Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994 vogsskóla Nemendur og kennarar í Fossvogsskóla héldu hátíð í tilefni af 50 ára afmæli lýð- veldisins í húsakynnum sínum á fimmtudaginn. Meðal annarra hluta voru flutt erindi, fáninn hylltur og nemendur sýndu og kynntu vinnu sína. Fjöldi gesta sótti hátíðina, meðal annarra forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir. Meðfylgjandi mynd- ir voru teknar við þetta tæki- færi og þær tala sínu máli. SKRIFFINN SKA Imelda með ævisögu Imelda Marcos, 64 ára gömul fyrr- um harðstjórafrú á Filippseyj- um, situr nú og vinnur hörðum höndum að því að rita ævisögu sína. Ríkidæmi hennar heyrir fyrir löngu sögunni til, en hún er góðu vön og vonast til þess að auðgast vel á bókinni. Þegar hún situr ekki að skriftum, ver hún tíma sínum að mestu í félagsskap lögfræðinga sinna sem undirbúa áfrýjunarrétt- arhöld, en Imelda var dæmd fyrir fjárdrátt og spillingu í heimalandi sínu og dæmd til 18 til 24 ára dval- ar í svartholi. Hún áfrýjaði að sjálf- sögðu og var sleppt gegn tryggingu. Imelda segist bjartsýn að dómur falli henni í vil, lögfræðingar sínir hafi unnið vel og annar dómur væri ósanngjarn. Þótt Imelda fái ef til vill góða summu fyrir útgáfu- réttindin að ævisögunni og hugsan- lega einhveija fúlgu fyrir kvik- myndaréttinn, verða það trúlega smápeningar við hliðina á þeirri summu sem hún hafði rakað saman sem harðstjórafrú Ferdinands Marcosar sem steypt var af stóli 1986 og lést síðan 1989. Varlega áætlað námu eignir frúarinnar 1,6 milljörðum dollara. Raunar eru ekki allir sáttir á að tala um eignir frúar- innar. Telja að auðnum hafi hún stolið frá filippeysku þjóðinni og kæmi ekki á óvart þótt sú söguskoð- un eigi talsvert fylgi. Imelda býr á Filippseyjum og lætur sér minna duga en áður á öllum sviðum. Imelda Marcos DISKO Margir fallnir í valinn Fyrrum diskódrottningin Donna Summer sneri sér fyrir nokkru alfarið að bandarískri dreifbýlistónlist. Stunuþrunginn söngurinn, mjaðmasveiflurnar og kynþokkafulli klæðnaðurinn heyra því sögunni til, en í staðinn er kominn kú- rekahattur, gallabuxur og köflótt skyrta. Hún sagði nýverið, að við lægi að hún gæti ekki flett gömlu myndaalbúmunum sínum frá diskótímanum án þess að fella tár. Þetta var geggjaður tími, fólk flykktist út í næturlífið til að dansa og verða ástfangið. Ég umgekkst mikinn fjölda fólks nær daglega um Iangt skeið. Þegar ég fletti myndunum get ég ekki orða bundist, svo margir þeirra eru látnir úr eyðni,“ segir Summer. Söngkonan, sem nú er 45 ára, segir að eftirlætislagið hennar á þessum tíma hafi verið „Last dance“ og hefði sig ekki órað fyrir því hversu táknrænt það nafn átti eftir að verða fyrir tímabil- ið í heild sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.