Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐUR LESBOK/C
STOFNAÐ 1913
71.tbl. 82.árg.
L AU G ARDAGUR 26. MARZ 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Borís Jeltsín um orðróm um veikindi sín
Sambras síngimi
og fúlmennsku
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti sagði í gær í viðtali við dagblað-
ið Izvestíu að nýlegan orðróm um meint veikindi sín og byltingar-
áform mætti rekja til stjórnmálaafla sem vildu koma honum frá
völdum hvað sem það kostaði.
Orðrómur um meint veikindi for-
setans og drykkjuskap komst á
kreik um það leyti sem hann fór
til hvíldardvalar í Sotsjí við Svarta-
haf 14. mars sl. Óróleika gætti í
Moskvu og komst skjal, sem gekk
undir heitinu „Fyrsta útgáfa“, og
fjallaði um meinta byltingaráætlun,
í hendur fjölmiðla. Orðrómurinn
staðfesti varnarleysi Kremlarvalds-
ins gagnvart kviksögum. „Þetta var
samsull af lygum, fúlmennsku og
síngirni. Það er auðvelt að afhjúpa
sambras af þessu tagi. Ég mun
valda fólki af þessu sauðahúsi von-
brigðum því við höfum nægan styrk
og dugandi ráð til þess að vernda
og tryggja stöðugleika í Rúss-
landi,“ sagði Jeltsín. Sagðist hann
myndu snúa aftur til Moskvu á
morgun, sunnudag.
Sergej Stepashín yfirmaður
rússnesku gagnnjósnaþjónustunn-
ar (FSK) sagði að ljóst væri hveij-
ir væru höfundar áætlunar um að
steypa Jeltsín. Þar hefðu fjórir
menn verið að verki. Gaf hann
reyndar til kynna að einhver önnur
öfl, „sem þrífast helst á óstöðug-
Agreiningur á
OPEC-fundi
Genf. Reuter.
OLÍURÁÐHERRUM OPEC-ríkj-
anna mistókst á fundi sinum i
gær að semja um að draga úr
framleiðsiu.
Offramleiðsla og birgðasöfnun
hefur valdið 20% verðlækkun á olíu
frá í fyrra og sögðu sérfræðingar
að fatið gæti að óbreyttu fram-
leiðslustigi lækkað fljótlega niður
fyrir 10 dollara en svo lágt hefur
olíuverð ekki verið frá 1986. Ólík-
legt var talið að ráðherrunum tæk-
ist að ná samkomulagi í dag.
leika“, eins og hann komst að orði,
hefðu staðið á bak við þá. í því
sambandi nefndi hann sakarupp-
gjöf leiðtoga októberuppreisnarinn-
ar án þess þó að skella skuldinni
beinlínis á þá. „Með ítarlegum
rannsóknum höfum við uppi á
þeim,“ sagði hann.
Gleb Pavlovskíj, ritstjóri tíma-
ritsins 20. öldin og umheimurinn,
játaði höfundarrétt sinn á byit-
ingaráætluninni, í blaðaviðtali í
gær. Sagði hann að um hefði verið
að ræða saklausa æfingu í rök-
greiningu en einhver hefði stolið
ritgerðinni á skrifborði hans eða
úr tölvu og komið henni á fram-
færi við fjölmiðil sem skjali hátt-
séttra manna.
Yfirgefa Sómalíu
Reuter
Síðustu bandarísku hermennirnir fóru frá Sómalíu
í gær og eru þá einungis eftir í gæslusveitum Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) hermenn frá Afríku- og Asíu-
ríkjum. Bandarískt herlið gekk á land í Sómalíu 9.
nóvember 1992 til að tryggja að hjálpargögn bær-
ust bágstöddum en þá var logandi ófriður í landinu.
Um tíma voru 28.000 bandarískir hermenn þar við
friðargæslu. Á myndinni ganga síðustu hermennirn-
ir um borð í landgöngupramma sem fluttu þá um
borð í herskip sem biðu undan strönd landsins.
Tæpar tvær milljónir hermanna í viðbragðsstöðu á Kóreuskaga
Bandaríkjamenn áforma
vopnasendingar til S-Kóreu
Gervihnattamyndir sagðar sanna leynilega framleiðslu á plútoni í kjarnavopn
Seoul, Lundúnuni. Reuter, The Daily Telegraph.
MEIRA en 1,7 milljónir hermanna voru viðbúnar því að heyja
stríð á Kóreuskaga í gær þegar reynt var að finna leiðir til að
knýja Norður-Kóreumenn til að fallast á eftirlit með verksmiðjum
þar sem talið er að þeir séu að vinna að smíði kjarnavopna. Will-
iam Perry varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að
áformað væri að senda fleiri og fullkomnari vopn til Suður-
Kóreu, þungavopn og taktísk vopn, til þess að sunnanmenn yrðu
sein best búnir undir árás úr norðri. Sagðist hann vantrúaður á
að stríð væri yfirvofandi en Bandarrikjamönnum bæri þó að efla
varnir suður-kóreskra bandamanna sinna.
Breska dagblaðið The Independent
birti í gær gervihnattamyndir sem
Gamli
tíminn
ognýi
Albanskur bóndi
leggur glaðbeittur
upp í 16 kílómetra
ferðalag heim til
þorpsins Mdroq frá
höfuðborginni Tírana
eftir að hafa fjárfest
í móttökubúnaði fyrir
sjónvarpssendingar
um gervihnött. Asn-
inn er eini farskjóti
flestra albanskra
bænda sem búa við
forna landbúnaðar-
hætti og fremut'
kröpp kjör.
Reuter
það sagði sanna að Norður-Kóreu-
menn hefðu reist leynilega verk-
smiðju til að framleiða plúton í
kjarnorkusprengjur.
„Norður-Kóreustjórn hefur skip-
að hernum að vera í viðbragðs-
stöðu,“ sagði Oh In-hwan, upplýs-
ingamálaráðherra Suður-Kóreu.
Alls er rúm milljón hennanna und-
ir vopnum í Norður-Kóreu.
Suður-Kóreustjórn fyrirskipaði
her sínum í gær að gera ráðstafan-
ir til að vera undir það búinn að
heyja stríð þá og þegar. í suður-
kóreska hernum eru 650.000
manns, en auk þess eru 36.000
bandarískir hermenn í landinu.
Stjórn Norður-Kóreu neitar enn
að fallast á eftirlit með meintum
kjarnavopnastöðvum sínum. Opin-
ber fréttastofa landsins sagði í gær
að stjórnin mýndi hvergi hvika
þótt öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti efnahagslegar
refsiaðgerðir. Norður-Kóreumenn
hefðu öflugan iðnað, sjávarútveg
og landbúnað og væru því ekki
háðir innflutningi á nauðsynjum.
The Independent sagði að vís-
indamenn við King’s College í
Lundúnum hefðu rannsakað gervi-
hnattamyndirnar og teldu þær
sanna að Norður-Kóreumenn
hefðu reist leynilega verksmiðju til
að framleiða plúton sem er nauð-
synlegt í kjarnavopn. Myndirnar
voru keyptar af gervihnattafyrir-
tækjum og kosta jafnvirði 150.000
króna hver. Þær voru síðan stækk-
aðar með hjálp tölvu.
Kim Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, fer í dag til Kína til að
freista þess að fá þarlenda ráða-
menn til að láta af andstöðu sinni
við efnahagslegar refsiaðgerðir
gegn Norður-Kóreu.
Austurríkismeim gramir Bretum
AUSTURRÍKISMENN létu í gær í Ijós óánægju í garð Breta vegna
deilna innan Evrópusambandsins (ESB) um atkvæðavægi eftir
stækkun sambandsins um næstu áramót, að sögn Reutei-s-frétta-
stofunnar.
Alois Mock utanríkisráðherra
sagði að deilurnar kynnu að skaða
möguleika á því að aðild Austurrík-
is að ESB verði samþykkt í þjóðar-
atkvæði sem ráðgert er í júní.
Stuðningur við aðild hefur aukist
að undanförnu en Mock sagði deil-
urnar um atkvæðavægi til þess
fallnar að snúa þeirri þróun við.
Nýjar kannanir sýna að 40% Aust-
urríkismanna eru hlynnt aðild, 25%
á móti en 30% þjóðarinnar hafa
ekki gert upp hug sinn og óttast
austurríska stjórnin að deilan um
atkvæðavægi geti snúið flestum
hinna óákveðnu á sveif með and-
stæðingum aðildar. Franz Vran-
itzky kanslari ræddi málið í síma
við Jolin Major forsætisráðherra
Bretlands í gær.
Að sögn Jans Gunnars Furuly
fréttaritara Morgunblaðsins í Ósló,
hefur norska stjórnin ekki viljað
fjalla um deilur innan ESB um at-
kvæðavægi á þeirri forsendu að um
„innanríkismál" aðildarríkjanna
væri að ræða. Norskir andstæðing-
ar ESB-aðildar hafa hins vegar
notað deilurnar sem vopn í and-
róðri sínum.
Sjá „Pangalos segir ESB-fund
um helgina . . .“ á bls. 26.