Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 5 Snæfjallahreppur sameinast ísafirði að ósk íbúa Líklega komið til fram- kvæmda fyrir kosningar ísafirði. NEFND um sameiningu sveitarfélaga á norðan- verðum Vestfjörðum hefur fengið Jón Gauta Jóns- son viðskiptafræðing til að safna upplýsingum og raða saman efnahags- og félagsleggri mynd af nýju sveitarfélagi. Isafjörður og sveitarfélögin vestan hans að Arnarfirði standa að umræddri sameiningu, en Bolungarvík, Súðavík og hrepp- arnir í Djúpinu, að undanskildum Snæfjalla- hreppi, standa utanvið. Pétur Sigurðsson forseti Alþýðusambands Vestfjarða er formaður nefndar- innar, hann vonast til að hægt verði að boða til kosninga um sameiningu sveitarfélaganna síðla þessa árs og að kosið verði í sameinuðu sveitarfé- lagi að ári. En nú er talið líklegt að fyrir kosning- arnar í vor hafi Snæfjallahreppur sameinast Isafirði að ósk íbúanna þar. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Sljórnsýsluhúsið á Isafirði. Þar eru allar helstu sameiginlegu stjórnsýsluskrifstofur svæðisins. Sléttu-N- hreppur Bolungar- Isafjörður S&; \ yrarhreppur eyrar- hreppur Hólma- víkurhr. Hugmyndir að sameiningu sveitarfélaga í ísafjarðar- sýslum Þrjú sveitarfélög? Suðureyrarhreppur Flateyrarhreppur Iþrótta- og tómstundaráð og S VR hf. íbúar Snæfjallahrepps sem eru undir lágmarksijölda sjálfstæðs sveitarfélags hafa óskað eftir því að mega sameinast Isafirði. Isafjarðar- kaupstaður hefur samþykkt að taka við Snæljallahreppi að sögn bæjar- stjórans á ísafirði, Smára Haralds- sonar. Samkvæmt sveitarstjórnar- lögum ber að skipa nefnd fimm manna, tveggja frá hreppnum, tveggja frá Héraðsnefnd og eins frá félagsmálaráðuneyti, til að undirbúa málin, síðan bætast við tveir frá því sveitarfélagi sem á að sameinast. Beðið er eftir að nefndin komi sam- an, en ef vilji er fyrir hendi á að vera hægt að ganga frá sameining- unni fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor, þar sem engar almennar kosn- ingar þurfa til þessarar sameining- ar. Landamerki núverandi Snæ- fjallahrepps eru í Kaldalóni í suðri og í austanverðu Hornbjargi í norðri. Hreppamörkin liggja þannig að allir íbúarnir á þessu norðursvæði eru í Snæfjallahreppi, það er í Æðey og innst á Snæfjallaströnd og á Horn- bjargsvita. I Sléttuhreppi, sem liggur norðan og vestan Snæfjallahrepps, er enginn skráður íbúi þótt búið sé Hitaveita Reykjavíkur kaupir jarðhitaréttindi 28 millj. fyrir hita- rétt á FremriHálsi BORGARRÁÐ hefur samþykkt kaup á jarðhitarétti og borholum á jörðinni Fremri Hálsi í Kjós. Kaupverðið er 28 milljónir króna. í tillögu Gunnars H. Kristinssonar hitaveitusljóra til stjórnar Veitu- stofnana Reykjavíkur kemur fram að kaupin eru gerð með það í huga að verja jarðhitasvæði veitunnar í Mosfellssveit og dæla þar niður köldu vatni í þeim tilgangi að halda við eða auka afl veitusvæð- isins í Mosfellssveit. I greinargerð Einars Gunnlaugs- sonar jarðfræðings með tillögunni segir að fylgst hafi verið með vatns- borði í borholu að Fremra Hálsi og vatnsborði í holu MG-28 á Reykja- hlíðarsvæði. í ljós hafi komið að gott samræmi er milli þessara mælistaða og ljóst að gott þrýsti- samband er á milli þessara tveggja staða. Tilgreindar eru ástæður fyrir áhuga Hitaveitunnar á jarðhitarétt- inum, en það er friðun á því vatni sem er í tengslum við vinnslusvæði Hitaveitu Reykjavíkur. Hugsanleg niðurdæling á vatni til að halda uppi þrýstingi á vinnslusvæðum veitunnar en sú hugmynd kom fyrst fram fyrir um áratug þegar ljóst var að vatnsborð í borholum í Star- dal sveiflaðist í takt við vinnslu í Mosfellssveit. Loks er bent á hugs- anlega nýtingu þó ekki sé hún sjá- anleg í næstu framtíð. Átta mánaða fangelsi fyrir mök við ungling HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 64 ára rnanu til átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa veitt 15 ára pilti áfengi og haft við hann kynferðismök þegar hann var mjög ölvaður. Maðurinn hefur áður gerst sekur um brot af þessu tagi og var dæmdur fyrir skírlífisbrot 1969 og 1972. Þá var hann sakfelldur fyrir kynmök við tvo pilta, 7 og 15 ára, og ósæmilega hegðun við þann þriðja, 8 ára. Maðurinn var heimilisvinur í fjöl- skyldu piltsins og vandi pilturinn komur sínar til hans eins og hann væri náinn ættingi. í október sl. kom pilturinn til mannsins, sem var langdrukkinn. Piltinum sagðist svo frá, að maðurinn hefði veitt sér áfengi og boðið honum 5.000 krón- ur. Hann hefði gerst mjög ölvaður og vaknað upp við að þeir voru fáklæddir uppi í rúmi og var maður- inn þá að hafa við hann mök. Hann ýtti honum frá sér, klæddi sig og fór heim. Manninum sagðist svo frá að pilt- urinn hefði fengið kók að drekka, en ef hann hafi orðið ölvaður hafi hann tekið áfengi án leyfis. Þá hafi orðið að samkomulagi að pilturinn fengi 5.000 krónur fyrir að eiga við sig mök og hafi það gengið eftir. Trúverðug frásögn Hæstiréttur sagði að frásögn piltsins væri trúverðug og það sem fram hefði komið um kynhneigðir mannins og hegðunarmunstur í skiptum við unglinga styddi sögu hans. Hæfilega refsingu mannsins taldi Hæstiréttur 8 mánaða fang- elsi, óskilorðsbundið, auk þess sem honum var gert að greiða sakar- kostnað, þar með talin 45 þúsund króna saksóknarlaun í ríkissjóð og 60 þúsund króna málsvarnarlaun skipaðs vetjanda síns, Arnar Claus- en. Steingrímur Gautur Kristjáns- son, héraðsdómari, kvað upp dóm- inn. Yngri en 16 ára greiði barnagjald í strætó BORGARRÁÐ hefur samþykkt að allir á grunnskólaaldri greiði bar- nagjald að þeim stöðum sem reknir eru á vegum íþrótta- og tóm- stundaráðs. Þeir sem verða 16 ára á árinu greiði fullorðinsgjald frá 1. júní það ár. Borgarstjóri lagði jafnframt fram tillögu um að regl- ur um fargjöld unglinga með strætisvögnum verði endurskoðaðar og að fullorðinsgjald greiði þeir sem verða 16 ára á árinu frá 1. júní það ár. í um fjörutíu húsum að sumrinu. Nú er unnið að því í félagsmála- ráðuneytinu að sameina Sléttuhrepp Isafirði, en hann er nú án sveitar- stjórnar og því ýmsir erfiðleikar vegna þeirra byggða- og eignarétt- inda sem þar eru. Verði að sameiningu hreppanna tveggja við ísafjörð fjölgar íbúum kaupstaðarins um 13 manns. Ögur- og Reykjarfjarðarhreppar í ísafjarðardjúpi eiga í samningavið- ræðum við Súðavík um sameiningu, en íbúar Nauteyrarhrepps hafa lýst yfir vilja til að sameinast Hólmavík í Strandasýslu. Meirihluti Bolvíkinga lagðist gegn- sameiningu við önnur sveitarfélög með miklum meirihluta. Bæjarstjór- inn í Bolungarvík óskaði samt eftir að fá að sitja fundi sameiningar- nefndarinnar og lagði fyrir hana til- lögu að öðru vinnulagi en ætlað var. Nefndin hafnaði tillögunni og eru því Bolvíkingar einir utan alls samstarfs um sameiningu á norðan- verðum Vestijörðum. Þeir staðir sem eru reknir af Iþrótta- og tómstundaráði eru skíðalöndin, sundstaðir borgarinn- ar, skautasvellið í Laugardal, Hús- dýragarðurinn og Fjölskyldugarð- urinn. Almenningsvagnar í greinargerð með tillögu um lækkun fargjalda 12 til 15 ára grunnskólanema með almennings- vögnum segir að í ljósi þess að tek- ist hafi að draga mjög úr halla af rekstri almenningsvagna í borginni á síðust 3-4 árum þyki eðlilegt að leggja til þessa lækkun. I bókun borgarfulltrúa minnhlut- ans í borgarráði er því fagnað að þetta gamla baráttumál stjórnar- andstöðunnar sé orðið að veruleika. Miðvikudaginn 30. mars Súlnasalur: Þjóðhátíð á Sögu Opinn dansleikur frá kl. 23.30 - 3.00 Mímisbar, opið kl. 19.00 - 3.00 Skírdag 31. mars Grillið, lokað Skrúður, opið kl. 12.00 - 21.00 Mímisbar, lokað Föstudaginn langa 1. apríl Grillið og Astrabar, opið frá kl. 19.00 Skrúður, opið kl. 12.00 - 17.00 Mímisbar, lokað Laugardaginn 2. apríl Grillið og Astrabar, opið frá kl. 19.00 Skrúður, opið kl. 12.00 - 23.00 Mímisbar, lokað Páskadag 3. apríl Annan í páskum 4. apríl Skrúður, opið kl. 12.00 - 23.00 Grillið og Astrabar opið frá kl. 19.00 Mímisbar, lokað Gistideild hótelsins er opin yfir páskana. Kynnið ykkur hagstœtt tilboð á gistingu. v / HAGATORG 107 REYKJAVÍK SÍMI 2 9 9 0 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.