Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994 Eldur í Hugrúnu ÞH í Grenivíkurhöfn Skemmdir af völd- um reyks og hita ELDUR kom upp í Hugrúnu ÞH 6 tonna trillu á Grenivík um hádegi í fyrradag og munaði minnstu að illa færi. Segja má að litlu hafí munað að illa færi er eldur kom upp í 6 tonna trillu á Grenivík um tólfleyt- ið í fyrradag. Flestir voru famir í mat. í frystihúsinu og einnig skip- vetjar á Sænesinu sem voru við vinnu á bryggjunni. Afgreiðslu- Messur ■ AKURE YRARPREST AKALL: Fermingarguðsþjónustur á pálma- sunnudag kl. 10.30 og 13.30. ■GLERÁRKIRKJA: Fermingar- messa á pálmasunnudag kl. 10.30 og 14. IHVIT ASUNNUKIRK J AN: Samkoma í umsjá unga fólksins í kvöld kl. 20.30. Bamakirkjan á morgun kl. 11, á morgun vakning- arsamkoma kl. 15.30. Ræðumaður Rúnar Guðnason. Æskulýðsfundur 9-12 ára á miðvikudag kl. 17.30, grunnfræðsla fyrir nýja sama dag kl. 20.30. ■KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyr- arlandsvegi 26: Messa í dag, laug- ardag kl. 18 og á morgun pálma- sunnudag kl. 11. maður frá olíusöludeild KEA sem hafði verið að dæla olíu á Sænesið veitti athygli svörtum reyk sem steig upp úr lúkar Hugrúnar. Sýndi hann mikið snarræði er hann stökk um borð í bátinn og skrúfaði fyrir olíu að kabyssu. Var þar þó nokkur eldur orðinn og hiti mikill. Síðan kallaði hann til starfsmanns á frystihúsinu sem var á leið í mat, að hringja á slökkvilið sem brá skjótt við og réð niðurlögum eldsins á skömm- um tíma. Happdrættisvinningur Skemmdir eru töluverðar bæði af reyk og hita en óverulegar brunaskemmdir. Hefði eldurinn kviknað aðeins örfáum mínútum síðar hefði vafalaust orðið mikið tjón þar sem eidsupptök eru í ka- byssu en þar eru aðeins örfáir sentimetrar út í byrðing og olíut- ankur beint fyrir ofan. Hugrún ÞH er gamall happ- drættisvinningur í DAS smíðaður árið 1956 en endurbyggður á Akureyri 1986. Skipstjóri á Hugrúnu er Svavar Gunnþórsson en með honum á bátnum er Ingólfur Bjömsson. Þeir eru að byija grásleppuvertíð og reikna með að geta vitjað um í fyrsta skiptið á morgun eftir bráðabirgðaviðgerð. Morgunblaðið/Rúnar Þór Dverghundar TÍKIN Katrína, sem er mexíkóskur dverghundur, chihuahua, eignað- ist §óra hvolpa nýlega og voru þeir teknir með keisaraskurði sem Elva Ágústsdóttir dýralæknir á Akureyri gerði. Einn hvolpanna dó strax en hinir þrír voru um 80 grömm að þyngd við fæðingu. Katr- ína þoldi ekki álagið og lést skömmu síðar. Eigendurnir áttu tvær tíkur sömu tegundar og nú hefur hin, Belle, gengið hvolpunum þrem- ur í móðurstað. Þeir hafa braggast vel, eru orðnir rétt um 100 grömm og hinir sprækustu. Ödýrari en þú heldur! Upplýsingar: Sími 96-24442. Island Sækjum taöheim! ■ Morgunblaðið/Rúnar Þór Starfsemin kynnt STARFSEMI Plastiðjunnar Bjargs var í gær kynnt hagsmunaaðilum og viðskiptavinum, og á myndinni sést Sigurður Örn Svavarsson starfsmaður plastiðjunnar sýna þeim Valgerði Magnúsdóttur og Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur vörur sem framleiddar eru fyrir DNG. Tímamót í starfsemi Piastiðjunnar Bjargs PLASTIÐJAN Bjarg var í gær kynnt hagsmunaaðilum og við- skiptavinum til fjölda ára, en viss tímamót eru um þessar mundir í starfsemi og þjónustu fyrirtæk- isins. Plastiðjan er nú ein af stofnunum Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra á Norðurlandi eystra, og þar er rekinn verndað- ur vinnustaður með meginá- herslu á starfsendurhæfingu og atvinnuleit fyrir fatlaða. í byrjun þessa árs flutti fyrirtækið starf- semi sína úr húsi Sjálfsbjargar við Bugðusíðu í húsnæði sem tek- ið vart á leigu að Frostagötu 3c. Plastiðjan Bjarg var um árabil rekin sem vemdaður vinnustaður í eigu Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni. Þegar að því kom á árinu 1991 að félagið sá sér ekki lengur fært að halda rekstrin- um áfram samdist svo um að Svæð- Bjarni Kristinsson framkvæmdasljóri Svæðisskrifstofu málefna fatl- aðra á Norðurlandi eystra ávarpar gesti sem viðstaddir voru kynn- inguna. isskrifstofa málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra tæki hana á leigu í tilraunaskyni í eitt ár. Að loknum þeim leigutíma samþykktu stjómvöld að starfseminni yrði hald- ið áfram og var fyrirtækið keypt fyrir framlag úr Framkvæmdasjóði fatlaðra í lok ársins 1992. Sex sýningar hjá Leikfélagi Akureyrar um páskana Mðnætursýning á Barpari SEX sýningar verða hjá Leikfé- lagi Akureyrar um páskana, en þar eru nú tvö verk á fjölunum I sitt hvoru leikhúsinu. Miðnætur- sýning verður á öðru þeirra, Barpari, á föstudaginn langa og er það nýjung í starfsemi félags- ins að bjóða upp á sýningu á þeim tíma. Fjórar sýningar verða á Óperu- draugnum eftir Ken Hill, en þetta stærsta og viðamesta verkefni vetr- arins var frumsýnt í gærkvöld, föstudagskvöld. Óperudraugurinn verður sýndur miðvikudaginn 30. mars, á skírdag, laugardaginn 2. apríl og annan dag páska. Þá verða tvær sýningar á hinu vinsæla verki Barpar sem sýnt er í „Þorpinu", nýju leikhúsi við Höfða- hlíð 1. Fyrri sýningin er næstkom- andi þriðjudag, 29. mars, og hin síðari hefst á miðnætti föstudagsins langa, 1. apríl næstkomandi. Hlín Agnarsdóttir sem gegnir störfum leikhússtjóra í fjarvem Við- ars Eggertssonar sagði að Leikfé- lag Akureyrar væri eina atvinnu- leikhúsið í landinu sem byði upp á BÆJARRÁÐ tók ekki afstöðu til tilboða sem bárust í byggingu leikskóla við Kiðagil á Akureyri á fundi sínum í gær, en gert er ráð fyrir að það verði gert á fundi ráðsins næstkomandi þriðjudag. Tíu tilboð bárust og voru þau öll undir kostnaðar- áætlun sem var 62,8 millj. Lægsta tilboðið er frá A. Finns- syni, rúmar 47,9 milljónir króna, eða 76,3% af kostnaðaráætlun. Fjölnir bauð 49,5 milljónir, eða 78,8% af áætluninni, Ossi hf. bauð sýningar um páskana, en leikarar annarra leikhúsa eru í fríi þann tíma. Samningar leikara hjá Leikfé- lagi Akureyrar eru með öðrum hætti, en þeir fá frí í kringum ára- mót. 49,7 milljónir, eða 79,2% af áætlun. SS-Byggir og Þorgils Jóhannesson buðu rúmar 52,3 milljónir í verkið, eða um 83,3% af kostnaðaráætlun. -------» ♦ ♦------ ■ VEGNA mikillar aðsóknar hef- ur Kvikmyndaklúbbur Akur- eyrar ákveðið að hafa aukasýningu á frönsku myndinni Indókína mánudagjnn 28. mars kl. 18. Mynd- in fékk Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin 1993. Myndin er sýnd með íslenskum texta. 10 boð í byggingu leikskóla í I I I í I í l I í I I [ ! i í t I l l [ I t I l i ( 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.