Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 1
64 SIÐURB/C
74. tbl. 82. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Atkvæðavægi í ESB
Breska
stjómin
fellstá
mála-
miðlun
Lundúnum. Reuter.
BRESKA stjórnin samþykkti i gær
tillögu um málamiðlun i deilunni
um atkvæðavægi innan Evrópu-
sambandsins (ESB). Málamiðlunin
greiðir fyrir stækkun sambands-
ins en gæti leitt til uppreisnar
gegn John Major forsætisráð-
herra innan breska Ihaldsflokks-
ins.
í ráði er að breyta atkvæðareglum
í ráðherraráði ESB þannig við hugs-
anlega inngöngu fjögurra ríkja í sam-
bandið í janúar að 27 atkvæði þurfi
til að hindra framkvæmd samþykkta,
en ekki 23 eins og nú er. Breska
stjórnin féllst á þetta með því skil-
yrði að hin aðildarríkin samþykktu
öryggisákvæði þess efnis að ef 23-26
atkvæði yrðu greidd gegn tillögu
yrði hún tekin til nánari skoðunar.
Ráðgert er að endurskoða atkvæða-
reglurnar árið 1996.
Stjómin samþykkti málamiðlunina
eftir að Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, lýsti því yfir að hann hygðist
ekki knýja fram vinnumálareglu-
gerðir og sniðganga þannig undan-
þágu Breta varðandi félagsleg
ákvæði Maastricht-sáttmálans.
Einn af þingmönnum ’lhalds-
flokksins, Tony Marlow, gagnrýndi
ákvörðun stjórnarinnar í ræðu á
þinginu og skoraði á John Major að
segja af sér.
011 hin aðildarríki ESB samþykktu
málamiðlunarlausnina í gær.
78 ára
í teygju-
hoppi
Nanaimo. Reuter.
78 ÁRA gömul amma átta
barna virti að vettugi ráð-
leggingar lækna og fór i
teygjuhopp af járnbrautar-
brú yfir Nanaimo-fljóti í
Kanada á dögunum.
Amman tók út úr sér tenn-
urnar áður en hún stökk af
brúnni, sem er 42 metra yfir
fljótinu. Eftir stökkið kvaðst
hún ekki hafa orðið hrædd en
vera dálítið þreytt eftir
gönguna upp stökkpallinn.
Gamla konan stökk með
skrautlega húfu og á henni
stóð: „Borðið hoilan mat, haldið
ykkur í þjálfun, en þið deyið
samt öll“.
Reuter
Róstur í Jerúsalem
FULLTRÚAR Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO), og ísraelsstjórnar ræddust við í Kaíró í
gær þrátt fyrir skotárás ísraelskra hermanna á
Palestínumenn á Gaza-svæðinu á mánudagskvöld
sem kostaði sex manns lífið. Yasser Arafat, leið-
togi PLO, mótmælti árásinni harðlega og sagði
hana runna undan riijum afla innan hersins
og landnema á hernumdu svæðunum sem vildu
koma í veg fyrir frekari friðarviðræður ísra-
ela og araba. Mikil spenna ríkti á hernumdu
svæðunum í gær vegna drápanna. Til átaka
kom milli gyðinga og Palestínumanna í Jerúsal-
em og á myndinni ræðst palestínskur unglingur
á heittrúaðan gyðing í borginni.
Þingforseti Úkraínu
Klofnings-
hætta orð-
umaukin
Kíev. Reuter.
IVAN Pljúss, fráfarandi forseti
þingsins í Ukraínu og annar
öflugasti stjórnmálaleiðtogi
landsins, segir að engin hætta sé
á því að úrslit fyrstu frjálsu þing-
kosninga landsmanna sl. sunnu-
dag valdi því að landið klofni.
Rússneski minnihlutinn i landinu
kaus í flestum tilvikum gamla
kommúnista á þing og vill auka
tengslin við Rússland.
Pljúss gerði lítið úr raunveruleg-
um ágreiningi milli austurhlutans
þar sem Rússar eru í miklum meiri-
hluta og vesturhlutans. Einhverjir
væru að reyna að koma í veg fyrir
umbætur og lýðræði. „Einfaldasta
aðferðin til þess er að kynda undir
átök á milli austur- og vestursvæð-
anna. En þetta mun misheppnast,
getur ekki gengið upp,“ sagði hann.
Þingforsetinn sagði brýnt að
ákveða með ótvíræðum hætti hver
fara ætti með framkvæmdavaldið,
forseti eða forsætisráðherra. Leoníd
Kravtsjúk Úkraínuforseti hefur
rætt um að fresta forsetakosning-
um, sem eiga að verða í júní.
Berlusconi vongóður um að geta myndað hægristjórn á Ítalíu
Bossi kveðst ekki vilja
í sljóm með nýfasistum
Rómaborg. Reuter, The Daily Telegraph.
FJÖLMIÐLAJÖFURINN og auðkýfingurinn Silvio Berlusconi og
bandalag hægriflokkanna unnu stórsigur í þingkosningunum á Ítalíu
á sunnudag og mánudag. Berlusconi lofaði að gera allt sem hann gæti
til að mynda 53. stjórn landsins frá heimsstyrjöldinni síðari og kvaðst
sannfærður um að unnt yrði að Ieysa deilumál Norðursambandsins
og Þjóðarbandalagsins sem gætu komið í veg fyrir stjórnarsamstarf
þeirra. Umberto Bossi, leiðtogi Norðursambandsins, kvaðst hins vegar
ekki vilja ganga til stjórnarsamstarfs við nýfasista í Þjóðarbandalaginu.
„Ég tel ekki
hættu á svikum
við kjósendur og
vilji þeirra kom
skýrt fram - sam-
einað bandalag
með meirihluta á
þingi og sterka
stjórn með skýrt
umboð,“ sagði
Berlusconi eftir
að úrslitin voru
kunngerð. Hann
kvaðst búast við að Oscar Luigi
Scalfaro forseti myndi bráðlega fela
sér að reyna að mynda nýja stjórn.
Ekki verður þó hægt að skipa for-
sætisráðherra fyrr en nýtt þing kem-
ur saman 15. apríl.
Bandalagið fékk hreinan meiri-
hluta í neðri deild þingsins, 366 þing-
sæti af 630, og skorti aðeins þijú
sæti til að fá meirihluta í efri deild-
inni. Talið er að bandalagið geti
fengið stuðning flokks þýskumæl-
andi Itala, sem fékk þrjú þingsæti
í efri deildinni.
Nýfasistar í Þjóðarbandalaginu
fögnuðu sínum stærsta kosninga-
sigri til þessa, 50 árum eftir valda-
tíma Mussolinis. Gianfranco Fini,
leiðtogi bandalagsins, sagði að
stefna bæri að stjórnarmyndun sem
fyrst. Umberto Bossi, leiðtogi Norð-
ursambandsins, sagði hins vegar að
Berlusconi gæti ekki gegnt embætti
forsætisráðherra vegna hættunnar á
hagsmunaárekstrum. Hann kvaðst
ekki heldur vilja ganga til stjórnar-
samstarfs við nýfasista.
Fjórðungur þingmannanna var
kjörinn í hlutfallskosningum og í
þeim hluta kosninganna fékk Forza
Italia, flokkur Berlusconis, 21% at-
kvæðanna. Lýðræðisflokkur vinstri-
manna, kommúnistaflokkurinn fyrr-
verandi, kom næstur með 20,4%.
Flokkur nýfasistanna var næst-
stærstur í þessum hluta kosning-
anna með 13,5%. Norðursambandið
fékk 8,4% og erfitt yrði fyrir Berlusc-
oni að mynda stjórn án þess.
Italska dagblaðið Corríere Della
Sera sagði uppgang Berlusconis
UMBERTO Bossi, leiðtogi Norðursambandsins, ræðir við blaðainenn
eftir að úrslit kosninganna voru kunngerð í gær. Bossi leggst gegn
því, að Silvio Berlusconi verði næsti forsætisráðherra Ítalíu.
Hafnar Berlusconi
einsdæmi í Evrópu, en hann stofnaði
flokk sinn fyrir aðeins tveimur mán-
uðum. „Við höfum ekki séð neitt
þessu líkt í hálfa öld en það er auð-
velt að skýra það í Ijósi byltingarinn-
ar á Ítalíu undanfarin misseri,” sagði
La Stanipa.
Bandalag vinstriflokkanna fékk
aðeins 213 þingsæti í neðri deildinni
og 122 í efri. Flokkur borgarstjórans
í Palermo, Leoluca Orlando, sem
berst gegn mafíunni, galt þó mesta
afhroðið og tapaði öllum tólf þing-
sætum sínum.
Sjá fréttir af kosningununi á
bls. 24-25.