Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994 H Samgönguráðherra setur nýjar reglur um snjómokstur Mokstursdögum fjölg- að á flestum leiðum SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur ákveðið nýjar reglur um snjóruðning á þjóðvegum. Á flestum leiðum er um að ræða töluverða fjölgun mokstursdaga frá reglum þeim sem gilt hafa til þessa. Á það bæði við um mokstur og innan atvinnusvæða. Auk þess er bætt við nokkr- um nýjum mokstursleiðum. Halldór Blöndal, samgönguráðherra, sagði að undanfarin ár hefði mikið verið unnið í vegagerð og sér fyndist eðlilegt að nýjar snjómokstursreglur héldust í hendur við bætta vegagerð. Hann sagði að reglurnar tækju þegar gildi. Þá má nefna að á vegum sem mokaðir verða fjórum sinnum eða oftar í viku verður sunnudagur einn mokstursdaga og er það í samræmi við óskir margra vegfarenda þar um og breyttar ferðavenjur fólks. Meðal breytinga má nefna: Leið- in frá Reykjavík til Akureyrar og til Húsavíkur verður mokuð fimm daga í viku í stað þriggja áður. Frá Brú í Hrútafirði til Hólmavíkur verður mokað fjórum sinnum í viku í stað þrisvar áður. Milli Hólmavík- ur og Isafjarðar verður mokað þrisvar í viku í stað tvisvar áður. Leiðin frá Vík í Mýrdal austur á firði verður mokuð fjórum sinnum í viku í stað þrisvar áður. Hér eru aðeins nefnd nokkur dæmi en að öðru leyti vísast til kortsins em sýnir þær leiðir sem mokaðar eru og tíðni moksturs á hverri leið. Það skal tekið fram að þessar nýju reglur hafa ekki áhrif á sér- stakar víðtækari reglur um snjó- mokstur sem í gildi verða um pásk- ana, segir í frétt frá Vegagerð ríkis- ins. námsmenn, sem vilja fara heim til sín, og raunar allt ferðafólk," sagði Halldór í tengslum við nýju reglurn- ar og hann minnti á að í haust yrði lokið við að setja bundið slitlag á þjóðveginn miili Reykjavíkur og Akureyrar. Hann sagði að snjó- mokstur milli Norður- og Austur- lands breyttist ekki. Kortið sýnir þær leiðir sem mokaðar eru og tíðni þeirra. Greiðari leið frá Reykjavík til Akureyrar Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, sagði að undanfarin ár hefði mikið verið unnið í vegagerð, sér- staklega í fýrra. „Mér finnst eðli- legt að nýjar snjómokstursreglur haldist í hendur við bætta vega- gerð. Menn gera meiri kröfur en áður og snjókmoksturinn verður ódýrari og auðveldari með upp- byggðum vegum. Reglurnar fela í grófum dráttum í sér að vegir, sem áður voru mokaðir þrisvar í viku, verða nú mokaðir fimm sinnum. Aðalmunurinn er fólginn í því að nú verður mokað á föstudögum og sunnudögum og veldur því að menn geta óhræddir farið yfir fjallvegi um helgar. Mokstur á þessum dög- um er t.d. þýðingarmikill fyrir Banna á kvótabrask eða koma á veiðiskyldu skipa „SAMTÖK sjómanna eiga að banna alfarið kvótabrask milli landshluta og sérstaklega kvóta á móti kvóta viðskipti, en að öðrum kosti á að koma á veiðiskyidu er skikki hvert skip til að veiða 70% af úthlutuðum aflaheimildum sínum, en missa kvótann ella,“ segir Ólafur Rögnvalds- son, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands hf. Hann segir ástandið svo afleitt að frekar vilji hann taka undir raddir þeirra sem aðhyllast auðlindaskatt á útgerð, fremur en að láta núverandi kerfi viðgangast. „Ekki er heilbrigt að búa við gjöfulustu fiskimið á ís- landi, Breiðafjörðinn, og þurfa horfa á eftir 60-70% af afla svæðisins út og suður til aðila sem braska á svívirðilegan hátt með kvóta,“ segir Ólafur. Mikilláhugíá íslandsferðum ÞÝSKAR ferðaskrifstofur aug; lýsa ferðir til Islands í sumar. I síðasta tölublaði þýska blaðsins asti viðkomustaðurinn. Er flogið aftur til Hamborgar. síðan Hann segir að viðskipti með kvóta milli landshluta séu ósiðleg með öllu og væri e.t.v. vill hægt að líkja þeim við að fyrirtækið myndi leggja öllum bátum sínum og hefja prang með kvóta. „Sumir kalla þetta hagræð- ingu, en hvers konar hagræðing er það að leggja heilu byggðarlögin fullkomlega í eyði? Hvað eiga sjó- menn að gera í slíkum tilvikum eða fólkið í landi? Tonn á móti tonni eru engin kvótaskipti, heidur kúgun á fiskverði, það er verið að gera sjó- menn að algjörum leiguliðum og neyða þá til að landa hjá einhveijum kvótafurstum sem hafa siglingarétt. Þróunin er orðin fáránleg," segir Ólafur. Breyta sóknarmarki Ólafur segir ekki hægt að ætlast til að fyrirtæki geti starfað eða hald- ið uppi atvinnu þegar búið er að skerða þorskkvóta jafn mikið og raun ber vitni. Hann sjái ekkert athuga- vert við að kaupa kvóta til að geta haldið áfram vinnslu í þeirri úlfa- kreppu sem fyrirtæki eru nú í, en öðru máli gegnir með viðskipti tiltek- inna fyrirtækja á t.d. Norðurlandi með fisk frá Vestur- og Suðurlandi, sem leiði til breytts sóknarmynsturs. „Þau notfæra sér slæma stöðu fyrir- tækja á þessu svæði og segjast borga 50-60 krónur fyrir tonn á móti tonni og bæta við að viðkomandi megi bara vera ánægður með þessi við- skipti, vilji hann halda vinnunni að- eins lengur. Ónefnd fyrirtæki hafa sníkt tugi milljóna króna frá ríkinu, eiga ónýt skip og geta ekki náð sjálf í aflann, heldur kúga menn til að veiða fyrir sig með tonn á móti tonni viðskiptum. Þegar þessi fyrirtæki eiga kannski 1.800 tonna þorsk- kvóta, sem þau tvöfalda og greiða mismuninn á algeru lágmarksverði, er engin furða að þau hagnist vel. Það er dýrt að ná í hvert tonn en kostnaður þeirra er enginn. Síðan er svo lítið af kvóta til sölu að búið er að spenna verðið upp í 60 krónur og það getur enginn keypt og gert út skip sitt með því að kaupa kíló af óveiddum þorski á því verði. Kvótakerfið er að senda allt landið til Heljar," segir Ólafur. Welt am Sonntag voru ýmsar , . ^ . n 1 j •••% 1 . . íslandsferðir auglýstar, bæði Drewry Shippmg skyrslan um iraktgjold vegna utilutmngs með skipum og flugi. Ferðaskrifstofan Norden Tours í Hamborg býður upp á margs konar íslandsferðir og hefur gefið út sérstakan bækling um ferðir til íslands og Grænlands. Norden Tours býður t.d. upp á jeppaferðir í litlum hópum með reyndum farar- stjórum um óbyggðir íslands, gönguferðir um þijá þjóðgarða þar sem keyrt er á milli garða í rútum, rútuferðir um „hápunkta íslenskr- ar náttúru", eins og það heitir í kynningarbæklingi, og hringferð um ísland í litlum bílum. Gisting er ýmist á hótelum eða í tjöldum. Verð héðan þrefalt hærra en milli N-Evrópu og Portúgals Óbyggðir aðalaðdráttaraflið í bæklingi er mikil áhersla lögð á óbyggðir íslands, að ekið sé yfir óbrúuð fljót, endalaust um sand- auðnir, eftir illfærum vegslóðum o.s.frv. Að sögn Ingrid Hildebrandt, starfsmanns ferðaskrifstofunnar, er mikill áhugi á ferðum iil Islands og segir hún þær seljast vel. í SKÝRSLU Drewry Shipping Consultants fyrir Félags íslenska stór- kaupmanna kemur fram að flutningsgjöld vegna gámaútflutnings frá Islandi er mun hærri en á nálægum mörkuðum sem samanburður- inn tekur til. Þannig kemur fram í samantekt skýrslunnar að meðal- flutningsgjald árið 1992 frá íslandi til Evrópu, að meðtöldum upp- og útskipunarkostnaði, reyndist vera 1.726 bandaríkjadalir eða rúm- lega 99 þúsund krónur fyrir 20 feta gámaeiningu miðað við meðal- gengi dollars árið 1992. Einnig var meðalverðið frá íslandi til Norð- ur-Ameríku svipað og til Evrópu eða um 99 þús. kr. í samanburði sínum, er miðað við 7,58 tonn yfir meðalþyngd diverrar gámaeiningar í útflutningsfrakt. í skýrslunni segir að flutningar í fry- stigámum hafi áhrif á flutningsgjöld og í samtali við Morgunblaðið í sein- ustu viku sagði Mark Page, aðalráð- gjafi Drewrys, það réttmæta athuga- Með skemmtiferðaskipi til . íslands og Grænlands í Welt am Sonntag er einnig auglýst ferð til íslands og Græn- lands frá Hamborg í Þýskalandi með stóru farþegaskipi, Hanseatic. Fyrsti viðkomustaður eru Hjalt- landseyjar. Þaðan er siglt til Hafn- ar í Hornafirði og síðan með suður- strönd íslands til Reykjavíkur. Á báðum viðkomustöðum er farið í land og í skoðunarferðir um ná- grennið. Frá Reykjavík er haldið til Grænlands og komið við á fimm stöðum á vesturströnd Grænlands. Frá Syðra-Straumfirði, sem er síð- Á sama tíma námu meðalflutn- ingsgjöld frá Evrópu til N-Ameríku rúmlega 1.000 bandaríkjadölum eða um 58 þús. kr. á hveija gámaeiningu og 1.100 dölum eða um 64 þús. kr. frá Norður Ameríku til Evrópu. Samskonar samanburður fyrir styttri siglingaleiðir á milli Norður Evrópu (Hollands) og Portúgals leiðir í Ijós skv. skýrslunni að að meðaltali hafi það kostað 575 bandaríkjadali eða um 33 þúsund kr. að flytja gám á þessum leiðum árið 1992 en sú vega- lengd er svipuð og frá íslandi til Hollands. Að meðaltali hafa útflutningsf- armgjöld verið nokkru lægri en flutn: ingsgjöld vegna innflutnings. í skýrslunni segir að í íslenskum krón- um hafi útflutningsfarmgjöld numið um 12 þús. kr. miðað við hvert tonn og hafi vaxið um 103% frá 1986 fram á mitt ár 1993 en skýrsluhöf- undar reikna þá breytingu á verðlagi hvers árs. Umreiknað í bandaríkjad- ölum hefur orðið um 30% hækkun útflutningsfarmgjalda, skv. skýrslu Drewrys, að undanskildum upp- og útskipunargjöldum, frá árinu 1986. Náðu þau hámarki 1992 en lækkuðu á fyrri hluta árs 1993 eða úr 1.100 bandaríkjadölum (um 63 þús. kr.) miðað við 20 feta gámaeiningu 1986, í 1.570 dollara árið 1992 (um 90 þús. kr.) og 1.430 doliara árið 1993 (um 82 þús. kr.). Styðja stefnuna í Evrópumálum Dýrari flutningar í frystigámum Talsmenn skipafélaganna hafa hafnað þessum samanburði og segja hann rangan bæði hvað útflutnings og innflutningsgjöld varði, og segja að þau hafi þvert á móti lækkað. Hafa talsmenn Eimskips gagnrýnt ráðgjafarfyrirtækið fyrir að hafa hvorki tekið tillit til verðlagsþróunar hér innanlands eða gengisþróunar. í skýrslunni kemur fram að að við umreikning úr tonna- og rúmmáls- verðum yfir í svokölluð gámaeininga- verð, sem ráðgjafarfyrirtækið notar í yfirlýsingunni segir ennfremur: „Allt frá upphafi lá þ_að fyrir að önnur EFTA-lönd en ísland, sem aðild eiga að EES-samningnum, stefndu að fullri aðild að Evrópu- sambandinu eins fljótt og möguleik- ar stæðu til. Samtökin telja því að fyrirhuguð fjölgun aðildarþjóða að Evrópusambandinu gefi ekki tilefni Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands f > semd, að flutningur í frystigámum væru dýrari en í venjulegum gámum því flutningar í þeim væri stór hluti af gámaútflutningi frá íslandi. Meg- inniðurstaða skýrslunnar væri jió sú, að flutningsgjöld til og frá íslandi réðust ekki af samkeppnisaðstæðum á sjóflutningamarkaðinum. STJÓRNIR Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fisk- vinnslustöðva telja ástæðu til að árétta heilshugar stuðning við stefnu íslenskra stjórnvalda í Evrópumálum, eins og hún birtist í ummælum forsætisráðherra, sjávarútvegsráðherra og formanns utanríkismála- nefndar Alþingis. Samtökin minna á að öll aðildarfélög VSÍ studdu þá stefnu sem mörkuð var með aðild okkar að samningi um Evr- ópskt efnahagssvæði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem sljórnir samtakanna hafa sent frá sér. til endurmats á stefnu íslands í Evrópumálum. Aðildin að EES full- nægir að mestu hagsmunum ís- lensks sjávarútvegs. Samtökin treysta stjórnvöldum til þess að tryggja í tvíhliðaviðræðum svo góð- an aðgang að markaði fyrir íslenska útflytjendur í löndum ESB, sem helst verður á kosið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.