Morgunblaðið - 26.03.1994, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
3Mw$tmÞIafe!fe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Frá kyrrstöðu
til hagvaxtar
Leitarstaf Krabbameinsfélagsins hefur skilað sér í lægri dánartíðni kvenna
Lífslíkur hjá krabbameins-
sjúkum hafa aukist verulega
SKIPULÖGÐ leit Leitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands að legháls-
og brjóstakrabbameini hefur haft veruleg áhrif á dánartíðni kvenna
sem greinast með krabbamein hér á landi, að sögn Kristjáns Sigurðs-
sonar, yfirlæknis stöðvarinnar. Hvað varðar allar tegundir krabba-
meins hjá körlum og konum hafa lífslíkur aukist og geta um 40%
kvenna sem greinast með sjúkdóminn átt von á að lifa lengur en fimm
ár samkvæmt uppiýsingum frá Krabbameinsfélaginu.
rátt fyrir andstreymi í
efnahagsmálum var
betra jafnvægi og meiri stöð-
ugleiki í þjóðarbúskapnum ár-
ið 1993 en nokkru sinni fyrr
í fimmtíu ára sögu lýðveldis-
ins, að sögn Jóns Sigurðsson-
ar, seðlabankastjóra, á árs-
fundi bankans.
„Vonir eru við það bundn-
ar,“ sagði bankastjórinn „að
með þessum árangri verði
kleift að ijúfa þá kyrrstöðu
sem einkennt hefur verð-
mætasköpun í þjóðarbúskapn-
um undanfarin ár. En einmitt
í efnahagslægðinni hafa verið
gerðar þær endurbætur á
umgjörð alls viðskiptalífs í
landinu, sem ætti að greiða
fyrir framförum. Sett hafa
verið ný lög um innflutning,
gjaldeyrisviðskipti og gengis-
mál, um verðbréfaviðskipti og
starfsemi lánastofnana. Þá
hafa ný samkeppnislög verið
sett. Öll þessi löggjöf byggist
á viðskiptafrelsi og opnum
mörkuðum.Með henni er lagð-
ur grundvöllur að frjálsari við-
skiptum innanlands og milli
íslands og annarra landa og
þar með virkari markaðsverð-
myndun og betri nýtingu
framleiðsluaflanna.“
Gylfi Arnbjörnsson, hag-
fræðingur ASI, slær á svipaða
strengi í erindi á ráðstefnu um
stefnumótun í atvinnumálum:
„Ef við skoðum hvaða efna-
hagslegt svigrúm við höfum
til að taka slíkt verkefni á
hendur,“ það er að auka hag-
vöxt og fjölga störfum í land-
inu, „þá tel ég að sá árangur,
sem þrátt fyrir allt hefur náðst
í stjórn efnahagsmála, hvort
heldur er mjög lág verðbólga,
lækkandi vextir, jöfnuður á
viðskiptum við útlönd eða
minnkandi erlendar skuldir,
gefi töluvert færi á því að taka
enn fastar á þessum málum
en nú er gert.“
Tiltölulega lágir vextir eru
forsenda þess að atvinnu-
vegimir nái að snúa vörn í
sókn þegar ytri aðstæður í
efnahagsumhverfi þeirra
batna. Það er mat seðlabanka-
stjóra að sú raunvaxtalækkun,
sem orðin er, hafi verið gjörleg
vegna þess, ekki hvað sízt, að
hér er starfandi skipulegur
peninga- og verðbréfamarkað-
ur. Vextir hér á peningamark-
aði eru nú með því lægsta sem
gerist í Evrópu. Vextir banka-
lána eru hins vegar í hærra
lagi í slíkum samanburði.
Bankastjórinn taldi á hinn
bóginn að vextir myndu ekki
almennt lækka meira en orðið
er nema samfara frekari
vaxtalækkun í umheiminum,
einkum í Evrópu.
Það er mikilvægara en flest
annað, eins og allt er í þjóðar-
pottinn búið, að öll áhrifaöfl
leggist á eitt um að varðveita
þann árangur, sem náðst hef-
ur í hjöðnun verðbólgú, lækk-
un vaxta og minni viðskipta-
halla. Þessi árangur er lykill-
inn að hagvexti og fjölgun
starfa þegar ytri aðstæður
verða jákvæðari. Það er því
ástæða til að gefa gaum að
þeirri viðvörun bankastjórans,
að árangur í verðlagsmálum
kunni að hluta til að tengjast
efnahagslægðinni - og að
verðbólga geti blossað upp
þegar betur ári, ef ekki sé
gætt varfærni í peninga- og
ríkisijármálum. Það er ekki
síður nauðsynlegt að hafa í
huga að mikil skuldsetning
þjóðarbúsins setur því tak-
mörk, hvað hægt er að auka
hagvöxt með aðgerðum sem
örva eftirspurn. Sem og að
viðvarandi halli á ríkissjóði
hefur verið hluti af viðskipta-
hallanum, skuldasöfnuninni
og háu vaxtastigi.
Tvennt þarf til að koma,
öðru fremur, til varanlegs
hagvaxtar hér á landi. Annars
vegar greiður aðgangur fyrir
framleiðslu okkar að hagstæð-
um mörkuðum. Staða okkar
að þessu leyti hefur styrkzt
með Evrópska efnahagssvæð-
inu og GATT-samningum.
Hins vegar hagv'öxtur í mark-
aðslöndum okkar. Þar er ekki
á vísan að róa. Þó er spáð
hægri uppsveiflu í OECD-ríkj-
um, 2% hagvexti 1994 og 2,5%
hagvexti 1995. Gangi þær
spár eftir verður efnahagslegt
ytra umhverfi okkar fremur
hagstætt næstu árin.
Vegferðin frá kyrrstöðu til
hagvaxtar er hafin. Sá efna-
hagsárangur, sem rakinn var
í ræðu seðlabankastjóra, er
mikilvægur áfangi á þeirri
leið. En við eigum brekku eft-
ir. Við þurfum að halda vöku
okkar um verndun þorsk-
stofnsins, leysa skipulags-
vanda í landbúnaði og sjávar-
útvegi og laga atvinnuvegi
okkar og þjóðarbúskap að því
efnahagsumhverfi, sem sjá
má fyrir hvert verður.
Kristján segir að leit að legháls-
krabbameini beinist að því að finna
frumubreytingar áður en þær verða
að krabbameini en skipulögð leit
hefur staðið yfir síðan árið 1964.
Þessi leit hefur haft veruleg áhrif á
nýgengi sjúkdómsins, segir Kristján,
í búvörusamningnum frá 1991 var
þeim bændum sem áhuga höfðu gef-
inn kostur á að láta af hendi fullvirð-
isrétt sinn gegn endurgjaldi, en að
öðrum kosti yrði hann dreginn saman
hjá öllum og þá greiddar lægri bæt-
ur. í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að markmiðið um fijáls
uppkaup hafi ekki gengið eftir og
því hafi komið til hlutfallslegrar
skerðingar á framleiðslurétti allra
bænda, en verðábyrgð ríkissjóðs
vegna framleiðslu kindakjöts hafi
verið færð niður úr 12,2 þúsund
tonnum í 7,7 þúsund tonn, eða um
eftir Svavar Gestsson
í tíð síðustu ríkisstjómar var sú
ákvörðun tekin að stofna sérstakan
sjóð til þess að fjármagna stærri
menningarverkefni auk Þjóðarbók-
hlöðunnar. Þá var og ákveðið að taka
alla þá fjánnuni sem fást af sérstökum
eignarskattsauka í þessi verkefni.
Þessi stefnumótun gerði svo kleift að
tryggja það að á undanförnum árum
hafa allar tekjurnar af þessum skatti
runnið til Þjóðarbókhlöðunnar og er
nú svo komið að hún verður opnuð í
haust. til hamingju með það! Fyrir
alþingi liggur frumvarp um Þjóðar-
bókhlöðuna þar sem gert er ráð fyrir
sameiningu Landsbókasafnsins og
Háskólabókasafnsins. í tilefni þess
frumvarps og fyrirhugaðrar opnunar
bókhlöðunnar er nauðsynlegt að
benda á eftirfarandi atriði sem einnig
þyrfti að taka ákvörðun um samhliða
lagasetningunni:
því leghálsstrok flýti greiningu.
Skipulögð leit að krabbameini í
bijóstum með brjóstaröntgenmynd-
um hófst árið 1988. Kristján segir
að fullsnemmt sé að segja til um það
í dag hvaða áhrif það hafi haft. Til
samanburðar sé hægt að leita til
Ekki tekið tillit til
hagkvæmnissjónarmiða
í skýrslunni er bent á að með
framleiðslustjórnun hafi tekist að
minnka framleiðslu sauðfjárafurða,
en hins vegar ekki tekist að ná
umtalsverðum árangri við að tryggja
hagkvæmari framleiðslu. Þrátt fyrir
verulegan samdrátt í greininni hafi
framleiðslueiningum ekki fækkað að
sama skapi heldur hafi meðalstærð
sauðfjárbúa minnkað. Niðurfærsla
fullvirðisréttarins hafí ekki tekið til-
lit til hagkvæmnissjónarmiða, og
þetta hafi orsakað það að fjárfesting-
Næstu stórverkefni — áætlun
verði gerð til 10 ára
Hvemig á að nota sjóðinn til menn-
ingarbygginga á næstu árum? Besta
tillagan sem ég hef heyrt er sú að
fjármunirnir sem fara í sjóðinn á
næsta ári verði notaðir til þess að
efla Þjóðarbókhlöðuna með nýjum
bókum og tækjakosti þannig að sátt
og gleði skapist hjá öllum hlutaðeig-
andi aðilum með stofnunina í upp-
hafi. Þannig verði Þjóðarbókhlaðan
eins konar flaggskip íslenskra rann-
sókna við hlið háskólans og rann-
sóknastofnana strax á fyrsta ári.
Verði ekkert aðhafst af þessu tagi er
hætt við því að bókhlaðan verði svelt
að tækjum og bókakosti öllum til ama
og leiðinda, sem aftur skapar hættuna
á því að háskólinn flýi inn í sjálfan
sig aftur og komi sér upp sínu bóka-
safni á nýjan leik. Jafnframt ákvörðun
um sjóðinn á næsta ári þarf að raða
stórverkefnum á sviði menningarmála
Svíþjóðar þar sem slík leit hefur
lækkað dánartíðni kvenna eldri en
50 ára en litlu breytt meðal kvenna
yngri en það. Engin skýring er á
þessu, segir Kristján, en hann sagði
að verið gæti að erfiðara sé að skoða
bijóst kvenna fyrir tíðahvörf. Einnig
geti verið að æxlin hegði sér öðruvísi.
Þegar skipulögð leit í bijóstum
hófst, jókst nýgengi verulega að sögn
Kristjáns því lítil krabbamein hafi
greinst við myndatöku sem ekki
fundust þegar þreifað var á bijóst-
inu.
ar á bújörðum og í vinnslustöðvum
séu verr nýttar en áður. Sama máli
gegni um þann mannafla sem vinni
við landbúnað, og smæð fjárbúa
hafi leitt til þess að sauðfjárræktin
sé víða stunduð í hlutastarfi, en til
þess að slíkt sé hagkvæmt þurfi að
vera hægt að stunda hana með öðr-
um búskap eða atvinnu. Aðstæður
bænda til að bæta sér upp tekjutap
vegna minni framleiðsluréttar séu
þó mjög mismunandi.
Afkoma kúabænda að jafnaði
betri
Skerðing virks fullvirðisréttar í
mjólkurframleiðslu nam um 5% sem
er til muna minna en í sauðfjárrækt-
inni, og segir í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að vegna minni skerðingar
og greiðari viðskipta með fullvirðis-
rétt en í sauðfjárrækt hafi stærð búa
í mjólkurframleiðslu ekki minnkað.
Því megi ætla að afkoma kúabænda
sé að jafnaði betri en sauðfjárbænda
og staða greinarinnar sterkari.
upp í forgangsröð til næstu 10 ára
eða svo. Þar þarf að svara þessum
spurningum:
a. Hversu mikinn hluta þessara
tekna sem hér um ræðir — um 300
millj. kr. — á að taka til framkvæmda
við Þjóðskjalasafnið? Hvenær á að
ráðast í það stórvirki að gera mjólkur-
stöðina nothæfa fyrir Þjóðskjalasafn-
ið?
b. Hvenær á Þjóðminjasafnið að
koma inn í röðina? Benda má á að
fyrir liggja tilbúnar teikningar að end-
urbótum á Þjóðminjasafninu sem væri
unnt að vinna eftir tafarlaust.
c. Hvenær á að veija fjármunum
úr þessum sjóði til þess að halda áfram
endurbótum á Þjóðleikhúsinu? Það
liggur á þeim verkefnum líka; því fyrr
— því betra.
d. Er ef til vill skynsamlegt að láta
hluta þeirra fjármuna sem hér um
ræðir renna til viðhalds Þjóðarbók-
hlöðunnar þannig að hún drabbist
Lífshorfur þeirra sem fá legháls-
krabbamein og bijóstakrabbamein
hafa aukist verulega. Árin 1956-60
gátu 43% þeirra kvenna sem greind-
ust með leghálskrabbamein búist við
því að lifa lengur en fimm ár en á
árunum 1981-85 var hlutfallið komið
upp í 73%. Sambærilegar tölur um
lífshorfur varðandi bijóstakrabba-
mein eru 48% fyrir árin 1956-60 en
68% fyrir árin 1981-85.
í mestri hættu fyrsta árið
Á undanfömum áratugum hafa
lífshorfur þeirra sem fá ristilkrabba-
mein, magakrabbamein eða hvítbl-
æði nær tvöfaldast. Horfur sjúklinga
sem fá heilaæxli, krabbamein í vél-
inda eða skjaldkirtil hafa einnig
batnað verulega.
Yfirleitt eru krabbameinssjúkling-
ar í mestri hættu fyrsta árið eftir
að sjúkdómurinn greinist, en þegar
frá líður aukast lífshorfumar og eft-
ir fimm til sex ár em lífshorfur síst
verri en þeirra sem ekki hafa fengið
krabbamein.
Á árunum 1956-60 lifðu um 20%
þeirra sem fengu krabbamein lengur
en í fimm ár en á ámnum 1981-85
var sú tala komin upp í 40%.
Bestar em lífshorfurnar meðal
þeirra sem fá krabbamein ungir og
einnig hafa lífshorfur þeirra breyst
mest.
Horfur þeirra sem fá lungna-
krabbamein hafa einnig batnað þó
að lífshorfur þeirra sem það fá séu
litlar. Um 10% karlmanna og 14%
kvenna geta vænst þess að lifa leng-
ur en fimm ár.
Allt að 90% tilfella lungnakrabba-
meins er hægt að rekja til lang-
vinnra reykinga. í upplýsingum frá
Krabbameinsfélaginu kemur fram
að reykingar hafi dregist saman um
fjórðung á síðast liðnum tuttugu
árum en þar sem lungnakrabbamein
þurfi langan tíma til að þróast fari
áhrifa minnkandi reykinga ekki að
gæta í tölum um nýgengi fyrr en
ef til vill núna.
ekki niður eins og aðrar opinberar
menningarbyggingar?
e. Á að marka þá stefnu að einhver
hluti þeirra ljármuna sem hér um
ræðir renni til tónlistarhúss? Talað
hefur verið um að kostnaðurinn við
það gæti orðið um 2.000 miljónir
króna.
f. Á að marka þá stefnu að hluti
þeirra fjármuna sem hér um ræðir
renni til Amtsbókasafnsins á Akur-
eyri til nýbyggingar og endurbóta?
Amtsbókasafnið er skilaskyldusafn og
er í bókstaflegri merkingu að sligast
undan fargi prentgripanna sem þang-
að hafa verið sendir. Það er því að
mínu mati eðlilegt að ríkið taki þátt
í því með Akureyrarbæ að sinna
Amtsbókasafninu af myndarskap.
Þrír milljarðar króna í tíu ár
Þeir tjármunir sem hér er um að
ræða af hinum sérstaka eignarskatti
nema um 3.000 milljónum króna á
10 árum. Með því að skipuleggja nýt-
ingu þeirra skynsamlega má koma
menningarstofnunum þeim sem við
eigum í skammlaust horf, auk þess
4-
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörusamninga
Viðbótarkostnaður nam 4,5
milljörðum á fimm árum
VIÐBÓTARKOSTNAÐUR rikissjóðs vegna samdráttar í innanlandssölu
kindakjöts umfram forsendur búvörusamnings nam um 2,2 milljónum
króna á árunum 1988 til 1993, og kostnaður við uppkaup á fullvirðis-
rétti, förgun og vegna útflutnings á birgðum nam tæpum 2,3 miHjónum
króna. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd
búvörulaga 1988-1993. í skýrslunni kemur fram að miðað við verðlag í
nóvember síðastliðnum nam kostnaður ríkissjóðs vegna búvörufram-
leiðslu nam að jafnaði 9-10 milljörðum króna á gildistíma eldri búvöru-
samnings, þ.e. frá 1988 til 1991, og er þá ótalinn ýmiss óbeinn kostnað-
ur. Áætlað hefur verið að útgjöld vegna núverandi búvörusamnings verði
um 5,1-5,2 miHjarðar króna á ári.
37%.
Afborgnn af skuld
víð þj óðmenninguna
- í tilefni af fyrirhugaðri opnun Þjóðarbókhlöðunnar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARZ 1994
29
Starfsnám fræðslunefndar félagsmálaráðuneytisins fyrir meðferðarfulltrúa
Éjr;* W:- :i
1
n
Ófaglærðir
í starfsnámi
FYRRI hluta starfsnáms fræðslu-
nefndar félagsmálaráðuneytis fyr-
ir ófaglærða uppeldis- og meðferð-
arfulltrúa lauk á föstudag. Þijátíu
hófu námið og tuttugu og átta
luku því. Þátttakendur sóttu fyrir-
lestra og unnu verkefni í samtals
160 klukkustundir á átta vikna
tímabili. Fræðslunefndin fékk út-
hlutun úr Starfsmenntunarsjóði
félagsmálaráðuneytis til að koma
starfsnáminu á laggirnar. Tals-
maður nefndarinnar segir að lengi
hafi verið ósk þeirra sem unnið
hafa við meðferð fatlaðra einstakl-
inga, bama og unglinga, að koma
af stað starfsnámi til að efla fæmi
og þekkingu starfsmanna.
Framkvæmdasljóri skipafélagsins Jökla hf. um flutningsgjöld skipafélaga
Slæm afkoma útilokar lækkun
„EINFALDASTA svar við þeirri
fullyrðingu að lækka þurfi flutn-
ingsgjöld skipafélaga um 25% til
að þau séu viðunandi, er að skoða
rekstrarreikninga skipafélag-
anna sem leiða í Ijós að ekkert
þeirra hefur verið rekið með sér-
stökum hagnaði undanfarin ár
og sum jafnvel með tapi,“ segir
Birgir Omar Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri skipafélagsins
Jökla hf. sem er í eigu Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsa, um um-
mæli Guðmundar Smára Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Sæfangs í Grundafirði í Morgun-
blaðinu í gær. Hann kveðst telja
að afkoma Eimskips og Samskipa
á seinasta ári sýni vel að krafa
Guðmundar Smára sé óraunhæf.
„Þegar tap Samskipa er haft í
huga, en það nam um 400 milljónum
í fyrra og tæpum 500 milljónum
árið á undan og fyrirtækið hefur
brátt glatað öllu sínu eigin fé, hljóm-
ar það fáránlega að krefjast 25%
lækkunar flutningsgjalda. Afkoma
félaganna bendir hreinlega ekki til
þess að farmgjöldin séu óeðlilega há,
og ekki heldur ef miðað er við þær
fjárfestingar sem skipafélögin hafa
lagt í,“ segir Birgir Omar.
Jöklar hf. stundar skipaflutninga
milli íslands og Bandaríkjanna, og
flytur bæði fyrir SH og utanaðkom-
andi aðila. Birgir Omar kveðst telja
að flutningsgjöld fyrirtækisins séu
„nokkru lægri en hjá Eimskipi og
Samskipum, þó að alltaf séu sveiflur
í verði þannig að erfitt er að bera
þau saman", segir hann. Aðspurður
hvort hann telji að skipafélög hér-
lendis geti lækkað flutningsgjöld sín,
þó að lækkunin væri ekki jafn mikil
og framkvæmdastjóri Sæfangs taldi
eðlilega, sagði Birgir Ómar: „Við
getum alltaf gert betur.“
Framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips um kostnað Sæfangs
Ekkí óeðlilegnr kostnaður
„FRAMKVÆMDASTJÓRI Sæfangs hf. er örugglega að tala til ann-
arra en Eimskips, því Eimskip hefur ekki annast neina flutninga beint
fyrir Sæfang í mörg ár. Hann þarf því að ræða við önnur skipafélög
um okur á flutningsgjöldum,“ segir Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips, um staðhæfingar Guðmundar Smára
Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sæfangs, í Morgunblaðinu í gær.
Þórður segir að ekki sé óeðlilegt að flutningskostnaður fyrirtækis sem
hafi framleiðslu í Grundarfirði og sendi vörur sínar til Evrópu og
jafnvel víðar, sé jafnhátt hlutfall af veltu og hjá Sæfangi, eða um 7%.
Hann segir jafnframt að full-
yrðing framkvæmdastjórans í
Morgunblaðinu á fimmtudag, um
að flutningsgjöld hafí hækkað um
25% sama dag og Hafskip varð
gjaldþrota, sé röng. „Flutnings-
gjöld hækkuðu ekkert við gjald-
þrot Hafskips 1986, heldur hafa
lækkað um því sem næst 5% á ári
síðan,“ segir Þórður.
„Það er hins vegar rétt hjá
Guðmundi að í stórflutningum
hafi skipafélögin „barist blóðugri
baráttú' enda hefur það leitt til
þess að skip á íslenskri skipaskrá
annast að litlu leyti þessa flutn-
inga, og er mjöl að mestu flutt frá
landinu í erlendum leiguskipum,"
segir Þórður.
Svavar Gestsson
„í framhaldi af því að
Landsbókasafn flytur í
Þjóðarbókhlöðu, eða
hvað hún kemur nú til
með að heita, þá velta
menn því fyrir sér hvað
á að verða um Safnahús-
ið.“
sem það mætti hugsa sér að undir lok
10 ára tímabilsins renni eitthvað af
þessum fjármunum til tónlistarhúss.
Þetta er unnt, framkvæmanlegt, ef
menn vilja. Vilji er það sem þarf.
Nú er það vitaskuld svo að forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins hafa í
stjórnarandstöðu oft hamast gegn
þessum sérstaka eignarskatti. Það
hafa þeir hins vegar ekki gert að
neinu marki þegar þeir hafa verið í
ríkisstjóm. Reyndar var það ráðherra
Sjálfstæðisflokksins sem fyrstur gerði
til alþingis tillögu um skatt þennan
og hafa ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins jafnan staðið þéttan vörð um skatt-
inn eins og aðra skatta. Þess vegna
er ástæða til að ætla að um það geti
verið full samstaða í framtíðinni að
veija þessum fjármunum til uppbygg-
ingar menningarstofnana.
Þjóðbókavörður sitji í
háskólaráði
í 3. gr. frumvarpsins sem nú liggur
fyrir alþingi segir: „Forseti Islands
skipar þjóðbókavörð til sex ára í senn
samkvæmt tillögu menntamálaráð-
herra sem aflar rökstuddrar umsagn-
ar stjómar safnsins."
Hér er í raun og veru komið til
móts við frumvarp sem ég flutti ásamt
fleirum fyrr í vetur um það að for-
stöðumenn svona stofnana séu skipað-
ir til takmarkaðs tíma í senn. En í
öðru lagi bendi ég á það að í grein-
inni er ekki gert ráð fyrir neinni sér-
stakri hæfni sem forstjóri þessarar
stofnunar verður að hafa. Það er ekki
gert ráð fyrir því t.d. að hann hafí
sérstaklega aflað sér þekkingar í sögu
þjóðmenningar af neinum toga og ég
viðurkenni að það er flókið mál að
setja þetta í lagagrein. Ég hygg hins
vegar að þessi uppsetning málsins
geri það að verkum að það verði mjög
erfítt að líta á safnið sem háskóla-
bókasafn af því að hér er ekki gert
ráð fyrir því að þetta sé endilega „aka-
demísk" staða. Ég tel að það eigi að
búa þannig um hnútana að þetta geti
verið „akademísk" staða og mér er
kunnugt um það að á einhvetju stigi
umræðna um þetta mál, a.m.k. í há-
skólanum, voru menn að tala um það
að þessi forstöðumaður, þjóðbóka-
vörður, er hann kallaður í frumvarp-
inu, yrði í háskólaráði með fullum
réttindum. Þannig er það í mörgum
háskólum erlendis að forstöðumenn
háskólabókasafnanna eiga sjálfkrafa
seturétt í viðkomandi háskólaráði og
það styrkir stofnunina sem slíka og
fræðagrundvöll hennar. Ég held að
þetta sé mjög mikilvægt að skoða
m.a. vegna þess að það er nauðsyn-
legt að það verði víðtæk sátt í háskól-
anum um málið.
Aðbúnaður að sérsöfnunum
Það er gert ráð fyrir því í frumvarp-
inu að í Þjóðarbókhlöðuna fari allmörg
sérsöfn af ýmsu tagi. 1 upptalninguna
sem fylgir frumvarpinu á alþingi vant-
ar samt tvö söfn sem ég tel mikil-
vægt að hafa í huga. Annað er hand-
ritasafn Halldórs Laxness sem hann
og fjölskylda hans gáfu Landsbóka-
safni og íslensku þjóðinni fyrir nokkr-
um árum og ákveðið var að vista í
Þjóðarbókhlöðu. Hitt safnið er
Kvennasögusafnið. Það hefur verið
talað um það að Kvennasögusafnið
verði með einhveijum hætti inni í
Þjóðarbókhlöðunni. Gera þarf ráðstaf-
anir til að þessi söfn fái myndarlegan
sess í Þjóðarbókhlöðunni.
Þjóöargersemar í Safnahúsið
I framhaldi af því að Landsbóka-
safn flytur í Þjóðarbókhlöðu, eða hvað
hún kemur nú til með að heita, þá
velta menn þvf fyrir sér hvað á að
verða um Safnahúsið. Það er mín
skoðun að þar eigi að vera safn, t.d.
handritasafn. Þama gætu verið þau
handrit sem eru núna úti í Árnastofn-
un. Þarna væri hægt að búa um mestu
menningargersemar íslenska samfé-
lagsins, hafa þær til sýnis fyrir þá sem
þær vilja skoða. Ég er algjörlega and-
vígur því að þama verði dómhús eins
og einhveijum hefur dottið { hug. Ég
tel að það væri skynsamlegast að taka
ákvörðun um framtíðarnotkun safna-
hússins á alþingi í tengslum við af-
greiðslu frumvarpsins í Þjóðarbók-
hlöðu sem vonandi verður afgreitt á
yfírstandandi þingi.
Með því að taka þær ákvarðanir
sem þarf einmitt á þessu ári og áður
en Þjóðarbókhlaðan verður tekin í
notkun má skapa víðtæka sátt um
málið og þannig styrkja enn þann
gleðilega áfanga er þjóðin fær loks
að sjá Þjóðarbókhlöðuna í notkun eft-
ir allt of langa bið.
Og nafnið
Viðbúið er að langmestur tími farið
í að fjalla um nafnið á safninu á al-
þingi. Ég tel reyndar að þá eigi þing-
menn ekki að vera frekir til fjörsins
heldur hlýða grannt á málsaðila. Ég
teldi hins vegar best að safnið héti
„Landsbókasafnið - háskólabóka-
safn“ og að yfirmaðurinn væri því
Landsbókavörður. En það skiptir ekki
öllu hvað verður ofan á þvi þegar flutt
er inn verða allir ánægðir með niður-
stöðuna.
Höfundur er þingmaður
Reykvíkinga og fyrrverandi
mcnntamálaráðherra.