Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.03.1994, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994 UMHVERFIÐ í sýningaþró Ráðhússins heldur FIT — Félag íslenzkra teiknara — hina árlega sýningu sína, og stendur hún út aprílmánuð. A þessu ári eru 40 ár frá stofnun félagsins og mátti lengi vel telja frumkvöðlana á fingrum sér, en nú eru félagsmenn tæplega 140 og fer ört fjölgandi. Það vill svo tií, að sá er hér pikkar á tölvuborð, þekkti meira og minna til allra stofnfélaganna og formaður félagsins til fjölda ára, Ásgeir Júlíusson, var náf- rændi hans og náinn vinur. Þá fylgdist hann vel með vexti og viðgangi auglýsingadeildar MHI um árabil. Það segir sig sjálft að breytingarnar á tímabilinu hafa orðið drjúgar, og nú nefnist fagið grafísk hönnun, sem er eins konar útlagning á orðinu „Graphic de- sign“. Á það mun betur við er svo er komið, og vísast er upprunalega heitið „auglýsingateiknari" orðið úrelt vegna þess hve höndin og rissblýið koma lítið nálægt úr- vinnslu verkefnanna nema í undir- búningsvinnu. Ljósmyndavélin, filman og töl- van hafa tekið við, og menn töfra fram letur á skjánum á auga- bragði og tölvan jafnvel teiknar fyrir gerandann ef vill. í Ijósi þessa er meira en tímabært að breyta nafni félagsins, því það verður að teljast nokkurt rang- nefni er svo er komið. Sýningar undanfarinna ára og svo núverandi undirstrika þetta svo ekki verður um villst, því sára- lítið sést. til fríhendisteikninga, en þeim mun meira er um tölvu- og filmuvinnu. Að mínum dómi er þessi þróun uggvænleg, því að líf- ræn vinnubrögð og þá ekki síst Frá sýningu FÍT. teikningin eru á miklu undan- haldi. Hins vegar er frágangi og glæsilegu útliti viðbrugðið, en í staðlaðri mynd þó. Auðvitað þarf hugkvæmni og þekkingu til að beita tölvu, en ekki skaðar að hafa góða tilfinn- ingu fyrir teikningu og helst þá þjálfun sem einungis fæst við mikla og þrotlausa skólun. Sýn- ingin í ár er í formi veggspjalda sem eiga að vekja horfandann til umhugsunar um mannlífið og umhverfið, og eru þau öll vel gerð en fátt er þó sem ögrar og grípur skoðandann föstum tökum. Flest er unnið á filmur og tölv- ur og slík vinnubrögð festast yfir- leitt mun síður á minnið en snjallt handverk. Þannig mat ég mikils að sjá lífræn vinnubrögð eins og hjá Soffíu Árnadóttur, Sverri Björnssyni, Kristínu Þóru Guð- brandsdóttur og Margréti Ingólfs- dóttur. Og einnig kom fram til- finning fyrir lífrænum þáttum í hreinum og klárum spjöldum Ólafs Unnars Krístjánssonar og Hrafnhildar Sigurðardóttur. — Því miður vakti það mesta athygli hve sýningin nýtur sín illa á staðnum og uppsetningin er bágborin, skilrúmin skítug og lúin og falla að auk ekki inn í hið hráa rými. Er einsýnt að hér verður að ráða bót á, því þetta er ekki staðnum sæmandi. Að auk hefði mátt búast við svipmeiri og metnaðarfyllri sýn- ingu í tilefni þessara tímamóta í sögu félagsins. SÝNINGAR Myndlist______________ Bragi Ásgeirsson Fljótandi form I kjallarasölum Norræna hússins hefur verið opnuð sýning á teikn- ingum norska myndlistarmannsins Olavs Christophers Jenssens og stendur hún til 17 apríl. Er um að ræða farandsýningu á vegum Norrænu listamiðstöðv- arinnar í Svíavirki fyrir utan Hels- ingfors. Það sem helst einkennir myndlist Jenssens, þykir vera eins konar „fljótandi teikning", en kannski mætti frekar skilgreina athöfnina sem flæði ósjálfráðra en vitsmunalegra tákna. í öllu falli minna þessi verk listamannsins á skynrænt táknmál bama á mynd- fleti áður en þau læra að lesa, og þá einkum á bilinu frá þriggja til sex ára, en að því viðbættu að hér er vitsmunalega þroskaður ein- staklingur að verki. Formin eins og líða eftir fletinum og táknin mótast oftar en ekki í hljómfalli við hjartaslátt og snögg geðbrigði. Hér er farið eftir fyrstu og upp- runalegustu hugmyndinni, en formin ekki látin spretta fram eitt af öðru í rökréttu samræmi eða ósjálfráðri framrás, eins og hjá mörgum málurum óformlegrar sköpunar. Hér má einnig tala um áfanga í tíma og rúmi, staðar- reynslur og lifanir, sem þrengja sér inn í meðvitundina og vilja fá útrás. Núlistamenn aldarinnar hafa óspart leitað í hugarheim barna, því hann er svo opinn, milliliðalaus og óþvingaður. Jafnframt einkenn- ist tjáþörf þeirra af forvitni, upp- runalegum og jarðtengdum kennd- um og hreyfiþörf á meðan verkið skríður fram. Barnið teiknar og skynjar með öllum líkamanum og það gerir línuna svo töfrandi líf- ræna. En því er hins vegar um megn að skynja víðáttumikið rúm- samhengi og hér koma fram yfir- burðir hins þroskaða listamanns sem hagnýtir sér sýn barnsins á umheiminn. Olav Cristopher Jenssen er einn þeiiTa norrænu listamanna, sem hafa lagt land undir fót og haldið til Berlínar þar sem svo margt er í geijun um þessar mundir, og þar vinnur hann að list sinni. Jafnframt hefur hann víða flakk- að og leið hans hefur m.a. legið til Buenos Aires í Argentínu. Berlín er í sviðsljósi heimsins í dag líkt og borgin var á árum áður og lista- menn sem leggja leið sína þangað virðast eiga mun auðveldar með að komast í sviðsljósið heima fyrir og þá einkum með fulltingi listam- iðstöðvarinnar. Við höfum orðið varir við þetta hér á útnáranum, því að ýmsir þátttakendur á nú- listasýningum, sem hingað hafa ratað frá Norðurlöndum, lifa og starfa í Berlín. Sýningar frá listamiðstöðinni í Svíavirki hafa annars fyrir löngu fengið á sig fast hugmyndafræði- legt form og sérstakt kennimark, þannig að afmörkuð kynning á þeim er næsta óþörf. Þannig sker þessi sýning sig næsta lítið úr því sem við höfum margséð áður af þessum geira myndlistarinnar, svo að þótt fullgilt sé, getur þetta naumast talist ferskt og óvænt framlag til samtímalistar er svo er kómið. Biblíumyndir í anddyri Norræna hússins verða til sýnis á Dymbilviku, og fram til 17. apríl, 30 myndir, sem danska listakonan Bodil Kaalund Jörgens- sen hefur gert við nýja útgáfu Bibl- íunnar. Bodil var ráðin til að gera 160 myndir í sérstaka viðhafnarút- gáfu nýrrar þýðingar Biblíunnar, er út kom 1992, eftir að hafa verið í þýðingu í 17 ár, og fékk til þess rúman tíma, en samtals tók verkið hana sjö ár. Haldin var sýning á þessum myndum í Helligaandshu- set við Strikið í Kaupmannahöfn, og mun hún hafa vakið dijúga at- hygli. Jafnframt gerði hún nokkur steinþrykk og eru 12 þeirra til sýn- is í anddyri Hallgrímskirkju fram yfir páska. Eitt verka Olavs Christophers Jenssens. Bibiíumynd Bodil Kaalund. Þetta eru vinnubrögð sem menn eiga að taka mjög vel eftir hér á landi, því að jafnaðarlega fá lista- menn alltof knappan tíma til að Ijúka myndlýsingum við bækur, og hvað þá að senda inn tillögur að opinberum listaverkum sem mynd- skreytingum almennt, og að sjálf- sögðu er uppskeran eftir því. Minn- ist sá er hér ritar að eitt sinn fyrir margt löngu fékk hann íjóra daga til að ljúka 20 vignettum í bók nokkra og hafði hann þó aldrei fengist við slíkt fyrr! Sami hama- gangurinn var og í prentverkinu og bættu menn þar við fingraför- um, klessum og óhreinindum . .. Þetta er mikil og fögur biblía sem liggur frammi í Norræna hús- inu og anddyri Hallgrímskirkju, og mjög er hún vönduð yst sem innst, pappírinn óviðjafnanlegur, þunnur og mjúkur viðkomu. Myndlýsingar Bodil Kaalunds eru fyrst og fremst ætlaðar til að gera lesefnið forvitnilegra og hún hefur bersýnilega fengið það hlut- verk að þræða það samviskusam- lega. Nefna má þetta sannferðugar og skilvirkar lýsingar á textanum- og þær klæddar í listrænan bún- ing. Gera má því skóna, að þeir sem stóðu að útgáfunni, sem var Danska Biblíufélagið, hafi síður kært sig um óhefta og rismikla list- ræna tjáningu og hinn viðurkenndi kirkjulistamaður þannig fenginn til verkefnisins sem eins konar mál- amiðlunarlausn. í öllu falli leggst það þannig á mann er flett er í bókinni og við skoðun myndanna á veggjum anddyrisins, að lista- manninum hafi verið ljóst að hann gat ekki leyft sér óheft tjáningar- frelsi nema innan mjög þröngs ramma. Hef ég jafnvel fyrir því áreiðanlegar heimildir, að myndum er þræddu nokkuð samviskulega hinn ástþrungnari texta hinnar helgu bókar hafi verið hafnað. Það gefur strax augaleið að tjáfrelsi listamannsins hafi verið markaðar nokkrar skorður. Hér eru á ferð gömul og úrelt viðhorf og sögufölsun skyld þeim er digur uppsláttarrit myndlistar voru gefin út og hinn ástríðu- þrungnari þáttur hennar afgreidd- ur á 1-2 síðum. Á nýrri tímum er líkaminn ekki lengur óhreinn held- ur mikilvægar umbúðir utan um velferð sájarinnar. Þetta og sitthvað fleira verða menn auðvitað að hafa hugfast við rýni í myndirnar og einnig út frá hvaða grunnþáttum listamaðurinn hafi gengið við gerð þeirra. Það liggur þannig nokkurn veginn ljóst fyrir að hér er leitast við að tengja hefðbundna erfðavenju myndlýs- inga við nýrri og nútímalegri við- horf. Bodil Kaalund kemst vel frá mörgum myndanna, en þó er eins og þreytu og vanavinnubragða gæti í þeim sumum, en þegar hinni grónu listakonu tekst best upp eru þær léttar og hrifríkar og vel falln- ar til að gera lesefnið aðgengilegra. Víddir sjónhringsins í listrými Sólon Islandus sýnir Guðrún Kristjánsdóttir fjögur mál- verk og jafn margar lágmyndir fram til 12 apríl. Guðrún er orðin þekkt stærð meðal upprennandi og framsæk- inna myndlistarmanna af yngri kynslóð og hefur víða sýnt mynd- verk sín. Hinn víði sjónhringur hefur lengi einkennt verk Guðrúnar og á þann veg að henni nægir ekki vana- bundnar stærðir málverka, heldur hefur þær oftar en ekki í yfirstærð á breiðveginn. Það má að vissu marki nefna þetta landalagsmyndir, en einnig formrænar rannsóknir með himin, haf og hauð sem grunnþema og meginása. Jafnframt tekur gerand- inn fyrir rými og Ijarlægðir en þó frekar sem hugrænt innlegg en vinnsluferli á myndfletinum. Við- bótin við þetta eru svo lágmyndirn- ar sem eru líkastar brotinni útlínu sjónhringsins og eru þannig mjög jarðtengdar. En þegar telja má málverkin ekkert annað en hrein og klár málverk í eðli sínu, þá geta lágmyndirnar á stundum nálgast hönnunarstigið, en hins vegar bera þær ótvírætt kennimark skapara síns sem er að sjálfsögðu styrkur þeirra. Fari maður svo í nánari samanburð eru lágmyndirnar af- dráttarlausari og einfaldari og búa yfir meiri nánd og jafnframt yndis- þokka hinnar hvössu, brotnu sem ávölu línu, en málverkin hafa yfir sér meiri Ijarlægðir og dulúð. Og hvað dulúðina áhrærir virðist hún vera að aukast í myndum Guðrúnar og þá einkum í hinum tveim stóru myndum á sýningunni og um leið eins og yfir þeim meiri mýkt en í fyrri myndum hennar. Segja má að munurinn á málar- anum og hugmyndafræðilega lista- manninum, sem byggir iist sína með fulltingi listsögufræðinga og listheimspekinga, sé sá, að málar- inn veit þegar hann notfærir sé sjónrænar blekkingar, en hinir halda í einfeldni sinni, að þeir séu að segja satt. Þótt myndefnið sé harla einfalt og afmarkað verður ekki sagt að Guðrún hafi tæmt það, en á sýning- unni eru verk sem geta bent til þess að hún vilji brjótast út úr því, en það orkar tvímælis að hér hafi hún ávinning enn sem komið er. Guðrún Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.