning.
Ahugamennska
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna hélt tónleika í Fella- og
Hólakirkju sl. þriðjudag. Á efnis-
skránni voru verk eftir Mozart og
Bizet. Einsöngvarar með hljóm-
sveitinni voru Ingunn Ósk Sturlu-
dóttir og Ólafur Kjartan Sigurðar-
son en einleikari á flautu va Mar-
dial Nardeau. Stjórnandi var Ing-
var Jónasson.
Því verður ekki á móti mælt,
að tónlistarlíf á íslandi er sam-
bland af áhuga- og atvinnu-
mennsku, sem blómstrar í mjög
fjölbreyttu samstarfi áhuga- og
atvinnumanna. Þetta gildir einnig
um mörg önnur listasvið og hafa
margir ágætir listamenn í raun
hafist úr áhugamennsku, til þess
að verða fullgildir atvinnumenn.
Það er í raun undrastutt síðan
Sinfóníuhljómsveit íslands varð
fullgild atvinnumannahljómsveit
og enn er langt í land, að hún nái
því að verða „fílharmonísk" að
stærð.
Sinfónísk áhugamannahljóm-
sveit getur gegnt mikilvægu hlut-
verki og það sýnist koma fram í
leik sveitarinnar að þessu sinni,
að hún eigi sér framtíð. Fyrsta
viðfangsefnið var forleikurinn að
Cosi fan tutte og var samhljómur
sveitarinnar á köflum mjög góður.
Efnilegur söngnemandi, Olafur
Kjartan Sigurðarson, söng Cavat-
ínuna, Se voul ballare, úr Brúð-
kaupinu og aríuna Ein Vogelfán-
ger bin ich, ja, úr Töfraflautinni,
hvort tveggja eftir Mozart. Án
þess að nokkru verði spáð um
framgang hans sem söngvara, má
vel segja að hann söng af öryggi
og verður fróðlegt að fylgjast
með, hversu honum mun takast
til í framtíðinni.
Flautukonsert nr. 1 eftir Mozart
var næst á efnisskránni en einleik-
ari var Martial Nardeau og þarf í
raun ekki að tíunda neitt um frá-
bæran leik hans. Hljómsveitin stóð
sig vel í fyrsta þættinum og mjög
vel í þeim síðasta. Hægi kaflinn,
sem er sérlega falleg tónsmíð, var
lakastur, hvað snertir tónstöðu.
Millispil úr Carmen, eftir Bizet,
var ágætlega flutt og þar áttu
blásararnir oft fallega leiknar
strófur. Tvær aríur úr þessari
óperu voru sungnar af Ingunni
Ósk Sturludóttur en hún mun hafa
lokið námi erlendis, eftir einsöngv-
arapróf hér heima. Ingunn söng
Habanera- og Seguidilla-armmar
mjög vel og var auðheyrt að þar
fer kunnanddi söngkona, með vel
skólaða og fallega rödd, er mætti
láta meira í sér heyra en hingað til.
Tónleikunum lauk með 1. þætti
úr L’Arlesienne-svítunni, nr. 1,
eftir Bizet. Þessi þáttur er góður
til að þjálfa mismunandi hljóð-
færahópa og þrátt fyrir smálega
hnökra hér og þar, var töluverð
reisn yfir flutningi verksins. í heild
voru þetta góðir tónleikar og lofa
góðu um framhaldið og eins og
sannaðist á Sinfóníuhljómsveit
æskunnar, ætti Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna, að setja sér fyrir
stórt og erfitt verkefni, til að bijóta
sér leið upp á við og sigrast á hinu
„ósigranlega".
Nú eru aðeins
nokkrir
fermingar-
myndatökutímar
ópantaðir
f öllum okkar myndatökum eru
allar myndimar stækkaðar í
13 x 18 cm tilbúnar til að gefa
þær, að auki 2 stækkanir
20x25cmog einstækkun
30 x 40 cm í ramma
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
Ljósmyndast Barna og
fj.myndir sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs
, sími: 4 30 20
3 Odýrastir
Ellert A. Ingimundarson, Sólveig Arnarsdóttir og Þór Túlíníus í
hlutverkum sínum.
30 sýningar upp-
seldar á Evu Lunu
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýndi leikritið Evu Lunu eftir Kjart-
an Ragnarsson og Oskar Jónasson þann 7. janúar sl. Leikritið sömdu
þeir uppúr sögu Isabellu Allende. Tónlistina í sýningunni og söng-
texta samdi Egill Ólafsson.
í kynningu segir: „Þessi sýning
fékk lofsamlega dóma gagnrýn-
enda, enda hefur verið uppselt á
allar sýningar og verða þær orðnar
þrjátíu talsins nk. laugardag."
Sólveig Arnarsdóttir leikur Evu
Lunu, en í öðrum hlutverkum eru
Edda Heiðrún Backman, Egill
Ólafsson, Pétur Einarsson, Ellert
A. Ingimundarson o.fl.
Hljómsveitarstjórn er í höndum
Árna Scheving. Leikmynd gerði
Óskar Jónasson og leikstjóri er
Kjartan Ragnarsson.
TILBOÐ
íslenskar bækur á tilboði:
Látum steinana tala.....kr. 1.595
Vígslan.................kr. 990
Hendur Ijóssins.........kr. 1.995
Boðberar Ijóssins.......kr. 990
Carola..................kr. 990
Bókin um veginn.........kr. 990
■ Draumar................kr. 490
Yoga heimspekibækurnar..kr. 600
Leitin inn á við........kr. 990
Auktu styrk þinn........kr. 990
Ástin og stjörnumerkin..kr. 590
Mikael handbókin...........kr. 990
Mörg líf, margir meistarar.kr. 990
► Heilsufæði.............kr. 980
Forlagaspá Kiros........kr. 500
- og margar fleiri.
Valdir titlar af erlendum bókum
með 40% afslætti.
TILBOÐ á snældum, snyrtivörum
og nuddolium.
MONDIAL orkujöfnunararmböndin
með 25% afslætti
ÞESSI AFSLÁTTARTILBOÐ GILDA
AÐEINS f NOKKRA DAGA í VIÐBÓT Borgartringlunni,
simi 811380
Póstkröfuþjónusta - Greiðslukortaþjónusta
FERI\filRSMM\
Vönduð 60 W hljómtækjasamstæða, með geislaspilara, Ivöföldu kassettutæki, útvarpi, góðum
hátölurum, fullkominni fjarstýringu og innbyggðum vekjara á fróbæru vaöi - Goldstar FFH-333L
Aðeins 44.900,- kr.
eða 39.900,- stgr,
SKIPHOLTI 19
SIMI 91-29800