Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
23
Fjölmiðlun
Murdoch færjákvæða
gagnrýni frá Turner
Hong Kong. Reuter.
„Hann hefur valdið erfiðleikum í Kína, greitt of mikið fyrir gervi-
hnattasjónvarp og er óvandur að meðulum, en ekki er annað hægt
að kunna vel við hann,“ sagði sjónvarpsjöfurinn Ted Turner um keppi-
naut sinn Rupert Murdoch á blaðamannafundi í Hong Kong, sem sjón-
varpað var um gervihnött.
Bílar
Misræmi í bókhaldi Skoda
Prag. Reuter.
TÉKKNESKU Skoda-bifreiðaverksmiðjurnar, sem eru að hluta til í
eigu Volkswagen AG, hafa ákveðið að bóka um sjö milljóna marka
hagnað 1993, þótt tölur VW sýni 246 milljóna marka tap í fyrra.
Þótt Turner nefndi Murdoch aldr-
ei með nafni þegar hann hrósaði
honum eða gagnrýndi og kallaði
hann „þennan náunga“ eða „hinn
aðilann" fór aldrei á milli mála við
hvern hann átti.
Tumer sakaði STAR TV-stöð
Murdochs í Hong Kong um að skjóta
Kínveijum svo mikinn skelk í bringu
að þeir hafa hert á eftirliti með gervi-
hnattadiskum til þess að taka á móti
sendingum frá sjónvarpshnöttum.
„í 12 ár voru gervihnattadiskir
leyfðir þar til hinn aðilinn kom til
skjalanna með ólíkar hugmyndir,"
sagði Turner og átti við sjónvarps-
rás, sem Murdoch keypti 64% hlut í
á síðasta ári fyrir 525 milljónir doll-
ara. „CNN hefur notað gervihnött
sem náð hefur til Kína síðan 1982,
í 12 ár,“ sagði hann. „Það er hinn
aðilinn, sem hefur átt í erfiðleikum
með Kínveija."
Murdoch hefur státað af því að
geta farið í kringum reglugerðir
stjórnvalda og viðurkenndi nýlega
að brezka ríkissjónvarpið/útvarpið
BBC, sem sjónvarpar óritskoðuðum
fréttum á rásum STARs, hefði kom-
ið yfirvöldum í Kína og Indlandi í
uppnám. Síðan hefur hann sagt að
hann muni stöðva sendingar BBC
til Kína í næsta mánuði af við-
skiptaástæðum, þótt áfram verði
haldið að sjónvarpa fréttunum til
Indlands. Sérfræðingar telja að
Murdoch ali með sér þann metnað
að opna hinn risastóra markað í
Kína.
Turner vildi ekki blanda sér í
umræðuna um BBC. „Þetta var ekki
mín ákvörðun að skrúfa fyrir BBC,“
sagði hann. Þið ættuð að tala við
hinn náungann, sem veldur öllum
vandræðunum." Um leið gagnrýndi
hann Murdoch fyrir það háa verð
sem hann keypti Star fyrir.
Saudi-Arabar lýstu yfir efasemd-
um um að fjárvana þjóðir í hópi
aðildarríkja OPEC sem utan þeirra
myndu halda í heiðri slíkt sam-
komulag um takmarkanir í olíu-
framleiðslu. Saudi-Arabar hafa því
ekki áhuga á því að selja minna
af olíu sinni án nokkurrar trygging-
ar um að slíkt færði þeim fjárhags-
legan ávinning í formi hærra olíu-
verðs.
ebbi
Ráðherrar Samtaka olíufram-
leiðsluríkja (OPEC) hittust í Genf
á föstudag til að reyna aö sporna
við verðlækkun á olíu *
Verðið miöast viö síöasta viöskiptadag hvers mánaðar
á Brent- hráolíu á framvirkum markaöi í London
Framkvæmdastjórn OPEC segir
að olíuverðið sem lækkað hefur um
20% á einu ári, geti jafnvel farið
undir tíu dollara á fatið í fyrsta
sinn frá því 1986, ef ekki verði
reynt að stemma stigu því að olían
flæði yfir markaðinn eins og nú er.
Þegar ráðherrarnir frestuðu
formlegum fundarhöldum til laug-
ardags lágu engar raunverulegar
tillögur fyrir um framhaldið.
Talsmaður Skoda segir að mis-
ræmið stafi af ólíkum bókhaldsregl-
um Þjóðveija og Tékka. Að sögn
yfirfjármálastjóra VW, Werners
Schmidts, tapaði Skoda 246 milljón-
um marka 1993, aðallega vegna
kostnaðar við meiri háttar endur-
skipulagningu á fyrirtækinu. Hann
býst einnig við taprekstri hjá Skoda
1994.
Sama misræmi á bókhaldsreglum
leiddi til þess 1992 að Skoda bók-
færði aðeins um 70 milljóna marka
hagnað en VW um 240 milljóna
marka hagnað.
Tónleikar
Laugardaginn 26. mars heldur Lúðrasveit Hafnarfjarðar sína
árlegu tónleika í Víðistaðakirkju og hefjast þeir kl. 16.00.
Efnisskrá verður fjölbreytt og meðal annars leika tveir ung-
ir hljóðfæraleikarar einleik með lúðrasveitinni.
Þeir eru Sigurður Elvar Baldvinsson á horn og Arnbjörg
Jóna Jóhannsdóttir á klarinett. Aðgangur ókeypis.
Stjórnandi er Stefán Ómar Jakobsson.
Olía
Allt í hnút hjá OPEC
Genf. Reuter.
RÁÐHERRUM samtaka olíuframleiðsluríkjanna (OPEC) mistókst að
ná samkomulagi um að draga úr olíuframleiðslu til að sporna við
verðafalli á heimsmarkaðsverði bliu. Talsverður hiti var í fundar-
mönnum en það voru einkum fulltrúar Saudi-Araba, mesta olíufram-
leiðanda heims, sem reyndust tregir í taumi í þessum efnum.
Fræðsla
Nýtt myndband
um hagræðingu
MYNDBÆR HF. hefur lokið við
gerð fræðslumyndbands sem
fengið hefur heitið „Hagræðing
— leið til árangurs“. Myndinni
er ætlað að auðvelda stjórnend-
um hagræðingu og vera tæki
þeirra til þess að fá starfsfólk
til samstarfs í hagræðingarmál-
um. I henni er bent á leiðir sem
stjórnendur og starfsfólk geta
haft í huga við að ná betri
árangri, að því er segir í frétt
frá Myndbæ.
í myndinni er m.a. fjallað um
hvað felst í hagræðingu, mikilvægi
starfsmanna þegar leitað er leiða
til hagræðingar, hvernig megi ná
árangri, dæmi um velheppnaða
hagræðingu, markmið og endur-
mat, tilgang hagræðingar og hvern-
H KERFISÞROUN HF.
FÁKAFEN111 - SÍMI 688055
tlöfóar til
XXfólksíöllum
starfsgreinum!
ig er hún framkvæmd. Þá er enn-
fremur fjallað um kostnaðargrein-
ingu, skipulag fyrirtækja, verksvið,
valddreifingu og upplýsingakerfi.
Leitað var til nokkurra aðila, sem
vel þekkja til á þessu sviði, við
samningu handritsins. Má þar
nefna t.d. stjórnendur fyrirtækja
og ráðgjafa á sviði upplýsingakerfa.
Myndbandið kemur að notum á öll-
um vinnustöðum og má t.d. nota í
upphafi fundar með starfsmönnum
um það hvernig hægt sé að ná betri
árangri, segir ennfremur í frétt
Myndbæjar. Myndin er seld á VHS-
myndböndum hjá Myndbæ.
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97
Okkar tilboð
Skýrl og ódýrt
□ 14" tommu sjónvarp
□ fjarstýrt
□ tímarofi
□ aðgerðir á skjá
□ inniloftnet
31.900,- stqr
Nýtt og gæðum prýtt
VCA 36 myndbandstækið er búið m.a.
□ fjarstýringu
□ kyrrmynd
□ hægmynd
□ scart-tengi
□ ramma fyrir ramma
□ sjálfvirkri leitun bestu myndgæða
o o t i . j t i i n~ni o o o o
____________________________________________________________________________________________i
VERSLUNIN
HVERFISGÖTU 103 : SIMI625999
1 J ■